Morgunblaðið - 19.06.1991, Qupperneq 33
lMbkÍM:BLAÐ&1 'ÍáÖ^ÚÍDÁbtíá' 'ið!
38
í hópi kátra sveina
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hrói höttur („Robin Hood“).
Sýnd í Bíóborginni. Leikstjóri:
John Irvin. Aðalhlutverk:
Patrick Bergin, Uma Thurman,
Jeroen Krabbe, Jurgen Prochn-
ow, Edward Fox. Bandaríkin.
1991.
í byijun myndarinnar Hrói hött-
ur með írska leikaranum Patrick
Bergin er hin fræga þjóðsagna-
hetja, sem rændi ríka og gaf fá-
tækum, aðalsmaðurinn Robert
Hode. Dag einn þegar hann viðrar
fálkann sinn rekst hann á fátækl-
ing á harðahlaupum undan veiði-
mönnum héraðshöfðingjans en þeir
vilja stinga úr honum augun fyrir
veiðiþjófnað. Robert forðar því en
kemst í ónáð og þegar hann neitar
að láta refsa sér hefst þjóðsagan.
Hann gerist útlagi og heldur til
skógarins ásamt vini sínum Villa
Scarlett, þar hitta þeir Litla Jón
og síðar útilegumenn í sínu Ódáða-
hrauni og til verður æfintýrið um
Hróa hött og hans kátu sveiná.
Hrói hefur alltaf þótt gott efni
í æfintýramynd með hetjudáðum,
bardögum og gamanmálum á létt-
um nótum. Bergin bætir sáralitlu
nýju við persónuna en leikur Hróa
á alvörulausan og galsafenginn
hátt, án þess að skapa eftirminni-
legan karakter á neinn hátt. Hann
brosir mikið og skemmtir sér, sér-
staklega í hættulegum kringum-
stæðum, er fimur á boga og sverð
(auðvitað) og pólitískur aðalsmað-
ur sem tekur að sér að veija alþýð-
una gegn hinum illu og skatt-
hungruðu yfirvöldum sýslunnar.
Hann missir land sitt og tign í
byijun fyrir að bjarga fátækling
frá vondum örlögum en mest
storkar hann yfirvöldum vegna
þess að hann er Saxi undir óþo-
landi stjórn Normanna.
Hann er friðarsinni fyrst og
fremst og telur að Normenn og
Saxar geti lifað í sátt og samlyndi
en til þess að svo megi verða þarf
hann að ná yfirráðum í héraðinu
og heyja borgarastyijöld. Hann
verður n.k. uppreisnarforingi
hinna kúguðu og stjórnar byltingu
alþýðunnar sem ræðst á hinn illa
kastala Normanna.
Ágæt útgáfa af sögunni en út-
færslan er einhvern veginn lítt
spennandi og snertir mann lítið.
Einn gallinn er sá að lokabardag-
inn, sem alltaf mátti treysta á,
bregst þegar kemur í ljós að Nor-
maðurinn illi í kastalanum (Jeroen
Krabbe) er í aðalatriðum sammála
pólitík Hróa innst inni, afsalar sér
völdum og lifir sennilega ham-
ingjusamur það sem eftir er. Þá
er hinn skemmtilegi æfintýramað-
ur Hrói óþarflega litlaus persóna
í meðferð Bergins.
Hin alvarlega pólitík íþyngir
myndinni nokkuð því meðfram
henni reynir leikstjórinn John Irvin
að skapa skemmtilegt og fjörugt,
andrúmsloft en æfíntýraljóminn í
sögunni fær aldrei skinið í gegn.
Búningar og leikmyndir eru eins
og best verður á kosið. Það er
mjög dimmt og þungskýjað yfir
allri myndinni, útlitið er kuldalegt
og hráslagalegt því ekki getur sól-
in skinið í löndum Saxa fyrr en
Normenn eru undir. Þegar Hrói
hefur sigrað birtir ailt í einu yfir,
sólin skín og tré taka að laufgast
í einkar undarlegu atriði, er svíkur
raunsæið sem á undan er gengið
og er á væmnum nótum.
En það er líka gaman að mörgu
í myndinni og hún vekur stundum
upp æfintýraþrána, sem blundar í
öllum góðum Hróum. Hinir kátu
sveinar í fylgd hetjunnar eru góðir
í að reka upp stórar hláturrokur
en þeir gera sáralítið þess á milli.
Uma Thurman leikur Marian hina
fögru, sem verður Marian hin
harða því kvenréttindakona er hún
hin mesta og beygir sig síst undir
vilja frænda síns Krabbe, sem vill
að hún giftist frönskum vini sínum
og aðalsmanni (Jurgen Procknow).
Sá ágæti leikari Edward Fox stej-
ur senunni í stuttu atriði sem Jo-
hann prins og yfírleitt standa leik-
ararnir sig vel þótt Prochnow, sem
er hinn eiginlegi illingi myndarinn-
ar, sé heldur annarlegur með fran-
skan hreim.
Lifað í Los Angeles
Saga úr Stórborg („L.A. Story).
Sýnd í Stjörnubíói. Leiksljóri:
Mick Jackson. Handrit: Steve
Martin. Aðalhlutverk: Steve
Martin, Victoria Tennant, Rich-
ard E. Grant. Bandaríkin. 1991.
Grínarinn Steve Martin þekkir
vel sína heimaborg, Los Angeles,
og fólkið sem hana byggir en nýj-
asta gamanmyndin með honum,
Saga úr stórborg, er mestan part
háðsleg og skemmtileg úttekt á
kostum og kynjum borgarinnar
undir eilífu glaðasólskini. Hann
bregður upp skopmyndum sem
sumar eru full fáránlegar en aðrar
hitta beint í mark og minna á
Woody Allen þegar hann filmar í
New York (Állen gerði reyndar
eftirminnilegt gys að lífinu í Los
Angeles á löngum kafla í Annie
Hall).
Steve Martin, sem skrifar hand-
ritið að myndinni, leikur „víraða
veðurfræðinginn" Harry K. Tel-
emacher, sem engu hefur að spá
nema áframhaldandi sólskini á
nokkurra daga fresti á sjónvarps-
stöðinni þar sem hann vinnur.
Hann missir starfið þegar óvart
rignir í borginni, kynnist fallegri
afgreiðslukonu, sem buktar sig
látlaust og beygir í kringum hann,
og helsti sálufélagi hans verður
ljósaskilti við þjóðveginn, svipað
þeim sem mjög rvðja sér til rúms
í Reykjavík nú um stundir. Hjá
ljósaskiltinu, sem byijar á því að
biðja hann um að faðma sig, fær
hann ýmsan vísdóm en mitt í öllu
saman kynnist hann breskum blað-
amanni sem komin er til Los Ange-
les að skrifa um borgina. Eigin-
kona Martins, breska leikkonan
Victoria Tennant, leikur hana, og
brátt stefnir í rómantík af hæstu
gráðu.
Tennant er ekki sérlega aðlað-
andi gamanleikkona og virkar
heldur þunglamaleg og alvarleg
fyrir efniviðinn. Atriðin með henni
og stigmagnandi ástarsagan á
milli hennar og Martins er talsvert
á skjön við alvöruleysið sem ann-
ars ríkir í myndinni. Martin er aft-
ur eins og leiktækjapinni, sífellt á
harðaspani, upp og niður, út og
suður. Myndin virkar best í kynd-
ugum lýsingum á lífsstíl, þanka-
gangi og gerðum, framkomu og
tilfinningum fólksins í borginni og
maður fær á tilfinninguna að í
handritinu hitti Martin oftar en
ekki naglann á höfuðið á sinn gam-
ansama hátt.
Sumstaðar skýtur hann langt
framhjá reyndar eins og þegar
hann tekur fyrir umferðamenning-
una og bílstjórarnir draga allir upp
skammbyssur. Annarstaðar hlær
maður auðveldlega. Heilsuæðið
fær sinn skerf (það er bannað að
hlaupa í heilsuklínikkinni), fram-
hjáhaldið, sjáifsafgreiðslubankar
(þjófarnir bíða í jafnlöngum röðum
eftir fórnarlömbunum) og fínu
veitingastaðirnir; þegar veður-
fræðingurinn pantar sér borð á
nýjasta, fínasta og ekki síst dýr-
asta veitingastaðnum (sá nefnist
„L’idiot") þarf hann að fá staðfest-
ingu á að honum sé það fært hjá
Ríkisbankanum í Hamborg.
Rick Moranis (frábær kokney-
framburður), og Chevey Chase
koma fram í gestarullum. Myndin
er hlægileg þegar best lætur og
alltaf þekkileg að horfa á. Martin
er skemmtilegur sem fyrr en Saga
úr stórborg er varla með stærstu
myndum hans. Þú átt með honum
góða stund en svo er það búið.
Nýstúdentar frá Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Skólaslit Fjölbrautaskóla Vesturlands:
Yfir 1.000 nemendur við nám í vetur
Akranesi.
SKÓLASLIT Fjölbrautaskóla
Vesturlands fóru fram laugar-
daginn 18. maí sl. í vetur voru
um 1.000 nemendur við nám í
skólanum í dagskóla, kvöldskóla
og námskeiðum sem skólinn stóð
fyrir. Kennt var á fjórum stöðum,
Ákranesi, Borgarnesi, Stykkis-
hólmi og Hellissandi.
Alls voru brautskráðir 46 nem-
endur frá skólanum. Þar af luku
27 nemendur stúdentsprófi, 8 nem-
endur luku prófi af tveggja ára
starfsmenntabraut og 11 luku próf-
um af iðn- og verknámsbrautum.
Þá hlutu 8 nemendur viðurkenning-
ar fyrir ágætan námsárangur. Árni
Böðvarsson stúdent af Eðlisfræði-
braut náði bestum árangri stúdenta.
í skólaslitaræðu Þóris Ólafssonar
skólameistara kom fram að skólinn
starfaði á fjórum stöðum á Vestur-
landi sl. skólaár. Kennt var á Akra-
nesi, í Borgarnesi, í Stykkishólmi
og á Hellissandi en þangað var
daglegur akstur fyrir nemendur frá
Ólafsvík. Á stöðunum utan Akra-
ness voru yfir 100 nemendur við
nám. Alls sóttu yfir 1.000 nemend-
ur nám í skólanum á skólaárinu, í
dagskóla, í kvöldskóla og á nám-
skeiðum sem skólinn stóð fyrir.
Framkvæmdir við þjónustubygg-
ingu skólans eru á lokastigi og verð-
ur flutt í hana í haust. Þörf fyrir
aukið heimavistarrými er mikil en
2-3 umsóknir eru um hvert laust
Samband dýraverndunarfélaga:
Ekki skemmtigarð
við Húsdýragarðinn
SAMBAND dýraverndunarfé-
laga Islands mótmælir harðlega
áformum um að byggja
skemmtigarð í Laugardalnum í
Reykjavík á meðan Húsdýra-
garðurinn er staðsettur þar.
Sambandið telur að það álag á
dýrin, sem fylgja myndi hávaða
frá tækjum og fólki í skemmti-
garðinum, yrði hrein dýr-
aníðsla.
Þetta kem.ur fram í fréttatil-
kynningu frá Sambandi dýra-
verndunarfélaganna. Þar segir
enn fremur, að Sambandið ítreki
margendurteknar kröfur um að
þau villtu dýr, sem eru í Húsdýra-
garðinum, verði flutt í náttúruieg
heimkynni sín og sleppt þar fijáls-
um. Þá skorar Sambandið á borg-
arstjórn að stækka Húsdýragarð-
inn, láta honum eftir allt það
svæði, sem ætlað sé undir fyrir-
hugaðan skemmtigarð og fjar-
lægja jafnframt villtu dýrin úr
garðinum. Þannig verði hægt að
búa betur að húsdýrum Húsdýra-
IVAKORTALISTI
Dags. 19.6.1991. NR. 37
5414 8300 1564 8107
5414 8300 2013 1107
5414 8300 2675 9125
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORTHF.
Ármúla 28,
108 Reykjavík, sími 685499
garðsins og sinna mun betur þeim
samskiptum sem yngsta kynslóð
borgarbúa eigi að geta notið við
þau.
pláss á heimavist skólans.
Margir ágætir viðburðir urðu í
félagslífi nemenda á liðnu skólaári.
4 erlendir skiptinemar voru í skól-
anum í vetur og er von á nýjum
/skiptinemum næsta haust. Hópur
nemenda fór í skólaheimsókn til
Svíþjóðar en norræn nemendaskipti
eru að verða fastur liður í skóla-
starfínu.
Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akra-
nesi kynnti þá ákvörðum bæjar-
stjóra Akraness að styðja árlega
einn nemenda til framhaldsnáms
með 250.000 kr. námsstyrk. Er
styrkurinn hugsaður sem hvatning
til nemenda um að leggja sig fram
í námi og leita sér framhaldsmennt-
unar. Styrkurinn verður veittur í
fyrsta sinn 17. júní nk.
Skóiaslit Fjölbrautaskóla Vestur-
lands sóttu að þessu sinni um 300
gestir. Nemendur léku á hljóðfæri
fyrir gesU og flutt var bókmennta-
dagskrá. í lok athafnarinnar flutti
María Karen Sigurðardóttir nýstúd-
ent ávarp brautskráðra nemenda.
Skólameistari kvaddi nemendur og
flutti þeim árnaðaróskir. Að loknum
skólaslitum var brautskráðum nem-
endum, aðstandendum þeirra,
kennurum og öðrum starfsmönnum
boðið til veislukaffis í skólanum.
- J.G.
Hercules
Demparar
í margar gerðir bíla, Gæðademparar.
_______Hagstætt verð._
Bíiavörubúðin
JFJOÐRIN,
Skeifan 2 simi 82944