Morgunblaðið - 19.06.1991, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991
Hér stendur: Hjálp. Við er-
um strönduð á eyðiey ...
HÖGNI HREKKVÍSI
Rökleysur og mótsagnir
Enn einu sinni heldur Richardt
Ryel fram á ritvöllinn og sendir pistla
í Velvakanda. Að þessu sinni er það
svar við grein undirritaðs sem birtist
4. þ.m. Sú grein hafði flett ofan af
mistökum sem hann hafði gert í
grein sinni sem birtist 30. maí. En
þessi grein hans er ekkert skárri en
hinar fyrri, en í henni gleymir hann
að svara röksemdum mínum, gerir
þó heiðarlega tilraun til að svara
einni, en eyðir blekinu í að steypa
einhveija vitleysu sem kemur málinu
ekkert við og segir svo að ég hafi
ekki fært nein rök máli mínu til
stuðnings.
Richardt Ryel hefur verið að
rembast eins og ijúpan við staurinn
við að reyna að sanna fyrir alþjóð
að Krístur hafi ekki veríð læs. Hans
eina „sönnun" í því efni er grein sem
birtist 1. apríl í „Der Spiegel" og
hljóðaði niðurlag viðkomandi greinar
á þessa leið: „ .. .konnte gar nicht
schreiben". Eins og ég nefndi í grein
minni 4. þ.m. þá þýðir „schreiben"
ekki að lesa eins og RR telur, heldur
skrifa. Þar með er grundvelli skrifa
hans kippt undan honum. Ég vitnaði
í nokkur fræðirit og kom þeim sam-
an um að Jesús hafi verið iæs. Þann-
ig að það virðist allt benda til að
Jesús hafi verið læs, jafnvel sagn-
fræðilega séð. En samt heldur RR
áfram og verður undirritaður því að
svara þessa nýja ritverki hans, þó
þess þurfi í raun ekki. Röksemda-
færsla RR er engin.
RR biður undirritaðan að halda
sig við efnið. Það sem RR skrifar á
eftir þeim orðum kemur efninu ekki
mikið við, s.s. hæð Ararat, Ameríka,
pönnukökur o.fl. Þessi bæn kemur
því úr hörðustu átt. Hann skilur
augljóslega ekki hver kjarni málsins
er. Kjarninn er sá að RR hefur ekk-
ert til að styðja þá skoðun sína að
Jesús Kristur hafi verið óiæs. Til að
fela það byijar hann að steypa ein-
hveija tóma vitleysu, og segja
hænsnabrandara.
RR sér gyðingabörnin fyrir sér
með bókastafla 1500 áruni fyrír
fæðingu Gutenbergs, á leið til
kennslu. Hefur RR ekki heyrt um
bókrollur eða skinnhandrit? Það hlýt-
ur að hafa verið hægt að skrifa
bækur á annan hátt en með prent-
tækni, er það ekki?
Ólæsi í Miðausturlöndum er mik-
ið, segir RR. Islömskum börnum er
kennt að lesa á unga aldri, til að
geta lesið kóraninn, á sama hátt og
börnum gyðinga með lögmáli. Ólæsi
Yíkveiji
eir sem hafa forystu í rekstri
hins nýja fyrirtækis Sorpu
segja, að undirtektir almennings við
áskorunum um flokkun á sorpi hafi
farið fram úr björtustu vonum.
Nýleg skoðanakönnun sem sýnir
að almenningur telur umhverfismál
brýnustu úrlausnarefni líðandi
stundar bendir einnig eindregið til
þess að þessar áskoranir eigi góðan
hljómgrunn meðal alls þorra fólks.
Menn eru fúsir til að leggja mikið
á sig til að stuðla að umhverfis-
vernd.
Samhliða því sem þetta nýja fyr-
irtæki sveitarfélaganna á höfuð-
borgarsvæðinu tekur til starfa
breytist þjónusta við sorphirðu á
þann veg, að í senn eru gerðar
meiri kröfur til íbúa sveitarfélag-
anna við flokkun á úrgangi og um
að þeir annist sjálfir að koma sorp-
inu frá húsum sínum. I stuttu máli
má segja, að þjónustan minnki. Það
þarf að hafa meira fyrir því en
áður að losna við sorp, svo sem sjá
má á þeim mikla fjölda fólks er
leggur leið sína á svokallaðar gáma-
stöðvar. I þessum stöðvum er að
finna gáma undir mismunandi teg-
undir sorps og eiga menn að setja
í löndum islams er það minnta í
heiminum utan Evrópu og evrópskra
menningarsvæða. Fullyrðing RR um
að ólæsi sé útbreitt í Miðausturlönd-
um er því ekki alveg sönn,_þó vissu-
lega sé ólæsi meira en á Islandi.
Ararat og fleira. Þetta rugl er
augljóslega örþrifaráð RR til að sýn-
ast maður með mönnum. Steypan
sem hann hefur verið að senda frá
sér upp á síðkastið, villurnar, mót-
sagnirnar, slæmar þýðingar o.fl.
hafa afvopnað hann. Eina vopnið
sem hann á eftir er steypuvélin.
Hvar var ég að tileinka Kristi þá
þekkingu að hann kynni deilingu,
margföldun, stærð Ararats ...? Far-
ísearnir komu til Jesú til að spyija
um orð Guðs, en ekki margföldunar-
töfluna. Eina þekkingin sem ég til-
einkaði Kristi var að hann kynni að
lesa, enda hef ég góðar ástæður til
að halda það.
RR segir að ég sé að niðurlægja
Krist. en í lokaorðum sínum og seg-
ir hann, að það sé óþarft að taka
upp hanskann fyrir Jesúm Krist.
Reyndu að ákveða þig, væni minn.
Hvort er ég að taka upp hanskann
fyrir hann, eða niðurlægja hann? Það
er ekki ég sem er búinn að vera að
skrifa greinar á síðustu misserum,
sem ráðast á Krist. Jafnvel síðasta
útgáfa Pressunar taldi mig vera að
veija Krist en þig að ráðast á Krist.
„Fúkyrði og skammir eru alltaf
vottur þess að menn séu að komast
í rökþrot. “ Ég er ekki kominn í rök-
þrot. Ég þarf ekki annað en benda
á þýðingarvillu yðar úr „Der Spieg-
el“ til að slá öll rök úr hendi þinni.
Hvað er
maðurinn
að hugsa?
Flestur er víst kunnugt um að
gangbrautir eru fyrir gangandi fólk
og þar er ekki heimilt að leggja
bílum. Ökumaður bílsins á myndinni
veit þetta sjálfsagt eins og aðrir en
telur sig ekki þurfa að fara eftir
því. Hann leggur bíl sínum þvert
fyrir gangbrautina svo enginn
kemst yfir nema fuglinn fljúgandi.
Hvað er maðurinn að hugsa?
Vegfarandi
skrifar
það sem þeir vilja fleygja í þessa
gáma í samræmi við merkingarnar
á þeim.
xxx
Aukið erfiði við að losna við
sorp vekur kostnaðarvitund
hjá mönnum og einnig skilning á
því að fara sem best með alla hluti
og nýta þá til hins ýtrasta. Breyting
á þjónustu hlýtur jafnframt að vekja
menn til umhugsunar um það
hveiju þeir eiga rétt á fyrir fast-
eignagjöldin sem þeir inna af hendi,
öskutunnugjöld og önnur gjöld af
sama toga.
Víkveiji frétti af nágrönnum sín-
um sem áttuðu sig á því fyrir
skömmu, að sorphirðan væri hætt
að tæma öskutunnur hjá þeim. Var
að skapast vandræðaástand vegna
þessa. Húseigandi hafði samband
við rétt yfirvöld og spurði hveiju
þetta sætti og var þá svarað, að
hann væri kominn á svartan lista,
af því að það hefði verið settur
garðaúrgangur í öskutunnuna.
Spyija má, hvort þetta séu ekki of
harkalegar aðferðir við að venja
borgarbúa við nýjar reglur aðeins
sex vikum eftir að þær taka gildi.
Það ert þú sem ert augljóslega kom-
inn í þrot, þess vegna ert þú að fúk-
yrðast og skammast út í mig.
Kristur var eitt af þínum aðals-
merkjum. Það er augljóslega þar sem
okkur ber mest á milli. Ég nefnilega
tel að það sé hægt að tala um Krist
í nútíð. Ég segi því Kristur er. Einn-
ig tel ég að Jesús Kristur hafi verið
meira en spámaður eða mikill per-
sónuleiki. Grundvöllur kristinnar
trúar er að Jesús Kristur hafi risið
upp frá dauðum og sé sonur Guðs.
Ef hann er ekki sonur Guðs, þá er
hann mesti lygari mannkynssögunn-
ar, því þá hefur hann platað fleiri
en nokkur annar.
Kæri Richardt. Þú hefur verið að
skrifa greinar hin síðustu misseri,
sem særa tilfinningar þúsunda kris-
tinna manna á íslandi. Þessi greina-
flokkur yðar er aðeins sá síðasti í
ritröð þeirri gegn kirkju og kristni
sem þér hafið sent til Velvakanda.
Samkvæmt íslensku stjórnarskránni
er mönnum fijálst að birta skoðanir
sínar á prenti, svo fremi sem þær
misbjóði ekki almennu velsærni né
trúarbrögðum landsmanna. Ur því
að þér þurfið að fá útrás fyrir ein-
hveijar annarlegar og bældar hvatir,
reynið þá vinsamlegast að beina því
í einhveija saklausari átt, s.s. stjórn-
mála. Væntum vér þess að þér látið
af þessum skrifum, þar sem þér
hafið þegar tapað þessu einvígi með
þýðingarvillunni frægu. Það er ekki
viturt að strá salti í eigin sár. Guð
blessi þig.
S. Guðjón Bergsson
Skorað hefur verið á áskrifendur
dagblaða að safna þeim sam-
an, binda krossband um bunkann
og fara með hann í merktan gám
á stöð í hverfinu. Er augljóst af því
hve mikið magn er í þessum gámum
að margir hafa farið að þessum
óskum, sumir hafa jafnvel litið
þannig á að ekki megi fleygja dag-
blöðum í öskutunnur, sem er víst
oftúlkun, svo að notað sé tískuorða-
lag-
I Sviss, þar sem hvað mest þróun
hefur orðið í flokkun á heimilisúr-
gangi, er sá táttur hafður á, að á
vissum dögum er pappír hirtur við
hús manna. Leggja menn þá inn-
bundna blaðbunka við garðhliðið
eða tröppurnar. Er ekki líklegt að
þróunin verði svipuð hér? Er endi-
lega hagkvæmast að stefna þús-
undum eða tugþúsundum manna
að gámastöðvum? Þegar deilt var
um hvar aðsetur Sorpu skyldi vera,
minntu yfirvöld á nauðsyn þess að
góð skipan yrði á þessum málum,
því að annars þyrfti fólk kannski
urða sorp í görðum sínutn. Þróunin
má ekki verða í þá átt, eftir að hin
nýja og glæsilega stöð Sorpu er
risin.