Morgunblaðið - 19.06.1991, Page 32
32
MO^GUNBLAÐJjD MIDVIKUDAGUH 19. JÚNÍ 199,1
Kvenréttindadagurinn 19. júní:
Konur gefa trjáreit
við Naustaborgir nafn
KONUR úr ölium stjórnmála-
flokkum efna til samkomu við
Naustaborgir næstkomandi
miðvikudag, á kvenréttindadag-
inn, 19. júní. Árið 1985 í lok
kvennaáratugar hittust konur
við Naustaborgir og gróður-
settu um 10 þúsund plöntur í
sérstakan reit sem þeim var
úthlutaður og nú á miðviku-
dagskvöldið verður þessum reit
formlega gefið nafn.
Yfirskrift samkomunnar að
Naustaborgum er Grill, glens og
gaman og hefst hún með gróður-
setningu kl. 18, en tijáplöntur
verða til sölu á staðnum. Kveikt
verður upp í grillinu um klukku-
stund síðar, en þátttakendur
leggja sjálfir til matar- og drykkj-
arföng.
Á síðasta ári, er konur héldu
upp á 75 ára afmæli kosningarétt-
ar síns, var efnt til samkeppni um
nafn á svæðinu og verða úrslit
kunngjörð og þar til gert skilti er
Jenný Karlsdóttir skar út í tré
verður hengt upp við reitinn.
Ráðgert er að gera kvennasam-
komur að Naustaborgum að árleg-
um viðburði, þar sem konur mun
hittast, gróðursetja tijáplöntur,
grilla og skemmta sér að hætti
kvenna. Konur af Eyjafjarðar-
svæðinu og raunar kjördæminu
öllu eru velkomnar að taka þátt í
samverustund þessari.
Davíðskvöld
í Davíðshúsi
GUNNAR Stefánsson rithöfund-
ur flytur erindi um Davíð Stef-
ánsson og skáldskap hans í Dav-
íðshúsi næstkomandi fimmtu-
dag, 20 júní, kl. 20.30.
Gunnar dvaldi fyrir um ári í
lista- og fræðimannaíbúð í Davíðs-
húsi og hefur hann undanfarið
unnið að rannsóknum á ævi Dav-
íðs Stefánssonar og skáldskap
hans. Erindi Gunnars mun einkum
fjalla um æskuár skáldsins og
tengsl hans við Eyjafjörð og Akur-
eyri, auk þess sem sumarljóðum
hans verða gerð nokkur skil.
Auk erindis Gunnars og upp-
lesturs úr verkum Davíðs, mun
Hólmfríður Benediktsdóttir söng-
kona syngja lög við ljóð eftir Dav-
íð við undirleik Kristins Arnar
Kristinssonar píanóleikara.
KE A leigir rekstur
þrotabús Fjöreggs
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur
gert leigusamning við þrotabú
Alifuglabúsins Fjöreggs í
Sveinbjarnargerði á Svalbarðs-
strönd. Leigusamningurinn er
til þriggja mánaða og rennur
út 12. september næstkomandi.
Arnar Sigfússon bústjóri þrota-
búsins sagði að kaupfélagið tæki
allan rekstur búsins á leigu til
þriggja mánaða og væri tilgangur
leigusamningsins fyrst og fremst
að tryggja að rekstrinum yrði
haldið gangandi. Einnig yrði
tíminn notaður til að kanna hvort
kaupandi fyndist að rekstrinum,
en ætlunin væri að selja rekstur
Alifuglabúsins í heilu lagi. Arnar
bjóst við að auglýsa búið til sölu
innan skamms.
Alifuglabúið Fjöregg var úr-
skurðað gjaldþrota í síðustu viku,
en reiknað er með að gjaldþrotið
nemi um 80 milljónum króna.
Eignir búsins eru um 163 milljón-
ir króna og sagði Arnar að bú-
stofn væri þar meðtalinn, en um
15 þúsund varphænur eru á búinu
og 25-30 þúsund kjúklingar í upp-
eldi. Arnar sagði að verðmæti
bústofnsins fælist í því að unnt
yrði að halda rekstrinum í gangi
og á þeim tíma er leigusamningur
við KEA væri í gildi yrði reynt
að finna kaupanda að búinu.
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju:
Myndlistarsýning
fimm ára stúdenta
ÁTTA ungir myndlistarmenn
opna sýningu á verkum sínum
í sal Safnaðarheimilis Akur-
eyrarkirkju á morgun, laugar-
dag, kl. 14.
Allir eiga listamennirnir það
sameiginlegt að hafa grunn-
menntað sig í Myndlistarskólan-
um á Akureyri veturna 1984-1986
og útskrifast _ úr Myndlista- og
handíðaskóla íslands árin 1989-
1990. Flestir þeirra eru einnig
fimm ára stúdentar frá Mennta-
skólanum á Akureyri.
Þeir sem þátt taka í sýningunni
eru Birgir Snæbjörn Birgisson,
Biynhildur Kristinsdóttir, Gústav
Geir Bollason, Laufey Margrét
Pálsdóttir, Pétur Örn Friðriksson,
Róbert Róbertsson, Sigtiyggur
Bjarni Baldvinsson og Sigurborg
Jóhannsdóttir.
Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 23. júní og er opin frá
16 til 22 virka daga, en um helg-
ar og 17. júní er opið frá 14 til 22.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
111 stúdentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
111 stúdentar brautskráðir frá MA: ^
Menntumn er undirstaða
alls, þess að vera maður
- sagði Tryggvi Gíslason, skólameistari
MENNTASKOLANUM á Ak-
ureyri var slitið við hátíðlega
athöfn í Iþróttahöllinni á Ak-
ureyri á þjóðhátíðardaginn, 17.
júní, en þá voru brautskráðir frá
skólanum 111 stúdcntar.
Tryggvi Gíslason, skólameistari
MÁ, gerði grein fyrir skólastarf-
inu í ræðu sinni og hann ræddi
um kjör kennara og húsnæðis-
þörf skólans. Heimsóknir gam-
alla nemenda til skólans á skóla-
hátíð ár hvert sagði hann mikils
virði. Ljóst væri einnig að skól-
inn væri nemendunum mikils
virði. Samfélag norðanmanna
byggi yfir einhverju sem ekki
væri að finna annars staðar.
Á liðnu hausti hófu 590 nemend-
ur nám við skólann, 420 voru af
Norðurlandi eystra þar af rúmlega
300 frá Akureyri, eða um helming-
ur nemanna líkt og verið hefur síð-
ustu tvo áratugi, tæp 14% koma
af Norðurlandi vestra, 7% af Vest-
urlandi og Vestfjörðum, tæp 3%
af Austurlandi og af Suðurlandi,
Reykjavík og Reykjanesi koma
tæplega 4%. Um 250 umsóknir
hafa borist um nám á fyrsta ári
og hefur verið ákveðið að taka allt
að 200 nýja nemendur inn á fyrsta
ár, þannig að neita þarf um 50
nemendum um skólavist.
Félagsstarf var öflugt síðasta
vetur og nefndi Tryggvi í ræðu
sinni að nemendur skólans hefðu
borið honum gott vitni, þeir báru
sigurorð af öðrum í spurninga-
keppni Ríkisútvarpsins og urðu
einnig fremstir í stærðfræðikeppni
Hins íslenska stærðfræðifélags
sem og í eðlisfræðikeppni fram-
haldsskólanna.
„Sú þjóð sem meðhöndlar kenn-
ara sína eins og gert er nú hér á
landi verður ekki lengi í hópi þjóða
sem best eru menntaðar. Við ís-
lendingar höidum að við séum bet-
ur menntaðir en aðrar þjóðir. Það
má ef til vill til sanns vegar færa
á sumum sviðum og ljóst er að
minni munur er á fólki hér en víð-
ast annars staðar í Evrópu og
ómenntuð lágstétt hefur ekki verið
á íslandi til þessa,“ sagði Tryggvi
er hann ræddi um kjör kennara.
Hann sagði að sér byði í grun að
hinn ráðandi minnihluti - hin ríkj-
andi stétt, væri ekki eins vel mennt-
uð og í nágrannalöndum okkur og
skorti þar einkum víðsýni og skiln-
ing á hinum stóru málum, hún
skildi ekki samhengi hlutanna.
„Maðurinn lifir ekki af brauðinu
einu saman. Trú, menning, listir
og saga skipta iíka máli og mennt-
unin er undirstaða alls, þess að
vera maður.“
Skólamenntun hefði ekki átt upp
á pallborðið, þrátt fyrir allt tal um
menntun og menningu. „En þegar
skólunum er nú gert að ala upp
börnin okkar - því heimilin er þess
ekki megnug - og fijálshyggja í
samkeppni og framleiðslu á að ráða
úrslitum verðum við að eiga vel
menntað fólk og það fæst ekki
annars staðar en í skólum. Ef til
vill þarf að skera upp allt atvinnu-
líf og hagkerfi þjóðarinnar, en ef
skólinn gleymist getum við gleymt
hinu iíka,“ sagði Tryggvi. „Skóla-
menntun er ekki aðeins æskileg
heldur lífsnauðsyn. Nú er talað um
samvinnu og jafnvel sameiningu
þjóðríkja Evrópu. Öll ríki Evrópu
skulu lúta einni stjórn. Ef íslend-
ingar eiga ekki að týnast í því
mikla þjóðahafi verður við að taka
á honum stóra okkar og þá skiptir
skólamenntun þjóðarinnar öllu
máli.“
Hátíðahöldin tókust mjög vel og sjaldan hefur jafn mikið fjölmenni komið saman á flötinni fyrir
framan samkomuhúsið.