Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.05.1991, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991 FLUGDAGURU Kynning á flugi og flugkennslu Bjóðum fólki upp á flugferðir, listflug, þyrluflug o.fl. Kaffi og aðrar veitingar. Allir velkomnir! Vesturf lug hf / Þyrluþjónustcm Reykjavíkurflugvelli, Skerjafjarðarmegin. Flagð undir fögru skinni Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Galdranornin („The Witches"). Sýnd í Bíóborginni. Leikstjóri: Nicolas Roeg. Aðalhlutverk: Anj- elica Huston, Mai Zetterling, Jas- en Fisher, Bill Paterson, Rowan Atkinson. Bandaríkin. 1989. Einvalalið stendur að baki ævin- týramyndarinnar Galdranornarinn- ar. Hún sameinar krafta breska leik- stjórans Nieolas Roegs, sem er.sann- kallaður gaidramaður bíómyndanna, og brúðumeistarans Jims heitins Hensons, sem fremstur var á sínu sviði. Myndin er gerð eftir sögu norska rithöfundarins Roalds Dahls um baráttu drengs við hóp af norn- um og síðast en ekki síst fer banda- ríska leikkonan Anjeliea Huston með aðalhlutverkið. Útkoman er prýðileg fjölskyldu- mynd, kannski full óttaleg fyrir yngstu börnin, en eldri börn á öllum aldri ættu að skemmta sér vel. Myndin segir af dreng sem elst upp hjá ömmu sinni en hún er gagntekin af nornum og varar barnabarnið sitt eindregið við þeim og sérstaklega háyfirnorninni. Sjálf hafði amman komist í tæri við hana í æsku heima i Noregi og misst litlafingur. Þau halda í frí á strandhótel í S-Englandi og viti menn þar eru líka samankomnar á ráðstefnu allar nornir veraldar undir dulnefninu „Konungleg samtök gegn barnaof- beldi“. Þar er einnig háyfirnornin sem Huston leikur glimrandi vel, ill- gjörn og baneitruð, og hún opinberar hryllileg áform sín: Nornirnar skulu með nýju töfralyfi breyta hveijum einasta krakka í landinu í mús. Drengurinn kemst að þessum áform- um en nornirnar ná honum og breyta í mús og þannig verður hann með hjálp ömmu sinnar að stöðva norn- irnar. Roeg leikstýrir kyndugri sögunni með ríkulegum húmor og glensi en af fullri alvöru líka. Ólíkt því sem maður á að venjast frá honum er fásögnin næsta venjuleg. Skemmti- legar eru lýsingarnar á nornunum sem samkvæmt myndinni hata krakka mest af öllu, hafa ferkantaða fætur og eru nauðasköllóttar en klæjar sífellt undir hárkollunni. Það kemur í hlut Hensons að skapa þeim trúverðugt gervi þegar þær fletta af sér hamnum og honum tekst vel upp. Þetta er ljótur nornahópur, en alverst er háyfirnornin Huston, sannkölluð martröð með langt og bogið króksnef, svívirðileg í kjaftin- um og grimmlynd með afbrigðum. Huston hefur greinilega sérstaka ánægju af hlutverkinu og gæðir það lífi með fordæðuskap en líka snert af kímni. Þar fer sannarlega flagð undir fögru skinni. Aukapersónur eru einnig á gamansömum nótum, sérstaklega hótelstjórinn, sem breski grínarinn Rowan Atkinson leikur, og Bill Paterson stelur senunni í hvert sinn er hann birtist sem ger- samlega óþolandi hótelgestur. Galdranornin er ágætis skemmtun fyrir fjölskylduna en yngstu börnin þurfa líkast til stuðning í gegnum nokkur atriði. HÚSNÆÐI í BOÐI Raðhús í Vesturbæ til leigu 5-6 herb. raðhús í Vesturbæ tíl leigu frá 1. júlí í eitt ár eða lengur. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Vesturbær - 14496“ fyrir 14. maí nk. ÝMISLEGT Trésmiðir - vorferð Vorferðin verður farin laugardaginn 11. maí kl. 11.00 frá Suðurlandsbraut 30. Trésmiðafélag Reykjavíkur. HÚSNÆÐIÓSKAST Frí í paradís Við viljum skipta á húsnæði og bíl í 2 vikur í endaðan ágúst 1991. Við eigum fallegt hús á eyjunni Maui, Hawaii. Okkur vantar hús- næði fyrir fjóra (allir fullorðnir) og bíl. Vinsam- legast skrifið til: Robert Hanusa, R.R.1 Box 195, Wailuku, Hawaii 96793 USA eða hring- ið í síma eða fax. +90 808-244-7225. FÉLAGSLÍF Hjálpræóis-i ft|0| herinn \N""'NÚ 2 Hátíðarsamkoma í kvöld kl. 20.30. Majórarnir Anna og Dan- íel Óskarsson stjórna og tala. Hersöngsveitin syngur. Verið velkomin. I.O.O.F. 12 = 173510872 = Lf. I.O.O.F. 1 = 173510872 = LF. Frá Félagi eldri borgara Gönguhrólfar fara af stað nk. laugardag kl. 10.00 frá Hverfis- götu 105. íítmhjálp Hátíðarsamkoma í Þríbúðum fé- lagsmiðstöð Samhjálpar á Hverfisgötu 42, kl. 16.00 í dag. Hvítasunnusöfnuðurinn í Kirkjulækjarkoti annast sam- komuna. Fjölbreytt dagskrá. Stjórnandi: Hinrik Þorsteinsson. Barnagæsla. Allir hjartanlega velkomnir. ■jyfatnU f^vf H ÚTIVIST GRÓFIHNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606 Fuglaskoðunarferð Fimmtud. 9. maí i fylgd með Árna Waag. Kl. 10.30: Komið við á Náttúrufræðistofu Kópavogs þar sem fjallað verður um helstu fugla, sem þátttakendur koma til með að sjá. Stansað við Kópa- vog, Snorrastaðatjarnir og Njarðvíkurfitjar. Þá verður geng- ið frá Garðskagavita suður i Fitjadal og frá Sandgerði að Bæjarskerjum. Komið við i Fuglavík á heimleið. Kl. 13.00: Styttri ferð, sem sameinast ár- degisferðinni við Garðskagavita. Brottför í báðar ferðirnar frá BSÍ-bensínsölu. Stansað á Kópavogshálsi, við Ásgarð i Garðabæ og Sjóminjasafnið í Hafnarfirði. Helgarferðir 10.-12. maí: Eyjafjallajökuli > Gist í Básum. Þaðan verður gengin Hátindaleið yfir jökulinn og komið niður við Seljavelli. Fararstjóri Þráinn V. Þórisson. Þórsmörk - Giljagöngur M.a. farið i hin stórfenglegu gil, Bæjargil og Nauthúsagil, enn- fremur Merkurkerið, Selgil, Grýtugil og Smjörgilin. Þá verður einnig boðið upp á göngur upp á Morinsheiði og yfir í Hamra- skóla ef fariö er 9. maí. Jöklaför- unum fagnað í Seljavallalaug. Fararstjóri Kristinn Kristinsson. Afmælispóstganga í tilefni af því að á mánud. 13. maí eru 215 ár liðin frá því að tilskipun um póstferðir á íslandi var gefin út, efna Póstur og slmi og Útivist til sérstakrar póst- göngu, þar sem flutt verða ábyrgðarbréf eftir gamalli leið úr Grófinni í Keflavík suður i Básenda og áfram i Grindavík, en þessa leið er talið að Sigvaldi Sæmundsson, fyrsti fastráðni landpósturinn, hafi farið í fyrstu póstferðinni 1785. Póstur og sími býður upp á ókeypis rútu- ferð í gönguna. Brottför frá BSÍ- bensínsölu kl. 8, 14 og 18. Þátt- taka tilkynnist Útivist í síma 14606 fyrir föstudagskvöld. Sjáumst! Útivist. ÚTIVIST GRÓFINH11 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARIH606 Útivist um hvítasunnu 17.-20. maí Holl hreyfing - góður félags- skapur Básar - Goðaland Það er tilvalið að fagna nýju sumri á þessu óviðjafnanlega svæði. Gönguferðir við allra hæfi, jafnt fjallageitur og þá, sem eru að byrja í gönguferðum. Góð gisting og hin ákjósanleg- asta aðstaða i Útivistarskálunum I Básum. Kvöldvökur, varðeldur. Fararstjóri Biörn Finnsson. Skaftafell - Öræfasveit Farið að Jökulsárlóni og í Múla- gljúfur, gengið i Morsárdal og Bæjarstaðaskóg. Fararstjóri Eg- ill Pétursson. Öræfajökuli Hér býðst tækifæri til þess að fara á konung jöklanna. Gengin Sandfellsleið á jökulinn. Ekkert klifur, enginn sérstakur útbúnað- ur nauðsynlegur, aðeins góðir gönguskór og hlý föt. Undirbún- ingsfundur fyrir ferðina auglýst- ur síðar. Fararstjóri Reynir Sig- urðsson. Haukadalsskarð - Hrútafjörður Bakpokaferð úr Haukadal, um Haukadalsskarð yfir að Hrúta- firði. Gist i tjöldum. Ný og spenn- andi ferð á hagstæðu verði. Gerðu eitthvað eftirminnilegt um hvítasunnuna og drífðu þig i Útivistarferð. Sjáumst! Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 1953Í Laugardagur 11. maí kl. 10 Fuglaskoðunarferð Ferðafélagsins Árleg fuglaskoðunarferð Ferða- félagsins um Suðurnes og víðar. Farið verður út á Álftanes og siðan til Suðurnesja. Stansað við Garðskaga, Sandgerði og Hafn- arberg og víðar. Stuttar göngur. Tilvalin fjölskylduferð. Þátttak- endur fá lista til að skrá þær fuglategundir sem sjást i ferð- inni. Slík skráning hefur verið í ferðunum frá árinu 1970. í Hafn- arbergi eru allar bjargfuglateg- undir landsins að haftyrðlinum undanskildum. Munið sjónauka og fuglabók. Góðir leiðbeinend- ur verða með í för. Missið ekki af þessari ferð sem er jafn ár- viss og farfuglarnir. Fimmtudagur 9. maí kl. 13 A. Esja - vesturbrúnir. Gengið upp á Kerhólakamb (Feröafé- lagsleiðina) og um vesturbrúnir niður að Ártúni. B. Verferð 2: Nes - Borg - Bakki. Fjöruganga. Þarna var útræði á fyrri tíð. Ágæt fjöl- skylduganga. Verð 1.000 kr., fritt fyrir börn m. fullorðnum. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin. Sunnudagur 12. maí Gönguferð um gosbeltið 4. ferð. A. Kl. 10.30 Slaga - Núps- hlíðarháls - Krísuvík. B. Kl. 13 Höskuldarvellir - Sog - Krísuvík. Fimmtudagur 16. maí kl. 20 Sólarganga og fuglaskoðun á Álftanesi. Ferðin er degi síöar en í áætlun vegna opins húss og ferðakynningar í Sóknarsaln- um á miðvikudagskvöldið 15. mai kl. 20.30. Hvítasunnuferðir 27.-20. maí 1. Snæfellsnes - Snæfellsjök- ull, strönd og eyjar. Góð gisting að Görðum. 2. Þórsmörk - Langidalur. Það hefur vorað snemma í Mörkinni. Gist í Skagfjörðsskála. Göngu- ferðir viö allra hæfi. 3. Fimmvörðuháls - Mýrdals- jökull á ski'ðum. 4. Öræfajökull - Skaftafell. Út- búnaðarlisti á skrifst. Leiðbeint verður í jöklatækni áður en lagt er á jökulinn. 5. Skaftafell - Morsárdalur (nýja brúin) - Öræfasveit. I ferð- um 4 og 5 er val um hús eöa tjöld að Hofi. Helgarferðir á Eyjafjallajökul verða eftir hvíta- sunnu. Gerist félagar i Ferðafé- laginu. Pantið tímanlega i hvíta- sunnuferðirnar. Skrifstofan Öldugötu 3, simar: 19533 og 11798 er opin alla virka daga frá kl. 9-17. Fax: 11765. Ferðafélag islands. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Ræöumaður Garðar Ragnarsson. Allir hjartanlega velkomnir. Skipholti 50b Almenn samkoma i kvöld kl. 20.30. Allir innilega velkomnir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.