Morgunblaðið - 13.06.1991, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR: lí JÚNI 1991
51
Sumardagiir
Við vorum fímm sem gengum eft-
ir sveitaveginum. Það var á einum
af þeim dögum, þegar dökkgráir
skýjabólstrarnir komu inn yfir landið
með hlýjum sunnanvindinum og
vökvuðu landið tæru svalandi regni.
Þessi samvera úti í náttúrunni fyllti
brjóst okkar djúpri unaðstilfinningu.
Orð voru óþörf. Aðeins þessi sam-
verustund með allri sinni upplifun
gerði okkur, þrátt fyrir smæð okkar,
meðvituð um mikilvægi okkar, og
að við byggjum í stórkostlegum lysti-
garði Guðs hins almáttuga skapara
okkar og föður. Friður streymdi um
hugann. Hve marrið í mölinni undir
skónum okkar við hvert fótmál hafði
róandi áhrif. Eða finna ilminn af
grasi og lyngi, og lyktina af rakri
moldinni.
Er við sveigðum út af veginum
niður yfir túnið, blasti við okkur svo
undursamleg sjón, að eðlilegast hefði
verið að stökkva með útrétta arma
móti þeirri lifandi mynd sem augun
báru vitund okkar.
Neðan við túnið var áin, og við
hana áðum við eins og ákveðið hafði
verið. En fyrst gengum við upp á
lítið nes, sem lá út í ána. Mjó kletta-
nibba skarst út í hana og settumst
við skammt þar frá. Útsýnið er erf-
itt að færa í búning orða.
Hún hafði orð á því hve ljósgrænn
litur árinnar væri fallegur, og það
var unaðslegt að horfa í lygnan
strauminn. Aður en snætt var skoð-
uðum við umhverfið nánar, og stukk-
um niður klettana út á sendinn ár-
bakkann fyrir neðan. I klettaskorun-
um höfðu fallegar, litum skreyttar
blómjurtir fest rætur. Áin liðaðist
hljóðlaust framhjá og lék svo fallega
á tónspil kyrrðarinnar. Meðan ég
renndi augunum yfir bergið og
strauk lófa mínum yfir mjúkan
sandinn, hafði hún sest niður í grasb-
alann fyrir ofan og tíndi blóm. Eg
gekk þangað, og er ég kom til henn-
ar rétti hún mér litskrúðugt blóma-
búnt og brosti með blik í augum.
Skömmu seinna er við sátum að
snæðingi og horfðum á hið tilkomu-
mikla landslag, þar sem litum prýtt
fjallið í fjarlægð hinum jnegin ár-
bakkans bar í skauti sínu lítinn
bóndabæ, sem kúrði hvítur og rauður
í gr’asivaxinni hlíðinni, læddust þung-
búin skúraský úr suðri í áttina til
okkar. Hinum megin við ána barst
okkur vélakjölt heyvinnuvélanna,
sem kepptust við að koma sem mestu
í hús áður en demban dyndi yfir.
Innan skamms syrti yfir svo alger-
lega, að hinn ljósgrænblái litur árinn-
ar breyttist nú í grádílóttan flöt,
þegar regndroparnir skullu niður á
vatnið og minnti einna helst á gígótt
tunglsyfirborðið. Síðan þá hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar.
Einar Ingvi Magnússon
Gerum allt vitlaust!
Þessi orð eru höfð eftir Rikka
Rakettu (Rockett), trommara Eitur-
naglanna (Poison), einnar sex er-
lendra þungarokkhljómsveita sem
ásamt einni íslenskri ætla að halda
öskurhátíð mikla á Kaplakrikavelli
við Hafnarfjörð 16. júní nk. Rikki
segir ennfremur að þetta „ætti að
geta verið geggjaður pakki.“ Ekki
efast ég um það.
Það er fyrirtækið Rokk hf. sem
stendur fyrir þessari mjög svo ógeð-
felldu uppákomu. Til að „hala inn“
nóga peninga þá hefur öskurhátíðin
verið auglýst erlendis. Alan Ball,
aðstoðarframkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, segir m.a. í viðtali í Mbl.
2. júní: „Yfirleitt reyni ég að „selja“
Island fyrst og fremst. Það hafa
flestir heyrt eitthvað um landið, ekki
mikið, en nógu rnikið til þess að
þeir ei-u forvitnir. Það er þá helst
fegurð landsins eða stúlknanna, sem
þeir hafa heyrt mikið af látið!“
Alveg er ég búin að fá mig
fullsadda af því hvernig unga, ís-
lenska stúlkan hefur árum saman
verið notuð sem agn til að laða hing-
að erlenda karlmenn. Höfum við ráð
á því? 15-24 ára eru þær 750 færri
en jafnaldra íslenskir piltar. Er ekki
mál að linni? Burtséð frá því þá er
svona uppákoma stóhættuleg ung-
viðinu sem hana sækir því búast
má við að erlendir fíkniefnasalar og
allskyns landshornalýður fjölmenni
hingað. Að bjóða þeim upp á „að
gramsa" í öllum þeim fjölda ung-
menna sem tónleikana sækir að lík-
um, er blátt áfram tilræði við þau.
Er ekki líka verið að „stela“ frá
okkur 17. júní?
Því miður er það svo að fjölmarg-
ir unglingar eru oft afvelta vegna
drykkju á þjóðhátíðardaginn. Mun
ekki það sam gerast á Kaplakrika-
velli þann 16.? Er ekki hætta á að
margur bjargarlaus unglii]gurinn
verði misnotaður? Forsvarsmenn
bæjarfélaga og aðrir ættu að hugsa
sig tvisvar um áður en þeir láta
mönnum i té „athafnasvæði“ fyrir
slíkar „hátíðir", eða ættum við að
kalla það „galdramessur"? Er öllu
fórnandi fyrir peninga?
Margir halda því fram að þunga-
rokk höfði til lægstu hvata, örvi
sjálfseyðingarhvöt og ýti undir of-
beldis- og glæpahneigð. Fjórtán ára
erlendur piltur banaði foreldrum sín-
um og sjö ára systur fyrir sex árum
og sagði lögreglu að Eddí, hin ill-
skeytta brúða Iron Maiden-þunga-
rokkhljómsveitarinnar, hafi sagt
honum að framkvæma verknaðinn.
Varðandi þungarokktónleika og
aðrar slíkar uppákomur þá er besta
vörn unglingsins gegn spillingaröfl-
um sú að hann hafi bindindissemi
fyrir sér á heimili sínu og viti hver
vítin eru sem varast ber.
Rannveig Tryggvadóttir
r GLÆsTlÉg AR VÖRUR ÁFRÁBÆRU vÉrðÍ 1
0 Gallabuxur 0 Waxjakkar 0 Veiðivesti
kr. 2.990,- kr. 5.900,- kr. 2.990,-
0 Pólóbolir o Rifloðar OT-bolirí
í sumarlitum flauelsbuxur sumarlitum
kr. 1.190,- kr. 1.990,- kr. 490,-
Allt ó frábæru verði
PÓSTKRÖFUÞJÓNUSTA
Einnig:
0 Kakhibuxur 0 Flónelsskyrtur 0 Herrapeysur 0 Sportúlpur 0 Vindsett 0 Regnsett 0 Hettubolir 0 Terylinebuxur 0 Sokkar
0 Húfur 0 Jogginggollor 0 Skár 0 Stiavél 0 Svefnpokor 0 Bakpokar 0 Töskur 0 Útileiauaræiur 0 O.m.ll._
OPNUNARTÍMI Mánudag — föstudag frá kl. 13—18. Laugardag frá kl. 10—14.
H uós *—— miiftKmu
SKODA oál H 3 R E K K K~~É‘ TOYOTA
Hagvöxtur tramtíðar er í lækkuðu vöruverði á hagkvæmum góðum vörum
Nýbýlavegi4 (Dalbrekkumegin), Kópávogi, símar 91-45220
Bílapartasölucross ’91:
Páll og Gísli sigurvegarar
PÁLL Melsted á Hondu CR 250
sigraði í flokki mótorhjóla í
motocrosskeppni sem haldin var
uin síðustu helgi, Bílapartasölu-
cross ’91. í flokki fjórhjóla sigraði
Gísli Jón Gíslason á Suzuki.
Ómar Stefánsson á Suzuki RM
250 varð annar í mótorhjólaflokknum
og þriðji Jón Bjamason á Yamaha
YZ 250. í flokki fjórhjóla varð Óskar
Sigurðsson á Suzuki Qr 250 annar.
Motocrosshjólin keyrðu í þrisvar
sinnum 15 mín. og fjórhjólin tvisvar
í 15 mín. Hver hluti er kallaður
Moto, og gefin stig fyrir hvert þeirra.
Þannig fær sé keppandi sem er fyrst-
ur 20 stig, 17 stig eru gefin fyrir
annað sæti, 15 fyrir þriðja, 13 fyrir
fjórða o.s.frv. Sá er hlýtur flest stig
samanlagt telst sigurvegari.
Morgunblaðið/Hermann S. Ásmundsson
Páll Melsted.
Myndlistarnámskeið fyrir börn
Getum enn bætt við börnum, á aldrinum
7-12 ára, á myndlistar-
námskeið í sumar.
Farið verður í eftirfarandi:
Leirmótun — málun —
blandaða tækni — teikningu og fleira
Hvort námskeið stendur yfir í 2 vikur,
2 klst. á dag (20 klst.)
Leiðbeinendur verða:
Guðlaug Halldórsdóttir, grafískur hönnuður
og Helga Jóhannesdóttir, leirlistakona
- Báðar hafa veitt barnastarfi forstöðu -
Innritun verður alla virka daga frá kl. 9-16 í hús-
næði Tónlistarskóla Eddu Borg í Hólmaseli 4-6.
Upplýsingar í síma 73452.
SIEMENS
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávalit sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300