Morgunblaðið - 13.06.1991, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ- FIM.MTUDAG'uk 13. JÚNÍ 1991
11
Ingveldur Ýr
Kristinn Örn Kristinsson
Ingveldur Ýr
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Ungur einsöngvari, Ingveldur
Ýr Jónsdóttir, hélt sína fyrstu
tónleika í ísjensku óperunni sl.
þriðjudag. Á efnisskránni voru
söngverk eftir Handel, Strauss,
Duparc og Kurt Weill og íslensk
sönglög. Samleikari Ingveldar
var Kristinn Örn Kristinsson pían-
óleikari.
Tónleikamir hófust á aríu eftir
Handel, Lord to Thee each Night and
Day, úr óratoríunni Theodora, sem
mmm
■nmm
VITASTIG 13
26020-26065
Frakkastígur. 2ja herb. íb. 30
fm. Sérinng. Góð áhv. lán.
Hrísateigur. 2ja herb. risíb. 42
fm. Góð lán áhv. Nýl. innr. Góð íb.
Framnesvegur. 2ja herb. íb.
31 fm. á 1. hæð. Nýl. húsnlán áhv.
Hringbraut. 3ja herb. góð 72 fm
íb. auk herb. í kj. Suðursv. Góð lán áhv.
Lyngmóar. 3ja herb. íb. 82 fm.
Fallegt útsýni. Parket. Suðursv. Bílsk.
Njálsgata. 3ja-4ra herb. íb. á
tveimur hæðum 108 fm. Sérinng. Suð-
ursv. Verð 6,5 millj.
Eskihlíð. 4ra herb. íb. 108 fm á
3. hæð. Gott útsýni. Góð sameign.
Suð-vestursv.
Kleppsvegur. 4ra herb. íb. 100
fm. Suðursv.
Asparfell. 4ra herb. íb. 108 fm.
Nýl. húsnæðislán. Tvennar svalir. Ný
teppi. Laus.
Laugarnesvegur. 4ra herb. íb.
92 fm. Suðvestursv. Áhv. gott húsnlán.
Verð 6,9 millj.
Rauðalækur. Falieg 6
herb. íb. 132 fm. Suðursv. Fallegt
útsýni. Góð sameign. Makask.
mögul. á minni íb.
Melabraut. Efri sérhæð,
104 fm, með 38 fm bílskúr. Suð-
ursv. Fráb. útsýni. Verö 9,5 millj.
Stórholt. 4ra-5 herb. íb.
127 fm auk 33 fm bílsk. Mikið
endurn.
Grettisgata. Falleg5herb.
íb. á 3. hæð í steinhúsi ásamt
tveim herb. í risi. Alls um 140 fm.
Séríb. á hverri hæð. íb. er mikið
endurn. Marmari á baðherb. Sér-
þvhús. Suðursv. Gott útsýni.
Logaland. Raðhús á tveim-
ur hæðum 218 fm. 26 fm bílsk.
Suðursvalir. Suðurgarður.
Vogatunga - Kóp. Par-
hús á einni hæð 74 fm. Parket.
Góðar innr.
Skriðustekkur. Einbhús
á tveimur hæðum 273 fm. Suður-
garður. Mögul. á séríb. á jarð-
hæö. Fallegt útsýni.
Strýtusel. Glæsil. einbh. 319 fm
m/bílsk. Fallegt útsýni. Makask. mögul.
á minni eign.
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
var mikið „fíaskó“, þrátt fyrir að
Handel teldi margt í því verki vera
jafngott og í Messíasi, t.d. kóramir.
Ingveldur söng aríuna mjög vel og
af öryggi.
Þijú lög eftir Strauss voru næst á
efnisskránni, tvö rósalög Rote Rosen
(1883) Die erwachte Rose (1880) og
Begegnung (1880), sem öll teljast
til æskuverka höfundar (án ópus-
númers). Strauss samdi sitt fyrsta
sönglag er hann var á sjöunda ári
(1870) og eftir hann liggja 26 lög
sem flest voru ekki gefín út fyrr en
nýlega. Fyrsta útgáfa sönglaga er.
Op. 10 og þá er Strauss 21 árs en í
því safni era lög eins Zueignung,
Die Nacht og Allerseelen. Það var
sannarlega skemmtilegt að heyra
þessi æskuverk meistarans. Ingveld-
ur Ýr söng lögin mjög yfirvegað,
sérstaklega Begegnung, sem í heild
var mjög vel flutt og átti undirleikar-
inn Kristinn Örn ekki lítinn þátt í
að gera flutning þess eftirminnileg-
am
íslensku lögin voru Smalastúikan,
fallegt lag eftir Hallgrím Helgason,
Draumalandið eftir Sigfús Einars-
son, Betlikerlingin eftir Sigvalda
Kaldalóns og Hjá lygnri móðu eftir
undirritaðan. Þess gætti nokkuð að
Ingveldur Ýr átti í erfiðleikum með
framburð einstakra hljóða en söngur
hennar var sérlega yfirvegaður.
Draumalandið söng hún mjög hægt,
sem er óvenjulegt, en hélt því samt
mjög vel saman og Betlikerlingin var
sérlega vel sungin og túlkunin góð.
Hjá lygnri móðu var fallega flutt og
með töluverðri reisn.
Þijú lög eftir Duparc, L’Inventati-
on, Chanson triste og Au Pays —
voru mjög fallega flutt en án þess
þó að vera að öllu leyti í stíl. Tónleik-
unum lauk með þremur lögum eftir
Kurt Weill og þar sýndi Ingveldur
Ýr á sér nýja hlið. Þessi grályndú lög
eru sérkennilegt leikhús, þar sem
raunsæið birtist í hranalegri við-
kvæmni, eins og í laginu Og hvað
fékk kona hermannsins og í Hve
lengi enn og Uppsagnarbréfið er
lauslætið og kaldranaiegt uppgjör
ástarinnar meginviðfangsefnið. Mús-
iklega er þessum sérstaka menning-
arheimi stefnt gegn hefðbundinni
fínheitatónlist, þar sem dægurlagið
er samlagað raunsæi textans en jafn-
framt ýmislegt sótt í lærdómssmiðju
fínu tónskáldanna. í þessum lögum
var söngur Ingveldar Ýr frábærlega
ve! útfærður.
Ingveldur Ýr er góð söngkona og
var flutningur hennar í heild mjög
yfírvegaður og vel útfærður. Það sem
finna mætti að, er flest sem slípast
í starfi, að námi loknu og óhætt að
spá henni góðu gengi sem söngkona.
Hún hefur góða rödd en hættir til
þess á köflum að þrengja að henni
á hásviðinu. Þess gætti þó minna er
á leið konsertinn og að því leyti til
söng hún „sig upp“. Leikræn túlkun
var víða mjög góð eins og t.d. í Betli-
kerlingunni og í lögum Kurts Weills.
Undirleikarinn Kristinn Örn Krist-
insson er frábær undirleikari, sem
ekki aðeins fylgir vel söngvaranum,
heldur og skáldar hann í tónmálið,
og markar upphaf og endi tónhend-
inga einstaklega fallega. Sem sagt
Kristinn Örn er frábær undirleikari.
Einar Jóhannesson, Beth Levin og Richard Taliowsky.
Tríó í Listasafni Sigurjóns
Tónlist
Ragnar Björnsson
Sumartónleikar í Listasafni Sig-
uijóns Ólafssonar virðast hafa
fengið fastan sess í tónlistarlífi
borgarinnar, áheyrendur vantar
ekki, fullt hús á flestum tónleikum,
svo var á tónleikum þeirra Beth
Levin píanóleikara, Einars Jóhann-
essonar klarinettuleikara og Ric-
hards Taliowsky sellóleikara sl.
þriðjudagskvöld. Hér var um fram-
úrskarandi hljóðfæraleikara að
ræða, hver á sínu sviði, og ekki að
furða þótt B-dúr Tríóið, svokallað
„Gassenhaus-tríó“, eftir Beethoven
léki í höndum þeirra. Tæknin hrein
og örugg svo að varla féll skuggi
á og hendingamótun skýr og eðli-
leg. Flutningurinn á þessu Tríói
Beethovens, sem hann samdi aðeins
tvítugur að aldri — e.t.v. tuttugu
og eins — var einskonar opinberun,
flutningur sem maður heyrir ekki
á hveijum degi. Ekkert eitt þeirra
þremenninga er raunar ástæða til
að nefna sérstaklega fyrir ágætan
leik, þó get ég ekki annað en undir-
strikað leik Talikowskys, sem á
köflum var frábær og gaman væri
að heyra hann sem einleikara við
annað tækifæri. Til þess að reyna
að finna eitthvað að fliitninoniim
þá fannst mér þau gleyma því á
stundum að þau spiluðu í litlum
sal, þar sem allar styrkleikasveiflur
verða gjarnan meiri en til stendur
og kom þetta kannski fyrst og
fremst niður á leik píanóleikarans,
sem hætti til að ofgera af þessum
sökum, kannski einnig þess vegna
fannst mér Einar blása gegnum-
gangandi of'mikið.
Gaman var að heyra hið heims-
borgaralega tríó meistara Glinka,
sem þau spiluðu glæsilega og sann-
færandi, meira að segja þeim enda-
sleppta síðasta þætti. „Kyrrðar-
dansar“ Þorkels Sigurbjörnssonar
(frá 1967) eru sérlega skemmtilega
gerðir frá Þorkels hendi, voru einn-
ig sérlega vel fluttir nú. Klarinett-
tríóið í a-moll op. 114 er eitt af
síðustu kammerverkum Brahms, og
flókinn kontrapunktiskur vefur.
Þarna er Brahms farinn að hugsa
dálítið á öðrum nótum en í æsku-
verkum sínum og hefði ég kosið
meiri ró, en minni uppbrot, sérstak-
lega í fyrstu tveim þáttunum, en
eigi að síður var hér um flutning á
háum „standard“ að ræða. Merki-
legt er hvað þremenningarnir hafa
náð vel saman á stuttum tíma og
á ferðalögum þeirra, fyrirhuguðum
hérlendis og erlendis, hljóta að
fylgja þeim góðar óskir og spár.
ÍSLAND ER GULLMOLINN OKKAR
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST UM EIGIÐ LAND
VIÐ ERUM TIL ÞESS AÐ AUÐVELDA ÞÉR ÞAÐ
Tjaldvagnar: Eitt handtak og sumarhús ó hjólum rís. Opnost ó 2 mín með fortjoldi.
Bakpokar. Verð fró kr. 4.550,-
Vönduð fjölskyldutjöld. Verð fró kr. 25.900,-
Einnig hústjöld. Verð fró 35.900,-
Fortjöld ó hjólhýsi, v-þýsk, -100% vatnsþétt.
Verð fró kr. 59.500,-
Svefnpokar. Verð fró kr. 4.500,-
Kúlutjöld, 3ja-4ra manna, ólhúðuð.
Verð kr. 8.900,-
FERÐAVðRUR - TJALDAVIÐGERÐIR
V/UMFERDARMIDSTðOINA
SÍMAR 19800 - 13072
Ferðagasgrill kr. 7.950,-