Morgunblaðið - 13.06.1991, Page 15
___________MORGUNBLAÐIÐ FIMf4TUftAG,UR UL JÚNÍ ,193,1,_
Sinfónía með djasssveiflu
reglna. Honum er ekki ætlað að
kveða upp svokallaða forúrskurði,
sem eru eitt helsta einkenni dóm-
stóls EB. í því felst að einstakling-
ar og lögaðilar geta í dómsmálum
innanlands borið fyrir sig EB-rétt
og krafist þess að EB-dómstóllinn
kveði upp forúrskurð. Innlendum
dómstólum er alltaf heimilt og í
mörgum tilfellum skylt að verða við
þeirri kröfu og eru bundnir af niður-
stöðu hans.
ESS-dómstóllinn er þess vegna
langt frá því að hafa sama verk-
svið og vald og EB-dómstóllinn
hefur innan bandalagsins. Hæsti-
réttur verður áfram æðsta dóms-
vald í öllum málum milli ríkjanna
sem eiga aðild að EES um brot á
ákvæðum samningsins. Og verður
það að teljast eðlileg ráðstöfun.
Varla sættum við okkur við að t.d.
breskur dómstóll ætti að dæma í
máli sem við höfðuðum gegn Bret-
um vegna þess að við teldum þá
hafa brotið samninginn. Ekki er
sennilegt að íslendingar verði mikið
varir við dómsvald þessa nýja dóm-
stóls, það gildir að minnsta kosti
um allt málaþras sem íslendingar
stunda fyrir íslenskum dómstólum,
þar verður engin breyting á og þar
mun Hæstiréttur eiga síðasta orðið
eins og hingað til. EES-dómstóllinn
verður að mörgu ■ leyti hliðstæður
öðrum alþjóðlegum dómstólum sem
íslendingar hafa viðurkennt að hafi
lögsögu í vissum málum sem ísland
varða.
Höfundur er lögfræðingur hjá
Félagi ísl. iðnrekenda á sviði
alþjóðlegra viðskipta.
eftir Vernharð Linnet
Sinfóníutónleikarnir í kvöld
verða um margt sérstæðir. Þeir
hefjast á því að kvartett Sigurðar
Flosasonar leikur þrjú lög. Síðan
stjórnar bandaríski hljómsveitar-
stjórinn og bassaleikarinn John
Clayton hljómsveitinni og verða
flutt verk eftir Szymon Kuran og
Stefán Ingólfsson svo og Henri
Manchini og Johnny Mandel í út-
setningu John Claytons. Þá stígur
stórsveit á sviðið og leikur ópusa
eftir John Clayton, Hoagy Carmic-
hael, Johnny Mandel og Ray
Brown.
Semsagt ekta djass og sinfónísk
þriðjastraums tónlist í bland.
John Clayton er einn fárra tón-
listarmanna sem eru jafnvígir á
djass og sinfóníska tónlist. Hann
lærði við Indiana-háskóla og fór
síðan að spila á bassa með píanist-
anum Monty Alexander. Það var
góður undirbúningur fyrir inn-
gönguna í stórsveit Counts Basies,
en með henni lék hann í tvö ár og
skrifaði jafnframt fyrir bandið.
Síðan lá leið Claytons til Amster-
dam þarsem hann var fyrsti bassa-
Ieikari hjá Fílhannoníusveitinni þar
í borg. Þar kynntist hann Marten
van der Valk, og hafa þeir brallað
margt saman um dagana.
1984 flutti Clayton aftur heim
til Bandaríkjanna og hefur stjórnað
stórsveit í Los Angeles í samvinnu
við trommarann Jeff Clayton og
blæs þar m.a. bróðir hans, Jeef
Clayton, í saxafóna.
Fyrir utan að vera frábær hljóm-
sveitarstjóri og útsetjari er Clayton
hörku bassaleikari, sem best má
heyra á skífu þeirra Ray Browns:
Super Bass. Það var síðasta skífan
sem Mr. Rhythm, gítarieikari Co-
unts Basies í áratugi, Freddie
Green, lék á. Ég man aðeins eftir
tveimur öðrum bassaleikurum sem
hafa gefið út dúóskífur með Ray
Brown: Niels-Henning 0rsted Ped-
ersen og Árna Egilssyni.
Stórsveitin sem John stjómar á
fimmtudagskvöldið verður skipuð
íslenskum hljóðfæraleikurum, sem
margir hveijir léku nýlega með
stórsveitum Per Husbys og Pierre
Dorge, auk tveggja erlendra gesta.
Það eru saxafónleikarinn Jeef
Clayton og fínnski trompetleikar-
inn Esko Heikkinen, sem tvívegis
hefur blásið hér í stórsveitum áð-
ur. Með Jukka Linkola og UMO-
stórsveitinni. Er hann einn fremsti
stórsveitartrompetleikari Evrópu.
íslensku verkin sem Sinfónían
flytur undir stjórn Johns Claytons
eru In the Light of Etemity, djass-
John Clayton
15
messa eftir Szymon Kuran og
Snerting eftir Szymon og Stefán
Ingólfsson bassaleikara. Þeir voru
saman í Súldinni í þijú ár og héldu
tvívegis á djasshátíðina í Montreal
með hijómsveitinni. Þá lét einn
gagnrýnandi svo um mælt að af
þeim þúsundum hlóðfæraleikara
sem heyra mætti á hátíðinni ættu
menn að leggja tvo sérstaklega á
minnið: Wynton Marshalis og
Szymon Kuran, fiðlarann í íslensku
hljómsveitinni Súld, sem var eitt
af undrum hátíðarinnar.
Kvartett Sigurðar Flosasonar
skipa auk saxafónleikarans Kjart-
an Valdimarsson píanisti, Þórður
Högna bassisti og Matthías M.D.
Hemstock trommari.
Meðal verka er kvartettinn leik-
ur er In memoriam, sem Sigurður
skrifaði í minningu Sveins Ólafs-
sonar, djasssaxafónleikara og lág-
fiðluleikara í Sinfóníunni um ára-
tugaskeið. Djassmessa Szymons
Kurans er einnig helguð minningu
Sveins Ólafssonar, en með þeim
tókst góð vinátta eftir að Szymon
settist í stól annars konsertmeist-
ara Sinfóníunnar 1984. Er gleði-
legt að minningu þessa merka
brautryðjanda í íslensku tónlist-
arlífi skuli sýnd þessi virðing á
sviðinu þarsem hann sat með lág-
fiðluna til dauðadags og hæfir að
tónlistin sé bæði af sinfónískri og
djassætt.
Höfundur ritar um djass í
Morgunblaðið.
í tilefni þess að sumarið er komið bjóðum við frábært verð á úrvalsvörum
PINOTEX viðarvörn
fyrir íslenskar aðstæður
15% afsláttur
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF GARÐÁHÖLDUM
malmnqarP O
pjónustan hf
akranesi #Or#77C7
HAFNARFIROI
M ALNIN GARDAGAR
Nú er rétti tíminn til að mála úti og inni. í tilefni
þess höldum við sérstaka MÁLNINGARDAGA og
bjóðum 10-50% afslátt af inni- og útimálningu
frá Hörpu og Sadolin.
BYGGINGARVELTA - við lánum í allt að þrjú ár.
Gólfteppi, verð frá 440 krónum m2
Gólfflísar,
verð frá 2.190 krónum m2
p ■
--------*
Gólfdúkar,
tilboðsverð frá 690 krónum m2
METRÓ
i MJÓDD
Állabakka 16 • Reykjavlk
Slmi 670050
Grensásvegi 11 • Reykjavlk • Slmi 83500
Járn & Skip
KEFLAVÍK
G.Á. Böðvarsson hf.
SELFOSSI
SUMAR ÚTIOGI