Morgunblaðið - 19.06.1991, Page 56

Morgunblaðið - 19.06.1991, Page 56
IBM PS/2 KEYRIR STÝRIKERFI FRAMTÍÐARINNAR: IBM OS/2 - svo vel sétryggt SJOVA MENNAR MIÐVIKUDAGUR 19. JUNI 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. V estmannaeyjar: Stórhveli * 1 •• n • • íhofmnm V estmannaeyj u m. STÓRHVELI sást í höfninni í Eyjum um miðjan dag í gær. Hvalurinn var að damla í smá- bátahöfninni er starfsfólk á Fisk- iðjuskrifstofunni kom auga á hann. Hjörtur Hermannsson, sem sá hvalinn fyrstur sagðist hafa séð hvalinn koma tvisvar upp úr með bægslin en síðan hafi hann sést synda undir yfirborðinu. „Hann var úti í höfninni beint fyrir framan Fiskiðjuna þegar ég sá hann fyrst. Eg kallaði á samstarfsfólkið og við fylgdumst með honum í góða stund. Hann synti þarna fram og aftur í rólegheitum og tvisvar kom hann upp úr. Hann var mjög stór og fyrst hélt ég að þetta væru tveir hvalir en síðan sáum við að hann var bara einn. Það er erfitt að segja hversu stór hann var en ég giska á 7 til 8 metra á lengd,“ sagði Hjörtur. Hjörtur sagðist í fyrstu hafa haldið að þarna væri háhyrningur á ferð en eftir að hann sá hann koma upp í seinni skiptið hafi hann ekki verið viss um að svo væri því hann gat ekki komið auga á hvíta rönd á honum. - Grímur Olöglegar veiðar á laxi Morgunblaðið/Árni Sæberg Góðar heyskaparhorfur Sláttur hófst á Hálsi í Kjós í lok síðustu viku, og þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið þar um í gær var unnið af krafti við heyskapinn í góða veðrinu. Að sögn Ólafs Dýrmundssonar ráðunauts hjá Búnaðarfélagi íslands er sláttur óvíða hafínn nema á einstaka blettum heima við bæi. Hann sagði að heyskaparhorfur væru góðar um allt land þrátt fyrir kuldakastið á Norðurlandi og þurrkana sem verið hafa und- anfarið sunnanlands. Ólafur sagði að vel hefði vorað um land allt og leita þyrfti allt aftur til ársins 1964 til að fínna sambærilega gott vor hvað varðar gróður og sprettu. „VIÐ höfum undanfarin ár fengið fréttir frá ýmsum um að lax hefði verið veiddur í sjónum við norðan- vert Snæfellsnes. Um helgina var svo maður frá Grundarfirði stað- inn þar að verki með ólögleg net í sjó og í netunum var lax,“ segir Július B. Kristinsson fram- kvæmdastjóri hafbeitarstöðvar- innar Silfurlax hf. í Hrauhsfirði. Júlíus segir að vitni hafi verið að því að viðkomandi maður hefði veitt lax í þessi net og hann hefði viður- kennt við lögreglurannsókn og yfir- heyrslu að hann ætti netin. Júlíus segist vera hræddur um að veruleg brögð séu að ólöglegum lax- veiðum í sjó við norðanvert Snæfells- nes og víðar. Sjá nánar í Ur verinu bls. Cl. Ríkisstjómm forðar ekki Alafossi hf. frá gjaldþroti Forsætisráðherra segir 2,4 milljarða opinber framlög að verulegn leyti glatað fé SAMÞYKKT var á fundi ríkis- stjórnarinnar í gær að ekki væru forsendur fyrir frekari fjár- hagsstuðningi við Alafoss hf. og að ríkisstjórnin muni ekki grípa til frekari ráðstafana til að forða Vigdís gefur kost á sér til endurkjörs VIGDÍS Finnbogadóttir, for- seti íslands, hefur tekið þá ákvörðun að gefa kost á sér til endurkjörs í embætti for- seta Islands næsta kjörtímabil, sem er frá 1. ágúst 1992. Þetta kom fram í fréttatil- kynningu, sem barst frá skrif- stofu forseta íslands í gærkvöldi. Vigdís Finnbogadóttir var fyrst kjörin forseti árið 1980. Hún var endurkjörin án mót- framboðs 1984. I kosningum til embættis forseta íslands 1988 var Vigdís kjörin með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða. Vigdís Finnbogadóttir er 61 árs að aldri. / Vigdís Finnbogadóttir ] h I S t' félaginu frá gjaldþroti. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir mestar líkur á að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta en end- anleg ákvörðun um það verði tek- in af stjórncndum fyrirtækisins.í greinargerð starfshóps um stöðu fyrirtækisins kemur fram að fyr- irgreiðsla stjórnvalda við Alafoss frá stofnun þess árið 1987 nemi 2,4 milljörðum kr., eigið fé félags- ins sé neikvætt um 850 millj. kr. en eignir félagsins hafi verið of- metnar um a.m.k. 200-300 millj. kr. Segir Davíð ljóst að þessir 2,4 milljarðar séu glatað fé að veru- legu leyti. Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss hf. sagði mat starfshópsins ekki rétt en stjórn Álafoss muni koma saman til fundar í dag og gefa út yfirlýs- ingu að honum loknum. Forsætisráðherra sagði að til að koma fyrirtækinu á réttan kjöl þyrfti að útvega mikla fjármuni en auk þess þyrfti einnig að koma til veru- legur vöxtur á útflutningi til tiltek- inna svæða Austur-Evrópu en í þeim efnum væri ekki bjart framundan. Á yfirliti yfir ráðstöfun fjár til Álafoss úr Framkvæmdasjóði kemur fram að sjóðurinn hefur veitt fyrir- tækinu aðstoð í formi lána, ábyrgða og kaupa á eignum að upphæð 1.807 milljónir og að á síðustu tveimur árum hafi ríkissjóður veitt Álafossi hf. 600 millj. kr. fyrirgreiðslu. Starfshópur ríkisstjórnarinnar kemst að þeirri niðurstöðu að tillög- ur stjórnar Álafoss um að afskrifað- ar verði 766 millj. kr. skuldir fyrir- tækisins eða breytt í hlutafé nægi ekki til að leysa vanda félagsins. Telur starfshópurinn að tap ársins verði allt að 400 milljónum kr. Ólafur Ólafsson segist hafa lagt uppsögn sína fyrir stjórn fyrirtækis- ins 30-apríl sl. þar sem hann hafí lýst því yfir að hann kærði sig ekki um að veita því forstöðu lengur en til 10. maí ef ekki yrði gripið til ráðstafana til að bæta rekstrarstöðu fyrirtækisins. í dag mun iðnaðarráðherra taka upp viðræður við starfsfólk Álafoss og forsvarsmenn sveitarfélaga um framhaldið ef fyrirtækið verður lagt til gjaldþrotaskipta. Sjá fréttir á bls. 28-29 Reykjavík: Sólskinsmet í júní mögnlegt SÓLIN hefur leikið við íbúa Reykjavíkur það sem af er júní eftir hinar miklu rigningar í maí. Að sögn Trausta Jónssonar, veður- fræðings iyá Veðurstofu íslauds, eru líkur á að nýtt met í sólskins- stundum í Reykjavík í júní verði sett ef veður lielst gott áfram. Trausti Jónsson veðurfræðingur sagði að sólarmetið í Reykjavík í júiií væri 313 stundir en 195 sól- skinsstundir hafa þegar mælst það sem af er þessum mánuði. Trausti taldi að of snemmt væri að segja um hvernig færi en ekki væri úti- lokað' að sólarstundir í þessum mánuði næðu gamla metinu. Flestar sólskinsstundir á einum degi í Reykjavík mældust á þjóðhátíðardaginn sjálfan, 17. júní, en þá mældist sólskin í 18 klukkustundir. Að sögn Trausta er þetta með því allra mesta er mælst hefur á einum degi. Umskiptin hafa orðið algjör frá í maí, en litlu munaði að rigningar- metið fyrir maímánuð yrði slegið í síðasta mánuði í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.