Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 41
M0RŒL^BLAÐIÐ'fimi.,ntJnAGlíR.9:1MAM991
41
Iðnaður og þjónusta
kynnt á Sumarsýningn
UM 30 aðilar, atvinnurekendur og þjónustuaðilar, hafa þegar bókað
þátttöku i sumarsýningu, sem er kynning á iðnaði og þjónustu á Norð-
urlandi og verður haldin í Iþróttahöllinni á Akureyri dagana 7. til
9. júní næstkomandi. Að sýningunni standa Svæðisskrifstofa iðnaðar-
ins á Norðurlandi í samvinnu við Atvinnumálanefnd Akureyrar, Iðnþró-
unarfelag Eyjafjarðar,
lagið á Norðurlandi vestra.
Ómar Pétursson framkvæmda-
stjóri sýningarinnar sagði að við-
Vortónleikar
Tónlistarskólans
ÁRLEGIR vortónleikar yngri og
eldri nemenda Tónlistarskólans á
Akureyri verða haldnir á laugar-
dag, 11. maí, í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju.
Tónleikarnir eru í tvennu lagi og
hefjast þeir fyrri kl. 15, en þar koma
fram yngri nemendur skólans. Leik-
ið verður á píanó, blokkflautu og
fíðlu, m.a. verk eftir Prokofieff,
Weber, Hándel, Baeh og Brahms.
Seinni tónleikarnir hefjast kl. 17,
en á þeim koma fram nemendur úr
píanó-, strengja- og blásaradeildum
og leika fjölbreytta efnisskrá, m.a.
verk eftir Stamitz, Block, Waugham-
Williams, Debussy, og fleiri.
;lag Þingeymga og Iðnþróunarfé-
brögð hefðu verið mjög góð, en fyrir-
tækjum gefst enn tóm til að vera
með þar sem rými verður fyrir á
milli 40 og 50 aðila innandyra auk
þess sem boðið verður upp á úti-
svæði. Hann sagði að nú yrði haft
samband við aðila utan Akureyrar
varðandi þátttöku, en þeir aðilar sem
þegar hafa tilkynnt um þátttöku eru
einkum frá Akureyri.
Markmið sýningarinnar et- að
vekja athygii almennings á vörum
og framleiðslu á Norðurlandi og
gefa sem gleggsta mynd af þeirri
iðnaðar- og þjónustustarfsemi sem
þar fer fram. Jafnframt að stuðla
að eflingu viðskipta við norðlensk
fyrirtæki og auka tengsl og sam-
vinnu þeirra á milli.
Handknattleiksdeild Þórs hefur
verið fengin til að sjá um undirbún-
ing og framkvæmd sýningarinnar
og sem fyrr segir er enn hægt að
skrá sig til þátttöku hjá framkvæmd-
astjóra hennar.
Bamaskólanemar úr
7. bekk í fjöruhreinsun
BÖRN úr 7. bekk Barnaskóla
Akureyrar munu vinna við fjöru-
og ruslahreinsun á laugardaginn,
11. maí.
Hreinsunarátak krakkanna fer
fram undir yfírskriftinni „Gerum
hreint fyrir okkar dyrum". Hafist
verður handa um hádegisbil og
stendur hreinsunin fram eftir degi.
Krakkarnir ætla að tína rusl í ná-
grenni skólans, við Andapollinn og
niður Gilið, en síðan verður ij'aran
frá Torfunefsbryggju og inneftir
hreinsuð.
Nemendur í 7. bekk eru 47 tals-
ins, en foreldrar munu leggja þeim
lið við hreinsunina þannig að búast
má við stórum hópi fólks í þessari
hreinsun.
FJÓRÐUNGSSJÚKBAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Viljum taka einbýlishús eða annað
hentugt húsnæði á leigu til reksturs
skóladagheimilis.
Vinsamlega hafið samband við
Vigni Sveinsson, skrifstofustjóra
FSA.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri
Fyrirlestur
ætlaðuralmenningi og þeim, sem áhuga hafa á
stjórnun stofnana og fyrirtækja.
Dr. Nina Colwill, prófessorírekstrarfræði við
Manitobaháskólann í Kanada, flytur fyrirlestur
næstkomandi laugardag við Háskólann á Akureyri.
Efni: Vald, árangur og tengsl.
Staður: Stofa 24 í húsakynnum Háskólans á
Akureyri v/Þórunnarstræti.
Tími: Laugardagur 11. maí kl. 11.00.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Krakkarnir í 5. bekk Lundarskóla hafa dvalið að Hrísum í Eyjafjarðarsveit og fylgst þar með sauð-
burði og fleiri undrum lífsins í sveitinni.
5. bekkur í Lundarskóla í sveitarferð:
Mjög gaman þegar naut-
in reyna að stanga mann
BÖRN í 5. bekk Lundarskóla
hafa síðustu daga kynnt sér
lífið í sveitinni, fylgst ineð
sauðburði, gælt við hænuunga
og gefið á garðann. Foreldrafé-
lag skólans hefur staðið fyrir
þessuin ferðum að Hrisum og
hefur einn bekkur í senn dvalið
í tveimur sumarhúsum sein þar
eru í sólarhring. Hafa börnin
tekið þessari nýbreytni í skóla-
starfinu vel. Foreldrafélagið
stóð einnig fyrir ferðum af
þessu tagi síðasta vor og er
þess vænst að framhald verði á.
Sigurgísli Sveinbjörnsson bóndi
að Hrísum og fjölskylda hans reka
ferðaþjónustu og eru til staðar
þijú sumarhús skammt ofan við
bæinn. Á bænum getur einnig að
líta sýnishorn af blönduðum bú-
skap; 50 ær, nokkrar kýr og kál-
far auk hænsna að ógleymdum
hinum íslenska Bangsa með
hringað skott. Skepnurnar eru
vanar margmenni og kippa sér
ekki upp við það þó krakkarnir
snúist í kringum þær."
Valgerður Hrólfsdóttir kennari
við Lundarskóla sagði að dvölin
væri bömunum bæði til gagns og
gleði, en mörg börn sem alin
væru upp í bæjum þekktu ekki
af eigin raun til íslensku húsdý-
ranna. Það væri þvi mikilvægt
að eiga þess kost að fara með
bömin í sveitina, þar sem þau
dveldu um tíma.
Krakkarnir sögðu að skemmti-
legast væri að fara í fjósið og
halda á lömbunum. „Það er líka
mjög gaman þegar nautin reyna
að stanga mann, þá bara reynir
maður að forða sér alveg á fullu,“
sagði einn drengjanna. Bömin fá
sameiginlegan morgunverð og að
kvöldinu eru grillaðar pylsur, en
að öðm leyti koma þau með nesti
að heiman. „Við eram með mikið
nesti, ætli það dugi ekki í svona
fjóra daga,“ sögðu þau. Á kvöldin
er kveiktur varðeldur. „Ættum
við að segja draugasögur í kvöld,“
sagði ein stelpan og samsinntu
félagar hennar uppástungunni,
en krakkarnir sögðust kunna
margar slíkar sögur þó ein væri
einkum nefnd; Græna höndin.
Sigurgísli sagði að nokkuð
væri um að hópar sem þessi
kæmu til að fylgjast með lífínu í
sveitinni, en hann hætti kúabú-
skap fyrir tveimur áram og fór
út í ferðaþjónustuna sem hann
taldi eiga mikla framtíð fyrir sér.
Áætlar hann að taka fjórða sum-
arhúsið í notkun í sumar, en í
framtíðinni er fyrirhugað að reisa
12-16 hús á svæðinu. Um 30
þúsund tjáplöntum hefur verið
plantað á svæðinu og frekari
gróðursetningar era á dag-
skránni. „Ætli það hafí ekki verið
ævintýramennska að við fóram
út { þetta í fyrstu, en við stóðum
frammi fyrir því að leggja í mikl-
ar endurbætur á fjósinu. Við völd-
um ferðaþjónustuna fremur og
sjáum ekki eftir því, þetta er mjög
skemmtilegt og fjölbreytnin í
starfinu er meiri en mann óraði
fyrir,“ sagði Sigurgísli.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Flugmódelfélag Akureyrar hélt sýningu á módelum fyrir skömmu.
Á myndinni eru Magnús Ottósson, Kjai-tan Guðmundsson formað-
ur félagins og Björn Sigmundsson, en fyrir framan þá er einn
af yngri félögunum, Steindór Steindórsson.
Flugmódelfélag
Akureyrar:
Brýnt að fá
malbikað-
an flugvöll
Flugmódelfélag Akureyrar
efndi til sýningar á flugmódelum
á sumardaginn fyrsta. Undan-
farna vetur hefur félagið haft
smíðaaðstöðu í íþróttavallarhús-
inu.
Félagið hélt í vetur námskeið á
vegum íþrótta- og tómstundaráðs
í módelsmíði og er einnig stefnt að
því að halda annað slíkt næsta vet-
ur.
Flugmódelfélagið er að byggja
upp flugaðstöðu á Melgerðismelum
ásamt öðrum flugáhugamönnum og
hefjast jarðvegsskipti fyrir malbik-
aðan flugvöll væntanlega í maímán-
uði, þó ekki verði malbikað fyrr en
á þar næsta ári. Flugbrautin á að
vera 8X100 metrar, en félagsmenn
telja að starfsemin standi og falli
með þessum velli.
Félagsmenn segja flesta geta
srníðað og flogið flugmódelum, en
betra sé að fá tilsögn í smíði og
flugi og eru þeir reiðubúnir að að-
stoða þá er þess óska.