Morgunblaðið - 13.06.1991, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991
Morgunblaðið/KGA
Rek komið upp á Miklatúni
Á Miklatúni við Kjarvalsstaði er komið upp listaverkið Rek eftir
Kristinn Hrafnsson. Verkið er í eigu borgarinnar og var á sýningu
listamannsins síðastliðið haust. Að sögn Kristins, vísar verkið til land-
rekskenningar Alfreds Lothars Wegeners, og er eins og sjá má, sam-
sett úr kubbum í líki gossprungu en mælistangirnar eiga að minna
okkur á hvemig við nýtum náttúruna.
Nýtt org-el vígt á
Borgarspítalanum
ORGEL frá Félagi velunnara Borgarspítalans var vígt í kapellu spít-
alans á sunnudaginn. Orgelið er valið af Hauki Guðlaugssyni, söng-
málastjóra, og kemur frá Italíu.
Athöfnin hófst með ávarpi Egils
Skúla Ingibergssonar, formanns
Félags velunnara Borgarspítalans,
en á eftir honum helgaði séra Jón
Dalbú Hróbjartsson orgelið. Þá
sungu félagar úr Kór Langholts-
kirkju og Jón Stefánsson stjórnandi
kórsins lék á nýja orgelið. Spítala-
prestarnir tveir, Sigfinnur Þorleifs-
son og Birgir Ásgeirsson, lásu guð-
spjall og fluttu bæn. Eftir athöfnina
bauð stjórn spítalans upp á kaffi-
veitingar.
Félag velunnara Borgarspítalans
gengst fyrir gróðursetningu við
spítalann á laugardaginn, Borg-
arspítaladaginn.
Morgunblaðið/Bjarni
Egill Skúli Ingibergsson, formaður Félags velunnara Borgarspítal-
ans, flytur ávarp. Við hlið hans stendur Sigfinnur Þorleifsson spítala-
prestur.
Ekkí næg^t tillit tekið til lokun-
ar norska seiðamarkaðarins
Samtök heilbrigðisstétta:
- segir Helgi Kjartansson líffræðingur um stöðu fiskeldisstöðva
Alyktun um busavígslur
Minnsivarði afhjúpað-
ur á Melgerðismelum
FJOLMENNI var a flugvellmum a Melgeröismelum sl. laugardag,
9. júní, er afhjúpaður var minnisvarði um Erlend Árnason svifflug-
mann sem fórst á svifflugæfingu 22. desember sl. er svifflugan sem
hann flaug brotnaði á flugi. Erlendur var aðeins átján ára gamall
þegar hann lést en svifflug átti hug hans frá unga aldri. Gerðist
hann virkur félagi í starfsemi Svifflugfélags Akureyrar um leið og
hann hafði aldur til árið 1988.
Minnisvarðinn, sem var valinn
staður við Hymu, miðstöð flug-
áhugamana á Norðurlandi, stendur
á þríhymdum stöpli. Efst á stöplin-
um er listaverk í formi svifflugu á
flugi, en fyrir neðan er skjöldur sem
hefur m.a. eftirfarandi tilvitnun úr
Sonatorreki Egils Skallagrímsson-
ar:
Verð eg varfleygur
er vinir þverra
eða, ég verð varkár á flugi þegar
vinum fækkar.
Bræður Erlends, Magnús og
Tómas Ámasynir, afhjúpuðu minn-
isvarðann, en Bragi Snædal, Svif-
flugfélagi Akureyrar, og Árni
Magnússon, faðir Erlends, fluttu
stutta tölu við athöfnina.
Hönnuður minnisvarðans er
Bragi Snædal en Magnús Ingólfs-
son sá um smíði stöpulsins og Þórð-
ur Vilhjálmsson smíðaði merkið og
skjöldinn sem eru úr ryðfríu stáli.
Minnisvarðinn var kostaður af
framlögum félaga úr Svifflugfélagi
Akureyrar.
Morgunblaðið/PPJ
Bræður Erlends, Magnús og
Tómas Árnasynir, afhjúpuðu
minnisvarðann.
HELGI Kjartansson líffræðingur segir, að í skýrslu um stöðu fisk
eldis í landinu sé ekki tekið nægilegt tillit til þess vanda, sem fiskeld-
isfyrirtækin áttu við að stríða á árunum eftir 1988 þegar markaður
fyrir sölu seiða til Noregs lokaðist. Skýrslan var unnin að ósk land-
búnaðarráðherra og kynnt fjölmiðlum í siðustu viku. Þar kemur
fram að fyrirtækin bera sig ekki og að engar líkur séu á að staða
þeirra batni á næstu tveimur árum. Hefur ríkisstjórnin ákveðið að
veita 300 milljónir króna til fárra fyrirtækja með það að markmiði
að varðveita þá þekkingu og reynslu sem áunnist hefur í landinu.
Helgi sagðist hafa hnotið um
nokkur atriði í skýrslunni, sem hann
væri ekki sáttur við, og benti á að
vanda fiskeldisfyrirtækjanna mætti
rekja allt til þess að iokaðist fyrir
seiðasölu héðan til Noregs. Honum
virtist sem skýrsluhöfundur taki
ekki nægilegt tillit til ástandsins
sem þá skapaðist hjá fyrirtækjun-
um. „Flestir sátu uppi með nær
ómælt magn af fiski," sagði hann.
„í skýrslunni kemur fram að engu
mátti henda, þar sem bankar áttu
veð í seiðunum. Þar fyrir utan er
afurðalánakerfið þannig upp byggt
að hausatala fiskanna gildir. Þeim
mun fleiri hausar í stöðinni þeim
mun meiri verðmæti og greiðari
aðgangur að afurðalánum. En það
sem gerðist var að menn sátu uppi
með mikið magn af fiski og þegar
fram liðu'stundir komst fiskurinn
einfaldlega ekki fyrir. Þá urðu veru-
leg afföll þegar fiskurinn skemmd-
ist í þrengslunum. Menn voru að
bíða og vona að af seiðasölu yrði
til Noregs. Þetta er í raun sá efni-
viður, sem fiskeldi á íslandi hefur
byggtst á allt frá árinu 1988. Það
vita allir sem vit hafa á að fiskur,
sem fer sem gönguseiði úr eldisstöð
árið 1988, skilar sér ekki aftur sem
sláturfiskur fyrr en árið 1990.“
Helgi sagði, að árið 1988 hafi
auk gönguseiðanna einnig næsta
kynslóð í fiskeldi verið áfram í eldis-
stöðvunum og átti eftir að vera fram
á næsta ár. Áhrifa af ástandi á
seiðamarkaðinum árið 1988 gætti
því enn. „Skýrslan byggist á þess-
um efnivið og það kemur fram í
henni,“ sagði hann. „En að mínu
mati er ekki lögð nægileg áhersla
á þetta atriði. Jafn stór liður og
þetta er í vanda fiskeldisstöðva í
dag.“
Helgi nefndi einnig vanda mat-
fisksstöðvanna, sem byggðar voru
af vanefnum og í hasti til að taka
við fiski til slátrunar. Að þeim hafi
ekki verið nægilega vel staðið og
þörf á frekara fjármagni til að gera
þær nægilega vel úr garði. „Það
má heldur ekki gleymast að strand-
eldi kallar á ákveðna tækni og tæki
þegar flytja þarf fiskinn milli kera.
Tæki sem ekki eru fyrir hendi og
þess vegna er ekki hægt að flytja
fiskinn og flokka á réttum tíma,“
sagði hann.
Ónnur atriði, sem Helgi nefnir
og telur að séu óvarlega metin, er
að fram kemur að gerðar hafi verið
miklar rannsóknir á fiskeldi. „Það
er ekki rétt. Það hafa farið fram
rannsóknir en ekki nægilega mikl-
ar, þar sem allar rannsóknir á fiski
í sjó eru kostnaðarsamar og hafa í
raun staðið matfiskeldi fyrir þrifum.
En það hafa farið fram rannsóknir
á smáfiskum sem eru taisvert ólík-
ar,“ sagði hann. „Svo virðist sem
höfundur skýrslunnar rugli saman
þeim aðferðum, sem beitt er við
hafbeitarfisk og eldisfisk, sem sýnir
að hann hefur ekki kynnt sér fisk-
eldi til hlýtar.“
Þá nefndi hann að tryggingarfé-
lögjn settu fiskeldisfyrirtækjunum
einhliða ákveðin skilyrði. Þau ganga
undir ákveðna skilmála sem felá í
sér að eldisfyrirtækin eru skyldug
til að halda ákveðnu magni af fiski
í hveiju keri. Tryggingarfélögin
hafi þannig áhrif á afkomu fyrir-
tækjanna.
Morgunblaðinu hefur borist
áskorun til skólayfirvalda frá
Samtökum heilbrigðisstétta. Þar
kemur meðal annars fram að
ofbeldi meðal barna og unglinga
verður sífellt meira áhyggjuefni.
Þá séu slys og dauðsföll af völd-
um ofbeldis alltof tið i þessum
aldurshópum. Vonast er til að
samvinna náist um það við nem-
endur að busavígslur séu gleði-
legar athafnir án hættu.
I vetur var haldin ráðstefna á
vegum Samtaka heilbrigðisstétta
er nefndist Æska án ofbeldis og
nú nýlega lauk málþingi um for-
varnir gegn ofbeldi og leiðir til
lausnar. Þar fjölluðu sérfræðingar,
m.a. á sviði uppeldis-og mennta-
mála um tíðnj og orsakir ofbeldis
hjá æsku landsins. í framhaldi af
því vilja Samtök heilbrigðisstétta
beina þeim eindregnu tilmælum til
stjórnenda framhaldsskóla að þeir
reyni að hafa áhrif á framkvæmd
hinna svokölluðu busavígslna. Leik-
ur og fögnuður ungmenna hefur á
stundum snúist upp í anhverfu sína,
leikur orðið að slysagildrum og
fögnuður að ótta.
Þá kemur fram að Samtökum
heilbrigðisstétta er umhugað um
að busavígslur séu gleðilegar at-
hafnir án hættu og vonast til að
samvinna náist um það við nemend-
ur sjálfa.
------------------
Norræna
ígræðslufélag-
ið þingar hér
DAGANA 12.-14. júní nk. er 16.
þing Norræna ígræðslufélagsins
„Scandinavina Transplant Soci-
ety“ haldið í Háskólabíó.
Á þinginu er fjallað um hvaðeina
er varðar líffæraígræðslu. Vísinda-
dagskrá þingsins er mjög viðamikil,
fjölmörg innsend erindi flutt ásamt
yfirlitserindum og sérstök kennslu-
seta verður um ónæmisfræði líffæra-
ígræðslu.
Þrír bandarískir fyrirlesarar verða
gestir þingsins, John T. Herrin frá
læknadeild Harvard-háskóla sem
mun fjalla um líffæraígræðslu í börn,
Oscar Bronsther frá Pittburg-
háskóla sem ijallar um nýtt ónæmis-
bælandi lyf, FK 506, og Arthur L.
Caplan frá Center of Biomedical
Ethics, Minnesota-háskóla.
Fyrirlestur dr. Caplans Hví er
skortur á líffærum og vefjum til
ígræðslu? Hann verður haldinn
fimmtudaginn 13. júní kl. 8.15 og
að honum loknum verður „sympos-
ium“ um löggjöf á Norðurlöndum um
ákvörðun dauða og brottnám líffæra
til ígræðslu.
-------t-H--------
■ TVEIR VINIR og annar í fríi
verða með KK-band í kvöld
fimmtudag 12. júní. Þetta ertónlei-
kaútgáfa bandsins en á föstudags-
kvöldið má svo heyra dansleikjaútg-
áfuna. Laugardagskvöld skemmtir
Loðin rotta. Sunnudagskvöld
skemmtir svo Sniglabandið.
Sniglabandið ætlar að frumsýna
nýtt myndband og að auki verða
ýmsar aðrar uppákomur. Mánu-
dagskvöldið 17. júní leikur norska
hljómsveitin ARTCH með Eirík
Hauksson í fararbroddi.
■ ÍSLANDS VINIR . skemmta í
Edinborg i Keflavík föstudags-
og laugardagskvöld. Sunnudags-
kvöld verða þeir á Hótel íslandi
pg mánudagskvöldið 17. júní í
íþróttahúsinu á Akranesi.
Bragi Snædal hélt tc