Morgunblaðið - 09.05.1991, Page 29

Morgunblaðið - 09.05.1991, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991 29 „ Það var jarðsprengja á leiksvæðinu" Á hinum svonefndu „eftirstríðsárum” síðan 1945 hafa ekki færri en 20 milljónir óbreyttra borgara farist í fleiri en 100 styrjöldum og milljónir til viðbótar hafa beðið ómældan skaða og búa við ótrúlegar þjáningar. Meðal hryllilegustu afleiðinga styrjaldarátaka er að saklaust fólk missir limi af völdum sprengiárása og jarðsprengna sem styrjaldaraðilar koma fyrir með þeim hætti að þær granda fleiri borgurum en hermönnum. Hinn 12. maí gengst Rauði kross Islands fyrir landssöfnun og verður því fé sem safnast varið til Kúrdískra flóttamanna og til að koma á fót gervilimasmiðju í Afganistan þar sem þúsundir Afgana bíða þess að fá gervilimi í stað þeirra sem þeir hafa misst vegna stríðsátaka. Einnig þarf að sjá þessu fólki fyrir hjólastólum, hækjum og öðrum hjálpartækjum. í Afganistan eru enn milljónir virkra jarðsprengna í jörðu og má telja víst að þær eigi eftir að valda harmleik hjá þúsundum óbreyttra borgara, jafnvel þótt stríðinu linnti nú þegar. Með framlagi þínu getur þú lagt þitt af mörkum til að gera saklausu fórnarlambi óhugnanlegra stríðsátaka kleift að lifa nokkurn veginn eðlilegu lífi að nýju. Það er siðferðileg skylda okkar að gera allt sem í okkar valdi til að lina þjáningar þessa fólks. Hjálpið okkur að hjálpa þeim. Helmingur söfnunarfjár rennur til kúrdískra flóttamanna +c SÓL ÚR H«1;WÍ1 Alheimsátak til hjálpar stríðshrjáðum ARGUS/SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.