Morgunblaðið - 19.06.1991, Side 26
26
MORQUNBLÍVÐEÐ' MIÐVIKUDAGUR' 19.' 3ÚNÍ 1991
Samvinna Evrópu og N-Ameríku:
Sovétmenn verða að
taka þátt í samstarfmu
-segir James Baker
Berlín. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að hætta væri á átökum í Evrópu
i framtíðinni ef Sovétmenn yrðu
ekki aðilar að „nýju samfélagi
Evrópu- og Atlantshafsríkja".
Baker lét þessi orð falla er
tveggja daga fundur utanríkisráð-
herra aðildarríkja Ráðstefnunnar
um öryggi og samvinnu í Evrópu
(RÖSE) hófst í Berlín.
Baker sagði að friði og lýðræði
í álfunni yrði stefnt í hættu ef S.ov-
étmenn tækju ekki þátt í auknu
samstarfi Evrópu- og Norður-
Ameríkuríkja í framtíðinni. Banda-
ríkjastjórn væri reiðubúin að að-
stoða Sovétmenn við að koma á
róttækum efnahagsumbætum, til
að mynda með því að sjá þeim fyr-
ir matvælum, aðstoða við uppbygg-
ingu í orkuiðnaði og beita sér fyrir
því að þeir tengist Alþjóðabankan-
um og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Noregur:
Hrefnuveiðar á ný
Ósló. Reuter.
NORSKIR hvalveiðimenn til-
kynntu á sunnudag að þeir ætl-
uðu að hefja ólöglegar hrefnu-
veiðar í ágóðaskyni 4. júlí nk.
þrátt fyrir framlengt alþjóðlegt
hvalveiðibann og loforð stjórn-
valda um að hvalir yrðu ekki
veiddir á þessu ári.
„Við munum hefja hvalveiðar á
þessu ári. Við bjóðum öllum til
Noregs til hvalveiða 4. júlí nk. Þá
munið þið borða hvalkjöt þangað
til þið kastið upp,“ sagði Steinar
Bastesen, formaður Samtaka
norskra hrefnuveiðimanna, í sam-
tali við norska ríkisútvarpið. „Okk-
ur finnst þjóðhátíðardagur Banda-
ríkjamanna, 4. júlí, tilvalinn til að
hefja veiðarnar,“ bætti Bastesen
við. Milli 15 og 20 skip munu taka
þátt í veiðunum, samkvæmt ákvörð-
un ársfundar Norsku hvalveiðisam-
takanna. „Við ætlum að verða til
vandræða," sagði Bastesen.
Norskir embættismenn, sem
höfðu lýst því yfir að hvalveiðar án
samþykkis yfirvalda yrðu ekki liðn-
ar, gáfu í skyn að þær yrðu stöðvað-
ar af skipum norsku landhelgis-
gæslunnar ef þær hæfust.
Reuter
Albanir vilja á brott
Albanskir flóttamenn á hrörlegum fleka grípa reipisenda sem skipveijar á ítölsku strandgæsluskipi fleygja
tii þeirra við mynni hafnarinnar í Brindisi. ítalir hyggjast senda hundruð flóttamanna, er komið hafa til
landsins síðustu daga, til síns heima á ný. Fyrir eru á Italíu tugþúsundir manna sem flúðu meðan kommún-
istar voru einráðir í Albaníu en þar hefur nú tekið við völdum samsteypustjórn stærstu flokkanna.
Tímamót í Suður-Afríku:
Grundvelli apartheid end-
anlega varpað fyrir róða
Höfðaborg, Jóhannesarborg, Washington,
SUÐUR-AFRÍSKA þingið sam-
þykkti á mánudag að fella úr
gildi lög um skráningu íbúa eft-
ir kynþætti og er þar með búið
að afnema formlega lagabálk-
ana sem voru grundvöllur að-
New York, Tókýó. Reuter, Daily Telegraph.
skilnaðarstefnunnar, apartheid,
í fjóra áratugi. 103 hvítir þing-
menn voru samþykkir en 38
Ihaldsmenn á móti; í þingdeild-
um manna af indverskum upp-
runa og kynblendinga voru allir
samþykkir. Svertingjar hafa
ekki kosningarétt í landinu en
F.W. de Klerk, forseti og leið-
togi Þjóðarflokksins, hvatti til
þess að aflokinni atkvæða-
greiðslunni að haldin yrði ráð-
stefna fyrir árslok með þátttöku
allra aðila, þar á meðal helstu
samtaka svertingja, Afríska
þjóðarráðsins (ANC), um nýja
stjórnarskrá þar sem m.a. verði
kveðið á um kosningarétt svert-
ingja.
Nóbelsverðlaunahafinn Desm-
ond Tutu sagði afnám laganna
skref í rétta átt en taldi mikilvægt
að de Klerk lýsti hryggð sinni yfir
þeim þjáningum sem lögin hefðu
valdið. De Klerk hefur hafnað
þeirri áskorun. Helsti leiðtogi
ANC, Nelson Mandela, sagði á
útifundi á sunnudag að samtökin
myndu ekki hvika frá þeirri kröfu
að komið verði á fót bráðabirgða-
stjórn að loknum fijálsum kosn-
ingum með þátttöku svertingja og
þá geti stjórnlagaþing samið nýja
Reuter
Stuðningsmenn Sinn Fein, stjórnmálahreyfingar írska lýðveldishers-
ins, mótmæla friðarviðræðum kaþólikka og mótmælenda á Norður-
írlandi sem hófust í Belfast á mánudag. Sinn Fein tekur ekki þátt
í viðræðunum þar sem hreyfingin hefur ekki viljað afneita vopnaðri
baráttu.
Friðarviðræður hefjast í Belfast:
Breska stjórnin sendir
aukið herlið til N-írlands
Belfast. Reuter.
BRESKI herinn sendi í gær 500 manna liðsauka til Norður-írlands
vegna hættu á hryðjuverkaárásum frá írska lýðveldishernum (ÍRA)
á meðan fram fara friðarviðræður milli kaþólikka og mótmælenda
i Belfast.
Friðarviðræðurnar hófust á
mánudag og er gert ráð fyrir því
að af þeim loknum öðlist Norður-
írar sjálfstjórn eftir að hafa lotið
stjórn Breta í seytján ár. í viðræð-
unum taka þátt fulltrúar norður-
írskra stjórnmálaflokka og írsku
stjórnarinnar. Stjórnmálahreyfing
IRA, Sinn Fein, er þó ekki með þar
sem hreyfingin hefur ekki viljað
afneita vopnaðri baráttu.
IRA hefur hert á árásum sínum
frá því undirbúningur viðræðnanna
hófst. Talsmaður breska hersins
sagði að því hefði verið gripið til
þess að ráðs að senda liðsauka til
Norður-írlands. Alls eru nú um
17.000 breskir hermenn í landinu
og lögreglan er skipuð 13.000
mönnum. Breska leyniþjónustan
telur að 250 manns séu í „virkum
hryðjuverkasveitum IRA“.
Liðsmenn IRA réðu þijá hermenn
af dögum fyrr í mánuðinum er
sendibifreið, sem var full af sprengi-
efnum, var látin renna niður brekku
á herstöð þeirra. Breskir hermenn
svöruðu árásinni þremur dögum
síðar o g drápu þijár af helstu leyni-
skyttum IRA úr launsátri. Liðs-
menn IRA skutu síðan breskan
hermann til bana á mánudag,
skömmu áður en friðarviðræðurnar
hófust.
Norður-írska lögreglan sætti
harðri gagnrýni í gær eftir að um
þúsund trúnaðarskjöl hennar höfðu
fundist á öskuhaugum. í skjölunum
var meðal annars fjallað um ferðir
stjórnmálamanna á Norður-írlandi
og talsmenn Sinn Fein sögðu að
þau hefðu verið sett á haugana af
ásettu ráði til að herskáir mótmæl-
endur kæmust yfir þau. Talsmaður
lögreglunnar vísaði þessu á bug og
sagði að henni hefðu orðið á mistök.
stjórnarskrá. „Hlusti þeir ekki á
okkur munum við beita okkar valdi
- fjöldaaðgerðum," sagði Mand-
ela.
Mangosuthu Buthelezi, leiðtogi
Inkatha-hreyfingar zúlumanna,
fagnaði ákvörðun þingsins en But-
helezi hefur sætt hörðum árásum
ANC-manna fyrir að hafa ávallt
mælt gegn viðskiptaþvingunum
sem hann segir að komi meira
niður á svörtum en hvítum. Banda-
rískir sérfræðingar álíta að þjóðar-
framleiðsla Suður-Afríku sé um
35% minni en ella vegna refsiað-
gerðanna sem flest ríki hafa beitt
landið undanfarin ár. Samþykkt
þingsins var vel tekið á Vestur-
löndum en George Bush Banda-
ríkjaforseti sagði þó að refsiað-
gerðum yrði ekki aflétt strax;
kanna þyrfti betur ástand mála.
Ekki er Ijóst hvort de Klerk er
búinn að uppfylla fullkomlega skil-
yrði Bandaríkjastjórnar fyrir slíkri
stefnubreytingu. Japanar ákváðu
að afnema hluta þeirra refsiað-
gerða sem þeir hafa beitt minni-
hlutastjórn hvítra.
Kröfur ANC
ANC hefur fagnað afnámi
skráningarlaganna en lagt áherslu
á að ekki sé nóg að gert. Utrýma
þurfi misrétti í lífeyrismálum milli
svartra og hvítra og sömuleiðis í
menntamálum; fyrr sé ekki hægt
að segja að apartheid-lögin hafi í
reynd verið lögð á hilluna. Einnig
er deilt um það hvort stjórnvöld
hafi leyst alla pólitíska fanga úr
haldi eins og de Klerk hefur heit-
ið. ANC hafnar boði de Klerks um
að svertingjar fái aðild að núver-
andi ríkisstjórn hvíta minnihlut-
ans. Samtökin hvetja ríki heims
til að halda áfram efnahagslegum
refsiaðgerðum þar til áðurnefnd-
um kröfum hafi verið sinnt og
fullljóst sé að apartheid hafi runn-
ið sitt skeið.
Helsti samningamaður de
Klerks í viðræðum við samtök
svertingja, Gerrit Viljoen, sagði
fyrir nokkru að ekki kæmi til
mála að samþykkja kröfu ANC
um kosningar til stjórnlagaþings
þar sem einfaldur meirihluti
ákveði val fulltrúa. Stjórnmálaský-
rendur telja þó að de Klerk sé ljóst
að hann geti orðið að sættast á
málamiðlun þar sem stjórn hans
hefði ella óeðlilega stöðu í samn-
ingaviðræðum um ný stjórnlög,
væri í senn þátttakandi og úr-
skurðaraðili.
Sviss:
Grænfrið-
ungar flúðu
fótboltalið
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNFRIÐUNGAR lokuðu
helstu leiðum um Alpana á
mánudagsmorgun til að
mótmæla síaukinni bílaum-
ferð um fjöllin. Þeir gáfust
upp af sjálfsdáðum við
Brenner-skarðið í Aust-
urríki eftir að fjöldi öku-
manna hafði í hótunum en
ítalskt fótboltalið hrakti þá
á flótta við Gotthard-göngin
í Sviss.
Fótboltaliðið Mineo frá Sik-
iley hlaut verðlaun fyrir prúða
framkomu á knattspyrnumóti
í Solothorn um helgina. En
liðsmenn misstu þolinmæðina
þegar þeir höfðu setið fastir í
þijár klukkustundir í umferð-
arteppu á leiðinni suður til ít-
alíu.
30 Grænfriðungar stóðu
hlekkjaðir saman fyrir framan
göngin sem þeir höfðu lokað
með timburvegg og lagt flutn-
ingabíl fyrir. Fótboltakapparn-
ir hlupu með reiðiöskri í átt
til þeirra og þeir losuðu sig
með hraði úr hlekkjunum og
höfðu sig á brott. Nokkrir
lögðust í götuna en knatt-
spyrnumennirnir drógu þá
umsvifalaust í burtu og brutu
niður timburvegginn.
Lögreglan lét loks til sín
taka eftir að fótboltamennirnir
höfðu riðið á vaðið við góðar
undirtektir annarra ferða-
manna. Umhverfissinnarnir
voru bókaðir en knattspyrnul-
iðið hélt sigurglatt áfram 30
stunda ferð sinni til Sikileyjar.