Morgunblaðið - 19.06.1991, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGIJR 19. JÚNÍ 1991
Víkingaskipið „Gaia“ í Reykjavík:
Tilgangur siglingar-
innar að kynna víkinga-
ferðir og umhverfismál
— segir Þórður Einarsson formaður samstarfsnefndar-
innar sem skipuleggur ferð skipsins
I
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, heilsar skipstjóra víkinga-
skipsins, Ragnari Thorseth.
VÍKIN GASKIPIÐ „Gaia“
lagðist að bryggju í Reykja-
víkurhöfn á þjóðhátíðardag-
inn. Meðal þeirra sem tók á
móti skipinu var Vijgdís Finn-
bogadóttir, forseti Islands, og
gaf hún skipinu nafn við það
tækifæri. „Gaia“ siglir bæði
undir íslenskum og norskum
fána en skipið er skráð hér-
lendis og er íslenski fáninn því
á stjórnborða þess en norski
fáninn á bakborða. Ferð skips-
ins er sameiginlegt verkefni
íslenskra og norskra stjórn-
valda og er tilgangur hennar
að kynna siglingar víkinga-
skipa fyrr á tímum, sögu land-
Víkingaskipið leggst við bryggju í Reykjavíkurhöfn
afunda og umhverfisvernd
dagsins í dag. Fimm íslending-
ar eru í áhöfn skipsins. Skipið
lagði upp í siglingu sína vestur
yfir haf þann 17. maí á þjóðhá-
tíðardegi Norðmanna og held-
ur héðan áleiðis til Grænlands
þann 25. júní nk.
íslensk og norsk samstarfs-
Morgunblaðið/Sverrir
nefnd hefur skipulagt ferð vík-
ingaskipsins. Nefndin er skipuð
fulltrúum frá utanríkisráðuneyt-
um beggja landa, frá Útflutn-
ingsráðum beggja landa og út-
gerðarfélagi Knut Utstein Klost-
ers en hann hefur ásamt stjórn-
völdum íslands og Noregs fjár-
magnað ferð skipsins.
Að sögn Þórðar Einarssonar,
formanns íslensku nefndarinnar,
beinist ferð skipsins fyrst og
fremst að fólki í Bandaríkjunum
og Kanada. „Tilgangur ferðar-
innar er að kynna siglingar vík-
inga vestur um haf fyrr á tímum,
sögu landafunda og síðast en
ekki síst að tengja ferðina um-
hverfisvernd og umhverfismál-
um í dag. Auk þess tekur Út-
flutningsráð mikinn þátt í þessu
verkefni svo óbeint er tilgangur
þess einnig að kynna íslenskar
og norskar vörur vestan hafs,“
sagði Þórður á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var í tilefni
af komu skipsins hingað til lands.
Víkingaskipið lagði upp frá
Bergen í Noregi þann 17. maí
sl. á þjóðhátíðardegi Norðmanna
og sigldi til Orkneyja, Hjaltlands
og Færeyja á leið sinni hingað
til lands. Hér verður skipið og
áhöfn þess til 25. júní en þá fer
það til Nuuk í Grænlandi áleiðis
til Nýfundnalands.
„Gaia“ er langskip sem smíðað
Knut Utstein Kloster, útgerðar-
maður, sem fjármagnar ferð
skipsins að hluta
var veturinn 1989 til 1990. Fyrir-
mynd skipsins, hin upprunalega
„Gaia“ var ekki ætluð til vöru-
flutninga heldur fyrst og fremst
til flutninga á vopnum og mönn-
um. Sextán árar eru um borð
og tvöfalt fleiri ræðarar geta
róið ef á þarf að halda.
Að sögn Valgeirs Guðjónsson-
ar tónlistarmanns, sem var far-
þegi á skipinu frá Hjaltlandi til
Orkneyja, hafa íslenskir og nor-
skir tónlistarmenn í hyggju að
heíja í næsta mánuði upptökur
á hljómplötu sem tengjast mun
ferð skipsins og bera nafn þess.
17. júní á Dalvík:
Viðbót við safna-
húsið tekin í notkun
Dalvík.
DALVÍKINGAR fögnuðu þjóðhátíðardeginum með því að taka
formlega í notkun viðbótarhúsnæði við safnahúsið Hvol, en safnið
var stofnað árið 1987. Fjöldi fólks tók þátt í hátíðahöldunum á
Dalvík, sem voru með hefðbundnum hætti. Eiður Guðnason um-
hverfisráðherra flutti hátíðarræðu og Elísa Rán Ingvarsdóttir
ávarp fjallkonunnar.
Hátíðarhöldin hófust með víða-
vangshlaupi Ungmennafélagsins
en eftir hádegi fór fram skrúð-
ganga undir forystu skáta á Dal-
vík. Gengið var til kirkju þar sem
kirkjukór söng ættjarðarlög. An-
ton Guðlaugsson annaðist ritning-
alestur og sóknarpresturinn, sr.
Jón Helgi Þórarinsson, fór með
bæn og blessunarorð.
Blíðskaparveður var og fóru
hátíðahöldin fram utandyra, á lóð
ráðhúss og heilsugæslustöðvar,
þar sem umhverfisráðherra flutti
ræðu sína, fjallkonan las kvæði
Matthíasar Jochumssonar, Sigling
inn Eyjafjörð, og Edda Björgvins-
dóttir og Þórhallur Sigurðsson,
Laddi, fóru með gamanmál. Skát-
ar höfðu byggt upp tívolí sem
yngri kynslóðin sýndi mikinn
áhuga á meðan þeir eldri fengu
sér í blíðviðrinu kaffisopa hjá
Hjálparsveit skáta.
Liður í hátíðarhöldunum var
formleg opnun efstu hæðarinnar
í minjasafninu í Hvoli. Minjasafns-
nefnd hefur á undanförnu ári unn-
ið við að innrétta rishæð hússins
og koma safngripum þar fyrir. Því
verkefni er nú lokið og var hús-
næði formlega tekið í notkun.
Afhenti formaður nefndarinnar,
Gylfi Björnsson, bæjarstjóra
Kristjáni Þór Júlíussyni húsnæðið
að viðstöddum umhverfisráðherra
og fleiri góðum gestum. Þakkaði
INNLENT
bæjarstjóri nefndarmönnum vel
unnin störf, en þeir hafa unnið
mjög óeigingjarnt starf í þágú
varðveislu sögulegra minja byggð-
arlagsins. Fól bæjarstjóri nefnd-
inni frekri umsjá safnsins.
Gestum gafst tækifæri til að
skoða safnið sem hefur að geyma
ýmsa muni úr atvinnu- og menn-
ingarsögu Dalvíkur og Svarfaðar-
dals. Þá er þar einnig gott safn
náttúrugripa, fugla, eggja, steina
og jurta. Einna mesta athygli vek-
ur þó safn muna og minja um
Jóhann Pétursson, Svarfdæling.
Jóhann var um tíma talinn einn
hæsti maður í heimi og hefur safn-
ið að geyma ýmsa muni sem sýna
hversu risavaxinn Jóhann var.
Lengst af ævi sinnar dvaldi hann
erlendis en síðustu árin bjó hann
á Dalvík og lést árið 1984.
Minjasafnsnefnd fyrirhugar nú
að minnast annars Svarfdælings í
safninu, ekki síður óþekktum, en
það er Kristján Eldjárn forseti.
Kristján fæddist á Tjörn í Svarfað-
ardal og lét sér ætíð mjög annt
um svarfdælska byggð, sögu
hennar og framtíð.
Fréttaritari.
Morgunblaðið/Silli
Fjallkonan, Erna Björnsdóttir stúdent, með hirðmeyjar sínar.
Húsavík:
17. júní í gúðu veðri
Húsavik.
17. JÚNÍ var haldinn hátíðlegur
á Húsavík í hinu fegursta og
besta veðri, eftir nokkuð lang-
vinnt kuldakast.
Hátíðarhöldin hófust með
messu í Húsavíkurkirkju og í
messunni bæði skírði og fermdi
sóknarpresturinn sr. Sighvatur
Karlsson og kirkjukórinn söng við
undirleik Helga Péturssonar.
Á íþróttavellinum hófust svo
hátíðarhöldin kl. 14.00 með
blæstri Lúðrasveitar tónlistarskól-
ans og ávarpi formanns þjóðhátíð-
arnefndar, Péturs Péturssonar.
Hátíðarræðuna flutti Kári Arn-
þórsson skólastjóri og ræddi hann
um þau tímamót, sem við íslend-
ingar stæðum nú frammi fyrir,
bæði hvað varðar verndun lands
og lýðs og gagnvart þeim málum,
sem nú eru efst á baugi, bæði til
lands og sjávar, innanlands og
utan. Ávarp Fjallkonunnar flutti
Erna Björnsdóttir stúdent.
Síðan fóru fram ýmsar íþróttir
og leikir og íþróttamaður síðastlið-
ins árs var heiðraður og þann titil
hlaut Hákon Hrafn Sigurðsson.
Hestamenn sýndu gæðinga sína
og hinn ýmsa gang hestsins, sem
útskýrður var um leið. Hátíðinni
lauk með sundkeppni í sundlaug-
inni.
- Fréttaritari