Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 10
II
10
teer iam .e huoa(iutmmpi aiaAia/'JOHOM
"ð.'MAíTrar
FLAUTUTONLEIKAR
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Kolbeinn Bjarnason flautuleik-
ari og Páll Eyjólfsson gítarleikari
stóðu fyrir tónleikum í Listasafni
íslands sl. mánudag. Á efnis-
skránni voru verk eftir Svein
Lúðvík Björnsson, Mario Lavista,
Harvey Sollberger, Toru Takem-
itsu og Brian Ferneyhough.
Að skiia skugga heitir nýtt
verk, sem frumflutt var eftir
Svein Lúðvík Björnsson og er það
samið fyrir alt- og bassaflautur
og gítar. Verkið er hljóðlátt en
frekar laust í formi, sem aðallega
kom fram í því að á köflum var
ekki um samspil að ræða, heldur
einleik, eins og í aðgreindum
verkum. Vera má að þessi skil
sé túlkun á samvirkum aðskilnaði
skuggans og því sem hann endur-
sýnir í ófullkominni skuggamynd
sinni.
Lamento fyrir bassaflautu eft-
ir Lavista er sorgaróður, hæg-
ferðugur, þar sem lögð er áhersla
á tvíhljóma og voru þessir
„klofnu“ tónar mjög vel útfærðir
hjá Kolbeini.
Rismesta verkið á tónleikunum
var Hara fyrir altflautu eftir
Sollberger. Það vill oftlega
brenna við þegar tónhöfundar
nota einhver leiktæknibrögð, að
þau standa eins og án þess að
verða hluti af tónvefnaði verks-
ins. í verki Sollbergers voru leik-
tæknibrellurnar samofnar tón-
vefnaði verksins og var fiutning-
ur verksins einstaklega glæsileg-
ur.
í mjög fallegu verki eftir Ta-
kemitsu, sem hann nefnir Til
sjávar, léku þeir félagar saman
og náðu að laða fram einstaklega
fallegar sjávarstemmningar. Síð-
asta verkið á efnisskránni var
Mnemosyne eftir Brian Ferney-
hough en hann hefur vakið at-
hygli fyrir flókinn rithátt, sem
er eins konar andstæða „nýja
einfaldleikans“. Það er svo með
allt sem er flókið að þegar úr
greiðist hverfur flækjan og eftir
stendur sakleysilegur einfaldleik-
inn og það var útkoman á verki
Ferneyhoughs. Þama mæðir
nokkuð á flytjandanum en verkið
er samið- fyrir bassaflautu og
segulband. Undirleikur segul-
bandsins var sérlega einfaldur,
nánast eins og „bordún“.
Kolbeinn Bjarnason lék verkið
af öryggi og það sama má segja
um öll verkin en Kolbeinn hefur
sérlega sterka tilfinningu fyrir
merkingu og tónrænu innihaldi
nútíma tónvefnaðar, svo að flutn-
ingur slíkra verka verður í hönd-
Kolbeinn Bjarnason
um hans áhrifamikill. Hann upp-
hefur í raun alla aðgreiningu og
verkin verða það sem einu nafni
nefnist tónlist. Hann naut góðrar
aðstoðar Páls Eyjólfssonar gítar-
Páll Eyjólfsson
leikara í verki Sveins og Takem-
itsu og var samspil þeirra mjög
gott, sérstaklega í sjávar-
stemmningunum eftir Takem-
itsu.
Grafarvogur
Hrísrimi 11
¥* ^
Fallegar íbúöir - frábær staðsetning
íbúðirnar afhendast tilbúnar undir tréverk eða fullbún-
ar. M.a. flísaklædd baðherbergi, gólfefni á öllum gólfum
og loft í risi klædd.
Hús og öll sameign afhendist fullbúin að utan sem inn-
an, þar með talin frágengin lóð og bílastæði.
Mjög góð staðsetning og nýtur garður mjög vel morg-
un- og kvöldsólar. Gott útsýni. Bílskýli undir öllu húsinu.
Verðdæmi: Afh. tilb. u. trév.:
2ja herb. 69 fm. Verð frá kr. 5050.000.-
3ja herb. 73 fm. Verð frá kr. 5620.000.-
3ja herb. 89 fm. Verð frá kr. 6550.000.-
Byggingaraðili: Trésmiðja Snorra Hjaltasonar.
Teikningar og upplýsingar veitir:
ú
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ?
Borgartuni31 Logfr
62 42 50 s
Petur P Sigurðsson hdl.
i.m Osk.irsson.
nþor Obifsson
FASTEIGNASALAN
Sýnishorn
söluskrá
Flyðrugrandi: Höfum í
einkasölu glæsil. 2-3ja herb. 65 fm íb.
á 1. hæð m/sérgaröi í suður. Parket á
gólfum og vandaðar innr. Verð 6,2 millj.
Austurströnd: Glæsil.
51 fm nt. íb. á 3. hæð. Stórar svalir.
Gott útsýni. Upphitað bílskýli. Áhv.
byggsj. 2,0 millj. Verð 5,4 millj.
Nýbýlavegur: Faiieg 3ja
herb. íb. á 1. hæð í fjórb. Góður bílsk.
Laus strax. Verð 7,0 millj.
Ofanleiti: Glæsil. 95 fm íb. á
3. hæð með sérinng. Bílsk. Frábær
stáðsetning.
Vesturhús: Glæsil. tvíbhús
á góðum útsýnisstaö. Húsið er nú fokh.
en mögul. að fá það tilb. u. trév. Fullb.
að utan. Stærri íb. er 186 fm auk 35
fm útgr. rými og 36 fm bílsk. Alls 257
fm. Verð 8,6 millj. Minni íb. er 74 fm
auk 35 fm útgr. rými. Alls 109 fm. Verð
4,4 millj.
Vantar
Höfum ákv. kaup-
endur að eftirfar-
andi eignum:
Atvinnuhúsnæði: 5-600 fm á einni hæð
m/innkeyrsluhurð í Rvík eða nágr.
4ra herb. íb. m/bílsk. í Rvík eða Kóp.
Raðhús í Vesturbæ eða Seltjnesi.
RUNÓLFUR GUNNLAUGSSON, rekstrarhagfr.
KRISTJÁN V. KRISTJÁNSSON, viðskiptafr.
Stokkönd skvettir á sig vatni.
Kynna hegðun dýra
HREFNA Siguijónsdóttir dósent
við Kennaraháskóla íslands mun
laugardaginn 14. maí kynna
stuttlega viðfangsefni dýraat-
ferlisfræðinnar en þá grein hef-
ur hún kennt í Háskóla Islands
og KHÍ i mörg ár.
Farið verður í skoðunarferð til
að líta á fjörufugla og verður Árni
Waage með í ferðinni. Á eftir verð-
ur rabbfundur í Náttúrufræðistofu
Kópavogs, Digranesvegi 12, og
verður myndband notað til að sýna
valin dæmi.
Fyrirkomulag fundarins verður
þannig að fyrst verða fuglar á
Kópavogsleiru skoðaðir og síðan
verður fjallað um ýmislegt í fari
dýra í máli og myndum. Reikna
má með a.m.k. 3 klst. í heildina.
Hafið með ykkur sjónauka og verið
vel klædd. Gott er að hafa eitthvað
heitt með sér að drekka. Börn að
sjálfsögðu velkomin. Mæting kl.
10.30 við Urðabraut skammt vestan
Kópavogshælis.
(Fréttatilkynning)
EG HVERGI HEIMA?
Pýðandi: Árni Bergmann
, Leikstjóri: Mai ía Kristjánsílótlir
Leikmynd: Steinþól* SÍgUlðsSlin
V Búningar: Sigl íður GuðjÓnsdÓUÍI'
Lýsing: Lárus Björnssun
Umsjón með tónlist: Jóhann G. Júhannssun
Leikarar: Bessi Bjamasun, Lggert Purleiissun,
Guðrún Ásmundsdótlir, Guðrún S. Gísladólíir.
Sigríður Hagalín og Þóra FriðriksdóUir.
eftir Alexander Galín
<Bj<B
LEIKFÉLAG
REYKIAVÍKUR
BORGARLEIKHÚSIB
Frumsýning fim. 9. maí kl. 20:00
2. sýning: sun. 12. maí kl. 20:00 (Grá kort gilda)
3. sýning: miö. 15. maí kl. 20:00 (Rauð kort gilda)
Miðasalan er opin daglega kl. 14-20, nema mánudaga frá kl. 13-17,
auk þess er tekið á móti pöntunum í síma 680680
milli kl. 10-12 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta
l!"v'
Kirkjudag-
ur aldraðra
A UPPSTIGNINGARDAG 9. maí
nk. er kirkjudagur aldraðra
haldinn í flestum prestaköllum
landsins.
Nokkur hefð er komin á að
kirkjudagur aldraðra er haldinn á
uppstigningardag eða á nærliggj-
andi helgidögum, þetta fer eftir
aðstæðum. Margháttuðu vetrar-
starfi með öldruðum í hinum ýmsu
söfnuðum landsins lýkur um þetta
leyti, því gjöra menn sér gjarnan
glaðan dag og líta til liðins vetrar,
þakka góðar og uppbyggilegar sam-
verur og eflast til nýrra átaka.
Guðsþjónustur eru haldnar með sí-
vaxandi þátttöku aldraðra og/eða
starfsmanna öldrunarstarfsins, sem
flytja ræður, lesa texta og í nokkr-
um tilvikum syngja kórar aldraðra
við guðsþjónustur.
Tilgangur kirkjudags aldraðra er
fyrst og fremst sá
að beina athygli fólks að þeirri
starfsemi sem fram fer í söfnuðum
landsins með öldruðum,
að hvetja til samstöðu um að
reka rétt aldraðra og veija málefni
þeirra,
að blása til nýrrar og markvissr-
ar sóknar í þjónustu kirkjunnar við
aldraða,
að skapa aðstæður þar sem fólk
getur sameinast í tilbeiðslu og um-
ræðu um rök lífsins.
(Fréttatilkynning frá biskupsstofu.)