Morgunblaðið - 19.06.1991, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVÍKUDAGUR’ 19. JÚNÍ 1991
Meira af Tálknafénu:
Lömbin fengu nöfn
hreppsnefndarmanna
Patreksfiröi.
UNDIRRITAÐUR kom í hús hér
í þorpinu, þar sem eru fjórar ær
af Tálknakyninu, það er fénu
sem gengið hefur sjálfala í
Tálknanum sem er á milli Pat-
reksfjarðar og Tálknafjarðar.
Það eru bræður tveir þeir Unn-
steinn Jensson og Páll Jensson,
sjómenn, sem halda þessar ær.
Þeir hafa farið nokkrar ferðir í
vetur, tveir saman, til að reyna að
handsama eitthvað af þessu fé og
hafa nú þessar fjórar ásamt þremur
lömbum, á húsi með vitund sveitar-
stjóra, sem þeir leituðu til, þar sem
fé þetta gengur í landi Patreks-
hrepps. Þeir bræður hafa engin
svör fengið frá ráðamönnum hér
um það hvort þeir fái að hafa féð
áfram enda er þetta utan við kerfið
EIGNASALAIM
REYKJAVIK
Yfir 30 ára reynsla
tryggir öryggi þjónustunnar
REYKÁS - RAÐH.
- HAGST. ÁHV. LÁN
Húsið er á tveimur hæðum auk bílsk.,
alls um 198 fm. 4 svefnherb. Góð eign.
Hagst. áhv. lán.
BREKKUB. - GBÆ
- KEÐJUH. M/BÍLSK.
Tæpl. 80 fm hús á einni hæð. í
húsinu er 3ja herb. íb., öll í góðu
ástandi. Bílsk. fylgir. Áhv. um 1,6
millj. í veðd. Til afh. strax.
MOSFELLSBÆR -
LÍTIÐ EINB.
Vorum að fá í sölu ca 80 fm einbhús
(timburh.) á 1000 fm eignarlóð.
Bílskréttur. Til afh. nú þegar. Verð 6,0
millj.
FLÚÐASEL - 5 HERB.
- VÖNDUÐ M/BÍLSKUR
Höfum í sölu mjög góða og vandaða 5
herb. íb. á hæð í fjölbhúsi. íb. skiptist
í stofu og 4 góð svefnherb. m.m. Allar
innr. mjög vandaðar. Bílskýli. Húsið
nýmálað að utan.
í NÁGR. HÁSKÓLANS
5 herb. 115 fm íb. á efri hæð í stein-
húsi. Skiptist í 3 svefnherb. og sam-
liggjandi stofur (geta verið 4 svefn-
herb.). Sérinng. sérhiti.
KVISTHAGI - RIS
Mjög góð 96 fm risíb. Skiptist í saml.
stofur og 2 svefnherb. m.m. Góðar sval-
ir m. sérl. miklu útsýni. Áhv. um 3 millj.
í veðdeild.
HAMRABORG - 3JA
3ja herb. góð íb á hæð í fjölbhúsi.
Bílskýli fylgir. Verð 6,1 millj.
í NÁGR. V/HLEMM
3ja herb. íbúð á 2. hæð í steinh. Verð
5 millj. Áhv. 3 millj frá veðdeild.
NJÁLSGATA
- LÍTIL ÚTBORGUN
3ja herb. íb. á 2 hæð í steinh. Snyrtileg
eign. Verð 5,2-5,3 millj. Lítil útb. Hagst.
ávh. lán.
SAFAMÝRI - 2JA
2ja herb. snyrtileg íb. á 1. hæð
(jarðhæð) í fjölbhúsi. íb. er um
60 fm. Laus eftir samkomulagi.
Verð 4,5-4,6 millj.
í NÁGR. V/HLEMM
- 2JA - LAUS STRAX
2ja herb. íb. í steinh. íbúðin er mikið
endurnýjuð og er í mjög góðu ástandi.
l.aus. Verð 4,2 millj.
KLEPPSVEGUR -
EINSTAKLINGSÍBÚÐ
á hæð í lyftuh. innarlega v. Kleppsveg.
Mjög snyrtileg eign. Suðursv. Góð sam-
eipn. Húsvörður. Verð 3950 þús.
JÖKLAFOLD - 2JA
HAGST. ÁHV. LÁN
Glæsil. 2ja herb. íb. í nýl. fjölb. Parket
á gólfum. Flísal. baðherb. Áhv. tæpl.
3,2 millj. veðd.
GLÆSILEGUR
SUMARBÚSTAÐUR
46 fm sumarbústaöur á góðum
og fallegum stað í Borgarfiröi.
Myndir á skrifst. Skemmtil. eign.
EIGNASALAN
REYKJAVIK
Ingólfsstræti 8
Sími 19540 og 19191
Magnús Einarsson, lögg. fastsali,
Eggert Elíasson, hs. 77789
nema ef vera kynni að það heyrði
undir sama ráðuneyti og hreindýrin.
Þær eru allar ómerktar ærnar en
þijú lömbin þeirra sem öll eru hrút-
ar hafa fengið nöfn sveitarstjórnar-
manna, Guðfinns, Stefáns og Sig-
urðar.
Ef til vill verður fénu skilað til
síns heima. Þeir bræður telja féð
ekki of vel haldið, en þó heilbrigt
og hraust og telja að líta verði til
þess og gera því til góða ef hægt
er. Þeir telja mestu hættuna vera
úrkynjun vegna skyldleika. Sem
dæmi um hve skepnurnar eru
styggar þá lagðist sú lamblausa og
lést vera dauð þegar þeir loksins
komu henni í hús og^þegar þeir
veltu henni við ranghvolfdi hún
augunum.en sýndi ekki önnur við-
brögð. Uppgjöf.
- Hilmar.
Morgunblaðið/Hilmar Ámason
Þáll Jensson með lömbin sem fengið hafa nöfn sveitarstjórnarmann-
anna, Guðfinns, Stefáns og Sigurðar.
623444 1
[2ja—3ja herb.
Hverfisgata — 2ja
2ja herb. 30 fm einstaklíb. í góðu
ástandi. Verð 2,5 millj.
Seilugrandí — 2ja
Góð 52 fm íb. á 3. hæð ásamt stæði í
bílskýli. Áhv. 1,5 millj. byggingarsj.
Midvangur — Hf.
2ja herb. góð íb. á 2. hæð í lyftuhúsi.
Verð 4,7 millj.
Tómasarhagi — 2ja
2ja herb. stór og björt kjíb. Öll ný stand-
sett. Verð 5,5 millj.
Hamraborg — 3ja
3ja herb. góð íb. á 3. hæð. Parket.
Bílskýli. Verð 6,5 millj.
Blöndubakki — 3ja
Góð 3ja herb. 90 fm íb. á 2. hæð. Stórt
svefnherb., stór stofa, mögul. á
þvottah. innan íb. Nýuppg. baðherb.
Verð 6,5 millj.
4ra—5 herb.
Smáíbúðahverfi — hæð
4ra herb. 84,3 fm nýendurn. falleg íb. í
þríbhúsi. Allar innr., gólfefni og lagnir nýj-
ar. Áhv. húsbréf 2,7 millj. Verð 7,2 millj.
Hólmgarður
— efri sérhæð
Mikið endurn. efri sérhæð á eftirsóttum
stað. Samþ. teikn. af rishæð fylgja
ásamt járni á þak.
Stóragerði — útsýni
Góð 3ja-4ra herb. 110 fm íb. í fjölb. 2
svefnherb., 40 fm stofa. Bílskréttur.
Verð 7.650 þús. Laus strax.
Miðbraut — Seltj.
Björt og góð 4ra herb. sérhæð á 1. hæð
ca 110 fm. Nýlegar innr. Verð 8,6 millj.
Reykás — tvær hæðir
141 fm glæsil. íb. á tveimur hæðum. 5
svefnherb. Stór stofa. Áhv. byggsj. kr.
2,7 millj.
Háaleitisbraut m. bílsk.
Falleg 5-6 herb. 120 fm íb. á 1. hæð
ásamt 24 fm bílsk. íb. skiptist m.a. í 3
svefnherb., stóra stofu, borðst. og hol.
Ákv. sala.
Sólheimar — lyftuhús
Góð ca. 100 fm íb. á 4. hæð í háhýsi.
Mikið útsýni. Húsvörður.
Stærri eignir
Látraströnd — Seltj.
175 fm endaraðh. á 3 pöllum m. innb.
30 fm bílsk. Verð 13,0 millj. Bein sala.
Ásbúð — Garðabæ
Vandað parhús á tveimur háeðum 260
fm með 45 fm innb. tvöf. bílsk. Góð
ræktuö lóð. Verð 16,0 millj.
Þykkvibær — einbýli
Eldra einbhús ca 80 fm á stórri lóð.
Húsið er uppgert að stórum hluta, m.a.
einangrun, raflögn, klæðning og gólf-
efni. Teikn. af sólstofu fylgja. Bygging-
arréttur. Verð: Tilboð.
ÁSBYRGI
INGILEIFUR EINARSSON,
jm lögg. fastsali,
Borgartúni 33.
SÖLUMAÐUR: Örn Stefánsson.
28600
alllr þurfa þak vtlr höluOIO
4ra-6 herb.
RÁIMARGATA. Gullfalleg 4ra
herb. íb. Suðusv. Nýl. hús.
LEIFSGATA - LAUS. 4ra
herb. Arinn. 30 fm innréttaður
skúrmeð snyrtingu. Verð 8,5 millj.
SÖRLASKJÓL. 5 herb.
haeð á þessum fráb. útsýn-
isst. við sjóinn. Parket. Suð-
ursv. Getur losnað fljótl.
Verð 9 millj.
ÁLFASKEIÐ. 4ra herb. ib.
Bílsk. Mikil lán. Verð 7,5 millj.
TUNGUVEGUR. Efri hæð með
sérinng. og -hita. Verð 10,8 millj.
2ja-3ja herb.
DRÁPUHLÍÐ. 3ja herb. kjíb.
Sérhiti. Verð 5,2 millj.
HRAUNBÆR. Falleg 2ja herb.
íb. Góð lán 3,3 millj. Verð 5,3 millj.
RAUÐARÁRSTÍGUR. 3ja
herb. íb. Svalir. Verð 5,4 millj.
VÍFILSGATA - LAUS. 3ja
herb. efri hæð. Verð 6,2 millj.
SKIPASUND. 3ja herb. risíb.
Svalir. Sérhiti og inng. Verð 6,0
millj.
BIRKIMELUR. Vorum að fá í
einkasölu mjög vel umgengna 3ja
herb. endaíb. á 3. hæð í blokk.
Ibherb. í risi fylgir ásamt tveimur
sérgeymslum og frystikl. Björt íb.
m/suðursv. Verð ca 7,0 millj.
ENGIHJALLI. 3ja herb. íb. í
lítilli blokk. Verð 6,1 millj.
FÍFUSEL - RAÐHÚS. 4
svefnherb., stofa og forstherb.
Góð íb. í kj. Verð 14 millj.
ÁSGARÐUR. Lítið endarað-
hús á þessum skemmtil. stað.
Húsið er kj. og tvær hæðir. Geng-
ið inn á miðhæð. Verð 8,5 millj.
Fasteignaþiíiwslan
Austmslræti 17 - S. 26600
Þorsteinn Steingrímsson, Ig. fs.
Kristján Kristjánsson, hs. 40396.
David Pizarro
ORGELTÓNLEIKAR
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson '
Bandarískur orgelleikari, David
Pizarro, hélt tónleika sl. sunnudag
í Dómkirkjunni og flutti verk eft-
ir Handel, Albinoni, Stanley, J.S.
Bach, Naumann, Cappelen, Guil-
mant og Ragnar Björnsson.
Tónleikarnir hófust á orgelkon-
sert nr. XI, í g-moll, eftir Hand-
el. Handel mun ekki ávallt hafa
verið vandaður hvað snertir gerð
verka sinna, oftlega tínt til eitt
og annað úr eldri verkum sínum
og annarra og þar með í raun
eyðilagt sum verk sín, rétt eins
og Rossini. Þetta á við marga af
orgelkonsertunum og er sá ellefti,
opus 7, nr. 5 engin undantekning
hvað snertir útfærslu á eldri
verkum.
Konsertinn var leikinn af ör-
yggi og auðheyrt strax að Pizarro
er fær orgelleikari.
Það margfræga Adagio eftir
Albinoni og Voluntary eftir John
Stanley teljast til léttari tónverka,
sem aðeins er skemmtan að, ef
þau eru frábærlega vel leikin. Lag
Albinonis var heldur hratt leikið
og lítið gert af því að móta syngj-
andi tónhendingar verksins. Stan-
ley (1712-86) var enskur orgel-
leikari, blindur frá barnæsku og
aðallega frægur fyrir fjörleg Vol-
untaries, en Pizarro lék eitt af
þessum Voluntaries, í d-moll. Það
er í tveimur þáttum, Adagio og
Andante sem er byggt á rompet-
stefi.
Pizarro lék þrjú verk eftir J.S.
Bach og er fyrsta verkið sagt
vera prelúdía, largo og fúga í
c-dúr. Svona þriggja kafla skipan
er ekki að finna hjá Bach í þeim
verkum sem bera heitið prelúdía
og fúga og mun largo-kaflinn
vera tekinn úr 5. orgelsónötunni.
Þrátt fyrir að óþarfi sé að breyta
kaflaskipan á verkum meistarans,
á þessi tónlist svo sem ekki illa
saman og sérlega þegar svo vel
tekst til eins og hjá Pizarro, sem
lék prelúdíuna og fúguna vel og
með miklum tilþrifum.
Sinfónía úr kantöntu nr. 156
og kórallinn frægi úr kantötu nr.
147 voru þokkalega vel flutt en
heldur þykir undirrituðum lítið
nýnæmi í þessum margfluttu
verkum.
Sónata eftir Johann Gottlieb
Naumann (1714-1801), Legende
eftir Christian Cappelen (1845-
1916) og fúgato, sem Alexandre
Guilmant gerði um stef úr órator-
íunni um Júdas Makkabeus, eftir
Handel, eru ekki sérlega spenn-
andi verk, jafnvel þó beitt sé
þrumuraddstyrk orgelsins. Piz-
arro lék stutt en laglega gert verk
eftir Ragnar Björnsson, kóralfor-
spil yfir sálmalagið Himna rós,
leið og ljós. Pizarro er fær orgel-
leikari en fyrir undirritaðan var
efnisskráin í heild af léttara tag-
inu.
SÓNÖTUKYÖLD
Listahátíð í Hafnarfirði var
tveggja heima sl. sunnudag, því
annars vegar var rokkað á Kapla-
krika en þar í mót haldið sónötu-
kvöld í Hafnarborg, menningarm-
iðstöð Hafnfirðinga. Þeir sem
stóðu að sónötukvöldinu eru kenn-
arar við tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar, auk tveggja gestaleikara.
A efnisskránni voru verk eftir
Kuhlau, Beethoven, Poulenc og
Þorkel Sigurbjörnsson.
Tónleikarnir hófust á samleik
Guðrúnar Guðmundsdóttur píanó-
leikara og Gunnars Gunnarssonar
flautuleikara og skólastjóra tón-
listarskólans í Hafnarfirði. Við-
fangsefnið var Grand Sonate Con-
sertante eftir Kuhlau og léku þau
verkið af öryggi, einkum Gunnar,
sem er ágætur flautuleikari og
mætti láta heyra meira í sér.
Gunnar hefur góða tækni og ör-
uggan tón, og var framburður
tónhendinga skýr og mótaður af
sterkri tilfinningu fyrir heildar-
svip verksins, sem er ekta klassík
og ágætlega samið, enda var
Kuhlau mjög gott tónskáld en
hefur því miður staðið i skugga
stómenna klassíska tímabilsins.
Martin Frewer fiðluleikari og
David Knowles píanóleikari fluttu
Vorsónötuna eftir Beethoven en
það verk er ljúflegur voróður, sem
flytja verður mjög vel. Frewer er
þokkalegur fiðluleikari, tónviss en
náði samt ekki að gæða verkið
þeim innileik, sem það er svo ríkt
af.
Ungur og efnilegur klarnettu-
leikari, Ármann Helgason sá um
seinni hluta tónleikanna og flutti
þjóðlagaraddsetningar eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson. Flutningur
Ármanns á þessiim einföldu en
ágætlega gerðu raddsetningum
var frábærlega vel útfærður, hvað
snertir alls konar tónmótun, allt
frá mjög veiku upp í sterkt og
samspil hans við David Knowles
var einnig mjög gott.
Tónleikunum Iauk með sónötu
eftir Poulenc og þar sýndi Ármann
að hann er feikna efnilegur klarin-
ettuleikari og líklegur til stórra
hluta í framtíðinni. Samleikur
hans við David Knowles var mjög
góður, í heild nokkuð agaður og
hefði t.d. síðasti þátturinn, sem
ber yfirskriftina Állegro con fu-
oco, mátt vera ögn villtari.