Morgunblaðið - 19.06.1991, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JUNI 1991
Kammerhljómsveit Akur-
eyrar og strengleikar
Björgvins Guðmundssonar
eftir Margréti
Björgvinsdóttur
Ef leita á fregna af Kammer-
hljómsveit Akureyrar, er vænlegast
að koma fyrst við í Tónlistaskóla
Akureyrar sem stendur við Hafnar-
stræti í miðbænum. Hljómsveitin,
sem nú hefur starfað í fimm ár, var
stofnuð af kennurum skólans og
hafa þeir borið upp starfsemina af
áhuga og eljusemi. Það er margt
um manninn í Tónlistarskólanum,
sem mun vera stærsti skóli sinnar
tegundar á þessu landi. Húsnæði
er þannig að við fyrstu sýn virðist
ekki líklegt að gestir komist aftur
út úr því völundarhúsi. Þar hefur
verið byijað þröngt en skólinn síðán
fengið viðbótarhúsnæði í næstu
húsum við götuna.
Vegna þrengsla er ekki aðstaða
til tónleikahalds fyrir hljómsveitina
í skólanum sjálfum.
Viðunandi tónleikasal fyrir stóra
hljómsveit er raunar ekki að finna
í höfuðstað Norðurlands, en margir
binda vonir við að úr rætist þegar
lista- og menningarmiðstöðvar í
Listagili rísa.
Jón Rafnsson kontrabassaleikari
kennir við Tónlistarskólann og kom
til starfa hjá Kammerhljómsveit
Akureyrar sl. haust eftir langa
námsdvöl í Svíþjóð. Hann segir það
skipta miklu máli fyrir tónlistarfólk
sem sækir um starf á Akureyri eða
norðanlands að eiga kost á að leika
með hljómsveitinni. Sjálfur hafí
hann ekki gert sér grein fyrir því
að áður en hann kom hversu um-
fangsmikil starfsemin er né heldur
að hljómsveitin væri eins stór og
raun ber vitni. Af jafnaði eru haldn-
ir fernir tónleikar á hveiju starfsári
og æfingatíminn oft langur og
strangur enda verkefnin mörg erfið
í flutningi. Það er vitanlega ókostur
að eftir langan æfingatíma séu
haldnir einir tónleikar, en það er
erfitt um ferðalög norðanlands yfir
vetrarmánuðina og allra veðra von.
Þó voru haldnir tónleikar í Varma-
hlíð í vetur, og vonir standa til að
hægt verði að fara víðar á næsta
ári. _
Jon segir að þó að nafn hljóm-
sveitarinnar tengi hana eingöngu
við Akureyri sé það nokkuð villandi
því hljóðfæraleikarar koma einnig
frá Húsavík, Dalvík, Sauðárkróki
og Varmahlíð og í nokkrum tiivik-
um frá ísafirði. Þeir nemendur Tón-
listarskólans á Akureyri sem komn-
ir eru að lokaáfanga í námi fá einn-
ig tækifæri til þess að leika með
hljómsveitinni. Slík tækifæri bjóð-
ast þeim ekki í stórborg til þess að
leika með hljómsveitinni. Slík tæki-
færi bjóðast þeim ekki í stórborg
eins og Reykjavík. Þetta veitir þeim
ómetanlegt öryggi, og ekki er ónýtt
að halda til framhaldsnáms með
slíka reynslu að baki.
Aðalhljómsveitarstjóri er Roar
Kvam en gestastjórnendur hafa
einnig stjórnað hljómsveitinni. Á
síðasta starfsári dvaldist Hafliði
Hallgrímsson á Akureyri og stjórn-
aði þá tónleikum þegar hljómsveitin
frumflutti m.a. verk eftir Hafliða
sjálfan. Það verk tileinkaði hann
hljómsveitinni. í vetur stjórnaði
Páll Pampichler Pálsson Vínartón-
leikunum í íþróttaskemmunni. Vín-
artónlist er vinsæl á Akureyri því
þessa tónleika sóttu um 700 manns.
Órn Óskarsson heimsótti Akureyri
í vetur og stjórnaði Mozart-tónleik-
um og jólatónleikum.
„Við héldum veglega upp á 200
ára afmæli Mozarts," segir Roar
Kvam, „en við lítum okkur einnig
nær og minntumst þess í vor að
100 ár eru liðin frá fæðingu Björg-
vins Guðmundssonar tónskálds.“
Þessi afmælisveisla stóð í tvo mán-
eftir að Björgvin hóf samningu
verksins. Siðan var það flutt aftur
á Norrænni söngkeppni í Stokk-
hólmi. í bæði skiptin af Kantötukór
Akureyrar undir stjórn Björgvins
sjálfs.
„Mér finnst stundum ekki laust
við að íslenskum tónskáldum sé
ekki sýndur nægur sómi,“ segir
Roar Kvam.
„Við getum í því tilviki nefnt þá
Jón Leifs og Björgvin Guðmunds-
son. Þeir voru vitanlega ólíkir menn
og tónlist þeirra ólík, en verk þeirra
hafa ekki verið flutt eins oft og
vera mætti. Björgvin Guðmundsson
hóf samningu Strengleika í Kanada
í kringum 1915 við ljóð Guðmundar
Guðmundssoanr. Óratorían er í ný-
barokstíl bg er því ekki nútímaverk.
Björgvin samdi fimm óratoríur og
eða söngdrápur eins og hann kall-
aði þær auk fjölda sönglaga.
Strengleikar voru ekki samdir
fýrir hljómsveit heldur píanó, en
árið 1989 hófst Roar Kvam handa
Roar Kvam
Félagar í Kammerhljómsveit Akureyrar.
uði og endaði 2. júní þegar Kamm-
erhljómsveitin, 40 manna kór og
sex einsöngvarar fluttu óratoríuna
Strengleika eftir Björgvin.
„Björgvin var mikill andans snill-
ingur,“ segir Roar, „Hann var ekki
einungis tónskájd, heldur samdi
hann m.a. leikritið Skrúðsbóndann,
sem flutt var í Akureyrarkirkju nú
í apríl."
ðratorían eða „söngdrápan"
Strengleikar var samin fyrir kór,
einsöngvara og píanó og hefur ver-
ið flutt tvisvar í þeirri mynd, fyrst
á Akureyri árið 1941, um 20 árum
um útsetningu píanóþáttarins fyrir
hljómsveit með það fyrir augum að
Kammerhljómsveit Akureyrar gæti
flutt Strengleika á afmæli Björg-
vins. „Þetta hefur verið erfitt verk,“
segir Roar, „en Strengleikar öðlast
nýja vídd í hljómsveitarbúningi og
það gefur innihaldi texta meiri blæ.
Og það er svo undarlegt að þegar
ég var að vinna að þessu verki
fannst mér ég vera rekinn áfram
af óskýranlegum krafti eða leiddur
af ósýnilegri hendi." í handriti er
hljómsveitarútsetningin nú 640 síð-
ur og æfingar hafa staðið yfir frá
aprílbyijun.
Strengleikar verða fluttir í íþrótt-
askemmunni á Akureyri, og þar
hefur hljómsveitin haldið stærstu
tónleika sína. Auk þess hefur flutn-
ingur farið fram í Akureyrarkirkju
og í leikhúsi staðarins. Roar segir
það vera sinn draum að byggt verði
nýtt hús fyrir Tónlistarskólann þar
sem verði tónleikasalur fyrir sínfó-
níuhljómsveit. En hann telur að slík-
ir draumar séu ekki raunhæfir nú.
Aftur á móti gæti afstaðan orðið
þokkaleg í „Ketilshúsi í Listagili,
ef því yrði breytt í tónleikasal. Þá
gætu hljómsveitin og skólinn sam-
nýtt þann sal sem tæki um 250
manns í sæti. En ekki hafa verið
teknar neinar ákvarðanir enn sem
komið er um uppbyggingu í Listag-
ili.
Það er mjög mikils virði fyrir ís-
lenskt tónlistlíf að Norðlendingar
búi vel að tónlistafólki sínu og skapi
því góða afstöðu. Ekki er minna
um vert að geta boðið norðlenskum
áheyrendum upp á sinfóníutónleika.
Margir hafa veitt Kammerhljóm-
sveit Akureyrar stuðning, þar á
meðal meðlimir Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands, sem hafa hvað eftir
annað komið hingað norður til þess
að leika með hljómsveitinni.
Höfundur er kennari á Akureyri.
Borgarleikhúsið:
3SUISSES
Franska tískan...
Næstu daga munum við gefa síðustu eintökin af fallega 1000
síðna sumarlistanum frá 3 SUISSES.
Komið og fáið eintak eða pantið* í síma 91-642100.
Listinn fæst einnig afhentur í bókaversluninni Kilju, Miðbæ,
Háaleitisbraut.
Kríunesi 7, pósthólf 213, 212 Garðabæ.
*Burðargjald er kr. 293 ef listinn er sendur í pósti.
Hátíðardagskrá í minn-
ingn Ragnars í Smára
HINN 23. júní næstkomandi
verður hátíðardagskrá í Borgar-
leikhúsinu til að heiðra minningu
Ragnars í Smára.
Árið 1961 gaf Ragnar Aiþýðu-
sambandi Islands listaverkasafn sitt
og lagði þar með grundvöllinn að
stofnun Listasafns ASÍ sem var
stofnað sama ár. Safnið er því 30
ára í ár en ASI heldur á sama tíma
upp á 75 ára afmæli sitt.
Listasafn ASÍ hvatti eftirtalin
félög til samstarfs um að minnast
Ragnars í Smára og framlags hans
til íslenskrar menningar: Tónlistar-
félagið, Bandalag íslenskra lista-
manna, Rithöfundasamband ís-
lands, Tónskáldafélagið, Tónlistar-
skólann, Félag íslenskra leikara,
Sinfóníuhljómsveitina, Félag ís-
lenskra hljómlistarmanna, Leikfé-
lag Reykjavíkur, Félag íslenskra
tónlistarmanna og Samband ís-
lenskra myndlistarmanna.
Um 50 listamenn koma fram á
þessari hátíðardagskrá, má þar
nefna Tríó Reykjavíkur, Sigrúnu
Eðvaldsdóttir og Þorstein Gauta
Sigurðsson, flutt verður tónverk
eftir Leif Þórarinsson, rithöfundar
og fleiri rabba saman um Ragnar,
Rúrik Haraldsson og Þorsteinn
Gunnarsson leiklesa úr verki eftir
Halldór Laxness.
Kynnir verður Guðmundur Andri
Thorssön.
I hléi verður boðið upp á veiting-
ar. Miðasalan verður opin í Borgar-
leikhúsinu frá kl. 14.00-17.00
þriðjudaginn 18. til laugardagsins
23. júní en verður opnuð kl. 13.00
.Ragnar Jónsson í Smára.
sunnudaginn 23. júní. Miðaverð er
kr. 1.500 og rennur ágóðinn til
byggingar tónlistarhúss.
(Fréttatilkyiining.)