Morgunblaðið - 19.06.1991, Blaðsíða 41
vini sem elskuðu hana heitt, þetta
er okkur mjög mikill missir að missa
svona góða vinkonu úr vinahópnum
og hún skilur mjög stórt skarð eft-
ir sig. Það er mjög erfitt að trúa
að maður sjái hana aldrei aftur
nema í hugsun eða draumi.
Okkar upprunalegi vinskapur
hófst fyrir u.þ.b. fimm árum er við
kynntumst í grunnskóla og hefur
sá vinskapur haldist síðan. Það er
svo margt sem við höfum gert sam-
an, farið í ferðalög og fleira og nú
síðast um hvítasunnuhelgina, þá
fórum við mörg saman í sumarbú-
stað og þar var mikið sungið og
hlegið og var Dóra þar kát og hress
eins og vanalega.
Hún var mjög uppfinningasöm
og stakk upp á ýmsu sem manni
myndi ekki detta í hug, og hún var
líka mjög lífsglöð og átti auðvelt
með að koma manni til að brosa.
Við leituðum oft til hennar ef okkur
lá eitthvað á hjarta og hún var
ávallt tilbúin að hlusta. Hún var
mjög hæfileikarík persóna, sérstak-
lega í myndlist.
Það er mjög sorglegt þegar svona
efnileg og ung stúlka hverfur úr
þessum heimi og lífsdraumar henn-
ar verða að engu.
Við vottum fjölskyldu og ættingj-
um hennar okkar dýpstu samúð.
Guð geymi Dóru vinkonu okkar.
Betra er að elska og missa en
elska ekki.
Lína, Silvía, Gyða og Margrét
Hinn 11. júní síðastliðinn bárust
okkur þær sorglegu fregnir að vin-
kona okkar væri látin. Við vildum
ekki trúa að þessi hressa og
skemmtilega stelpa væri ekki leng-
ur meðal okkar. Hún sem hélt allt-
af uppi ijörugum samræðum og
kom öllum til að hlæja. Hún hafði
alltaf ákveðnar skoðanir á öliu og
var mjög hreinskilin. Ófáar
skemmtilegar stundir koma upp í
hugann er við hugsum til baka þessi
fimm ár sem við fengum að njóta
hennar og hún skilur eftir sig stórt
skarð í vinahópinn sem verður aldr-
ei fyllt. Við minnumst sérstaklega
frumlegra hugmynda hennar um
lífið og tilveruna sem komu skýrt
fram í myndum hennar en Dóra var
hæfileikaríkur teiknari.
Við munum sakna hennar sárt
en eins og hún sagði sjálf: „Betra
er að elska og missa en að elska
alls ekki.“ Við vottum fjölskyldu
hennar og aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
María Ósk, Elfa Dögg og Hrönn.
Sú harmafregn barst okkur að
morgni 10. júní síðastliðin að Dóra
væri látin.
Af hveiju hún, hún sem var svo
lífsglöð og hress, ófeimin við að
gera tilraunir með útlit sitt, það er
að segja háralit og klæðnað og þar
fór hún ekki troðnar slóðir en sagði
„fínnst þér ég ekki smart“.
Ávallt gat maður leitað til Dóru
með vandamál sín því að hún var
bæði mjög skilningsrík og hreinskil-
in.
Hún átti til að setjast niður með
tréliti, blokk af blöðum og teiknaði
stundunum saman.
Við höfðum ekki hist í nokkra
daga og okkur hefði svo mikið lang-
að til þess að hitta hana áður en
hún fór frá okkur.
Eftirsjáin er mikil, en við munum
hittast einhvern tímann aftur.
Foreldrum og systkinum Dóru
viljum við senda innilegar samúðar-
kveðjur og einnig þeim sem um
sárt eiga að binda.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991 41
Minning hennar lifír.
Eyðist dagur, fríður, fagur,
fagur dagur þó aftur ris.
Elífðardagur ununarfagur,
eilíf skín sólin í Paradís.
Ó, hve fegri og yndislegii
unun mun sú, er þar er vís.
(V. Briem.)
Tóta og Árni
Það er með trega í hjarta sem
við kveðjum fyrrverandi skólasystur
og vinkonu okkar, Dóru Þorsteins-
dóttur.
Hún kom í Laugarnesskóla í 6.
bekk og vann strax hylli allra bekkj-
arfélaga sinna með mikilli lífsgleði
og kæti sem einkenndi hana alla tíð.
Dóra var mjög félagslynd og tók
virkan þátt í nemendastjórn Lauga-
lækjarskóla. Myndlistin var henni
einnig í blóð borin, enda hafði hún
hug á því að stunda nám við lista-
braut Fjölbrautaskólans í Breiðholti
og mörg listaverk hennar prýddu
veggi Laugalækjaskóla lengi vel.
Dóra hafði ríka kímnigáfu og
jafnvel hinir verstu fýlupokar kom-
ust ekki hjá því að brosa út í annað
í návist hennar.
Sérstaklega minnumst við skóla-
ferðalaga okkar með henni, fyrst í
Katlagil, ferð sem farin var í 6.
bekk og allir skemmtu sér vel í, og
líka Vestmannaeyjaferð okkar
níundubekkinga í Laugalæk árið
1990.
Það var ógleymanleg ferð. Aldrei
munum við gleyma hvað allir urðu
sjóveikir, þar á meðal Dóra, og
hvað við skemmtum okkur vel við
að hrella Vestmanneyinga. Mikill
hluti ferðalagsins var kvikmyndað-
ur á litla vél, af okkur nemendunum
og var Dóra þar í stóru hlutverki.
Minningarnar eru þess vegna ekki
einvörðungu í hugum okkar, heldur
einnig festar á filmu.
Við vottum nánustu ættingjum
og vinum hennar okkar dýpstu sam-
úð, vitandi að allir sem einhvern
tímann hafa kynnst Dóru munu
sakna hennar sárt og við biðjum
þess einnig að henni líði vel núna,
hvar sem hún er.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Fyrrum skólasystur,
Helga Snæbjörnsdóttir,
Hrafnhildur Harðardóttir og
Ásta Sigmarsdóttir.
HITA-
KÚTAR
FYRIR
HEIMIUÐ OG
SUMARBÚSTAÐINN
§! KJÖLUR hf.
ÁRMÚLA30 S: 678890 - 678891
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ÞÓRUNNAR GUNNLAUGSDÓTTUR,
Hjarðartúni 3,
Ólafsvík.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki St. Fransiskusspítalans,
Stykkishólmi, fyrir góða umönnun.
Erna Guðmundsdóttir, Björn Jónsson,
Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Gunnar Vilhjálmsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir ómetanlega vináttu og samúð vegna fráfalls
og útfarar eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
JÓELS B. JACOBSON
húsvarðar,
Hæðagarði 56.
Sérstakar þakkir til stjórnar Glímufélagsins Ármanns syo og
félaga hans úr hnefaleikadeild fyrir honum sýnda virðingu.
Málfríður B. Jónsdóttir,
Richard B. Jacobson,
Jóhann B. Jacobson, Ingunn Ericsdóttir,
Ásgeir Jóef Richardsson,
Richard Ingi Jóhannsson,
Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir,
Fríða Tinna Jóhannsdóttir.
+
Innilegar þakkir sendum við þeim sem auösýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður og ömnrriu,
RANNVEIGAR HANSÍNU GUNNARSDÓTTUR,
Sogavegi 116.
Bjarni Hermannsson,
Kristín Bjarnadóttir, Sigurður Hafsteinsson,
Aslaug Bjarnadóttir, Þórir Steingrímsson,
Jóhanna Bjarnadóttir, Ólafur Jensson,
og barnabörn.
Sjónvarpstœki
Sjónvarps-
myndavélar
MANEXsjampó
MANEX næring
Dreifing:
S. 680630.
am
rosia
- Hárlos
- Kláði
- Flasa
- Litun \
- Permanent
MANEX
vítamín
sérstaklega fyrir
hár, húð og neglur.
Jóna Björk
Grétarsdóttir:
Ég missti megnið af hár-
inu 1987 vegna veikinda.
Árið 1989 byrjaði hárið
fyrst að vaxa aftur, en
það var mjög lélegt; það
var svo þurrt og dautt
og vildi detta af.
Síðan kynntist ég Manex
hársnyrtilínunni og það
urðu mjög snögg um-
skipti á hári mínu til hins
betra. Eftir 3ja mánaða
notkun á Manex prótein-
inu, vítamíninu og
sjampóinu er hár mitt
orðið gott og enn í dag
finn ég nýtt hár vera að
vaxa.
Fæst í flestum apótekum
hárgreiðslu- og rakara-
stofum um land allt.
Hljómtœkja-
samstœður
Ferðaviðtœki
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þínal
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Simi 28300