Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991 . ..... i 7 AUGLÝSING BERÐU EIGIN HAG FYRIR BRJÓSTI-BARNIÐ NÝTUR ÞESS! Kalkþörf bamshafandi kvenna og brjóstmæðra er meiri en annarra einstaklinga. Þær þurfa að sjá bömum sínum og sjálfum sér fyrir nægu kalki í fæðunni og til að nýta það til fullnustu þarf einnig að neyta D-vítamín- ríkrar fæðu. (Lýsi og feitur fiskur t.d. lúða og lax). D-vítamín er nauðsynlegt fyrir upptöku kalksins í meltingarveginum. MORGUNVERÐUR 1 ábœtisskeið lýsi 1 glas mjólk gróft ristað brauð með þykkum ostsneiðum 2 dl ab-mjólk með trefjaríkri kornblöndu te eða kaffi. HÁDEGISVERÐUR Grænmetissalat með osti og eplum Fyrir 2 1 lítið salathöfuð 1 bolli soðin hrísgrjón 1 epli í bitum 2 harðsoðin egg 100 g maís 100 g gúrka í bitum 70 g ostur: brauðostur, Gouda eða Maribó í bitum 25 g gráðaostur. Sósa: 1/2 dl matarolía, kryddedik eftir smekk, salatkrydd, sítrónusafi. Blandið saman grænmeti, hrísgrjónum, epli og ostum í skál. Hrærið sósuefnunum saman og hellið yfir. Blandið varlega saman. Skreytið með eggjabátum og berið fram með grófu brauði. Með þessu er gott að drekka bæði undanrennu og/eða te. OSTAGOTT UM EFTIRMIÐDAGINN Þegar vinir og fjölskylda líta inn til að skoða nýja einstaklinginn er gott að eiga 2-3 tegundir af osti, t.d. Brie eða Camembert, gráðaost og einhvern fastan ost. Með þessum ostum er gott að hafa vínber, epli og/eða perur, ósætt kex og gróft brauð. Munið að láta ostana standa utan kælis í minnst klukkustund áður en þið berið þá fram. Þannig nýtur bragðið sín mun betur. AUKAKflÚ? Oftar en ekki bæta konur á sig nokkrum aukakílóum á meðgöngutfmanum sem þær vilja gjarnan losna við sem fyrst eftir fæðingu. Slíkt er bæði sjálfsagt og eðlUegt en það verður að gerast á skynsamlegan hátt. í staðinn fyrir kaffi og kökur um eftirmiðdaginn er t.d. alveg tilvalið að fá sér te, án sykurs, hrökkbrauð og ríflegan skammt af kotasælu með ananas. Kotasælan er magur ostur og er saðsöm og holl, bæði fyrir móður og barn. Einnig má benda á léttost, sem er magur smurostur, einstaklega kalkríkur. (í 100 g eru 700 mg af kalki.) KVÖLDVERÐUR Það er fleira en kalkið sem barnshafandi konur og brjóst- mæður þurfa að hyggja að. Járn- skortur er t.d. mjög algengur hjá barnshafandi konum og brjóst- mæðrum. Járnrík fæða er m.a. raK.'í-ií WfOfrt rr f-t : allur innmatur, dökkt kjöt, blaðgrænmeti, gróft brauð, fiskur og kartöflur. Eftirlæti, jám“fróarinnar. Fyrir 4 600 g lambalifur salt pipar 40 g smjör 2 meðalstór epli 1 dl sjóðandi vatn 8 sneiðar óðalsostur (150 g) paprika. Hreinsið og þerrið lifrina. Skerið hana í u.þ.b. V/i-2 cm þykkar sneiðar. Kryddið með salti og pipar. Brúnið sneiðarnar á báðum hliðum í smjöri og raðið á smurt eldfast fat. Afhýðið eplin, hreinsið kjarnann úr og skerið í þykkar sneiðar. Steikið á báðum hliðum í smjörinu. Leggið eplin ofan á lifrina. Hellið vatninu á pönnuna og látið suðuna koma upp. Hellið soðinu yfir lifrina. Leggið ostsneið ofan á hverja lifrarsneið. Bakið við 225°C í 8-12 mín, eða þar til osturinn er fallega gulbrúnn. Berið fram með bökuðum kartöflum, köldu smjöri og hrásalati. Ostur er gjöfulli á kalk en nokkur önnur fæðutegund. Úrkölkun er mun algengari hjá konum en körlum og hefst oftast nær eftir aö fertugsaldri er náð. Orsakirnar eru einkum þrjár: Skortur á kynhormónum, skortur á kalki í fæðu og hreyfingarleysi. Með kalkríkri og D-vítamínauðugri fæðu, góðri hreyfingu og útivist, getið þið haldið beinum ykkar „ungum“ lengur. Borðið ost og hreyfið ykkur duglega - daglega. Áhugafélög um brjóstagjöf vilja stuðla að réttu fæðuvali „þín vegna og bamsins“ MUNDU EFÍIR 0ST1NUM Hann byggir upp s 1? r- xrsrsr w IH 'll I—|g>W 'lif M 11911 IMfglfll ? fl f * « æitmwsw * wsiry AUK/SlA k9d21-503
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.