Morgunblaðið - 19.06.1991, Síða 4
4
MORGL"KRI.AÐH) MIÐVÍRGOAOUR 1091
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, í þjóðhátíðarræðu sinni:
Skilgreina þarf opin-
bera ábyrgð á nýjan leik
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð-
herra, gerði i þjóðhátíðarávarpi
til íslendinga 17. júní að umtals-
efni stöðu íslands í samfélagi þjóð-
anna í breyttri veröld, þar sem
Ríkisstjórnin hafði á fyrri fundi
ákveðið að veita Byggðastofnun 200
milljón króna lán hjá ríkissjóði, sem
hún gæti síðan endurlánað rækju-
vinnslunum, meðal annars til skuld-
breytinga. „Byggðastofnun telur að
henni sé ekki fært að veita slík lán,
samningar og sáttmálar þjóða í
miili og innan þjóðabandalaga
verði æ umfangsmeiri. Þessi þró-
un hafi þýtt að sjálfsákvörðunar-
réttur þjóða hafi í raun verið tak-
vegna þess að fæstar rækjuvinnsl-
anna geti veitt neinar tryggingar
fyrir lánum af þessu tagi og líkleg-
ast sé því að þessar 200 milljónir
munu tapast," sagði forsætisráð-
herra.
markaður með beinum eða óbein-
um hætti og fámenn þjóð eins og
íslendingar þurfi að fylgjast náið
þessari þróun.
Þá ræddi forsætisráðherra skuld-
setningu þjóðarinnar og sagði að
gáleysi okkar í þeim efnum hlyti
fyrr eða síðar að koma okkur í koll.
Stórkostlegum fjármunum hafi verið
eytt og sóað, stundum til svokallaðr-
ar björgunar atvinnuveganna, án
þess að tekið væri á nokkrum vanda,
og stundum væri hlaupið fyrirhyggj-
ulaust eftir einhvetjum njjungum í
atvinnurekstri. Þessar upphæðir
hlypu á milljörðum og tugum millj-
arða króna án þess að nokkur bæri
ábyrgð. „Hér bíður okkar allra mikið
starf; við verðum að skilgreina opin-
bera ábyrgð á nýjan leik og gera
ríkar kröfur til okkar sjálfra, og bera
okkur þannig að í framtíðinni að við
getum horft keik til baka,“ sagði
forsætisráðherra ennfremur í ræðu
sinni.
Sjá ræðu forsætisráðherra í
heild á bls. 54.
Forsætisráðherra um vanda rækjuvinnslunnar;
Mál Byggðastofnunar ef hún
treystir sér ekki til lántöku
VANDI rækjuvinnslunnar var til umfjöllunar á rikisstjórnarfundi í
gærmorgun og sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær að Alþingi hefði heimiiað ríkisstjórninni að lána
Byggðastofnun 200 milljónir króna til endurlána. „Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að notfæra sér þá heimild og bjóða Byggðastofnun upp á þetta
ián. Treysti Byggðastofnun sér ekki til þess að taka á móti því láni, þá
er það ákvörðun þeirrar stofnunar," sagði forsætisráðherra.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 19. JUNI
YFIRLIT: Yfir landinu er hæðarhryggur, en um 1.000 km suðvestur
í hafi er 995 mb lægð á hreyfingu norðvestur.
SPÁ: Breytileg átt, víðast gola eða kaldi. Léttskýjað. Hiti allt að
20° inn til sveita en svalara við sjóinn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og
víða léttskýjað. Hlýtt yfir daginn inn til landsins en svalara við sjó-
inn, einkum norðanlands og austan.
Svarsfmi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
s, Norðan, 4 vindstig:
- Vindörin sýnir vind-
■) o Hitastig:
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * Él
V
Léttskýjað / / / /ii/ Rigning = Þoka
/ / r — Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 5 5 Súld
Skýjað r * / * Slydda oo Mistur
/ * /
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma R Þrumuveður
% H /
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 18 léttskýjað
Reykjavík 14 léttskýjað
Bergen 14 skúr á sið. klst.
Helslnki 15 skýjað
Kaupmannahöfn 11 rigning
Narssarssuaq 7 skýjað
Nuuk 5 þokaigrennd
Ósló 15 skýjað
Stokkhólmur 10 rigning
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 23 heiðskírt
Amsterdam 14 skúr á síö. klst.
Barcelona 19 léttskýjað
Berlín 14 skýjað
Chicago 19 léttskýjað
Feneyjar 22 léttskýjað
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 11 rigning
Hamborg 15 skýjað
London 14 skýjað
Los Angeies 17 þokumóða
Lúxemborg 12 skúrésið.klst.
Madríd 23 léttskýjað
Malaga 23 mistur
Mallorca 22 skýjað
Montreal 19 heiðskfrt
NewYork 18 alskýjað
Orlando 24 alskýjað
París 15 skýjað
Madeira 19 skýjað
Róm 22 heiðskfrt
V/n vantar
Washington 23 skúr
Winnipeg 13 léttskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölskyldudagur
Fjölskyldudagur starfsmanna Borgarspítalans var haldinn á laugar-
daginn og var hann mjög vel sóttur enda veður með eindæmum
gott. Þyrla Landhelgisgæzlunnar var sýnd og gerði það atriði einna
mesta lukku hjá yngstu þátttakendunum.
Sr. Emil Björnsson
fv. fréttasljóri látinn
Sr. Emil Björnsson, fyrrver-
andi dagskrárstjóri frétta- og
fræðsludeildar Sjónvarpsins og
prestur Óháða safnaðarins, lést
á Borgarspitalanum mánudaginn
17. júní, á 76. aldursári.
Emil fæddist 21. september 1915
á Felli í Breiðdal, S:Múlasýslu. For-
eldrar hans voru Ámi Bjöm Guð-
mundsson bóndi þar og kona hans
Guðlaug H. Þorgrímsdóttir ljósmóð-
ir. Emil lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1939.
Hann stundaði nám í viðskiptadeild
Háskóla íslands 1939-41, og lauk
guðfræðiprófi við skólann 1946.
Hann dvaldist í Finnlandi við nám
sumarið 1953, og við nám og störf
í London og Canterbury 1960-61.
Hann fór í námsdvöl hjá sjónvarps-
stöðvum í Bandaríkjunum 1965.
Emil var ræðuskrifari í Alþingi
1941-50, fréttamaður hjá Ríkisút-
varpinu 1944-65 og jafnframt oft
settur fréttastjóri og fastur stað-
gengill fréttastjóra síðustu árin og
vann að undirbúningi sjónvarps
fyrsta árið þar. Hann var dagskrár-
stjóri frétta- og fræðsludeildar
Sjónvarpsins frá upphafi þess 1965
til ársins 1985 er hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir. Emil var
prestur Óháða safnaðarins í 34 ár,
eða allt frá stofnun safnaðarins
árið 1950. Hann var aðalhvatamað-
Sr. Emil Björnsson.
ur að kirkjubyggingu safnaðarins,
og var formaður kirkjubyggingar-
nefndar og framkvæmdastjóri
byggingarinnar 1956-59 en það ár
var kirkjan vígð. Hann var formað-
ur Blaðamannafélags íslands
1965-66. Ýmis rit liggja eftir Emil,
en eftir að hann hætti störfum hjá
Sjónvarpinu ritaði hann meðal ann-
ars sögu Óháða safnaðarins og eig-
in æviminningar.
Emil lætur eftir sig eiginkonu,
Álfheiði Guðmundsdóttur, og fjögur
börn.
Oddur Guðjónsson
fv. sendiherra látinn
ODDUR Guðjónsson, fyrrverandi
sendiherra, lést í Landakotsspít-
ala mánudaginn 17. júní síðastlið-
inn, 85 ára að aldri. Hann var
fæddur í Reykjavík 28. janúar
árið 1906.
Oddur stundaði háskólanám í
Þýskalandi á árunum 1927-1934
og hlaut doktorsgráðu í hagfræði
frá Christian Albrecht-háskólanum
í Kiel.
Oddur var skrifstofustjóri Versl-
unarráðs íslands 1934-1943. Hann
var skipaður í viðskiptaráð árið
1943 og varð formaður ráðsins árið
1945. Oddur var forstjóri innflutn-
ingsskrifstofunnar 1953 en árið
1961 var hann settur ráðuneytis-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu. Arið
1962 var hann skipaður viðskipta-
ráðunautur ríkisstjórnarinnar.
Oddur var varaformaður sendi-
nefndar SÞ um viðskipti og þróun-
armál í Genf árið 1964. Að tillögu
utanríkisviðskiptaráðuneytisins í
Prag var Oddur sæmdur gullmed-
alíu árið 1966 fyrir eflingu við-
skipta við Tékkóslóvakíu. Oddur
hlaut íslensku Fálkaorðuna 1959
en æðsta stig hennar, stórriddara-
kross með stjörnu, hlaut hann árið
1974.
Oddur var skipaður sendiherra í
Oddur Guðjónsson
Sovétríkjunum 1968 og á sama
tíma var hann skipaður sendiherra
í Búlgaríu, Rúmeníu og Ungverja-
landi. Hann var fyrsti sendiherra
íslands í Austur-Þýskalandi árið
1973. Árið 1974 var Oddur skipað-
ur sendiherra í utanríkisþjónustunni
í Reykjavík.
Eftirlifandi eiginkona Odds er
Lieselotte Guðjónsson. Þau eignuð-
ust þrjú börn, Maríu, Liselotte
Franzisku og Þóri.