Morgunblaðið - 19.06.1991, Qupperneq 9
Keflavík
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991
9
Brenndist illa eftir leik
með eld og bensín
TVEIR ungir menn brenndust
þegar þeir gerðu sér leik að því
að kveikja i bensíni siðastliðinn
laugardag í Keflavík. Annar
mannanna var fluttur á sjúkrahús
í Reykjavík, mikið brenndur á
fæti.
Mennirnir voru í hópi unglinga
sem unnu að slætti á vegum bæjar-
ins við pósthúsið í Hafnarstræti. í
kaffitímanum gerðu piltarnir sér leik
að því að hella bensíni úr brúsa á
stein og kveikja í því. Eldurinn varð
meiri en þeir áttu von á og ætlaði
annar þeirra að fjarlægja bensínbrús-
ann með því að sparka honum frá
eldinum. Vildi svo illa til að bensín
úr honum skvettist á fót félaga hans
og eldur læsti sig í hann.
Talið er að pilturinn hafi hlotið
2. stigs bruna. Hinn pilturinn slapp
með minniháttar bruna á höndunum.
Hugabu að
sparnaðinum
þegar þú gerir
innkaupin.
Þjónustu-
miðstöð
ríkisverðbréfa
er líka
í Kringlunni
Hringdu eða komdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og fáðu nánari upplýsingar um
áskrift að spariskíríeinum ríkissjóðs.
Þjónustuniiðstöðin er fyrir fólkið í landinu.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæð, sími 91- 626040 og Kringlunni, sími 91- 689797
Með og á móti allaböllum
Steingrímur Hermannsson, sem er svo mikill snillingur, að hann
getur ekki einasta verið með og á móti sömu ríkisstjórninni; hann
fer létt með að vera með sama málinu og á móti í sömu málsgrein-
inni.
Arásin
Þessi árás á fráfarandi
forsætisráðherra og
formann Framsóknar-
flokksins var gerð í for-
ustugrein helgaiblaðs
Þjóðviljans um sl. lielgi.
Hún er skrifuð af engum
öðrum en Svavari Gests-
syni, fráfarandi mennta-
málaráðherra. Hann tel-
ur sig geta trútt um tal-
að, því hann er rétt slopp-
inn úr samstarfi með
Steingrími og framsókn-
armönnum, sem staðið
hefur allt frá haustinu
1988.
Forystugrein Svavars
í flokksmálgagninu er
ein allsheijarárás á fyrr-
um sartistarfsflokka í
ríkisstjóm Steingi-íms
Hermannssonar, Alþýðu-
flokk, en þó einkum
Framsóknarflokk. Það er
augljóst, hvers vegna
kratar sæta árásum Al-
þýðubandalagsfor-
ustuimai', því hún getur
ekki fyrirgefið Alþýðu-
flokknum að hafa mynd-
að ríkisstjóm með Sjálf-
stæðisflokki og skilið
allaballana utan stjómar-
ráðsins.
Bráðhlægilegt
Ráðlierrasósíalistar
Alþýðubandalagsins geta
ekki hugsað sér að
hverfa frá kjötkötlum
valdastólaima. Þeir hafa
ekki verið mönnum
sinnandi frá myndun nú-
verandi ríkisstjómar.
Vonbrigði sín og sárindi
hafa þeir borið á torg og
hefur stundum verið
bráðhlægilegt að fylgjast
með þeim.
Það er lúns vegar erfð-
ara að sjá og skilja, hvers
vegna Svavar beinir
spjótum sínum að Fram-
sóknarflokknum um
þessai' mundir, því fram-
sóknarmenn sitja jú úti í
kuldanum eins og hann.
Eina skýringin, sem
hægt er að lesa út úr
fomstugreinhmi er sú,
að Svavar og félagar ótt-
ist að framsóknarmenn
muni enn einu sinni
venda sínu kvæði i kross
í pólitíkinni, gefa vinstri
stjórn upp á bátimi og
leita eftir og undirbúa
stjórnarsamstarf með
Sjálfstæðisflokknum.
Nema þetta eigi að vera
dulbúin árás á flokks-
formamiiim Olaf Ragnar,
sem er gamall framsókn-
armaður.
En sjón er sögu ríkari
og lesendur geta hér á
eftir gluggað í forystu-
grein Svavars, sem bar
fyrirsögnina „Ný fram-
sóknaraðferð":
SöMgnrinn
„Framsóknarflokkur-
iim átti sem kunnugt er
aðild að ríkisstjórnum
svo lengi að nú þegar
hami lenti í stjómarand-
stöðu hafði aðeins eiim
þingmaður flokksms
einu simú konúð nálægt
stjórnarandstöðu:
Steingrímur Hermamis-
son. Framsóknarflokkur-
iim átti fyrst aðild að
stjórmnni 1971 til 1974
með Alþýðubandalaginu.
Sumarið 1974 var reynt
að mynda vinstri stjóm,
en tókst ekki vegna af-
stöðu Alþýðuflokksins.
Framsókn myndaði þá
ríkisstjóm með ihaldinu.
Og Tímimi og Framsókn-
arforystan hóf sönginn
um það að aldrei eða
sjaldan hefði setið hér
verri stjórn en sú siðasta.
Framsókn sat svo í stjóm
með íhaldinu til vors
1978. Þá beið hún afhroð
í kosningabaráttumú,
sneri við blaðinu og
heimtaði vinstristjóm og
samvinnu við samtök
launafólks. Ekki var sú
stjórn fyrr farin frá og
svo stjómin vorið 1983
en Framsóknarforystan
sneri enn við blaðinu og
taldi allt hafa verið í
kalda koli þegar ríkis-
stjómin skildi við. Þá
liafði tekið við forystu í
Framsóknarflokknum
Steingrímur Hermanns-
son sem er svo mikill
snillingur að haim getur
ekki cinasta verið með
og á móti sömu ríkis-
stjórninni; hann fer létt
með að vera með sama
málinu og á móti því i
sömu málsgreimmú."
I kaldakoli
„I lok stjómarinnar
1983 til 1987 taldi Fram-
sókn enda allt með mikl-
um blóma, en fór samt
inn í ríkisstjóm með
íhaldinu. Sú stjórn skildi
við í beii'mi útsendingu í
sjónvarpi í sláturtíðiniú
miðri haustið 1988. Hún
skildi við allt í kalda koli.
Það lag söng Framsókn
sem þó hafði verið í
stjórninni og hælt sér af
því. En þann söng fór
Alþýðuflokkuriim líka
með sem þó hafði verið
í stjórninni frá 1987.
Mátti ekki á milli sjá hvor
var snjallari i að svívirða
þessa stjórn Framsókn-
arforystan eða Alþýðu-
flokkurinn."
Hræsni
Fomstugrein Svavars
lýkur þannig:
„Þessi aðferð á sér
gamla sögu og langa;
frægt var það þcgar fjár-
málaráðherra Fram-
sóknarflokksins kvaðst i
kosningum skilja við
blómlegt bú. Myndaði svo
sjálfur ríkisstjóm og
varð aftur fjármálaráð-
hei-ra og sagðist aldrei
hafa tekið við öðrum eins
hryllingi. Þessi aðferð
var um áratugi kciuid við
Framsóknarflokkinn. Nú
hefur hann fengið skæð-
an keppinaut í hræsni og
yfirdi-epsskap, sem því
miður hefur svo að lok-
um þau álirif að enginn
tekur mark á stjómmála-
mönnum."
Þitt framlag
- þín eign
Hjá Almennum lífeyrissjóöi VÍ B, ALVÍ B, eru iðgjöld
hvers sjóðsfélaga færð á sérreikning hans. Inneignin
erfist og ársfjórðungslega er sent yfirlit um stöðu.
Hver sem er getur gerst félagi í AL.VÍ B. Þeir sem ekki
eru skyldugir til að greiða í annan lífeyrissjóð geta
greitt öll sín iðgjöld í ALVIB, aðrir geta greitt
viðbótariðgjöld. Ráðgjafar VTBveitafrekari upplýsingar
um eftirlauna- og lífeyrismál í afgreiðslunni Armúla
13a, og í síma 91-681530. Verið velkomin í VÍB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30. Telefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.