Morgunblaðið - 09.05.1991, Side 46

Morgunblaðið - 09.05.1991, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991 Macintosh fyrir byrjendur © Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á 15 klst námskeiöi fyrir byrjendur! Fáiö senda námsskrá. -------— *<? % Tölvu- og verkfræöiþjónustan Grensásvegi 16 - flmm ár í forystu Gísli Ólafsson frá Syðra-VeUi - Minning• NYR ÞJÓNUSTUSÍMI 91-686500 Frá og meö 2. maí 1991 bætum við enn þjónustu okkar með því að taka í notkun nýjan þjónustusíma fyrir varahluti í bíla og vélar. Síminn er 91-68 65 Við minnum einnig á telefaxnúmerið fyrir varahluta- verslunina, 91-67 46 50. Skiptiborðið og varahlutaverslunin verða opin alla virka daga frá klukkan 8-18. Einnig er hægt að fá samband við varahluta- verslunina í gegnum aðalsímanúmer fyrirtækisins, 67 00 m. JUlésúdfiq HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 Fæddur 1. apríl 1929 Dáinn 2. maí 1991 A morgun, föstudaginn 10. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju Gísji Ólafsson, en hann iést 2. maí sl. Eg vil reyna með nokkrum orðum að minnast tengdaföður míns. Gísli fæddist á Syðra-Velli í Gaul- verjabæjarhreppi, Árnessýslu, 1. apríl 1929. Foreldrar hans voru Ólafur Sveinn Sveinsson og Mar- grét Steinsdóttir. Gísli átti stóran hóp systkina, því hann var fjórði yngsti af sextán systkinum. Einn bróðir hans dó á fyrsta ári, en fjórt- án eru nú á lífi þegar Gísli er fall- inn_ frá. Á árinu 1954 kvæntist Gísli Sig- rúnu Þorsteinsdóttur og áttu þau fimm börn og barnabörnin eru orð- in níu. Þau Gísli og Sigrún áttu lengst af heima í Reykjavík, þar sem Gísli stundaði ýmis störf. Síð- ustu æviár sín starfaði hann sem húsvörður hjá Blindrafélaginu í Hamrahlíð 17 í Reykjavík. Það starf átti vel við Gísla. Áuðheyrt var á tali hans, að samskiptin við heimilis- fólkið einkenndist af hlýhug og vin- áttu í garð hinna blindu og sjón- skertu. Þegar ég lít til baka, á ég einung- is góðar minningar um tengdaföður minn. Fyrir allar góðar stundir vil ég þakka og fyrir alla þá aðstoð sem hann veitti mér. Gísli var sér- lega verklaginn maður og alltaf var hann tilbúinn að rétta mér hjálpar- hönd. Gísli var fæddur í sveit og alla tíð hafði hann mikinn unað af nátt- úru landsins. Hann naut þess að vera úti við og ferðast um landið. Þessu áhugamáli sínu, að vera í Fvririiwi ■*•* á börnin bariuwöruw Boðborð • Verð nu 5.895.- Áður 7.885.- • Nlatoístóll Verð nú 4.635.* Áður 5.869.- Feróarúmog 9r'nf Verð nu 9.695.* Áður 12.939.- /MIKUG4RDUR MARKAÐUR VIÐ SUND tengslum við náttúruna, fann Gísli farveg í sumarbústað sínum í Eilífs- dal í Kjós. Þar áttu hann og Sigrún margar góðar stundir. Frá miðju síðastliðnu sumri átti Gísli við erfið veikindi að stríða. í þessum veikindum reyndist Sigrún honum mikil stoð. Umhyggja henn- ar fyrir manni sínum var ómetan- leg. Og kjarkur Gísla og æðruleysi í erfiðum veikindum verða mér ógleymanleg. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég tengdaföður minn og þakka hjartanlega fyrir samfylgdina. Guð blessi minningu hans. Haukur Hafsteinsson Gísli Ólafsson fæddist á bænum Syðra-Velli, Gaulveijabæ í Flóa. Foreldrar hans voru Ólafur Sveinn Sveinsson bóndi og eiginkona hans Margrét Steinsdóttir. Þeim varð 16 barna auðið og af þeim hópi kom- ust 15 á legg. Árið 1954 fluttist hann til Reykjavíkur og lagði stund á véla- viðgerðir og járnsmíði næstu tvo áratugina. 28. ágúst 1954 kvæntist Gísli eftirlifandi eiginkonu sinni Sigrúnu Þorsteinsdóttur. Þau eign- uðust 5 mannvænleg börn, Þóru hjúkrunarfræðing, Margréti hjúkr- unarfræðing, Gísla landslagsarki- tekt, Ólaf myndlistarmann og loks Guðrúnu nema, sem er lang yngst systkinanna. Þau hjón hafa búið í Reykjavík allan sinn búskap. Gísli átti við nokkurn heilsubrest að strfða allt frá unglingsárum og varð því að láta af hinu erfiða starfi járn- smíðinnar er á ævina leið. Hinn 10. ágúst 1981 réðst Gísli til starfa hjá Blindrafélaginu, og hefur gegnt þar húsvarðarstarfi í Hamrahlíð 17 allt til æviloka. Nokkru síðar tók Sigrún að starfa sem matráðskona á vegum félags- ins. Fljótlega er Gísli hafði tekið við störfum komu mannkostir hans í ljós, rólyndi, samviskusemi og hjálpsemi. Skömmu eftir komu sína í hús Blindrafélagsins urðu þau hjónin ómissandi hluti af starfsemi félagsins. Þau sköpuðu íbúum húss- ins í Hamrahlíð 17 öryggi og nutu trausts íbúanna og annars starfs- fólks Blindrafélagsins. Jafnframt tóku þau á sinn hljóðláta og vin- gjarnlega hátt mikinn þátt í öllu félagslífi Blindrafélagsins. Eg var stjórnarformaður Blindra- félagsins er Gísli hóf störf hjá því, en starfaðij'afnframt hjá Öryrkja- bandalagi íslands, þá kynntist ég Gísla sem fyrirmyndar húsverði. Á árinu 1985 varð ég jafnframt fram- kvæmdastjóri Blindrafélagsins með starfsaðsetur í Hamrahlíð 17. Þá kynntist ég fyrst manninum Gísla Ólafssyni. Hann ók mér oft í sam- baridi við störf mín og ýmsar útrétt- ingar. Þá vorum við oft tveir í bíln- um og ræddum saman um lífið og tilveruna. Þá komst ég að því að Gísli var ótrúlega vel lesinn og fróð- ur, og sérlega jákvæður og umburð- arlyndur í afstöðu sinni til með- bræðra og samferðamanna sinna hér í jarðlífinu. Ég er sannfærður um að mannlífið væri mun bjartara og betra ef við ættum fleiri slíka. En orð tii þess að lýsa kostum lát- ins manns eru að jafnaði mun fá- tæklegri en sú manngerð sem mað- ur reynir að lýsa. Ég vil þakka Gísla .Ólafssyni fyrir störf hans í þágu Blindrafélagsins og fyrir þau mann- bætandi áhrif er hann hafði á mig og aðra samferðamenn sína. Ég leyfi mér að samhryggjast eftirlif- andi eiginkonu hans og börnum, og öðrum skyldmennum vegna hins ótímabæra fráfalls hans. En minningin um góðan dreng mun lifa, og það mikla trúnaðar- traust er hann sýndi í veikindum sínum og kyrrlátu fráfalli verður þeim ógleymanleg huggun á þess- ari kveðjustund. Ég kveð Gísla Ólafsson með söknuði, en hlakka jafnframt til að hitta hann aftur hinum megin landamæranna. Guð blessi minningu Gísla Ólafssonar húsvarðar. Halldór Sveinn Rafnar, fram- kvæmdastjóri Blindrafélagsins. Mitt skip er lítið, en lögur stór og leynir þúsundum skeija. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi’er Jesús má veija. Hans vald er sama sem var það áður, því valdi’er særinn og stormur háður. Hann býður: „Verði blíðalogn!” (H. Trandberg - þýð. V. Snævarr) Það er hásumardagur og búið að vekja okkur börnin, það er hirð- ingardagur framundan. Tveir drengir eru lagðir af stað með beislakippur á bakinu út í hagann að ná í hestana. Það er dögg á grasinu eftir áfall næturinnar svo fætur drengjanna digna, en morg- ungeislarnir þerra það aftur þegar sólin hækkar á lofti. Hestarnir liggja aflangir og sofa. Þegar þeir verða drengjanna varir standa þeir upp einn af öðrum. Þeir ná þeim öllum því þeir eru spakir eftir brúk- un síðustu daga. Allt gengur þetta eftir áætlun, hestarnir eru lestaðir, hnýtt hveijum aftan í annan og teymdir heim þar sem reiðingarnir eru lagðir á. Lestin er farin niður á engjar. Heima eru fjögur yngstu systkinin. Systirin hjálpar móður sinni en bræðurnir þrír eiga að taka á móti lestinni þegar hún kemur, hleypa böggunum ofan af hestunum með þeim sem fór á milli, koma þeim í hlöðu, leysa úr, gera upp reipin og hafa þau tilbúin ef kallað er eftir þeim, þá eru þau hnýtt saman í bunka og sett á einn hestinn til baka. Svona gengur dagurinn til kvölds. Börnin eru á aldrinum sjö til tólf ára. Sá sem er elstur er í hlöðunni, en þeir yngri velta böggunum til hans þar sem hann hleður úr. Það hækkar í hlöðunni á stórum hirðing- ardegi. Það er metnaður í drengjun- um að hafa við heimreislunni, vera búnir að ganga frá heyinu og reip- unum og jafnvel hafa smá stund til hvíldar á milli, og stoltið er ekki minna þegar faðir þeirra kemur í hlöðudyrnar um kvöldið og lítur yfir dagsverkið. t Hjartans þakkir sendum við öllum fjær og nær, sem sýndu okkur samúð og kærleika við andlát og útför SIGURÐAR JÓELSSONAR frá Sælundi, Vestmannaeyjum. Fanney Ármannsdóttir, Jóel og fjölskylda, Þórdís Jóelsdóttir og fjölskyldur. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, AUÐAR HALLGRÍMSDÓTTUR, Staðarhvammi 1, Hafnarfirði. Viktor Aðalsteinsson, Helen Viktorsdóttir, lan Stuart, Hallgrímur Viktorsson, Ragnheiður Rögnvaldsdóttir, Viktor Viktorsson, Ásrún Vilbergsdóttir, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.