Morgunblaðið - 09.05.1991, Síða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991
f
£
,,A1ér era/veg sasncx. þb a& Þ&& komi að
gagni. Se ttu t>aé afturrL sinn séað."
Ast er...
... að koma sjálf með
skilaboðin.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
® 1991 Los Angeles Times Syndicate
POLLUX 'F 552
Nei. Við erum ekki að
sökkva. Sundlaug'in er að
tæmast ...
HÖGNI HREKKVÍSI
„ þú Atriíe ao ótvega aiér eitth</ag>
TIL AB SVM/A C<5 SBG3A FRÁ I ■SkÓLAtMM."'
í
Barnaskírn er
ekki villukenning
- svar til Eydísar Jónsdóttur
Eru þeir til sem segja að Guð sé
lygari? Hver sá, hann eða hún, sem
heldur því fram að kirkja, sem Jes-
ús stofnaði, sé fráfallin kirkja og
fari með villukenningar, sá gerir
Jesúm þ.e. Guð að lygara. Og slíkt
háttalag er líka að gera hann að
djöfli, af því að Biblían kallar djöful-
inn lygara og föður lyginnar. (Jóh.
8, 44.)
Jesús stofnaði kirkju. Þegar Sím-
on hafði sagt: „Þú ert Kristur, son-
ur hins lifq.nda Guðs,“ sagði Jesús
við Símon: „Sæll ert þú, Símon Jón-
asson. Hold og blóð hefur ekki opin-
berað þér þetta, heldur faðir minn
á himnum og ég segi þér: Þú ert
Pétur, kletturinn, og á þessum kletti
mun ég byggja kirkju mína og
máttur heljar mun ekki á henni sigr-
ast. Ég mun fá þér lykla himnarík-
is og hvað sem þú bindur á jörðu,
mun bundið á himnum, og hvað sem
þú leysir á jörðu, mun leyst á himn-
um“. (Mt. 16, 16—19.) Og áður en
Jesús var uppnuminn til himna stað-
festi hann þetta með því að skipa
Pétur hirði lamba sinna og sauða,
já, hann skipaði hann hirði yfir
kirkju sinni. (Jóh. 21, 15—17.) Páll
postuli kallar svo kirkjuna líkama
Krists og Jesúm nefnir hann höfuð
hennar. (Efesusbr. 1, 22—23.) Og
síðan má ekki gleyma orðum Jesú:
„Ég mun biðja föðurinn og hann
mun gefa yður annan hjálpara, að
hann sé hjá yður að eilífu, anda
sannleikans."
Sá sem segir að kirkjan hafi þeg-
ar fyrr á öldum verið fráfallin og
kennt villukenningar, gerir Jesúm
að lygara, af því að hann og Heilag-
ur Andi hefðu þá auðvitað skilið
við slíka kirkju. En Jesús er ekki
lygari, heldur sá sem ber honum
slíkt á brýn og sakar hann um villu-
kenningar, alveg eins og djöfullinn
er faðir lyginnar.
Barnaskírn er ekki villukenning
frumkirkjunnar, það er nú eitthvað
annað. Frumkirkjan sýnir einmitt
börnum sínum ást sína í barnaskírn-
inni og fer þar jafnvel eftir fyrir-
dæmi Guðs í Gamla testamentinu
af því er varðar umskurnina. Um-
skurnin var tákn sáttmálans milli
Guðs og gyðinganna. Allir í húsinu
áttu að umskerast: „Umskera skal
bæði þann, sem fæddur er í húsi
þínu eins og þann, sem þú hefur
verði keyptan. Ef útlendingur býr
hjá þér og vill halda Drottni páska,
þá skal umskera allt karlkyn hjá
honum, og skal hann þá vera inn-
borinn maður." (2. Mósebók 12,
48.) Við sjáum að umskurn náði til
allra á heimilinu. Hjá frumkirkjunni
kom syo skírnin í stað umskurnar-
innar. Páll postuli bendir sjálfur á
þetta, þegar hann kallar skírnina
„umskurn Krists".
Fyrst við sjáum í Postulasög-
unni, að allt heimilisfólkið hafði
verið skírt (Post. 16, 15.34) og það
sama sést hjá Páli (1. Kor. 1, 16),
þá ættum við að geta verið sam-
mála J. Jeremíasi, frægum biblíu-
sérfræðingi. Hann skrifaði bók, sem
ijallar um barnaskírn á fyrstu öld-
unum fjórum, þar sem greint er frá
gyðingum, sem komu með skírnina
inn í kirkjuna eins og þeir höfðu
áður gert með umskurninni.
Enginn vissi meira um þessa sið-
venju en Origenes, sem var með
biblíuskóla í Palestínu, og staðfestir
hann það sem hér er fram komið.
Tertullianus sem uppi var í Túnis
á þriðju öld, telur hins vegar rétt
að bíða með skírn, þar til viðkom-
andi hafi öðlast persónulega synda-
tilfinningu (vitund um synd). En
Páll postuli kennir að við séum öll
undirorpin erfðasynd Adams og
þess vegna kenna Agústínus og
kirkjan að nauðsynlegt sé að skíra
alla og þá auðvitað líka börnin, sem
verða þá meðlimir kirkjunnar þegar
frá frumbernsku.
Sr. Jónas Gíslason þýddi fróðleg-
an bækling um erfðasyndina (útgef-
andi Kristilegt stúdentafélag). Öll
ættum við svo að vita og þá sérstak-
lega mæður, að kristilegt uppeldi
hefst snemma. Á þetta minnir bók-
in „Daglegt líf á dögum Krists",
sem dr. Jakob Jónsson þýddi. Þar
segir: „Börn í Gyðingalandi voru frá
frumbernsku alin upp í alveg sér-
stöku andrúmslofti. Með umskurn-
inni (skírninni) var barninu veitt
viðtaka í söfnuðinn. Móðirin veitti
smábörnunum frumatriði þekking-
arinnar og allt umhverfis sig á
Umbamaskirn \
Til Velvakanda. innar tnlar, og eyðileggur auk að
Hinn 16. íebníar birtist I Vel- þeaa hlna fðgru táknmynd aklmar- us
vakanda grein eftir sr Jón Habcta innar. Sklmln tiknar dauða, bí
þar sem hann flallar um gildi greftrun og upprisu Jesú Krists. in
bamasklmarinnar. Ég vil benda í Sj4 R6m. 6:3-6. Eina og Jesús var ti
þá staðreynd að bamaskímin er krossfestur og dó, var grafinn og í
ein af villukenningum fráfallinnar reis svo upp, þannig táknar það I
iciiui mn i annnina lyrr a oiaum. inni, p.e. er Krossiesiur meo ivnsu e
Vitað er að heiðnir menn jusu og segir akilið við sitt fyrra synd- «
vatni á bðm sln er þeim varéefið uga llfemi. Hann er greftraður I a
nafn. Pálll postuli yaraði við að vátninu og ris alðan (upp úr vatn- e
eftir burtfðr hans mundu koma inu) til að ganga I cndumýjun llfa- k
ólmir vargar er eigi þyrma hjðrð- ins með Kristi.
inni, og að úr þeirra eigin hðp Ungbam hefur engra aynda að
mundu risa upp menn er mundu iðrast og hefur ekki þroska og i
með ranganúna lærdóma. vitsmuni til að skijja og meðtaka d
20:29,30. veginn til frelsunarinnar. Það er þ<
Þegar á 2. Sld eftir Krist kom ekki þar með sagt að bðm aéu in
fram sú hugsun að taka msetti inn útilokuð frá Guðsríki, það er að-
I söfnuðinn bðm kristinna foreldra
með þvl að sklra þau. Fyrst var
talað um bðm á aldrinum 6-10
heimilinu sá barnið gerast allskonar
lærdómsríkar athafnir með trúar-
legri merkingu, löngu áður en það
kunni að lesa. Fjöldinn allur af sið-
venjum stóð t.d. í sambandi við
hvíldardagshaldið (sunnudag) og
hinar ýmsu hátíðir, einkum pásk-
ana. Börnin fengu einnig fræðslu
um kafla úr ritningunni og suma
sálmana urðu þau að læra utan að
(Davíðssálmana). En 5-6 ára gömul
skyldu þau byija í skólanum.“
Væri nokkuð á móti því, að við
kristnir menn, hefðum heimþrá til
slíks heimilis, eins og þá var aðal
gyðinganna? Jú, það er vissulega
gott að við kristnir menn tökum
líka ungbömin í söfnuðinn eins og
gyðingar gerðu skv. vilja Guðs. (1.
Mósebók 17, 9—14). Við vitum svo
sannarlega að Jesús Kristur skv.
Mt. 28, 20: „til enda veraldar" og
Heilagur Andi skv. Jóh. 14, 16:
„hjá yður að eilífu", ljúga ekki.
Þeir eru með kirkjunni sinni.
Jesús sagði við Pétur (Lk. 22,
31-32): „Símon, Símon, Satan
krafðist yðar að sælda yður eins
og hveiti. En ég hef beðið fyrir
þér, að trú þín þijóti ekki. Og styrk
þú bræður þína, þegar þú ert snú-
inn við.“ Jesús sagði þetta af því
að hann vissi að stund veikleikans
myndi koma yfir Pétur, en Jesús
sigraði einmitt sjálfur allar freist-
ingar og var því fær um að vera
með og varðveita Pétur. En þar
með blasir þáð þá líka við okkur,
sem við getum algjörlega treyst,
að Jesús sé einnig með hinum 266
eftirmönnum Péturs, sem hirðum
kirkjunnar.
Ef við viljum íjúfa eininguna í
Guðs kirkju, þá er nóg, að „slá hirð-
inn og sauðirnir munu tvístrast".
(Mk. 14, 27). En Jesús vill einingu:
„Og það verður ein hjörð og einn
hirðir." (Jóh. 10, 16.) Hlýðum hon-
um.
Séra Jón Habets
Víkveiji skrifar
Hún var skondin frétt Morgun-
blaðsins í fyrradag um þau
mistök sem áttu sér stað þegar
Árna Matthíassyni blaðamanni var
sent þingfararkaup Árna Mathiesen
alþingismanns. Þarna var um að
ræða mannleg mistök, sem hafa
verið leiðrétt.
Hitt var öllu sorglegra að sjá í
sömu frétt hve laun alþingismanna
eru skammarlega lág, þegar haft
er í huga að þetta er eitt kröfuharð-
asta og ábyrgðarmesta embætti
þjóðfélagsins. Þegar búið er að
draga frá staðgreiðslu skatta og
greiðslu í lífeyrissjóð fær þingmað-
urinn 115.913 krónur til ráðstöfun-
ar. Víkverja er til efs að þingmanna-
laun séu lægri í nokkru öðru lýð-
ræðislandi.
Þegar þessi lágu laun eru höfð í
huga er með ólíkindum hve mikið
erfiði margir leggja á sig til þess
að komast í þessa vinnu!
XXX
Sumum finnst Svíar með afbrigð-
um leiðinlegir og hrokafullir.
Ekki ætlar Víkveija að leggja neinn
dóm á það, en hitt er víst að Svíar
eru ótrúlegir hæfileikamenn. Um
síðustu helgi eignuðust þeir heims-
meistara í ísknattleik og borðtennis
og sigruðu einnig í Evróvision-
söngvakeppninni. Þeir eru heims-
meistarar í handknattleik, knatt-
spyrnulið þeirra er í hópi þeirra
beztu í heimi og svo eiga þeir af-
reksmenn í fremstu röð í mörgum
íþróttagreinum, svo sem á skíðum,
í tennis og bifreiðaíþróttum. Lista-
menn og vísindamenn eiga þeir í
fremstu röð og áfram mætti telja.
Víkveiji tekur ofan hatt sinn fyrir
frændum okkar Svíum.
xxx
Undanfarna daga hefur verið
að koma í ljós að sumir ráð-
herrar í fyn-verandi ríkisstjórn hafa
beitt valdi sínu með mjög svo um-
deilanlegum hætti. Núverandi
dómsmálaráðherra hefur m.a. séð
sig knúinn til þess að afturkalla
ýmsar embættisveitingar fyrirrenn-
ara síns. í kosningabaráttunni voru
ráðherrar Alþýðubandalagsins í
sviðsljósinu vegna útgáfu kosn-
ingabæklinga og samninga um
mannvirki víðs vegar um landið,
sem kosta skattborgarana stórfé.
Víkveiji er þeirrar skoðunar að
með einhveijum ráðum verði að
takmarka vald ráðherra svo sama
sagan endurtaki sig ekki. Það verð-
ur að gera þá kröfu til nýs Alþing-
is, að það taki strax á þessu máli.
XXX
Víkveiji sá í Morgunblaðinu í
gær að aðeins eru eftir tvær
sýningar á Pétri Gaut í Þjóðleikhús-
inu. Því er ástæða til þess að hvetja
menn til að fara í leikhúsið og sjá
þessa mögnuðu sýningu. Annað
tækifæri til að sjá Pétur Gaut gefst
vart næstu áratugina.
Aðsókn að sýningunni hefur
valdið vonbrigðum. Vissulega er
verkið þungt og langt en Víkveiji
naut hverrar mínútu. Frábær leikur
Arnars Jónssonar stendur ljóslif-
andi fyrir hugskotssjónum. Menn
voru ekki á eitt sáttir um að ný
tónlist skyldi samin við leikinn. Vík-
veija líkaði vel tónlist Hjálmars
Ragnarssonar á sýningunni. Söngur
Sólveigar hinn nýi var.spilaður í
útvarpinu í gærmorgun og þá sann-
færðist Víkveiji um að þessi tónlist
á eftir að verða sígild.