Morgunblaðið - 09.05.1991, Side 71
i;m /•. / j m mt < im____________________________~ ______vji
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1991 71
HANDBOLTI
Sigurður Gunnarsson heldur
áfram með bikarmeistarana.
Sigurður
endurráðinn
Sigurður Gunnarsson verður
áfram þjálfari bikarmeistara
ÍBV í handknattleik og gerir eins
árs samning við liðið fyrir næsta
vetur. Undir stjórn hans náði liðið
3. sæti í úrslitakeppninni, auk bik-
armeistaratitilsins, og er það besti
árangur í sögu félagsins.
„Þetta verður örugglega erfitt
og ég að von á að það verði gerðar
meiri kröfur til liðsins. En við ætlum
að undirbúa okkur vel og það verð-
ur gaman að taka þátt í Evrópu-
keppninni. Við verðum svo að reyna
að standa við vonirnar og til þess
þurfum við að halda öllum leik-
mönnum okkar og Jafnvel bæta
við,“ sagði Sigurður.
HANDBOLTI
KNATTSPYRNA / U-16 ARA LANDSLIÐIÐ
Frábær byijun
Ovæntur sigur Islands á Júgóslavíu í lyrsta
leik lokakeppni EM
| slenska drengjalandsliðið, U-16
ára, byijaði mjög vel í fyrsta leik
sínum í lokakeppni Evrópumótsins
í knattspymu og sigraði Júgóslavíu,
2:1. Sigurinn var óvæntur, enda
Júgóslavar taldir með eitt sterkasta
lið mótsins.
„Þetta var sannarlega góður sig-
ur og meira en við áttum von á.
En leikurinn var erfiður og líklegt
að við missum menn vegna
meiðsla," sagði Sveinn Sveinsson,
fararstjóri.
Júgóslavar gerðu fyrsta markið
á 28. mínútu en aðeins mínútu síðar
náðu íslendingar að jafna. Helgi
Sigurðsson komst inní vítateig
Júgóslava og þar var brotið á hon-
um. Hann fékk vítaspyrnu og skor-
aði sjálfur úr henni. Skömmu síðar
varð Guðmundur Benediktsson,
sem verið hafði besti maður liðsins,
að fara af leikvelli vegna meiðsla
og var það nokkurt áfall fyrir liðið.
Sigurmarkið kom á 53. mínútu.
Helgi Sigurðsson komst þá í gegn-
um vörnina og átti skot sem var
varið en Jóhann Steinarsson fylgdi
vel á eftir og skoraði. Júgóslavar
sóttu nokkuð það sem eftir var en
vömin var sterk og Árni Arason
stóð sig mjög vel í markinu.
íslendingar mæta Spánveijum á
morgun og búast má við að það
verði erfiður leikur en Spánveijar
unnu Sovétmenn rnjög örugglega,
4:1.
Guðmundur úr leik
Guðmundur Benediktsson leikur
líklega ekki meira með liðinu vegna
meiðsla í hné. Hann fór útaf og að
sögn Sveins Sveinssonar er hann
ekki tilbúinn í Spánarleikinn. „Það
er slæmt fyrir liðið að missa hann
en við höfum ekki gefið upp alla
von,“ sagði Sveinn. Nokkuð var af
njósnurum á vellinum, m.a. frá
Stuttgart og belgíska félaginu
Ekeren.
Helgi Sigurðsson skoraði fyrra
mark íslenska liðsins og lagði upp það
síðara. ,
Árni Arason stóð sig mjög vel í
markinu, sérstaklega í lokin er Júgó-
slavar sóttu stíft.
Mjög efnilegur hópur
- segirÁsgeir Sigurvinsson, sem fylgdist með leik íslenska liðsins
Þetta var sætur sigur og þó
að Júgóslavarnir hafi verið
meira með boltann unnu strákam-
ir það upp með mikilli baráttu og
sterkri liðsheild. Þetta er greini-
lega mjög efnilegur hópur," sagði
Ásgeir Sigurvinsson, sem fylgdist
með leik Islands og Júgóslavíu í
gær.
„Það var mikil pressa í lokin
en strákarnir stóðust álagið vel
og það var ánægjulegt að fá þenn-
an sigur. Þeir vom að vísu svol-
ítið taugaóstyrkir í byijun en það
er greinilegt að þeir geta spilað
vel.“
Ásgeir sagði að hann hefði ekki
bara farið á leikinn til að sjá hann
heldur einnig til að svipast um
eftir leikmönnum fyrir Stuttgart:
„Maður þarf alltaf að fylgjast með
en það er of snemrnt að segja
neitt. Þetta eru ungir strákar og
þótt þeir standi sig vel núna er
ekki þarmeð sagt að þeir verði
góðir knattspyrnumenn í úrvals-
deildinni. Mörg lið fylgjast með
leikmönnum á mótum sem þessum
og ef þeir standa sig vel þá fylgja
liðin þeim eftir og kannski kanna
málin betur,“ sagði Ásgeir.
Júlíus í stað Alfreðs
Júlíus Jónasson, sem leikið hefur
með franska liðinu París Asnier-
es, er að öllum líkindum á leið til
spænska félagsins Bidasoa. Þar kem-
ur hann til með að leysa Alfreð Gísla-
son af hólmi, en hann hefur tejcið
við þjálfun KA fyrir næsta vetur.
„Eg fer líklega í næstu viku og
skrifa undir. Það er allt klárt og ég
ef búinn að ganga frá mínum málum
hér í París," sagði Júlíus. Hann sagði
URSLIT
Knattspyrna
UEFA-KEPPNIN
Fyrri úrslitaleikurinn:
Inter Mílanó—Róma.............2:0
Lothar Matthaus (vsp) 55., Nicola Berti 67.
■ Liðin leika að nýju eftir tvær vikur í
Róm.
Áliorfendur: 80.000
ENGLAND
1. deild:
Aston Villa—Norwich...........2:1
Bowen (sjálfsm.) 9., Yorke 66. — Gordon
42. 16.697.
Derby—Everton.................2:3
Harford (vsp) 26., Saunders 83. — Cottee
15. og 84., Sheedy 73. 12.403.
Leeds—Sheffield United........2:1
Sterland 11., Shutt 55. — Marwood 52.
28.978.
2. deild:
Sheffield Wednesday —Bristol City.3:1
West Ham —Bristol Rovers......1:0
■ SWffield Wednesday tryggði sér sæti í
1. deild með sigrinum á Bristol City. David
Hirst gerði tvö marka Sheffield og hefur
gert 31 mark í vetur. Aston Villa heldur
sæti sínu í 1. deild. Liðið sigraði Norwich,
2:1, og var það fyrsti sigur liðsins I níu
Ieikjum.
ÞÝSKALAND
Undanúrslit í þýsku bikarkeppninni:
Köln - Duisburg...............3:0
Alfons Higl (30.), Frank Ordenewitz (48.),
Maurice Banach (90.)
Werder Bremen—Frankf urt.......6:3
JÚGÓSLAVÍA
Úrslitaleikur bikarkeppnmnar:
Hadjuk Split—Rauða Stjarnan...1:0
Alen Boksic 70.
Handknattleikur
SPÁNN
Barcelona—Granollers.........37:18
■ Staðan i hálfleik var 13:7 Barcelona í
vil og liðið gerði útum leikinn snemma í
síðari hálfleik. Geir Sveinsson lék sem leik-
stjórnandi og skoraði ekki fyrir Granollers.
Barcelona er i efsta sæti með 24 stig, Teka
22, Bidasoa 21, Atletico Madrid 19, Valen-
eia 15, Granollers 10.
að allt hefði gengið mjög hratt fyrir
sig. „Það hafði líka mikið að segja
að franskur landsliðsmaður í liðinu
var að fara frá félaginu og mér leist
ekki á liðið sem eftir var. Bidasoa
heldur hinsvegar sama liði og Bogd-
an Wenta á eftir tvö ár af samningn-
um,“ sagði Júlíus.
HSÍ og Bidasoa eiga eftir að semja
um frí vegna landsliðsins en það
verður líklega gert fljótlega.
Júlíus Jónasson.
BLAK
Fei tekur við IS
Hou Xiao Fei, þjálfari íslands-
og bikarmeistara KA, hefur
ákveðið að hætta sem þjálfari KA
og taka við liði ÍS. Hann tekur
við iiðinu um næstu mánaðamót
og kemur til með að sjá um þjálf-
un meistaraflokks karla og
kvenna.
Stefán Magnússon, formaður
blakdeildar KA, sagði að það
væri mikil eftirsjá í Fei og menn
væru misjafnlega sáttir við þá
ákvörðun hans að fara frá félag-
inu. „Fei hefur unnið mikið og
gott uppbyggingastarf í blakinu á
Akureyri og fullt af ungum blak-
mönnum að koina til.
Ingibjörg Arnai-dóttir, formað-
ur blakdeildar ÍS, sagði að koma
Fei væri mikill fengur fyrir félag-
ið og ætti eftir að efta starfið
mikið. „Við væntum að sjálfsögðu
mikils íif honum og hann á örugg-
lega eftir að hafa mjög góð áhrif
á liðin. ÍS hefur alltaf verið fram-
arlega í blakinu og vonumst við
til þess að svo verði áfram.
Fei tekur við af Sigurði Þráins-
syni sem þjálfaði bæði karla- og
kvennalið IS í vetur en hann lék
einnig með karlaliðinu.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Lægsta skor í
Bostoní38ár
Leikmenn Boston Celtic máttu
þola tap á heimavelli, Boston
Garden, þegar meistaralið Detroit
Pistons kom þangað í heimsókn,
■■■■■■ 75:86. Larry Bird
Frá gat ekki leikið með
Gunnari Boston vegna
Valgeirssym meiðsla í baki og
i an an junum munagj um mjnna-
Boston hefur ekki skorað svo fá
stig á heimavelli í úrslitakeppninni
í 38 ár.
Varnarleikur Detroit var sterkur
og voru þeir Kevin McHale og Ro-
BADMINTON
Islendingar
úrleik
Guðmundur Adolfsson og Ása
Pálsdóttir töpuðu fyrir A. Kaul
og Si-An Deng frá Kanada, 13:18
og 4:15, í tvenndarleik á heimsmeist-
aramótinu í badminton í gær. Þar
með er þátttöku íslendinga lokið í
heimsmeistaramótinu að þessu sinni.
KNATTSPYRNA
Úrvalsklúbbur KSÍ stofnaður
Knattspyrnusamband íslands
stendur fyrir stofnun félags-
skapar, klúbbs áhugamanna um
knattspyrnu, 15. maí. Félagar í Úr-
valsklúbbi þessum verða fyrrverandi
lykilmenn íslenskrar knattspyrnu,
leikmenn jafnt sem forystumenn svo
og aðrir áhugamenn og velunnarar,
auk forystumanna úr styrktarfyrir-
tækjum KSÍ.
Klúbburinn er hugsaður til stuðn-
ings íslenska landsliðinu. Úrval/Út-
sýn er einn af styrktaraðilum KSÍ
og mun klúbburinn vera rekinn í sam-
vinnu við það fyrirtæki.
Gert er ráð fyrir að féiagar í Úr-
valsklúbbnum verði 100-130. Á næst-
unni verður haft samband við þá sem
eiga kost á því að gerast meðlimir í
klúbbunum. Áhersla verður lögð á
ánægjulega samvinnu í góðum hópi
í tengslum við landsleiki.
Starfsemi Úrvalsklúbbsins felst
m.a. í að hittast fyrir og eftir leiki
og ræða málin, ferðum á landsleiki
og stórleiki erlendis og félagsfundum.
Auk þess verður reynt að halda upp
samskiptum við svipaða klúbba í ná-
grannalöndunum.
Undirbúningsnefnd að stofnun
Úrvalsklúbbsins skipa: Halldór Ein-
arsson, formaður, Baldvin Jónsson,
Benedikt Sveinsson, Björn Theodórs-
son, Haraldur Sturlaugsson, Kristinn
Jörundsson, Magnús Haraldsson,
Sveinn Jónsson og Þórarinn Sveins-
son.
Framkvæmdaraðilar eru Þórir
Jónsson og Hörður Hilmarsson frá
Úrval-Útsýn.
bert Parish teknir föstum tökum.
Þeir náðu aðeins að skora úr 10
af 28 skotum, sem þeir tóku, en
skotnýting Boston var aðeins 39%.
Nýting Detroit var ekki betri, eða
38%. Það sem munaði mestu var
að leikmenn Detroit náðu 15 frá-
köstum í vörn og þeir skoruðu eftirl
að hafa náð 20 sóknarfráköstum.
Isiah Thomas hjá Detroit meidd-
ist, tognaði á fæti, og missir hann
sennilega af öðrum leik liðanna, en
verður tilbúinn í þriðja leikinn.
Mm
FOLK
■ KRISTJAN Halldórsson, leik-
maður 2. deildarliðs ÍR í knatt-
spyrnu, lék fyrsta landsleik sinn
gegn Möltu á þriðjudagskvöld.
Hann er fyrsti ÍR-ingurinn tii að
spila A-landsleik í knattspyrnu.
■ ATLI Eðvaldsson, fýrirliði
íslenska landsliðsins, jafnaði lands-
leikjamet Marteins Geirssonar í
leiknum gegn Möltu. Báðir hafa
þeir leikið 67 landsleiki.
■ KARL Þráinsson, örvhenta
skytta Víkings í 1. deildinni í hand-
bolta, er hugsanlega á leið ti!
Þýskalands í framhaldsnám. Hann
segir að það sé þó enn óljóst og
jafnar líkur á því að hann fari og
verði áfram.
■ INGEMAR Johansson, fyrrum
heimsmeistari í hnefaleikum, er
ekki hættur að slá frá sér. Hann
er orðinn 58 ára en var nýlega
dæmdur til að greiða sekt fyrir
slagsmál á bar í Gallivare í
Svíþjóð.