Morgunblaðið - 09.05.1991, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 09.05.1991, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTSR FIJMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991 ------------------------... .. ..... ........ SVIÞJOÐ Sænsku leikmennirnir fagna heimsmeistaratitlinum eftir sigurleikinn á Sovétmönnum í Finnlandi um síðustu helgi. Gullregn ÞESSA dagana fara sænskir mikinn í íþróttaheiminum og safna að sér heimsmeistaratitlum svo að með ólíkindum er. í síðustu viku urðu þeir heimsmeistarar í liðakeppni íborð- tennis, á laugardag heimsmeistarar í íshokkkí, á sunnudag heimsmeistarar í tvíliðaleik karla í borðtennis og á mánudag varð Jörgen Persson meistari f einliðaleik karla eftir að hafa unnið landa sinn Jan-Ove Waldner i úrslitaleik. Svíar ráða sér vart af kæti yfir öllum þessum sigrum og eru fjölmiðlar upp- fullir af myndum og frásögnum af öllum þessum meisturum. Mitt í öllum þessum látum vann síðan hin sænska Carol, söngvakeppnina, þannig að sænskir eru bókstaflega að rifna úr monti yfir unnum sigrum á alþjóðavettvangi. GrétarÞór Eyþórsson skrifarfrá Svíþjóð Montnastir eru þó Svíar af íshokkílandsliði sínu, sem þeir kalla „Tre Kronor", enda er íshokkíið íþróttagrein númer eitt hér í landi. Aðal- fréttatímar sjón- varps á laugardag og sunnudag voru nánast helgaðir íshokkíliðinu og heimkomu þess, þar sem 20.000 manns fögnuðu liðinu í miðborg Stokkhólms. Ein- um leikmanni er hampað meir en öðrum, undrabarninu Mats Sund- in, 20 ára gömlum leikmanni Quebec í Kanada, en hann gerði úrslitamarkið, 2-1, í leiknum við Sovétmenn á laugardag. Þetta mark hefur verið sýnt hér hvað eftir annað í sjónvarpi, enda ger- ast mörk í íshokkíi varla betri. Sundin einlék gegnum sovésku vörnina og sendi „pökkinn“ óveij- andi milli fóta markvarðarins; snerpan og krafturinn nánast lygileg hjá þessum unga leik- manni sem einnig gerði mikilvæg mörk gegn Finnum er hann gerði 2 mörk á síðustu 48 sekúndum leiksins og jafnaði, 4-4. Fleiri leik- menn hafa þó vegið þungt fyrir Svía í keppninni, t.d. markvörður- inn Rolf Ridderwall, Thomas Rundquist og Hákan Loob. Borðtennis er einnig að verða sænsk grein, Svíar vörðu nú titla sína frá 1989, bæði í liðakeppni og einliðaleik og í honum léku sömu menn til úrslita og 1989. Þá vann J-0 Waldner, en nú náði Jörgen Persson fram hefndum og vann í þremur lotum. Það óvænta var að Svíar unnu tvíliðaleikinn, enginn hafðl reiknað með félögun- um Peter Karlsson og Thomas von Scheele og titill þeirra er af sér- fræðingum talinn eitt það óvænt- asta í sögu heimsmeistarakeppn- innar. Það er af sem áður var að austurlandaþjóðirnar ráði lögum og lofum á borðtennisborðinu. Það má telja það með ólíkindum hversu stór þessi 8 milljóna manna Norðurlandaþjóð er orðin í íþróttaheiminum. Að nánast ein- oka borðtennis, eiga besta tennis- leikarann, heimsmeistara í íshokkíi og í handknattleik er nokkuð sem hvaða stórþjóð gæti verið stolt af. Sú staðreynd blasir við í dag að Svíþjóð er að verða, ef ekki orðin, eitt af stórveldunum í íþróttaheiminum. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ Þorbergur með 16 leikmenn Enn óvíst með leikreyndustu mennina U-21 í sterkum ríöli orbergur Aðalsteinsson, lands- liðsþjálfari í handknattleik, hefur valið 16 leikmenn vegna undirbún- ings fyrir B-keppnina, sem verður seinni hluta mars á næsta ári í Aust- urríki. Æfingar eru þegar hafnar og verður æft nær daglega til 24. maí. Síðan verður bytjað aftur 6. júní og sami háttur hafður á, en í byijun júlj eru fjórir landsleikir ráðgerðir. í hóp Þorbergs að þessu sinni vant- ar nokkra leikmenn, sem hann gerir sér vonir um að verði með í B-keppn- inni. Geir Sveinsson bætist við í júní og landsliðsþjálfarinn segir að Alfreð Gíslason sé mjög jákvæður fyrir því að vera með í sumar. Birgir Sigurðs- son gefur ekki kost á sér að sinni vegna persónulegra ástæðna og enn er óvíst með Sigurð Sveinsson og Einar Þorvarðarson, en Einar Sig- urðsson, Gústaf Bjarnason og Patrek- ur Jóhannesson verða með U-21 lið- inu í sumar. „Það er erfitt að vinna við þessar aðstæður og hugsanlega verður ekki ljóst fyrr en skömmu fyrir keppnina, hverjir koma í raun til greina,“ sagði Þorbergur um stöðu mála á blaða- mannafundi í gær. 20 til 25 leikir fyrirhugaðir Gert er ráð fyrir að landsliðið leiki 20 til 25 leiki fram að B-keppninni. 1. og 3. júlí verður leikið gegn Dönum í Danmörku og verið er að reyna að fá leiki við Svía í sömu ferð eða 5. og 6. júlí. Tékkar vilja koma og leika 15. og 16. september, en 13. til 17. nóvember tekur liðið þátt í sterku móti í Ungveijalandi ásamt heima- mönnum, Júgóslövum, Svisslending- um og Austurríkismönnum. Svíar koma og verða leikir gegn þeim 2. til 5. janúar, en 22. til 26. janúar verður tekið þátt í móti í Austurríki. Júgóslavar eru tilbúnir að leika hér þijá leiki 1. til 10. mars, en B-keppn- in verður 19. til 29. mars. U-21 liðið tekur þátt í lokakeppni HM í Grikklandi 4. til 14. september og hefur Gunnar Einarsson valið 20 leikmenn til undirbúnings, sem hefst í dag. Helsta verkefnið í sumar verð- ur mót á Spáni 12. til 22. júlí, þar sem átta efstu þjóðir úr síðustu HM leika. Dregið hefur verið í riðla á HM í Grikklandi og er ísland í riðli með Sovétríkjunum, Rúmeníu go Júgó- slavíu, en 16 lið taka þátt. Eftirtaldir leikmenn skipa annars landsliðshópana: A-liðið: Guðmundur Hrafnkelsson..................FH Bergsveinn Bergsveinsson................FH Sigmar Þröstur Óskarsson...............ÍBV Magnús Amason.......................Haukum Jakob Sigurðsson.......................Val Axel Bjömsson....................Stjömunni Konráð Olavson....................... KR Valdimar Gn'msson......................Val Sigurður Sveinsson......................KR Skúli Gunnsteinsson..............Stjömunni Júlíus Jónasson...................Asniares Sigurður Bjamason................Stjömunni Óskar Ármannsson........................FH Jón Kristjánsson.......................Val Stefán Kristjánsson.....................FH Július Gunnarsson......................Val U-21 liðið: Ingvar Ragnarsson...............Stjörnunni Hallgrimur Jónasson.....................ÍR Axel Stefánsson.........................KA Gunnar Andrésson......................Fram Friðleifur Friðleifsson.............Gróttu EinarG. Sigurðsson................Selfossi Róbert Rafnsson.........................ÍR Magnús Sigurðsson................Stjömunni Jason Ólafsson........................Fram Karl Karlsson.........................Fram Patrekur Jóhannesson.............Stjömunni Dagur Sigurðsson.......................Val Ólafur Stefánsson......................Val Gústaf Bjarnason..................Selfossi Finnur B. Jóhannsson...................Val Björgvin Rúnarsson.................Víkingi Jóhann Ásgeirsson.......................IR Helgi Bragason.........................ÍBV Óskar Sigurðsson....................Haukum Sveinberg Gíslason..................Haukum faðm FOLX ■ DAVID Plíitt hefur ákveðið að hafna tilboði frá ítalska félaginu Bari og leika áfram með Aston Villa í ensku 1. deildinni. Hann sagði að boð Bari hefði verið mjög freistandi, enda miklir peningar í boði, en hann hefði ákeðið að leika frekar áfrám í Englandi. ■ TÓRÍNÓ hefur hinsvegar gengið frá samningum við belgíska landsliðsmanninn Enzo Scifo sem leikur með franska liðinu Auxerre. Hann hefur verið í láni í Frakkl- andi frá Inter Mílanó. ■ HAMBURG SV, sem varð Evr- ópumeistari bikarhafa í knatt- spyrnu 1983, verður hugsanlega dæmt í bann í þýsku úrvalsdeildinni vegna mikilla skulda. Þær eru um hálfur milljarður ÍSK og fátt sem bendir til þess að félagið nái að grynna verulega á þeim á næst- unni. Það hefur reynt að selja hluta- bréf en Hamborgarar virðast ekki ýkja spenntir fyrir því að eiga hlut í liðinu. ■ IVAN Vutsov hefur sagt af sér sem landsliðsþjálfari Búlgaríu í knattspymu. Flann var fyrir skömmu dæmdur í þriggja ára bann frá hliðarlínunni eftir að hafa hrækt á dómara í landsleik og sagðist ekki telja sig geta stjórnað liðinu í leikjum, án þess að vera við völlinn. Aðstoðarþjálfari liðsins, Krasimir Borisov, hefur tekið við liðinu. ■ ÍRANIR hafa ákveðið að leyfa landsmönnum að stunda golf og keilu að nýju en þessar íþróttagrein- ar voru meðal margra sem voru bannaðar þegar Khomeni komst til valda árið 1979. Við valdatökuna bannaði erkiklerkurinn íjölda íþróttagreina en skák, hnefaleikar og póló hafa einnig hlotið náð fyrir augum yfirvald. Nokkuð sérstakar reglur gilda um íþróttir í landinu og t.d. mega aðeins konur horfa á íþróttir kvenna. HANDKNATTLEIKUR Fyrsta norræna handknattleiksþingið: Sameiginleg stefnuskrá mótuð FYRSTA norræna handknatt- leiksþingið verður haldið á Hótel Holiday Inn í Reykjavík dagana 9. til 11. maí. Það verð- ur sett í kvöld kl. 18.30 og munu um 50 manns taka þátt, þar af 32 frá Danmörku, Finn- landi, Færeyjum, Noregi og Svíþjóð. Handknattleikssamband íslands lagði til fyrir um það bil ári að svona þing yrði haldið annað hvert ár í stað sérstakra funda formanna, framkvæmdastjóra, þjálfara, dómaranefndamanna og annarra aðila innan hreyfingarinnar á Norðurlöndum. Þannig væri betur hægt að samræma ýmiss skipulags- mál og móta sameiginlega stefnu. Meginstarf þingsins felst í starfi sex vinnuhópa. Formenn samband- anna fjalla um samvinnu á norræn- um og alþjóðlegum vettvangi. Framkvæmdastjórar og stjórnar- menn taka fyrir skrifstofuhald og fjármál norrænu handknattléiks- sambandanna. Mótanefndir ræða um mótamál, fræðslunefndir um fræðslumál og menntun þjálfara, dómaranefndir um leikreglur og dómaramál og landsliðsþjálfarar og -nefndir um landsliðsmál. HSÍ hefur skipulagt þingið með stuðningi frá ÍSÍ, menntamálaráðu- neytinu og Sjóvá-Almennum. A DOFINNI Vormót UMFA Um helgina fer fram fyrsta stiga- - mót FRÍ, Vormót UMFA, á Varmár- velli í Mosfellsbæ. Mótið hefst kl. 14 á laugardag og verður keppt í eftirt- öldum greinum: 400 m grindahlaupi karla og kvenna, 200 m hlaupi karla og kvenna, 400 m hlaupi kvenna, 800 m hlaupi karla, 1.500 m hlaupi kvenna, 3.000 m hlaupi karla, kringlukasti, þrístökki, kúluvarpi og spjótkasti karla og kúluvarpi, há- stökki og þrístökki kvenna. Skrán- ingu þarf að tilkynna til í s. 666647 eða 666837 fyrir föstudagskvöld. Lokahóf Víkings Lokahóf handknattleiksdeildar Víkings fer fram í Lionssalnum Sigt- úni 9 annað kvöld, föstudag 10. maí og hefst kl. 21. Veitt verða verðlaun, skemmtiatriði o.fl. Aðgangur er ókeypis. Allir Víkingar og velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta. ISLANDSGLIMAN GrettisbeKið tiyggt fvrir fimm milliónir m J Ólafur Haukur hefur titil að veija. ÍSLANDSGLÍMAN, elsta og sögufrægasta íþróttamót á íslandi, verður háð í íþrótta- húsi Kennaraháskólans á laugardaginn kl. 17. Keppt verður um hið fræga Grettis- belti, sem var fyrst keppt um 1906. Grettisbeltið er tryggt fyrirfimm milljónir króna, en beltið er einn verðmætasti verðlaunagripur sem keppt er um á íslandi. Us hafa 27 glfmukappar varð- veitt Grettisbeltið, en á belt- inu eru silfurskyldir með nöfnum glímukappanna, en alls eru 80 skyldir á beltinu. Ármann J. Lárus- son hefur oftast tekið á nióti belt- inu, eða fimmtán sinnum. Hann tók á móti beltinu fjórtán ár í röð - 1954-1967. Átta glímukappar eru skráðir til leiks að þessu sinni. Ólafur Haukur Ólafsson, Jón Birgir Valsson, Helgi Bjarnason, Orri Björnsson og Óskar lngi öíslason, allir úr KR, Arnar Friðriksson, HSÞ, Helgi Kjartansson, HSK og Ingibergur Sigurðsson, UV. Ólafur Ilaukur, sem er fjórfaldur glfmukóngur (1985, 1986, 1989, 1990), er talinn sigurstranglegast- ur. Helsti keppinautur hans að undanförnu, Skarphéðinsmaðurinn Jóhannes Sveinbjömsson, verður fjarri góðu gamni. Hann er að út- skrifast af Bændaskólanum á Hvanneyri á sama tíma og íslands- glíman fer fram. Búast má við mjög jafnri og spennandi keppni un næstu sæti. Að Ólafi og Helga frálöldum eru allir keppendur ungir og stórefni- legír glímumenn um tvítugt. Það má ekki gleyma þeim möguleika að glímukóngurinn fái byltu, því að allt getur gerst í glímu sem og öðrum íþróttum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.