Morgunblaðið - 19.06.1991, Síða 21

Morgunblaðið - 19.06.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JUNI 1991 21 málaráðherra ríkisstjórnar sem hef- ur að yfirlýstri stefnu að greiða fyrir einkarekstri er ekki öfunds- verður af að taka við störfum nú, þar sem eitt hans fyrsta verkefni er að fjalla um hvort ríkið skuli hafa afskipti af rekstri þessarar rótgrónu sjálfseignarstofnunar: Heilsuhælis Náttúrulækningafé- lagsins. Hvers vegna voru yfirlæknarnir leystir frá störfum? Forsendur stjórnar Heilsuhælis- ins voru eftirfarandi: 1. Margskonar bréfaskrif til heil- brigðisyfirvalda og heilbrigðisstétta (Heilbrigðisráðherra, Heilbrigðis- ráðuneytis, landlæknis, Læknafé- lags íslands o.fl. stéttarfélaga). Auk þess ærumeiðandi ummæli í fjölm- iðlum, sem er óumdeilanlega hreint niðurrifsstarf sem hefur stórskaðað heiður Heilsuhælisins og stjórnenda þess, en yfirlæknarnir hafa óskað eftir lögreglurannsókn bæði á starf- semi Heilsuhælisins og hæfni stjórnenda þess. 3. Ranghugmyndir yfirlækna um stöðu sína á Heilsuhælinu stefna nú atvinnuöryggi starfsfólks stofn- unarinnar í hættu svo og starfsmög- uleikum þessa stærsta vinnustaðar í Hveragerði. 4. Vinnveitanda er eðlilega og lögum samkvæmt heimilt að leysa frá störfum starfsmenn sem vinna gegn rekstri fyrirtækisins. Hvað gerist næst? Það veit enginn en núverandi ástand stefnir Heilsuhælinu hrað- byri í hrun. Búið er að segja upp öllu starfsfólki og heilbrigðisyfir- völd leyfa ekki innritun fleiri gesta á Heilsuhælið fyrr en ráðnir verða læknar í stað þeirra Gísla og Snor- ra eða fyrir 28. júní nk. Að öðrum kosti verði gripið til aðgerða. Heilsuhælinu virðast því allar bjarg- ir bannaðar aflétti Læknafélag Is- lands ekki banni sínu og gera félag- inu kleift að ráða til sín lækna svo að það megi halda áfram starfsemi sinni. sem gátu sent þeim umsögnina í heild. Þetta er augljóst misrétti, og hvernig á umsækjandi að vita hvort hann sé metinn eftir sama mæli- kvarða og aðrir, ef hann sér einung- is umsögnina um sjálfan sig? Vand- séð eru rök til þess, umsögnin í heild getur hvort eð er naumast verið trúnaðarmál eftir að hún er komin til tuga manna. Við danska og norska háskóla er stórum betri kerfi viðhaft, og sjálfsagt er sá háttur víðar. Hver umsækjandi fær umsögn dóm- nefndar um alla umsækjendur og tveggja vikna frest til að gera at- hugasemdir, telji hann ástæðu til. Dómnefnd er þar að auki skylt að svara slíkum athugasemdum fyrir þann deildarfund sem velur milli umsækjenda. Þarna er það aðhald sem gerir deildarlimum kleift að greiða atkvæði eftir bestu upplýs- ingum og samvisku. Sé tekið fram að álitsgerðin sé trúnaðarmál, þá bera þeir sjálfir ábyrgð sem trúnað ryfu. Þessi skipan þarf því alls ekki að halda aftur af dómnefnd að segja óþægileg sannleiksorð. Enda er síð- ur en svo ástæða til að dæma fræði- rit á laun, fræði þróast áfram í opinberum rökræðum. Þetta er lýð- ræðisleg aðferð, því hún miðast við að ákvörðunin sé skiljanleg hveijum sem kynnir sér málin. Ég vil ljúka þessari grein með því að skora á Háskólaráð, mennta- málaráðherra eða Alþingi að færa aðstæður við Háskóla íslands sem allra fyrst í þetta lýðræðislega horf sem tíðkast á Norðurlöndum. Það hlýtur að teljast í hag alþjóðar að tryggja að fagleg sjónarmið ráði stöðuveitingum við Háskóla ís- lands, en ekki 18. aldar geðþótti klíkuskapur eða lítilmótleg hefni- girni. Höfundur er lektor í íslensku við Kaupmannahnfnarháskóla. Rit um spunasetningar í flokki málfræðirannsókna MÁLVÍSINDASTOFNUN Há- skóla íslands hefur nýlega gefið út 3. bindið í flokknum Málfræði- rannsóknir. Það nefnist Spuna- setningar í máli tveggja íslenskra barna (118 bls.) og er eftir Sig- ríði Siguijónsdóttur cand. mag. Meginefni ritsins er rannsókn á þróun spunasetninga í máli tveggja íslenskra barna þegar þau eru á aldrinum tveggja til þriggja og hálfs árs. Niðurstöður eru fjölþættar en í þeim kemur meðal annars fram að fyrstu spurningar íslenskra barna byija á orðinu viltu og að þær gegna flestra hlutverka beiðna. Ritið er fáanlegt í Bóksölu stúd- enta en einnig er hægt að panta það hjá Málvísindastofnun. Sigríður Sigurjónsdóttir ÓDÝR SENDIBÍLL ★ Lítil fjárbinding ★ Ódýrírekstri ★ Burðarmikill ★ Auðveld hleðsla frá 3 hliðum NIÐURSTAÐAN ER: HAGNÝTUR BÍLL FYRIR HAGSÝNA KAUPENDUR! Praktik er lipur sendibíll í minni stærðarflokki, sérstaklega gerður fyrir hverskonar atvinnurekstur. Hann hentart.d.iðnaðarmönnum, heildsölum, verslunum, matsölu- stöðum og öðrum sem leita að hagkvæmri lausn. ASTÆÐAN: Kr. 385.450 án vsk. Hafðu samband við sölumenn strax í dag. Söludeildin er opin alla virka daga kl. 9-18 og laugardaga kl. 13-17. Síminn er: 42600. JÖFUR HF Nýbýlavegi 2, sími 42600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.