Morgunblaðið - 13.06.1991, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991
Þingkosningarnar á Indlandi:
Líkur á samúðar-
fylgi fara minnkandi
Bombay. Reuter.
FÁTT benti til þess í gær að Kongressflokkurinn á Indlandi fengi
það samúðarfylgi, sem hann hafði vonast eftir í þingkosningunum
er hófust að nýju í gær.
Meira, en hundrað milljónir manna
- næstum fimmtungur allra þeirra
Indveija sem hafa kosningarétt -
gátu greitt atkvæði í gær. Ráðgert
er að flestir hinna kjósi á laugardag,
síðasta kjördaginn. Talning atkvæða
hefst á sunnudag og búist er við að
úrslitin liggi fyrir tveimur dögum
síðar.
Kosningunum var frestað eftir að
Rajiv Gandhi, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og leiðtogi Kongressflokks-
ins, var myrtur á kosningaferðalagi
í ríkinu Tamil Nadu í suðurhluta
landsins 20. maí. Flokkurinn hafði
vonast eftir mikilli fylgisaukningu
vegna samúðar kjósenda í suðurríkj-
unum, þar sem flokkurinn stóð vel
að vígi í kosningunum 1989 þrátt
fyrir mikið afhroð í norðurríkjunum.
Kjörsókn var þó dræm í suðurríkjun-
um í gær og þykir það benda til
þess að samúðin með Kongress-
flokknum þar sé ekki mikil. Flokkur-
inn virðist hins vegar hafa aukið
talsvert fylgi sitt í norðurríkjunum,
þar sem hindúar eru í meirihluta.
Margir fréttaskýrendur telja að
enginn flokkur nái meirihluta í kosn-
ingunum og segja næstum óhjá-
kvæmilegt að mynduð verði sam-
steypustjórn. Bharatiya Janata-
flokkurinn, sem nýtur stuðnings
heittrúaðra hindúa, hafði sótt mjög
í sig veðrið áður en kosningunum
var frestað en talið er að dregið
hafi verulega úr sókn hans eftir
morðið.
-----»-♦-♦-..
Handtökur í
tengslum við
Gandhi-morðið
Nýju Delhí. Reuter.
MÆÐGIN voru handtekin í gær
á Indlandi í tengslum við morðið
á Rajiv Gandhi, fyrrverandi for-
sætisráðherra landsins.
Komið hafði í ljós að konan, sem
grunuð er-um að hafa myrt Gand-
hi, fékk húsaskjól hjá mæðginunum
í borginni Madras í ríkinu Tamil
Nadu, þar sem morðið var framið.
Voru þau úrskurðuð í 30 daga
gæsluvarðhald.
Reuter
Tvær konur flýja heimili sín í borginni Angeles í gær. Önnur þeirra hylur andlit sitt og hin andlit barns
síns en svepplaga ský ösku og eitraðra lofttegunda hékk yfir Pinatubo-fjalli eftir sprenginguna sem varð
í því í gærmorgun.
■ VARSJÁ - Alþjóðabank-
inn tilkynnti í gær að Pólveijum
hefði verið veitt 68 milljón dollara
nýtt lán og væri vonast til að þetta
fé flýtti fyrir efnahagsbata í Póll-
andi og yki traust erlendra fyrir-
tækja á landinu. Ian Hume, fulltrúi
Alþjóðabankans í Varsjá sagði við
fréttamenn að lánveitingin væri
„merkur áfangi“ á leið Pólveija til
frjáls markaðskerfis. Af heildarupp-
hæðinni fara 280 milljónir dollara
til að greiða fyrir einkavæðingu
fyrirtækja, 100 milljónir til þróun-
arstarfs í landbúnaði, 200 milljónir
til þróunar bankamála og 100 millj-
ónir til að draga úr atvinnuleysi,
sem komst upp í 7,7% af vinnufæru
fólki, eða 1.434.000 manns, í maí-
mánuði.
MOSKVU - Gasleiðsla sprakk
í bænum Vsevyatskaya í Úralfjöll-
um í gær og olli skógareldi, að sögn
Tass-fréttastofunnar. Bærinn er í
nágrenni iðnaðarborgarinnar Perm,
en leiðslan er 700 kílómetra löng
og nær frá bænum Nizhnyaya Tura
til Niznhni-Novgorod. Ekki hafa
borist fréttir um slys á fólki, en
talið var að loka þyrfti nokkrum
efnaverksmiðjum í héraðinu vegna
sprengingarinnar. Gasleiðslukerfið
í Sovétríkjunum er víða úr sér geng-
ið og hriplekt.
PARÍS - Miklar tafir urðu í
flugumferð á báðum flugvöllum
Parísarborgar í gær vegna sólar-
hringsverkfalls flugumferðarstjóra.
Einnig varð að draga úr yfirflugi
yfir landið um helming. Á Charles
de Gaulle-flugvellinum varð að
aflýsa 600 af 800 áætluðum lend-
ingum og flugtökum og á Orly varð
að aflýsa 30 af 106 flugtökum í
millilandaflugi og 36 af 112 lend-
ingum.
Gífurlegt sprengigos í Pinatubo-eldfjalli á Filippseyjum:
Svepplaga gosmökkurmn
teygði sig 16 km í loft upp
Clark-herstöðinni á Filippseyjum. Reuter.
SPRENGING varð í Pinatubo-eldfjalli á Filippseyjum í gærmorgun
og flaug bráðið gijót og sjóðandi leðja gegnum loftið. Gos hófst í fjall-
inu á sunnudag í fyrsta sinn í sexhundruð ár. I gosinu í gær þeytti
fjallið svepplaga kæfandi ösku- og reykjarmekki um 16 kílómetra upp
í loftið af afli sem nálgaðist kjarnorkusprengingu. Sérfræðingar telja
að önnur sprenging geti orðið og hafa stækkað radíus hættusvæðisins
í kringum fjallið úr 20 km í 30 km.
Hundruð bandarískra hermanna gosinu í gær. Áður hafði þriggja
hvort hægt verður að hefja starf-
semi í stöðinni á ný eftir að gosi
lýkur vegna nálægðar hennar við
eldfjallið.
Unzen-fjall í Japan:
og Filippseyinga í Clark-herstöð
bandaríska flughersins og ná-
grenni hennar áttu fótum sínum
fjör að launa þegar glóandi hrauni
og sjóðandi leðju rigndi yfir svæð-
ið. Regnið skyggði á sólina og því
fylgdi megn brennisteinsfnykur.
Þúsundir innfæddra og flestir
hinna 16.000 hermanna og fjöl-
skyldna þeirra í Clark-herstöðinni
höfðu þegar yfirgefið svæðið. Við-
vörunarflauta var sett í gang í
herstöðinni og flýði fólk stöðina í
ofboði á bílum sínum. Þúsundir
flýðu einnig borgina Angeles, sem
er í 27 km fjarlægð frá Pinatubo,
og um 30.000 manns leituðu á
náðir 36 miðstöðva sem opnaðar
hafa verið í þremur héruðum i
nágrenni íjallsins til að taka við
fólki sem yfirgefur heimili sín.
Einn hermaður lét lífið í bílslysi
vegna lélegs skyggnis en ekki er
vitað til þess að fleiri hafi farist í
Ástralía:
Aukið fylgi Hawke
Sidney, Brisbane. Reuter.
BOB Hawke, forsætisráðherra
Ástralíu, hefur aukið fylgi sitt
sem ákjósanlegasta forsætisráð-
herraefnið samkvæmt skoðana-
könnun Gallup. Þar kemur einnig
fram að ríkisstjórn Verkamanna-
flokksins hefur saxað töluvert á
það forskot sem skoðanakannanir
hafa sýnt að Frjálslyndi flokkur-
inn og Þjóðarflokkurinn höfðu
náð.
Skoðanakönnunin, sem var gerð
að kvöldi hins 3 júni, sama dags og
baráttan um formannsembættið í
ára gamall drengur látist eftir að
hafa andað að sér eitruðum loftteg-
undum.
Vinstrisinnaður stjórnmálahóp-
ur hefur gefið út viðvörun um að
ef bráðið gijót úr eldfjallinu lendi
á kjarnorkuvopnum, sem þeir telja
að séu geymd í Clark-herstöðinni,
þá geti stórt svæði orðið fyrir geisl-
un. Talsmenn bandaríska flughers-
ins segja engin vopn vera í hættu
í stöðinni en neita að staðfesta
hvort kjarnorkuvopn séu geymd
þar.
Að mati sérfræðinga er óvíst
Ibúar gossvæðisins hvattir
til að halda sig innan dyra
Tnl/im PqiiÍqi' ^ ^
Tokyo. Reuter.
HNEFASTÓRUM hraunklump-
um rigndi frá Unzen-eldfjalli í
gær og hvöttu yfirvöld íbúa
svæðisins í kringum fjallið, um
180.000 manns, til að vera inni
við en hættu við að flytja alla
íbúa Shimabara-skaga, sem Unz-
en stendur á, í burtu.
Unzen-fjall gaus tvisvar í síðustu
viku. A.m.k. 38 manns fórust og
flytja varð um 10.000 manns, sem
búa við rætur og í hlíðum fjallsins,
í burtu. í gærkvöld hafði heldur
dregið úr eldvirkni en hún náði
hámarki um hádegisbilið í gær. Á
þriðjudagskvöld rigndi hraunmolum
yfir bæi í um 8 km fjarlægð frá
fjallinu. Kosuke Kamo, eldfjalla-
fræðingur ríkisstjórnarinnar og yf-
irmaður spánefndar Tokyo-borgar
um jarðskjálfta og eldgos, sagði að
ekki væri hætta á stórri sprengingu
í fjallinu að svq stöddu.
Verkamannaflokknum á milli Haw-
kes og Pauls Keatons átti sér stað,
sýndi að 48% Ástrala vilja Hawke
sem forsætisráðherra, sem er átta
prósenta aukning frá í síðustu könn-
un. Fylgi ríkisstjórnar Verkamanna-
flokksins, hefur líka stóraukist sam-
kvæmt könnuninni og er nú um
38%, en tveir stærstu stjórnarand-
stöðuflokkarnir hafa samtals um
45% fylgi. Þessar tölur gefa Hawke
og flokki hans óvæntan meðbyr sem
gæti haldist til kosninganna 1993.
Sendiherra Bangladesh:
Höfum fengið langmesta
hjálp frá Saudi-Aröbum
VIÐ HÖFUM fengið aðstoð vegna náttúruhamfaranna frá meira en
40 ríkjum auk alþjóðastofnana en langmesta frá Saudi-Arabíu, um
106 milljónir Bandaríkjadollara, þarnæst koma Bandaríkjamenn,"
sagði A.N.M. Nuruzzaman, nýr sendiherra Bangladesh á Islandi í sam-
tali við Morgunblaðið í vikunni. Hann afhenti Vigdísi Finnbogadóttur
forseta trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum á mánudag og hefur átt við-
ræður við íslenska embættismenn í utanríkisráðuneytinu. Sendiherr-
ann, sem hefur aðsetur í Stokkhólmi, var spurður um ástandið í
Bangladesh og gang hjálparstarfsins eftir flóðin er ollu dauða 139.000
manna í apríl.
Nuruzzaman sagði helst skorta
hentuga fæðu, m.a. þurrkuð mat-
væli, einnig vatnshreinsitöflur, lyf,
eldsneyti, tjöld, teppi og ýmis áhöld
eins og rafmótora og fjarskiptabún-
að. Hann sagði Bandaríkjamenn
hafa unnið gott starf á flóðasvæðun-
um en þangað var sént nokkuð lið
landgönguliða frá átakasvæðunum
við Persaflóa. „Þeir komu með gríð-
arstórar þyrlur og stór skip sem við
eigum ekki nóg af og gátu þannig
flutt hjálpargögn til fólksins á lág-
lendinu þar sem neyðin var mest og
samgöngur lélegastar. Það var ekki
síður mikilvægt að þeir komu með
24 stöðvar til að hreinsa vatn sem
var og er hvarvetna mengað og því
hættulegt. Enn eru fáeinir Banda-
ríkjahermenn eftir til að stjórna
þessum stöðvum en flestír eru farn-
ir.“
Bangladesh er eitt þéttbýlasta og
fátækasta land í heimi, þjóðartekjur
afar lágar og náttúruauðlindir aðrar
en fijósamt land eru aðeins gnægð
af gasi og dálítið af olíu. íbúarnir
eru um 110 milljónir, nær allir mú-
slimar, og landið ívið stærra en ís-
land. Sendiherrann sagði að fólkið á
óshólmasvæðum Ganges og Brama-
pútra-fljótanna, þar sem manntjónið
var mest, væri blásnautt og þótt það
vissi um flóðahættuna væri freist-