Morgunblaðið - 09.05.1991, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAI 1991
53
Bjössa leið vel í Keflavík, eignað-
ist þar marga góða vini og var mjög
kirkjurækinn. Fyrstu árin fór hann
oftast fótgangandi upp á Völl, og
væri honum boðið far hafnaði hann
því, sagðist vera vanur að ganga
mikið í sveitinni og hann yrði að fá
að hreyfa sig svolítið.
Björn vat' þríkvæntur. Fyrsta
kona hans var sem fyrr segir Jónína
heitin Eiríksdóttir, frá Skeggjastöð-
um. Önnur kona hans var Lára Ims-
land, frá Akureyri, sem einnig er
iátin. Árið 1971 kvæntist hann eftir-
lifandi konu sinni, Guðbjörgu Guðna-
dóttur. Þá fluttist hann til Reykja-
víkur og bjó þar æ síðan, síðustu
árin í Skipasusndi 88.
Kynni okkat' Bjössa hófust ekki
fyrr en hann var kominn yfir sjötugt
en þá kynntist hann móður minni
og gengu þau í hjónaband 5. júní
1971. Eg man glöggt að við hjónin
vissum næstum alltaf af því þegar
Bjössi kom í heimsókn til móður
minnat', því þá bárust jafnan glað-
værir tónar og léttur hlátur upp til
okkat'. Við hrifumst fljótt af Bjössa,
enda var hann léttur í lund og Ijúf-
mannlegt viðmót mótaði alla fram-
komu hans. Hjálpsemi hans og
drenglyndi gerði hann þegar að góð-
um afa í hugum sona okkar sem þá
voru ungir að árum. Og þegar þriðji
sonurinn bættist í hópinn var ekkert
eðlilegra en að hann væri látinn
heita eftir afa, svo vænt þótti okkur
öllum um Björn Kristin. Drengirnir
voru heldur ekki lengi að komast
að því að kæmu þeir til Bjössa með
einhver vandamál var hann ávallt
reiðubúinn að finna góða lausn. Það
gilti þó ekki á sunnudögum meðan
messan stóð yfir í útvarpinu, því þá
sat afi jafnan gagntekinn með
sálmabók í hendi og sinnti engu
öðru en því að syngja með af hjarta,
fullum hálsi.
Bjössi kunni vel að meta góðan
og þjóðlegan mat. Hann kom okkur
á óvart með því að taka alltaf með
sér nestisbita þó að honum stæði til
boða að. fá mat á vinnustað á Kefla-
víkurflugvelli. En hann sagði að þar
fengi hann bara kjúklinga og eitt-
hvert útlent bras, sem hann kærði
sig ekki um. Sjálfur var hann snill-
ingur í að salta sitt eigið íslenska
kjöt.
Síðustu orð frægra manna hafa
oft varðveist og farið víða, en ég
held að síðustu orðin hans Bjössa
eigi ekki síður erindi til margra. Því
þegar honum var greint frá því að
læknirinn vildi gera nauðsynlega
aðgerð þá svaraði Bjössi í fullri ein-
lægni: „Ef það hjálpar, þá er það í
lagi, en annars er ég bara sáttur við
að sofna og mæta Guði rnínum." Já,
hann Bjössi kvaddi þennan heim
sáttur við langa og viðburðaríka ævi.
Við kveðjum nú góðan dreng með
söknuði í huga og þökkum samfylgd-
ina síðustu 20 árin. Guð blessi minn-
ingu Björns Kristins Kjartanssonar.
Guðni Gunnarsson
og fjölskylda.
STEIKARTILBOD
I apríl seldi Jarlinn
um 6.300 grillsteikur.
Ástæóan:
Þær eru góðar - þær eru ódýrar.
NAUTAGRIUSTEIK
m. bak. kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati
KR. 690,-
SVÍNASTEIK
m. bak. kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati
KR. 650,-
BARNABOXIN
vinsælu með Ofurjarlinum:
Hamborgari, franskar og kók (auk
þess sælgæti o.fl.)
KR. 480,-
jarlínn
* G/ntfur í bragði
bragði
TRYGGVAGÖTU - SPRENGISANDI - KRINGLUNNI
.. v f
I I
u
Petta er óneitanlega óvenjulegur og nýstárlegur bíll, - APPLAUSE frá Daihatsu.
Hann sameinar ótal kosti sem nútíma bíleigandi krefst:
Undurgóð fjöðrun ásamt sítengdu aldrifi eða framhjóladrifi valda því að hann liggur
einstaklega vel og er því mun öruggari í akstri.
Kraftmikil, sparneytin vél, vökvastýri og ótrúlega mikið rými fyrir farþega
og farangur gera hann ólýsanlega þægilegan, beinlínis skemmtilegan.
En þetta eru bara orð, við getum haldið lengi áfram.
Þú verður einfaldlega að prófa, þar liggur sannleikurinn.
□AIHATSU
APPLAUSE
- prófaðu bara!
Applause með framhjóladrifi kostar frá kr. 929.000 stgr. á götuna.
Applause með sítengdu aldrifi kostar kr. 1.245.000 stgr. á götuna.
FAXAFENI8 • SÍMI 91 - 68 58 70