Morgunblaðið - 09.05.1991, Blaðsíða 47
UTMMTC GKJAJf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991
47
En það er sá elsti, þessi tólf ára,
sem var verkstjóri í hlöðunni á
Syðra-Velli á þessum hásumardegi
fyrir röskum fimmtíu árum sem
þessar minningar eru helgaðar.
Þrekmikill og hraustur var hann,
orðinn karlmannsígildi um ferm-
ingu, sem kom sér vel síðar á lífs-
leiðinni bæði til sjós og lands.
Hann hét Gísli Ólafsson, fæddur
á Syðra-Velli í Gaulveijabæjar-
hreppi í Ámessýslu 1. apríl 1929.
Sonur hjónanna Ólafs Sveinssonar
og Margrétar Steinsdóttur, sem
bjuggu á Syðra-Velli frá 1914 til
1959. Ólafur og Margrét eignuðust
16 börn og er Gísli það fyrsta sem
kveður af þeim sem upp komust,
en þau misstu einn son í frum-
bernsku árið 1920, en Gísli lést 2.
maí síðastliðinn eftir 11 mánaða
veikindi.
Eins og orðin hér á undan segja
frá mótaðist líf barna í sveit á þeim
tímum af umgengni við dýrin.
Vinna bamanna var skipulögð eftir
getu og aldri, allt gekk þetta snurð-
ulaust þó hendurnar væm ekki allt-
af stórar. í þessu umhverfi ólst
Gísli upp. Hann fór til sjós á vertíð-
um þegar hann hafði aldur til. Hann
var hjá frændum sínum í Karls-
skála í Grindavík, hjá Agli Jónas-
syni í Njarðvík, einnig var hann
nokkurn tíma á togurum. Gísli var
með Agli á Fróða þegar hann bjarg-
aði mönnunum af enska togaranum
Preston North End sem strandaði
við Geirfuglasker árið 1950 og var
þátttakandi í því mikla björgunaraf-
reki á litlum fiskibáti að ná síðustu
sex mönnunum sem eftir voru í
flakinu áður en það liðaðist í sund-
ur og sökk. Fyrir það fengu skip-
stjóri og skipshöfn viðurkenningu
frá útgerðarmanni togarans. Þegar
Gísli hætti á sjónum vann hann um
árabil við jámsmíðar, en síðustu
árin var hann húsvörður við
Blindraheimiiið í Hamrahlíð 17 í
Reykjavík.
Gísli kvæntist 28. ágúst 1954
Sigrúnu Þorsteinsdóttur. Foreldrar
hennar vom Þorsteinn Jósefsson,
verkamaður í Reykjavík, nú látinn
og Þóra Guðmundsdóttir frá Miðdal
í Kjós sem lifir í hárri elli. Þau Gísli
og Sigrún eignuðust 5 börn. Þau
em: Þóra Guðmunda hjúkranar-
fræðingur, gift Hauki Hafsteinssyni
lögfræðingi og eiga þau 3 börn;
Margrét hjúkmnarfræðingur, hún
á 3 börn; Gísli jarðfræðingur,
kvæntur Ágústu Guðmarsdóttur og
eiga þau 3 börn; Ólafur Sveinn
myndlistarmaður, kvæntur Önnu
Guðjónsdóttur; Guðrún, fædd 1979,
býr í foreldrahúsum.
Gísli og Sigrún byijuðu búskap
á Grettisgötu 55 í Reykjavík en
fljótlega keypti Gísli íbúð í smíðum
á Nönnugötu 16 sem hann innrétt-
aði sjálfur. Seinna keypti hann
stærri íbúð í Hvassaleiti 18 þar sem
þau bjuggu síðan. í Kjósinni komu
þau sér upp sumarhúsi. Þar nutu
þau margra ánægjustunda með fjöl-
skyldunni með umgengni við gróð-
urinn og náttúmna. Hjónaband
þeima var traust og einlægt og virtu
þau hvort annað. Þau lögðu metnað
sinn í að mennta bömin og gera
þau að. nýtum þjóðfélagsþegnum.
Sigrún mín og Guðrún, ykkar er
söknuðurinn sárastur, ég óska þess
að geislar þeirrar sólár sem þerraði
fætur drengsins sem óð í.dögginni
í högunum á Syðra-Velli fyrir fímm-
tíu árum megi einnig þerra tárin
og lýsa upp árin sem í hönd fara,
þess bið ég allrar fjölskyldunnar.
Lát akker falla! Ég er í höfn.
Ég er með frelsara mínum.
Far vel, þú æðandi, dimma dröfn,
vor Drottinn bregst eigi sinum.
Á meðan akker í ægi falla
ég alla vinina heyri kalla,
sem fyrfi urðu hingað heim.
(H. Trandberg - þýð. V. Snævarr)
Blessuð sé minning hans.
Jón Ólafsson
Þrettánda maí á síðasta ári var
haldið ættarmót að Hótel Örk í
Hveragerði. Þar voru samankomnir
afkomendur og makar hjónanna frá
Syðra-Velli í Flóa, þeirra Ólafs
Sveins Sveinssonar og Margrétar
Steinsdóttur. Þar bjuggu þau og
eignuðust 16 börn, þar af lést eitt
á fyrsta ári, drengur að nafni Gísli,
árið 1920.
Á þessu ættarmóti var, að litlu
leyti, rakin lífsganga þessara hjóna
og afkomenda þeirra. Meðal annars
sagt frá ýmsum fmmstæðum að-
stæðum og erfiðleikum vegna fá-
tæktar. Þegar þrettánda barnið
fæddist lágu öll þau eldri í misling-
um. Sá eini sem var á frískum fót-
um var stjúpi húsbóndans, fuilorð-
inn maður. Móðirin fékk lungna-
bólgu og varð nokkuð veik en batn-
aði tiltölulega fljótt. Faðirinn var
við sjóróðra í Vestmannaeyjum sem
endranær. Sambandið við umheim-
inn I þá daga var ekki betra en svo
að ekki vissi hann hvað gerst hafði
fyrr en um lokin, en þá vom allir
komnir til heilsu.
Það sem færði okkur stærsta
gleði á fyrmefndu ættarmóti var
að systkinin finuntán sem upp kom-
ust vora þá öll lifandi og með góða
heilsu miðað við aldur, en hann var
þá 55 til 75 ár. Enginn hafði látist
af afkomendum Syðri-Vallar-hjón-
anna síðan árið 1920.
En nú hafa umskipti orðið. Piltur-
inn sem fæddist inn í mislingana
1. apríl 1929 lést núna 2. maí 1991.
Stórt skarð hefur verið höggvið í
frændgarðinn og verður ekki fyllt.
Hann var burt kallaður þegar
blómin eru að springa út, þegar
jörðin er að byija að grænka, þegar
vorfuglarnir og heit golan. rennir
sér niður af fjallabrúnum kringum
sumarbústaðinn hans í Kjósinni.
Þar undi hann sér löngum með fjöl-
skyldu sinni í skjóli íslenskrar nátt-
úru, fjalla og dala. Hann var einn
þeirra manna sem sá fegurð í lands-
laginu hvar sem hann fór. Hann
kom með vorinu í heiminn. Hann
kvaddi í byijun vors. Einskis þýðir
að spyija. Þó hvarfla að rhanni efa-
semdir. Því mátti hann ekki njóta
fleiri ára, þetta var alltof stutt.. Þó
ekki hefðu verið nema nokkur vor
f viðbót.
En hér verður engu um þokað.
Eftir sitja eiginkona og börn svo
og aðrir frændur og vinir sem sjá
á eftir góðum dreng sem var vors-
ins barn, lífsins og gróandans. Megi
eilíft vor búa í bijósti ástvina hans.
Sífelld birta verður kringum minn-
ingu hans; birta vors og sólar.
Innilegar samúðarkveðjur.
Sigui'steinn Ólafsson
Ótal spurningar vakna og fátt
er um svör, þegar að leiðarlokum
er komið.
Gísli Ólafsson húsvörður hjá
Blindrafélaginu, samstarfsmaður
okkar og vinur, andaðist að áliðnum
degi 2. maí í faðmi fjölskyldu
sinnar. Sú stund sem þau áttu sam-
an við beð ástvinar var fögur og
mun verða þeim helg minning.
Gísli kvaddi um aldur fram, en
um það er ekki spurt. Hann kvaddi
sáttur við allt og alla, var búinn
að gera það upp við sig að hinsta
stund var komin. Veikindum sínum
mætti hann af æðmleysi og kjarki
og kveið ekki óumflýjanlegum við-
skilnaði.
Gísli var hógvær maður og mikið
ljúfmenni, sóttist ekki eftir metorð-
um, en var alltaf viðbúinn ef aðstoð-
ar var þörf. Hann átti góða lund,
var launkíminn, þolinmóður og
traustur. Þessir eiginleikar reynd-
ust vinum hans í Hamrahlíð 17 og
samstarfsmönnum vel.
Húsvarðarhjónin, þau Gísli og
Sigrún, áttu sitt heimili í Hamra-
hlíð 17 ásamt dóttur sinni Guðrúnu.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund, þökkum við Gísla góð kynni
og sendum Sigrúnu og börnum
þeirra og fjölskyldum innilegar
samúðarkveðjur.
F.h; starfsfólks Blindrafé-
lagsins og Blindravinnustofu,
Dóra Hannesdóttir.
Morgunblaðid/Valdimar Kristinsson
Erling Sigurðsson og Þróttur frá Tunguhálsi hlutu bestu undir-
tektir áhorfenda fyrir skeiðsprettina samkvæmt klappmælinum.
Hefðbundnir Hesta-
dagar í Reiðhöllinni
________Hestar____________
Valdimar Kristinsson
HLÝÐNI eða fimiæfingar í
háum gæðaflokki var tvímæla-
laust það sem upp úr stóð af
ýmsum góðum atriðum Hesta-
daga i Reiðhöllinni um helgina.
Tainningameistararnir Eyjólf-
ur Isólfsson og Sigurbjörn
Bárðarson á Dropa frá Hólum
og Höfða frá Húsavík sýndu
þarna krossgang á tölti, aftur-
fótasnúning og sniðgang á tölt.i,
æfingar sem ekki hafa sést
mikið hérlendis. Bæði Sigur-
bjöm og Eyjólfur hafa greiðan
aðgang að að reiðskemmum og
var sýnmg þeirra góður vitnis-
burður um bættar og breyttar
aðstæður til þjálfunar hrossa
hérlendis.
Hestadagar var tæplega
þriggja tíma dagskrá og má segja
að hún hafí verið með mjög hefð-
bundnum hætti. Norðlendingar
sýndu gæðinga sína, bæði A- og
B-flokkshesta og skeiðhestar vom
þahdir af miklum móð í gegnum
Reiðhöllina. Var notaður klapp-
mælir að sögn Júlíusar Bijánsson-
ar þular til mæla hvaða
skeiðknapar hlytu mestar undir-
tektir áhorfenda. Stóðhestar og
hryssur komu fram undir kynn-
ingu Kristins Hugasonar. Þá má
geta sérlega góðrar sýningar
unglinga á höfuðborgarsvæðinu
undir stjórn Ragnars Petersen.
Var þetta vel æft og skemmtilega
útfært atriði, oft á tíðum hálf
glannalegt en allt slapp þetta vel
hjá krökkunum.
Þá mætti kántrýkóngurinn
Hallbjöm Hjartarson eldhress og
söng þijú lög með miklum tilþrif-
um með gráan gæðing bundinn
við buxnastrenginn. Að sjálfsögðu
náði Hallbjöm upp góðri stemmn-
ingu eins og hans var von og vísa.
Dagskránni lauk með snarpri hóp-
sýningu Félags tamningamanna
þar sem ekki var riðið af neinni
hálfvelgju. Gott atriði sem að
skaðlausu hefði þó mátt vera bet-
ur æft.
Alls voru sýningarnar fjórar,
ein á föstudags- og laugardags-
kvöldið og tvær á sunnudag. Hús-
fyllir var eða svo gott sem á laug-
ardagskvöldið en frekar dræm
aðsókn á föstudag. Þetta er þriðja
sýningin sem haldin er á þessu
starfsári Reiðskólans og alltaf
spurning hvað grundvöllur er fyr-
ir mörgum slíkum samkomum.
Kaffihlaðborð Fáks
Stórglæsilegt kaffihlaðborð verður í Félagsheimilinu
laugardaginn 11. maí næstkomandi og hefst kl. 14.00.
Fáksmenn fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Allir velkomnir.
Kvennadeild Fáks.
Blomberg
K Æ L I S K A P A R
Hér sést hluti af úrvalinu,
sem við bjóðum af
BLOMBERG
kæliskápunum.
BLOMBERG er vestur-
evrópsk gæðaframleiðsla
á verði, sem fáir geta
keppt við.
BLOMBERG kæliskápur
er sönn kjarabótl!
Einar Farcstveit&Co.hf.
Borgartúni 28,
símar 622900 og 622901
KS180
185L kæfir
Mál:H!09B50D58 cm