Morgunblaðið - 19.06.1991, Síða 24
24
MÖRG!tíN:BLÁÐlÉ) MIÐVIKUDAGL’R ið. JtJNI 199Í
Tveir menn rændu
söluturn í Síðumúla
RÁN VAR framið í söluturninum Toppnum í Siðumúla 8 síðastliðinn
sunnudag. Tveir menn voru þar að verki og komust á brott á stoln-
um bíl. Tvær stúlkur voru við afgreiðslustörf í söluturninum þegar
ránið var framið. Þjófarnir höfðu 15 þúsund kr. upp úr krafsinu.
Mennirnir komu inn í söluturninn
um kl. 12 á sunnudag og báðu um
að fá að hringja. Annar mannanna
stökk við svo búið yfir afgreiðslu-
borðið og tók alla þá peninga sem
í sjóðsvélinni voru meðan hinn sleit
símann úr sambandi. Mennirnir
beittu ekki vopnum og höfðu ekki
í hótunum við afgreiðslustúlkuna.
Sjónvarvottur sá mennina aka á
brott á rauðum Lada-skutbíl austur
Síðumúla. Samkvæmt framburði
annarrar afgreiðslustúlkunnar
höfðu mennirnir komið inn í sölut-
urninn um hálfri klukkustund áður
en þeir frömdu ránið, fengið að
hringja og keypt sælgæti.
Mennirnir eru um 25 ára gamlir,
annar ljóshærður, stuttklipptur,
klæddur ljósum gallabuxum og
hvitum stutteiTnabol. Hinn var um
1,80 cm á hæð, grannur, dökkhærð-
ur, klæddur svörtum leðurjakka og
öróttur í andliti.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. Fremst sést viðbygginging það-
an sem fangarnir sex struku á laugardagskvöldið.
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
Námsráðgjöf HÍ:
Ásta K. Ragn-
arsdóttir for-
stöðumaður
NÝLEGA var Ásta Kristrún
Ragnarsdóttir ráðin forstöðu-
maður við Námsráðgjöf Háskóla
Islands, en sú staða er ný eftir
breytingar á stjórnskipulagi
skólans.
Ásta var fyrsti námsráðgjafinn
sem ráðinn var til Háskólans og
hefur hún gegnt því starfi síðastlið-
in 10 ár. Ásta hefur verið brautryðj-
andi á sviði námsráðgjafar hér á
landi og staðið fyrir uppbyggingu
og mótun námsráðgjafar á háskóla-
stigi.
Asta lauk BA-prófi frá Háskóla
íslands í frönsku, sálar- og uppeld-
isfræðum. Jafnframt lauk hún eins
árs viðbótarnámi í námsráðgjöf frá
Háskólanum í Þrándheimi.
Ásta er fædd í Reykjavík 1952
og maður hennar er Valgeir Guð-
jónsson félagsráðgjafí og tónlistar-
maður og eiga þau tvo syni.
Sex fangar struku úr Hegningarhúsinu á laugardag:
Einn fanganna leik-
ur enn lausum hala
EINN strokufangi úr Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg gengur
enn laus, en sex fangar komust úr húsinu gegnum þakglugga í ein-
um klefanum á laugardagskvöldið. Grunur leikur á að tveír fang-
anna hafi framið rán í söluturni í Síðumúla á sunnudag.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík voru tveir
fanganna handteknir aðfaranótt
sunnudagsins á Kópavogsbraut, þar
sem þeir voru á stolnum bíl. Þrír
voru handteknir í flugafgreiðslunni
á Reykjavíkurflugvelli á mánudags-
morgun en ekki fengust upplýsing-
ar hjá lögreglu um hvað þeir ætluð-
ust fyrir þar.
Að sögn Guðmundar Gíslasonar
forstöðumanns fangelsa í Reykja-
vík, fóru fangarnir sex út um þak-
glugga á einum fangaklefanum sem
er í viðbyggingu við Hegningarhú-
sið. í klefanum er venjuleg lofthæð
og síðan stokkur upp í gluggann,
sem er í rúmlega 3ja metra hæð
yfir jörðu, og fyrir honum eru riml-
ar eða grind úr steypustyrktar-
járni, og höfðu fangarnir náð að
sveigja þá frá glugganum. Þaðan
komust þeir upp á þak viðbygging-
arinnar, út í garð og yfir vegg á
Skólavörðustíginn.
„Við höfðum ekki áttað okkur á
að okkur á að þetta væri veikur
punktur. Bæði er hátt upp í
gluggann og hann þröngur og við
gerðum okkur ekki grein fyrir því
að rimlarnir væru svona lélegir. En
húsið er gamalt og úr sér gengið
enda hefur ekki fengist fé til að
halda því nægilega vel við,“ sagði
Guðmundur.
Allir klefar í Hegningarhúsinu
eru opnir frá klukkan 8 til 23.30
og samgangur mikill á milli manna.
Guðmundur sagði, að fundist hefðu
vegsummerki víðar í fangelsinu um
tilraunir fanganna til að finna út-
gönguleið. Strokufangarnir sex eru
flestir ungir síbrotamenn, sem hafa
fengið dóma fyrir ýmiskonar auðg-
unarbrot, og áttu áttu eftir að af-
plána mislangan tíma. Sagði Guð-
mundur Gíslasson að sumir þeirra
hefðu átt ótrúlega stuttan tíma eft-
ir, eða nokkrar vikur. Hámarksrefs-
ing fyrir að sammælast um strok
er 3 ár samkvæmt lögum.
Húsið úr sér gengið
Atvik þetta hefur enn beint at-
hygli að Hegningarhúsinu en á síð-
ustu árum hefur oft verið rætt um
að ástand hússins, og annara fang-
elsa einnig, sé óviðunandi. „Það
kemur alltaf betur og betur í ljós,
hve húsið er úr sér gengið. Við
höfum sífellt farið fram á það í við-
ræðum við stjómvöld, og í kringum
fjárlagagerð, að eitthvað verði að-
hafst í þessum málum. Ráðherrar
hafa komið hér og lýst því yfir að
ástandið væri ótækt, en síðan hefur
ekkert gerst vegna þes að fé fæst
ekki til úrbóta,“ sagði Guðmundur
Gíslason.
Þorsteini Pálssyni dómsmálaráð-
herra er erlendis og ekki náðist í
hann í gær, en hann sagði í fjölmiðl-
um um helgina, að hann ætlaði að
láta gera úttekt á fangelsismálum
hérlendis.
Haraldur Johannessen forstjóri
Fangelsismálastofnunar ríkisins
sagði við Morgunblaðið, að í mörg
ár hefði verið vakin athygli á ýms-
um vandamálum í sambandi við
fangelsismál, án árangurs.
í fyrstu ársskýrslu Fangelsismál-
astofnunar árið 1989 skrifaði Har-
aldur meðal annars: „í umræðu um
fangelsismál á opinberum vettvangi
hefur hefur þeirri alhæfingu verið
haldið á lofti, að þau séu alfarið í
ólestri. Undir það verður ekki tekið
hér, en hins vegar er ástand ýmissa
þátta húsnæðismála fangelsanna,
aðbúnaður fanga og meðferð geð-
sjúkra afbrotamanna með þeim
hætti, að óviðunandi er. Öll tök eru
á að leysa vandann. Til þess þarf
vilja og fjármagn. Ljúka verður
verki nefndar Alþingis frá árinu
1982 um heildarúttekt á stöðu
fangelsismála, tillögur um brýnar
úrbætur í þeim efnum og áætlun
um æskilega framtíðarskipan fang-
elsismála á íslandi. Það er löngu
tímabært að móta heildstæða fang-
elsismálastefnu þar sem markmið
og leiðir eru sett fram. Það er ekki
veijandi að ýta þessum málaflokki
ætíð aftast í röðuna."
„Mín afstaða er óbreytt frá því
sem þarna kemur fram,“ sagði
Haraldur Johannessen við Morgun-
blaðið í gær. „Vonandi verður
breyting til batnaðar í húsnæðis-
málum fangelsanna áður en mjög
langt um líður.“
Asmundarsalur:
Austurrískir lista-
menn sýna í tvo daga
TVEIR austurrískir listamenn, Emo Henricks og Heinz Hofer, halda
sýningu í Ásmundarsal miðvikudaginn 19. júní og fimmtudaginn
20. júní milli klukkan 17 og 19. Þeir munu sýna vatnslitamyndir
sem þeir hafa málað á ferð um ísland. Emo Henricks og Heinz
Hofer koma frá Lech i Austurríki sem margir íslenskir skíðaunnend-
ur þekkja vel og eru allir Islendingar er tengjast Lech velkomnir
á þessa sýningu.
Morgunblaðið tók þessa aust-
urrísku listmálara tali og spurði
hvers vegna þeir hefðu komið til
íslands. Að sögn Emos höfðu þeir
lengi haft hug á því að koma til
landsins. Hann hafði heyrt mikið
um það frá íslendingum í Lech og
einnig frá vinum sínum í Lech sem
höfðu heimsótt ísland. Allir hefðu
talað um fegurð landsins og hversu
sérstakt væri fyrir listmálara að
mála hér.
Emo er mikill heimshornaflakk-
.ari og hefur hann ferðast og starf--
að víðs vegar um heiminn. Sem
dæmi má nefna að hann rak skíða-
skóla í Bandaríkjunum í nokkur ár.
Emo titlar sig frísstundamálara en
Heinz lifir eingöngu á sinni list.
Emo og Heinz eru mjög hrifnir
af íslandi og höfðu báðir málað fjöl-
margar myndir. Þegar Heinz var
spurður hvaða staður á íslandi
væri að hans mati fallegastur
nefndi hann strax Breiðamerkurlón.
Honum fínnst stórkostlegt að mála
-á íslandi -og~ sagði að Jitimir hér
Heinz Hofer og Emo Henricks.
Morgunblaðið/Bjami
væru engu líkir. Emo taldi einnig
að Breiðamerkurlón væri sérstak-
lega áhrifamikill staður en sagði
jafnframt að að hans mati væri
samsetning íslenskrar náttúru í alla
staði einstök. Samspil jökla, fjalla
og vatna væri ekki líkt neinu sem
hann hefði séð í öðrum heimsálfum.
Sagði Emo að lokum að hann ætl-
aði áreiðanlega að koma aftur til
Islands til þess að mála.
.. .Emo er fleira.til lista .lagt en að
mála því að hann mun syngja og
spila á gítar lög frá Austurríki og
fleiri löndum á sýningunni . Hann
reynir alltaf að læra nokkur lög í
þeim löndum sem hann kemur til
og er þessa daganna að læra ís-
lenska lagið „Sprengisandur" utan
að. Einnig spilar Emo á suður -
ameríska leirflautu er nefnist ok-
arina og mun hann jafnvel spila
nokkur lög á hana á sýningunni í
'Ásmimitarsat. ' ...........................
Fundu ain-
fetamín
við húsleit
LÖGREGLAN á ísafirði hand-
tók sex menn grunaða um
fíkniefnaneyslu í húsi á Flat-
eyri aðfararnótt laugardags-
ins. Gerð var leit í tveimur
húsum á Flateyri og í öðru
húsinu fannst hálft gramm af
amfetamíni og áhöld til fikni-
efnaneyslu.
Fjórum mannanna var sleppt
fljótlega eftir handtöku en tveir
þeirra voru í haldi fram á laugar-
dag. Þeir hafa báðir áður komið
við sögu lögreglunnar.
Lögreglan hafði fylgst með
mönnunum um nokkurt skeið.
♦ t ♦----
Hjólastuldur
á Háteigsvegi
REIÐHJÓLI var stolið frá
Háteigsvegi 6, þar sem er
heimili fyrir þroskahefta, að
kvöldi 17. júní. Hjólið er af
gerðinni DBS, fimm gíra,
blátt og hvítt að lit.
Eigandi hjólsins notar það við
vinnu, en hann er sendill. Svört
kerra var aftan í hjólinu. Lög-
reglan biður þá sem geta gefið
upplýsingar um hjólið að hafa
samþand. Vart líður sá dagur
að ekki sé tilkynnt um þjófanði
á reiðhjólum og hvetur lögreglan
eigendur þeirra til að ganga
tryggilega frá þeim læstum.
---------------
Hringt í neyð-
arsíma til að
forvitnast
um eldsvoða
LÖGREGLAN í Reykjavík
hafði ekki undan að svara í
neyðarsíma lögreglunnar
11166 aðfaranótt sl. sunnu-
dags þegar fjölmargir borg-
arbúar kröfðust skýringa á
reyk sem lagði frá vinnusvæði
Hringrásar i Sundahöfn. Varð
lögreglan að bregða á það ráð
að leggja á fyrirspyijendur
til að teppa ekki neyðars-
ímann.
Eldur kom upp í vélarhlutum
á svæðinu og myndaðist mikill
reykur þegar vélarolía brann.
Fólk á einungis að hringja í
11166 í neyðartilfellum. Lög-
reglan hefur einnig upplýsinga-
síma sem fólki er ráðlagt að
hringja í tilvikum sem þessum.
------*-♦-♦----
Lagðist til
sunds í
Tjörninni
ÞRJU innbrot voru framin í
verslunarmiðstöðinni í Mjódd
sl. sunnudagsmorgun. Rúður
voru brotnar í öllum innbrot-
unum.
30 þúsund kr. var stolið úr
Videohöllinni. Óvíst er hveiju
var stolið úr hárgreiðslustofunni
Möggurnar en engu var stolið
úr Café Jensen.
Þá var tilkynnt um syndandi
mann í Tjörninni skömmu eftir
miðnætti aðfaranóttar sunnu-
dagsins. Var þar stúlka á ferð
í alklæðnaði og var henni vísað
upp úr. Henni mun ekki hafa
orðið meint af volkinu.