Morgunblaðið - 19.06.1991, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐYIKUDA'GUR' 19. JÚNÍ'1991
37
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Spike, söngvari Quireboys.
sér ekki að marki fyrr en hjá síð-
ustu hljómsveitunum þremur,
Thunder, Slaughter og Quireboys.
Lítið fór líka fyrir Ijósum á sviðinu,
enda sól enn á lofti þegar síðasta
hljómsveit hætti að spila um mið-
nættið. Tónleikastemmning var
hófleg hjá áheyrendum, utan um
þúsund gesta sem var í kös framan
við sviðið og skemmti sér konung-
lega ef marka mátti öskur og óp.
Þorri áheyrenda var upptekinn við
að slæpast um svæðið, sýna sig
og sjá aðra, og ölvun var nokkur;
þó ekki til vansa. Útihátíðar-
stemmning ríkti á svæðinu —
kannski voru menn að taka forskot
á Vestmannaeyjar eða Húnaver.
Að sögn aðstandenda var nánast
ekkert að gera í sjúkratjaldinu og
lítil sem engin vandræði vegna ölv-
unarláta, utan að striplingur var
fjarlægður. Veðrið skipti verulegu
máli og næsta ótrúleg heppni að
hitta á annan eins sólardag.
Og svo...
Aðstandendur Rokks hf. léku við
hvern sinn fingur eftir tónleikana,
enda allt farið á besta veg. Þeir
segja að líklega hafi fjarvera Poison
dregið töluvert úr miðasölu, enda
mest lagt uppúr sveitinni í auglýs-
ingum. Erfitt sé þó að geta í slíkt,
en þeir teldu þó að þeir hefðu orð-
ið af 3—5.000 miða sölu fyrir vikið.
Ekki er Ijóst hvert framhaldið verð-
ur, en þó segjast menn ætla að
halda ótrauðir áfram að flytja inn
hljómsveitir. Einhver bið verður þó
á, því eftir er að greiða úr trygginga-
málum vegna forfalls Poison og því
nokkuð í að gera tónleikana upp,
en framkvæmdastjórn fyrirtækisins
er á förum utan til viðræðna við
Lloyd’s í Lundúnum. Rokk-menn
segja að það hve tónleikarnir
heppnuðust vel opni fyrir þeim allar
dyr hjá umboðsskrifstofum um
heim allan og því geti þeir nánast
valið úr hljómsveitum, þegar þeir
vilja fara af stað á ný.
Árni Matthíasson
einnig ógæfuleg. Eins og bent var
á hér að framan leiðir frjáls mark-
aður til ódýrari og betri vöru en
unnt er að fá eftir öðrum leiðum.
Þess vegna er best að þær tekjur
sem ríkið aflar sér hafi sem minnst
áhrif á gang hins ftjálsa markaðar,
þar sem niðurstaðan verður að öðr-
um kosti minni hagsæld viðkomandi
þjóðar. Betra er að skattheimtan
leggist jafnt á allt, til dæmis með
virðisaukaskatti og raski þannig
sem minnstu. (Því fer þó fjarri að
hér sé verið að mæla með hærri
virðisaukaskatti, hann er þegar allt
of hár. Þess í stað væri sjálfsagt
verkefni að skera niður þau tíu pró-
sent af tekjum ríkisins sem það
hirðir árlega með tollheimtu.)
Þessi atriði tel ég rétt að hafa í
huga í þeirri umræðu sem á sér
stað hérlendis og víða um minnk-
andi heim og aukin milliríkjavið-
skipti. Menn ættu ef til vill að gefa
GATT-viðræðunum um tollamál
meiri gaum en gert hefur verið, en
gjalda meiri varhug við reglugerð-
arfargani Evrópubandalagsins. Það
sem við og aðrir þurfum er nefni-
lega niðurfelling tolla og fijáls við-
skipti landa á miili. Það væri öllum
til hagsbóta.
NORDIA 91
Stærsta frímerkjasýning til þessa á íslandi
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
NORDIA 91 verður stærsta frí-
merkjasýning, sem haldin hefur
verið hérlendis. Alls verða um 1.000
rammar á sýningunni með fjöl-
breyttu og vönduðu sýningarefni.
Ekki er unnt að gera hér grein
nema fyrir broti af þessu efni, enda
verður sjón sögu ríkari. Samt skal
reynt að segja í stuttu máli frá
þeim söfnum, sem ætla verður, að
sýningargestir hafí helzt hug á að
skoða. í þessum og næsta þætti
verður að miklu leyti dvalizt við
íslenzk frímerkjasöfn, enda er
óhætt að fullyrða, að aldrei áður
hafa menn átt þess kost að sjá jafn-
fallegt og um leið fágætt íslenzkt
frímerkjaefni á sýningu hér á landi.
Mætti segja mér, að mörg ár líði,
þar til annað eins tækifæri gefst
aftur. Þessi þáttur verður helgaður
íslenzkum sýnendum.
í hefðbundinni deild, landsflokki,
sýnir Helgi Gunnlaugsson safn sitt
af Kristjáni IX. 1902—22. í safninu
eru stök merki með ýmsum stimpl-
um frá þessum tíma. Þá hefur Helgi
safnað alls konar afbrigðum, t.d.
prentgöllum og plötugöllum, sem
komu frain við prentun þessara
merkja. Einnig leggur hann áherzlu
á að sýna þessi frímerki á heilum
póstsendingum og afkiippingum
(snyfsum). Sigurður P. Gestsson
sýnir íslenzk frímerki frá 1902—30
Eru það stök frímerki og eins í röð-
um, blokkum og stærri einingum
frá þessum tíma. Þá eru hér frí-
merki_ á margs konar póstsending-
um. í safninu eru sýnishorn af
stimplum frá þessum tíma, bæði
innlendum og erlendum. Þetta safn
hefur ekki áður komið fyrir augu
almennings.
í póstsögulegri deild, landsflokki
sýnir Hjalti Jóhannesson íslenzka
stimpla af svonefndri antikva- og
lapidargerð 1873 til um 1930. Hjalti
hefur dregið mikið efni saman á
þessu sviði og sýnir hér hið bezta
úr safni sínu. Jón Halldórsson sýnir
í þessari deild hluta af safni sínu
af margs konar stimplum á 20 aura
Safnahúsmerkinu frá 1925. Er mér
tjáð, að hann hafi breytt safninu
verulega. Hefur hann hætt við að
raða safni sínu eftir sýslum og póst-
stöðvum, en fer í þess stað eftir
þeim stimplagerðum, sem hann
hefur fundið á þessu merki. Byijar
þá á elztu stimplunum fyrir alda-
mót og svo allar götur, meðan frí-
merkið var í notkun. Eins tekur Jón
með erlenda stimpla og sjópóstst-
impla. Mikið af þessu efni er á heil-
um umslögum. Guðmundur Ingi-
mundarson sýnir áttahagasafn sitt
frá Vestmannaeyjum. Hann hefur
dregið saman margvíslegt póstsög-
ulegt efni frá þessu þrönga póst-
svæði. Hér verður aðeins til sýnis
hluti af stærra safni. í þessari sömu
deild sýnir Frímerkjaklúbburinn
Askja skemmtilegt safn, sem Oskj-
umenn kalla Úr póstsögu Suður-
Þingeyjarsýslu. Þessi fjögur söfn
hafa áður verið á sýningum, en öll
munu þau hafa verið bætt töluvert
fyrir NORDIU 91.
í flugpóstdeild sýna tveir félagar
okkar flugsöfn sín og reyndar í
tvennu lagi. Þau eru áður kunn af
sýningum, en vitað er, að þau breyt-
ast töluvert milli sýninga. Páll H.
Ásgeirsson sýnir flugsafn 1928—
1940. Hefur hann dregið ótrúlega
mikið efni saman um þetta tímabil.
Hið sama má og segja um seinna
tímabilið í flugsögu okkar frá
1940—60. Þorvaldur S. Jóhannes-
son er einnig kominn vel á veg með
flugsöfn sín, sem ná frá 1928 til
1966.
í bókmenntadeild sýnir Rannveig
Gísladóttir bókina íslensk frímerkj-
asöfnun og póstsaga: heimildaskrá.
Hér er dregið saman allt það efni,
sem hún hefur fundið ritað um ís-
lenzk frímerki og póstsögu frá upp-
hafi. Þetta er því hið þarfasta verk
sem handbók eða uppsláttarrit. Þá
sýnir Sigurður H. Þorsteinsson
verðlista sinn íslensk frímerki 1991.
Þá er komið að unglingadeild-
inni, þar sem eru mörg mjög áhuga-
verð söfn. Deildinni er skipt niður
í §óra aldurshópa. í A-hópnum sýna
þeir, sem er 15 ára og yngri. Þar
sýnir Kári Sigurðsson safn, sem
hann kallar Merkir íslendingar.
Fyrir þetta safn fékk hann fyrir
nokkru stórt silfur og heiðursverð-
í Laugardalshöll verður NORDIA 91 haldin 27,—30. þ.m.
laun á unglingasýningu í Dan-
mörku. I sama hópi sýnir Björgvin
Ingi Ólafsson safn sitt Fuglar Evr-
ópu. Fyrir það fékk hann silfur á
sömu sýningu í Danmörku. Bæði
þessi söfn eru skemmtileg. Er eng-
inn vafí á því, að þessir drengir
eiga eftir að ná langt, um það er
lýkur, ef svo heldur fram sem horfir.
Þrír íslenzkir dómarar taka þátt
í dómaradeild. Hálfdán Helgason
sýnir ísl. bréfspjöld 1879—1920 og
Jón Aðalsteinn Jónsson hluta af
safni sínu af tvílitu dönsku frímerkj-
unum frá 1870—1912. Bæði þessi
söfn hafa verið á sýningum og eru
kunn ísienzkum. frímerkjasöfnur-
um. Hins vegar er safn þriðja dóm-
arans ekki almennt þekkt hérlendis.
Er það safn Sigurðar R. Pétursson-
ar af Tveim kóngum. Hefur hann
dregið saman mjög fallegt og gott
safn af þessari útgáfu.
í næsta þætti verður m. a. sagt
nokkuð frá íslenzkum söfnum í eigu
erlendra safnara.
1
§
4
á Flúðum
Siguijón og Gíslína fæddust á
Helgastöðum í Reykjavík. Foreldrar
þeirra voru Sigríður Jónsdóttir frá
Snotru í Þykkvabæ og Sigurður
Jónsson bóndi áð Lykkju á Kjalar-
nesi. Nánari upplýsingar gefur Þór-
unn Reynisdóttir í Reykjavík.
Siguijón og Gíslína Sigurðarbörn.
Ættarmót
ÆTTARMÓT verður lialdið á
Flúðum í Hrunamannahreppi
dagana 21. og 22. júní, en þann
20. júní verða liðin 100 ár frá
fæðingu tvíburanna Sigurjóns og
Gislinu og ætla niðjar þeirra að
hittast af því tilefni.
nýtt
Þeir rækta kaffijurtina af aldagamalli hefð við bestu
aðstæður í fijósömum fjallahlíðum Colombiu.
^ Við veljum bestu baunimar þeirra.
tfShb Þú færð ilmandi nýbrennt Colombiakaffi í
stjörnuflokki nánast beint úr kvörninni - njóttu þess.
W
KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF
Höfundur stundar nám við HÍ.