Morgunblaðið - 09.05.1991, Blaðsíða 33
Hætt við þátttöku
í EXPO 1992
Of mikill kostnaður hefði fallið á ríkis-
sjóð að mati ríkissljórnarinnar
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið
að hætta við þátttöku í Heimssýn-
ingunni í Sevilla á Spáni á næsta
ári - EXPO ’92. Davíð Oddsson
forsætisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þessi
«ákvörðun væri fyrst og fremst
tekin vegna þess kostnaðar sem
ríkissjóður hefði orðið að taka á
sig, ef af þátttöku hefði orðið.
„Það sem réði niðurstöðu ríkis-
stjórnarinnar var að þetta hefði orð-
ið allt of dýrt. Ríkisstjórnin sem sat,
ákvað um miðjan apríl að tryggja
150 milljónir til þessa verks, en þær
tölur sem nefndin skilaði til okkar
bentu til þess að þessi upphæð gæti
orðið talsvert hærri,“ sagði forsætis-
ráðherra. Davíð sagði að norski út-
gerðarmaðurinn sem hefði viljað
legg|a fram 100 milljónir króna til
að af þátttöku íslands gæti orðið
hefði bundið sitt framlag við þau
sjónarmið sín að skálinn yrði fyrst
og fremst umhverfis- og verndunar-
skáli af íslands hálfu. „Ég er ekki
viss um að það hefði samræmst því
sem stefna hefði átt að með þátttöku
íslands, þótt auðvitað hafi hugmynd-
ir Norðmannsins verið afskaplega
vinsamlegar,“ sagði Davíð.
Forsætisráðherra sagðist telja að
með þátttöku í Heimssýningunni á
Spáni að ári hefðu ekki minna en
200 milljónir lent á ríkissjóði, „og
við höfum bara ekki efni á því. Auk
þess taldi Útflutningsráð íslands að
þessum íjármunum væri ekki vel
varið með þessum hætti,“ sagði Dav-
íð Oddsson.
Vöruskiptajöfnuður fyrstu tvo mánuðina:
Innflutningur 31% meiri
en sama tíma í fyrra
VERÐMÆTI innflutnings fyrstu
tvo mánuði ársins var 31% meira
en sömu mánuði í fyrra, sam-
kvæmt yfirliti Hagstofunnar. Ef
frá eru taldir innflutningsliðir
vegna stóriðju, olíukaupa og sérs-
takrar fjárfestingarvöru, hefur
almennur innflutningur aukist um
33%. Verðmæti útflutnings fyrstu
tvo mánuðina varð 2,7% meira en
sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir
voru 76% alls útflutnings og voru
7% ineiri en í fyrra.
Fyrstu tvo mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 11,6 milljarða
króna, en inn fyrir 12,2 milljárða.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því óhag-
stæður um 600 milljónir króna, en á
sama tímabili í fyrra var vöruskipta-
jöfnuðurinn hagstæður um 2,0 millj-
arða króna. Miðað er við sama gengi.
í yfirliti Hagstofunnar kemur fram
að nokkrar sveiflur urðu á einstökum
liðum inn- og útflutnings. Verðmæti
útfluttra sjávarafurða jókst um 7%
frá sama tímabili í fyrra. Útflutning-
ur á áli jókst um 6%, en útflutningur
kísiljárns dróst saman um 72%. Út-
flutningsverðmæti annarrar vöru var
2% minná en í fyrra.
Verðmæti alls vöruinnflutnings
jókst um 31%. Verðmæti innflutnings
til stóriðju var 74% meira, en verð-
mæti olíuinnflutnings var 5% minna
en sama tímabil í fyrra. Séu þessir
liðir frátaldir ásamt innflutningi
skipa, flugvéla og til Landsvirkjunar,
hefur innflutningur annarra liða, sem
eru 83% af heildarinnflutningi, auk-
ist um 33% frá sama tímabili í fyrra.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Sladdabeinin brædd
ÁGÚST Gíslason eða Áki í bræðslunni hefur í nógu að snúast um
þessar mundir. Mikið fellur nú til af sladdabeinum til að bræða, en
Áki hefur í ýmis önnur horn að líta. Að undanförnu hefur hann verið
við æfingar á leikritinu „Við borgum ekki“ eftir Dario Fo ásamt fleiri
Bíldælingum. Frumsýning var fysta maí og við taka ferðalög með
stykkið víða um Vestfirðina.
Stundakennara-
deilan:
Félagsdóm-
ur fjallar
um frávís-
unarkröfu
MÁLFLUTNINGUR í Félagsdómi
um frávísunarkröfu ríkislög-
manns í stundakennaradeilunni
fór fram á föstudag. Það er Félag
íslenskra náttúrufræðinga sem
stendur að stefnunni til Félags-
dóms til að fá viðurkenndan samn-
ingsrétt stundakennara en málið
var þingfest í febrúar sl. Ríkislög-
maður krafðist þess að málinu
yrði í heild sinni vísað frá og er
aðal ástæða kröfunnar að innan
FIN séu fáir stundakennarar sem
hafi kennt á skólaárinu og að
málið heyri ekki undir Félagsdóm.
Ekki er að vænta úrskurðar um
frávísunarkröfuna fyrr en í næstu
viku.
Auk frávísunarkröfunnar var gerð
krafa um að einn dómenda, Þorsteinn
A. Jónsson, viki úr sæti með þeirri
röksemd að hann væri vanhæfur þar
sem eiginkona hans er stundakenn-
ari. Fór fram sérstakur málflutning-
ur um kröfuna en henni var hafnað
af dómnum.
Sigurður Snævarr, formaður Sam-
taka stundakennara, sagði að þjark
um aukaatriði hefðu tafið meðferð
málsins fyrir Félagsdómi og brýnnt
væri að fá sem fyrst niðurstöðu um
viðurkenningu samningsrettarins en
vitnaleiðslur eru ekki hafnar.
„Aðalatriðið er að fá samnings-
réttinn viðurkenndan en það er
minna mál hvar hann mun liggja.
Það mun taka sinn tíma að búa til
nýjan kjarasamning frá grunni. Það
eru hagsmunir háskólans og ríkisins
að það verði hægt að ganga frá hon-
um áður en skólaárið hefst í haust.
Því verður að fara að hraða þessu
máli,“ sagði Sigurður í samtali við
Morgunblaðið.
LANG ÓDYRASTA PYLSAN
Nú eru Búrfellspylsurnar á sértilboöi og kosta
einungis 474 kr. kg. Þaö býöur enginn ódýrari pylsur.
Lækkaöu matarreikning fjölskyldunnar og kauptu
Búrfellspylsur á sértilboöi.