Morgunblaðið - 19.06.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.06.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991 27 ■ RÓM - Nýr stjórnmála- flokkur, La rete (Netið), sem beinir spjótum sínum mjög gegn Mafíunni og bauð nú í fyrsta sinn fram í héraðskosningunum á Sikil- ey sem fram fóru um helgina, náði góðum árangri og fékk 7,3% atkvæðanna. Flokkur Giulio Andreottis forsætisráðherra, Kristilegi demókrataflokkurinn, bætti við sig þremur og hálfu pró- sentustigi og fékk 42,3%, en Lýð- ræðisiegi vinstriflokkurinn, sem er kommúnistaflokkurinn fyrrver- andi, tapaði ríflega sjö prósentu- stigum frá því i kosningunum 1986 og fékk 11,4%. Sósíalista- flokkur Bettinos Craxis sem gerði sér vonir um að hljóta at- kvæði fyrrverandi kommúnista bætti við sig innan við einu pró- senti og fékk 15,2% atkvæðanna. ■ MOSKVU - Eftirskjálft- ar fundust víða í Georgíu á sunnudag. Aðalskjálftinn sem skók norðanvert landið á laugar- dag kostaði átta manns lífið og yfir 200 manns slösuðust. Hann mældist átta stig á tólf stiga so- véskan mælikvarða, en eftir- skjálftarnir á sunnudag þijú stig. Mest varð tjónið í stóra skjálftan- um í Suður-Ossetíu þar sem tugir manna hafa fallið í þjóðernisátök- um að undanförnu. ■ KÚVEITBORG - Her- réttur í Kúveitborg kvað upp dauðadóma yfir alls níu mönnum í gær fyrir meint samstarf við inn- rásarlið íraka. Hafa þá verið kveðnir upp dauðadómar yfir 21 manni. Meðal annars var 55 ára gömul jórdönsk kona dæmd til dauða fyrir að sækja um vinnu á dagblaði sem var hallt undir íraka meðan á hernámi þeirra stóð í Kúveit. Ríkisstjóm Jórdaníu for- dæmdi réttarhöldin yfir henni og 200 öðrum einstaklingum sem sakaðir eru um að hafa átt sam- starf við íraka. Konan og allir hin- ir sakbomingarnir höfðu lýst yfir sakleysi sínu. ■ KARACHI - Grímuklædd- ir menn vopnaðir byssum skutu í gær til bana pakistanskan dóm- ara, Nabi Sher Junejo, sem haft hefur til meðferðar málið á hendur eiginmanni Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra. Einnig létu lífíð í skotárásinni bílstjóri dómarans og lífvörður. ■ ANKARA - Mesut Yilmaz, fyrram utanríkisráðherra Tyrklands, var tilnefndur forsætis- ráðherra landsins í gær, tveimur dögum eftir að hann hafði borið sigurorð af fráfarandi forsætisráð- herra, Yildirim Akbulut, í glímunni um formannsembættið í Föðurlandsflokknum sem fer með völdin í landinu. „Eins og stjórnar- skráin mælir fyrir um hef ég falið Mesut Yilmaz að mynda ríkis- stjórn,“ sagði Turgut Ozal forseti í viðtali við Anato/í'a/i-fréttastof- una. Vilmaz er fyrsti tyrkneski stjórnmálamaðurinn sem verður forsætisráðherra eftir að hafa unnið formannsslag í ríkjandi stjómarflokki. Hann mun að öllum líkindum leiða flokkinn í almenn- um kosningum sem fram eiga að fara í landinu árið 1992. ■ BÚDAPEST - Það verða merk tímamót í heimflutningi sov- éskra heija frá Austur-Evrópu þegar sovéskir herflokkar hverfa frá Ungverjalandi og Tékkósló- vakíu í þessari viku. Ungveijaland verður fyrsta Austur-Evrópurikið sem sovéskt herlið yfirgefur alger- lega í kjölfar lýðræðisbyltingarinn- ar í þessum heimshluta og loka kalda stríðsins. Sovétmenn munu einnig Ijúka heimflutningi her- manna sinna frá Tékkóslóvakíu í þessari viku, en brottför þeirra frá Póllandi og austurhéruðum Þýskalands kann að dragast til aa94________________________-•__i Eldgosið á Filippsexjum: Fórnarlömbin orðin 207 en gosið í rénun Manila, Olongapo, Clark-herstödinni, Tokyo, Hong Kong. Reuter. ALLS hafa 207 manns farist af völdum eldgossins í Pinatubofjall- inu á Filippseyjum að því er áætlað var í gær. Svo virðist sem gosið sé í rénun og hefur hættusvæðið í kringum það verið minnk- að. Bandarísk herskip höfðu í gær flutt 5.700 manns úr flotastöð- inni við Subic-flóa, sem er staðsett nálægl eldfjallinu og er stærsta herstöð Bandaríkjamanna í Asíu ásamt Clark-flugbækistöðinni sem nú er þakin öskulagi og hraungrýti. Gosið hefur komið illa niður á efnahagslífi Filippseyja og bæði Bandaríkin og Japan hafa ákveð- ið að rétta stjórnvöldum hjálparhönd. Reuter Þetta hrófatildur, sem sett er saman úr braki húsa sem fallið hafa saman undan ofurþunga öskulags, er nú heimili fjölskyldu nokkurr- ar í borginni Olongapo á Filippseyjum. Þingkosningunum á Indlandi lokið: Flestir hafa látist þegar þök húsa létu undan öskuþunganum sem safnast hafði á þau. I borg- inni Olongapo, sem er 300.000 manna borg nálægt Clark-stöð- inni, hafa þijú af hveijum fjóram þökum hrunið undan farginu. íbú- arnir keppast við að moka ösku Rao líklegnr leiðtogi Kongressflokksins Flokkurinn vonast eftir liðhlaupum úr öðrum flokk- um til að geta myndað starfhæfa meirihlutastjórn Nýju Delhí, Chandigarh. Reuter. FLEST benti til þess í gær að Narisimha Rao, 69 ára dyggur stuðn- ingsmaður Rajivs heitins Gandhis, fyrrverandi forsætisráðherra Ind- lands og leiðtoga Kongressflokksins, yrði fyrir valinu sem forsætis- ráðherraefni flokksins eftir að þingkosningunum í landinu lauk á laugardag. Er úrslit lágu fyrir í um fjórðungi kjördæmanna var talið að Kongressflokkinn myndi skorta tuttugu þingsæti til að ná meirihluta. Búist er við að forsætisráðherraefnið reyni að laða þing- menn úr öðrum flokkum til inngöngu í Kongressflokkinn til að geta myndað meirihlutastjórn. Rao sagði að nefnd sjö forystu- manna Kongressflokksins væri að ræða fyrir luktum dyrum hvernig staðið yrði að vali á nýjum leið- toga, sem yrði falið að mynda fjórðu stjórn Indlands á tveimur árum. Hann kvaðst vera þeirrar skoðunar að best væri að samkomulag næðist um leiðtoga innán nefndarinnar sjálfrar. Helsti keppinautur Raos er Sharad Pawar, sem er fímmtugur og nýtur stuðnings áhrifamikilla iðjuhölda í ríkinu Maharashtra í vesturhluta landsins. Helsta fjár- málamiðstöð Indlands, Bombay, er höfuðborg ríkisins. Pawar kvaðst vilja að efnt yrði til leynilegrar at- kvæðagreiðslu um leiðtoga á meðal allra þingmanna flokksins/ Svo virtist sem meirihluti félaga í Kongressflokknum styddi Rao, sem er hámenntaður ■ yfirstéttar- maður frá ríkinu Andhra Pradesh. Hann gegndi mikilvægum ráð- herraembættum er Indira Gandhi og sonur hennar, Rajiv, voru við völd. Heimildarmaður innan forystu Kongressflokksins segir að Rao sé líklegastur til að verða fyrir valinu sem leiðtogi vegna þess að Rajiv Gandhi hafi borið mikið traust til hans sem stjórnmálamanns. Pawar gjaldi hins þess að hann hafi reynt að bola Gandhi frá leiðtogastöðunni eftir ósigur flokksins í þingkosning- unum 1989. Heimildarmaðurinn segir að dyggir stuðningsmenn Gandhis hafi bæði tögl og hagldir í sjö manna nefndinni og þeir muni örugglega ná samkomulagi um leiðtoga áður en allir þingmenn flokksins koma saman síðar í vikunni. af þeim til að varðveita heimili sín. Um 250.000 manns hafa nú flúið brott af hættusvæðinu og hafast við í 300 búðum sem settar hafa verið upp í höfuðborginni Manila og þar í kring. Bandarísk herskip hafa hafíð flutning á fólki frá flotastöðinni í Subic vegna þess að flugvöllurinn í Manila hefur verið lokaður sökum öskufalls. Þegar hafa 5.700 manns verið fluttir af svæðinu og að sögn talsmanns bandariska sendiráðs- ins, Stanleys Schragers, er ætlun- in að flytja alla þá Bandaríkja- menn sem þar eru, um 20.000, burt. Tveir hafa látið þar lífið og var annar þeirra níu ára bandarísk telpa. Japanir tilkynntu í gær að þeir myndu láta af hendi rakna nauð- synleg hjálpargögn að verðmæti 400.000 Bandaríkjadala (um 25 milljónir ÍSK). Schrager sagði einnig að Bandaríkjastjórn myndi senda eina milljón tilbúinna máltíða til þeirra sem flúið hafa heimili sín. Talið er að skemmdir af völdum gossins nemi um 200 milljónum Bandaríkjadala (rúmum 12 milljörðum ÍSK) og era þá skemmdir í bandarísku herstöðv- unum ekki taldar með. Hjaðnað Tiefur í eldjallinu eftir umbrotin um síðustu helgi og því hefur hættusvæðið í kringum það verið minnkað úr 40 km í 20 km. Um 200 starfsmanna Clark-stöðv- arinnar hafa snúið til baka auk 1.500 öi’yggisvarða. Þeir vonast til þess að koma starfsemi stöðvar- innar að mestu af stað innan viku þrátt fyrir erfíðar aðstæður. A JUNI-TILBOÐI er glæsilegt úrval rattan húsgagna á alveg ótrúlega góðu verði! CASABLANCA XW SMMnmsÍ /gera heímili • í qar< heimilið glæsilegt garðskálann í borðstofuna í sumarbústaðinn í sjónvarpsherbergið Smiðjuvegi 6, Kópavogi, sími 44544
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.