Morgunblaðið - 19.06.1991, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991
ATVINNU i K il YSINGAR
Hótel/næturvörður
Af sérstökum ástæðum þarf stórt hótel í
borginni að ráða næturvörð til framtíðar-
starfa sem fyrst. Tungumálakunnátta og
reglusemi er áskilin.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „N - 5820“, fyrir kl. 17 í dag.
Grunnskólinn á ísafirði
Kennarar - kennarar
Nokkra kennara vantar við Grunnskólann á
ísafirði næsta vetur.
Meðal kennslugreina eru:
- Tónmennt.
- Mynd- og handmennt.
- Sérkennsla.
- Danska.
- Raungreinar.
- Kennsla í 7. bekk.
- Kennsla yngri barna og tölvukennsla.
Einnig vantar okkur skólasafnskennara.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar í
94-3330.
Skólanefnd.
Morgunverður
Vilum ráða einstakling til starfa við morgun-
verð. Vinnutími frá kl. 05.30 til kl. 12.00.
Vaktafyrirkomulag, unnið í fjóra daga og frí
í tvo.
Ekki er um sumarstarf að ræða.
Hentugt fyrir duglega, reglusama og snyrti-
lega konu, sem er eldri en 25 ára.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Skúli Bárð-
arson, aðstoðarhótelstjóri.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Lausar stöður
Óskum eftir að ráða eftirtalið starfsfólk að
nýju sambýli fyrir geðsjúka í Reykjavík:
1. Félagsráðgjafa, eða aðila með háskóla-
próf í skildum greinum.
2. Listþjálfa (art-therapist), iðjuþjálfa, tón-
listarkennara, myndlistarmann eða aðila
með sambærilega menntun.
3. Meðferðarfulltrúa með húmanistiska
menntun og/eða reynslu af listum og
skapandi starfi.
Boðið er uppá virktfræðslu- og samhæfingar-
starf á nýjum og spennandi vinnustað.
Upplýsingar veitir forstöðumaður, Lárus Már
Björnsson, í síma 621388 (skrifstofa) eða
679331 (heima).
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstof-
unni. Umsóknir berist fyrir 5. júlí.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra,
Nóatúni 17,
105 Reykjavík.
Iþróttakennarar
íþróttakennara vantar við Egilsstaðaskóla.
Góð aðstaða.
Upplýsingar í síma 97-11632, Helgi, og
97-11326, Sigurlaug.
Frá Fræðsluskrif-
stofu Vesturlands-
umdæmis
Staða skólastjóra við Varmalandsskóla í
Borgarfirði er laus til umsóknar.
Upplýsingar veita fyrir hönd skólanefndar
Ragnheiður Ásmundsdóttir í síma 93-51223
og skólastjóri eftir 20. júní í símum 93-51300
eða 93-51302. Umsóknarfrestur er til 8. júlí.
Hjúkrunarfræðingar
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur auglýsir eftir
hjúkrunarfræðingum í hlutastarf eða fullt
starf. Starfið er sjálfstætt og í mikilli þróun.
Það má móta og skipuleggja á ýmsa vegu
og býður upp á margskonar möguleika.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri, Bergljót
Líndal, í síma 22400.
Þá er laust hlutastarf hjúkrunarfræðings við
Heilsugæslustöðina í Efra-Breiðholti.
Upplýsingar gefur staðgengill hjúkrunarfor-
stjóra, Hanna María Kristjónsdóttir, í síma
670200.
Fótaaðgerða-
fræðingur
Óskum að ráða fótaaðgerðafræðing til sum-
arafleysinga.
Upplýsingar í síma 26222 frá kl. 9.00-12.00.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
MIÐNESHREPPUR
Grunnskólinn
í Sandgerði
Okkur vantar kennara til að annast sér-
kennslu, kennslu yngri barna og smíði.
Húsnæðisfyrirgreiðsla.
Upplýsingar veita Guðjón Þ. Kristjánsson,
skólastjóri, sími 92-37436 og Þórunn B.
Tryggvadóttir, yfirkennari, sími 92-37730.
Símar skólans eru 92-37439 og 92-37610.
Ertu kennari
með metnað?
Geturðu hugsað þér að vinna við aðstæður
sem eru e.t.v. allt aðrar en Kennaraháskólinn
bjó þig undir að starfa við - í umhverfi þar
sem nemendurnir eru ekki 600 heldur rétt
rúmlega 60 - þar sem ekki er aðeins einn
árgangur í bekk heldur a.m.k. tveir - þar sem
ekki er búið að hugsa allt fyrir þig heldur
færðu að reyna á skipulagshæfileika þína,
sköpunargáfu og getu til að takast á við hin
fjölbreyttustu kennslustörf?
Ef svo er þá höfum við í Flateyrarskólá þörf
fyrir þig!
Hafðu samband við Hinrik, formann skóla-
nefndar, í síma 94-7828 (vs) og 94-7728 (hs)
eða Vigfús, skólastjóra, í síma 94-7670 (vs)
og 94-7814 (hs).
Grunnskólinn á Flateyri.
MIÐNESHREPPUR
Tónlistarskóli
Sandgerðis
Skólastjóra vantar við skólann næsta vetur.
Skilyrði eru að skólastjóri sé búsettur á
staðnum. Húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar veita Salóme Guðmundsdóttir,
formaður skólanefndar, í síma 92-37798 og
Lilja Hafsteinsdóttir í síma 92-37763.
Menntaskólinn á ísafirði,
pósthólf 97,400 ísafjörður
Lausar
kennarastöður
Menntaskólinn á ísafirði auglýsir eftir kenn-
urum í íslensku (2A staða), dönsku (2/3 staða)
og frönsku (V2 staða). í öllum tilfellum er
möguleiki á heilli stöðu með kennslu í öðrum
greinum eða valgreinum.
Góð vinnuaðstaða og niðurgreitt húsnæði í
boði.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma
94-3599 eða 94-4017 (heima).
Umsóknarfrestur er til sunnudags 30. júní.
Isafirði, 15.júní 1991.
Skólameistari.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVlK
Lausar stöður
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík
auglýsir eftirtaldar stöður við nýtt sambýli
fyrir ungt fólk, sem tekur til starfa í haust,
lausar til umsóknar:
1. Deildarþroskaþjálfa til að leiðbeina og
aðstoða íbúanna. Hann þyrfti auk þess
að geta tekið að sér stjórnunar- og skipu-
lagsstörf og leist af forstöðumann í sum-
arfríum. Viðkomandi þyrfti að geta hafið
störf um mánaðamótin júlí-ágúst.
2. Þroskaþjálfa til að leiðbeina og aðstoða
íbúanna.
3. Meðferðarfulltrúa í fullt starf og hluta-
stöður.
Reynsla og menntun á sviði uppeldis- og
sálfræði eða skildra greina er æskileg.
Upplýsingar veitir forstöðumaður, Júlíus Hall-
dórsson, í síma 621388 (skrifstofa) eða
620083 (heima).
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
svæðisstjórnar. Umsóknir berist fyrir 5. júlí.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra,
Nóatúni 17,
105 Reykjavík.