Morgunblaðið - 09.05.1991, Blaðsíða 17
'MÖRÖUf!BLA!öfEy.|PÍSIMyM00lt-¥J’4Í)íí>lí^l
Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur:
*
Oánægja með ógildingu á stöðu
aðstoðaryfirlögregluþj óns
Oska eftir fundi með dómsmálaráðherra
STJÓRN Lögreglufélags Reykjavíkur kom saman til fundar í fyrra-
dag, þar sem samþykkt var að óska eftir fundi með dómsmálaráð-
herra til að lýsa óánægju með staðfestingu ráðherra á skipuriti sem
lögreglustjóri hafði gert tillögu um. Felur það í sér að felld verður
niður aðstoðaryfirlögregluþjónsstaða sú, sem Óli Þ. Guðbjartsson,
fyrrv. dómsmálaráðherra hafði skipað í. Að sögn Jóns Péturssonar,
formanns lögreglufélagsins, er óánægja og reiði innan lögreglunnar
vegna þessarar ákvörðunar.
„Við teljum að einhver hafi þrýst
á ráðherra að staðfesta skipuritið
og draga stöðuna til baka og viljum
fá skýringar á þvi á fundi með
honum,“ sagði Jón.
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis-
stjóri dómsmálaráðuneytisins,
sagði að starfsmaðurinn héldi
launum aðstoðaryfirlögregluþjóns,
þrátt fyrir að staðan hefði verið
lögð niður. Ekki hefur getað orðið
af fundinum vegna veikinda ráð-
herra.
„Við teljum að þarna hafi verið
brotin almenn hefð um að ákvörð-
un fyrrverandi ráðherra fái að
standa,“ sagði Jón. „Starfsmaður-
inn, Hilmar Þorbjörnsson varð-
stjóri, sótti um auglýsta stöðu og
fékk hana. Hann hefur 33ja ára
starfsreynslu og hefur reynst mjög
vel. Það er ekki síst mannlega hlið-
in sem skiptir máli í þessu sam-
bandi. Þarna er greinilega um
ægivald ráðuneytisins að ræða.
Við höfum það staðfest að Síðasti
ráðherra var að reyna að gera eitt
og annað fyrir okkur og gefa ráðu-
neytismönnum fyrirmæli en þeir
hlustuðu ekki á það. Það er óvenju-
legt að ráðuneytismenn vinni bein-
línis gegn sitjandi ráðherra. Slkt
mál kom upp í Dánmörku fyrir
skömmu og þar varð ráðuneytis-
stjórinn að segja af sér,“ sagði Jón.
Þorsteinn Geirsson sagði að
dómsmálaráðherra hefði eingöngu
staðfest þá tillögu um skipulag
lögreglunnar sem lögreglustjóri
hefði gert og því ætti tæpast við
að saka ráðuneytið um einhliða
ákvarðanir í málefnum lögreglunn-
ar.
Samkvæmt skipulagstillögu lög-
reglustjóra er staða aðstoðaryfir-
lögregluþjónsins talin óþörf. Jón
sagði að skipuritið hefði verið gert
án nokkurrar kynningar meðal lög-
reglumanna og lögreglufélagið
hefði fyrst í fyrradag fengið það
í hendur, þrátt fyrir að lögreglu-
stjóri hafi gengið frá því í desem-
ber. „Um helgina hafði ég tal af
Böðvari Bragásyni um þetta mál
og taldi að friður yrði um að starfs-
maðurinn sinnti sínu starfi eins og
áður en héldi titlinum og launun-
um. Ég taldi að sú skipan myndi
leiða til að þetta mál félli í ljúfa
löð,“ sagði Jón.
Að sögn Jóns er einnig óánægja
með að skipuritið skuli aðeins ná
til yfirmanna og að þar skuli ekk-
ert tillit tekið til þess hversu marg-
ir lögreglumenn skuli vera á vakt
hverju sinni. Lögreglumenn eru
einnig óánægðir með sífelldar til-
færslur í starfi og ójöfn launakjör
samanborið við lögreglumenn á
landsbyggðinni. „Við óttumst að
þetta nýja skipurit okkar jafni ekki
launamuninn,“ sagði Jón.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Ingunn í garðinum heima hjá sér á Hvolsvelli að
mála mynd af Eyjafjallajökli.
Ingunn sýnir vatns-
litamyndir í Eden
Hvolsvelli.
INGUNN Jensdóttir, leikari, dansari og frí-
stundamálari, heldur sýningu á vatnslita-
myndum í Eden, Hveragerði, dagana 9.-20.
maí nk.
Þetta er sjöunda einkasýning Ingunnar. Við-
fangsefnin eru af ýmsum toga, s.s. uppstillingar
og landslag, en Ingunn hefur ferðast víða um
landið, sett upp leiksýningar og málað. Ingunn
hefur búið undanfarin ár á Hvolsvelli. Þar hefur
hún sett upp leiksýningar fyrir Leikfélag Rangæ-
inga og einnig hefur hún haldið fjölda námskeiða
í postulínsmálun en hún er liðtækur postulínsmál-
ari.
- S.Ó.K.
VEITA AUKNA ANÆGJU VK) RÆKTUN
GUTMAN gróðurhúsin eru þekkt fyrir góðan frágang.
Þau eru byggð úr sverum prófílum, glerið er 4 mm eða
allt að 10 mm plast, engin samskeyti, þannig að þau
þolavel mikið veðurálag. Hægterað fá ýmsa fylgihluti,
svo sem hitastýrða gluggaopnara, vökvunarbúnað,
borð, hillur o.þA GUTMAN gróðurhúsin er hægt að fá
í ýmsum stærðum, allt frá 5 - 38m2 og býður það upp á
marga möguleika. Komið og kynnið ykkur GUTMAN
gróðurhúsin og pantið tímalega.
SMIÐJUVEGl 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 43211
mui i i/nu
SUZUKI SWIFT GA 1989
rauður, ekinn 38 þús. km.
Nei. Verð 530.000,-
SUBARU JUSTY J-10 4x4 1987,
Skipti: rauður, topplúga, ekinn 60 þús. km.
Skipti á ódýrari. Verð 510.000,-
BMW 318i 1986,
þlár, ekinn 68 þús. km. Skipti á ódýr-
ari. Verð 850.000,-
DAIHATSU CHARADE CS 1988,
rauður, ekinn 33 þús. km, topplúga.
Skipti á ódýrari. Verð 570.000,-
TOYOTA COROLLA TWIN CAM
1985,EP blásans., ekinn 72 þús. km.
Skipti á ódýrari. Verð 590.000,-
LANCIA SKUTLA Y-10 1988,
hvítur, ekinn 11 þús. km. Skipti: Nei.
Verð 420.000,-
FORD ESCORT 1300 CL 1987, TOYOTA COROLLA 1.6 LB 1985,
blásans., ekinn 41 þús. km. Skipti á grænsans., ekinn 85 þús. km. Skipti:
ódýrari. Verð 650.000,- Nei. Verð 550.000,-
BILATORG
BETRIBÍLASALA
NÓATÚN 2 - SÍMI621033
CHEVROLET MONZA 1.8 SLE 1987,
þlár, ekinn 41 þús. km, vökvastýri.
Skipti á ódýrari. Verð 550.000,-
FORD ECONLINE 350 1989,
grár og blár, 7.3 diesel, 4x4, upp-
hækkaður, 36“ dekk, gasmiðstöð,
ekinn 8 þús. km. Full innréttaður. Sjón
er sögu rikari. Skipti á ódýrari. Verð
kr. 5.500.000,-
Bílasýning í dag
frá kl. 13-17
SUBARU E10 4x4 1088,
grár, ekinn 48 þús. km, topplúga, 6
manna. Skipti á ódýrari. Verð
650.000,-
MMC L300 4x4 1989,
grásans., ekinn 49 þús. km. Skipti á
ódýrari. Verð 1.480.000,-
»'■11aisii
TOYOTA COROLLA LB 1988,
grásans., ekinn 66 þús. km, sjálfskipt-
ur. Skipti á dýrari, +200-300 þús.
Verð 780.000,-
FORD EXPLORER SPORT 1991,
svartur, 3ja dyra, ekinn 3 þús. km,
með öllu. Skipti á ódýrari. Verð „SUBARU LEGACY GX 2.2 1990,
2.950.000,- svartur, topplúga, sjálfskiptur, ekinn
5 þús. km. Skipti á ódýrari. Verð
-----«=---------- 1.850.000,
BILATORG
BETRIBÍLASALA
NÓATÚN 2 -SÍMI621033
Y
m
NISSAN PATHFINDER 2.4 XE 1988,
steingrár, ekinn 53 þús. km, topp-
lúga, 31“ dekk. Skipti á ódýrari. Verð
kr. 1.680.000,-
Ný söluskrá
- Opið í dag