Morgunblaðið - 28.06.1991, Blaðsíða 4
4'
JVÍÖftGÍrfaÖLAÐIÖ FÖSTÚD'ÁÖUK’ '28.-’ÍÖÍíí'1 ífe'F-
Þyrlunni líklega flogið
af Snæfellsjökli árdegis
að nota aðra þyrlu við viðgerðina
á biluðu vélinni en ekki reyndist
unnt að koma henni við vegna
þoku.
Það kom því í hlut björgun-
arsveitarmanna úr Ólafsvík og
manna úr Flugbjörgunarsveitinni
í Iteykjavík að aðstoða vamarliðs-
menn við að flytja fimm nýja sþaða
og spaðamótor frá jökulröndinni
upp að biluðu þyrlunni.
Þeir lögðu af stað í fyrstu ferð
sína með varahlutina um fimmley-
tið í gær.
Vonast var til a.ð viðgerðinni
lyki það fljótt að hægt yrði að
fljúga þyrlunni af jöklinum
snemma í morgun.
Menn að störfum við jökul-
röndina í gær.
ÞYRLU varnarliðsins sem lask-
aöist við björgunarstörf á Snæ-
fellsjökli á laugardagsmorgun
verður ef áætlun stenst flogið
til Keflavíkur snemma í dag.
Vamarliðsmenn höfðu ætlað sér
Morgunblaðið/Alfons
VEÐURHORFUR í DAG, 28. JÚNÍ
YFIRLIT: Yfir Grænlandshafi heldur vaxandi hæðarhryggur.
SPÁ: Vestankaldi og skýjað en þurrt að kalla vestanlands en breyti-
leg átt, víðast gola og léttskýjað um landið austanvert. Hiti 9-20
stig, hlýjast austantil.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestanátt, kaldi norðvestantii en
annars yfirleitt gola. Dálítil rígning eða súld með köflum vestan-
lands en annars þurrt. Léttskýjað um allt austanvert landið. Hiti 8
til 12 stig vestanlands en allt að 20 stig austanlands.
HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg vestlæg eða breytileg átt, skýjað
en þurrt í fyrstu en léttir smám saman til. Hiti 12 til 20 stig að
deginum.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 víndstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
' * ' * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
# # *
•j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
V fi
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Suld
OO Mistur
Skafrenningur
i 7 Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tima
hiti veður
Akureyri 9 alskýjað
Reykjavlk 10 skýjað
Sergen 11 skýjað
Helsinki 13 þokumóða
Kaupmannahöfn 14 skýjað
Narssarssuaq S skýjað
Nuuk 8 rigníng
Ostó 14 skýjað
Stokkhólmur 13 skýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Algarve 21 heiðskirt
Amsterdam 13 skúr
Barcelona 20 bokumóða
Beriín 16 léttskýjað
Chicago 26 mistur
Feneyjar 23 hokumóða
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow 8 skýjað
Hamborg 14 hálfskýjað
London 10 rigning
LosAngeles 17 afskýjað
Lúxemborg 14 þokumóða
Madrid 19 heiðskirt
Maiaga 20 tóttskýjað
Mallorca 19 heiðskírt
Montreal 22 alskýjað
NewYork 22 skýjað
Orlando 22 léttskýjað
París 9 léttskýjað
Madeira 18 léttskýjað
Róm 20 lágþokublettir
Vín 20 skýjað
Washington 21 láttskýjað
Winnipeg 20 hálfskýjað
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ísak frá Litla-Dal hlaut hæstu einkunn B-flokksgæðinga, 8,91.
Knapi er Gunnar Amarsson.
Fjórðungsmót sunnlenskra hestamanna:
ísak frá Litla-Dal
efstur í B-flokki
Gaddstaðaflötum
ÞAÐ fór eins og búist var við
að keppni í B-flokki gæðinga
yrði æsispennandi. Lengi vel
var Pjakkur frá Torfunesi
efstur með 8,80 en þegar for-
keppnin var tæplega hálfnuð
velti Isak honum úr sessi er
hann fékk 8,91. Knapi á ísaki
var Gunnar Arnarsson en
hann bætti um betur er hann
sýndi Hektor frá Akureyri og
fóru þeir einnig yfir Pjakk
með 8,89; Knapi á Pjakk var
Ragnar Ólafsson.
Kraki frá Helgastöðum I varð
Qórði í forkeppninni með 8,79
og Vignir frá Hala fimmti með
8.59. Sigurbjörn Bárðarson sat
báða þessa hesta. í sjötta sæti
varð Atgeir frá Skipanesi sem
Einar Öder Magnússon sat með
8.59, Sörli frá Norðtungu sjöundi
með 8,52 en Ragnar Hinriksson
sat hann. Áttundi varð Baldur
frá Ey I sem Trausti Þór Guð-
mundsson sat með 8,51. Ljóst
er að fjórir efstu hestarnir eru
mjög jafnir að gæðum og má
búast við æsispennandi úrslita-
keppni á sunnudag en þá mæta
þessir átta hestar á ný.
í yngri flokki unglinga var
keppnin einnig mjög jöfn en þar
varð efstur Sigfús B. Sigfússon,
Smára, á Skenki frá Skarði með
8,55, annar var Birkir Jónsson,
Geysi, á Ljúfi frá Ártúnum með
8,52. Næst honum með 8,51
komu Guðmar Þór Pétursson,
Herði, á Mána frá Skarði og
Alma Olsen, Fáki, á Sörla frá
Sogni í Kjós. í fímmta sæti varð
Sölvi Sigurðarson, Herði, á Geysi
frá Hala með 8,42 og þá Lilja
Jónsdóttir, Fáki, á Gáska frá
Fosshóli með 8,39. Jafnir í sjö-
unda og áttunda sæti með 8,38
urðu Davíð Jónsson, Fáki, á
Snældu frá Miðhjáleigu og
Sveinbjöm Sveinbjömsson,
Herði, á Hvelli frá Þórisstöðum.
Þessir krakkar mæta einnig í
úrslit á sunnudag.
Veðrið á Gaddstaðaflötum
hefur Ieikið við mótsgesti. Létt-
skýjað var í allan gærdag og
hlýtt. Að sögn Fannars Jónas-
sonar framkvæmdastjóra móts-
ins var talið að um fimmtán
hundruð manns hafí verið á
mótsvæðinu í gærdag og reikn-
aði hann með að verulega myndi
fjölga í dag og þá sérstaklega í
kvöld. Hryssur sex vetra og eldri
komu fyrir dóm í gær en engar
einkunnir voru gefnar upp.
í dag mæta A-flokksgæðingar
til dóms klukkan 9.00 og eldri
flokkur unglinga. Þá hefjast
dómar á stóðhestum á sama
tíma. Um klukkan 20.00 hefjast
undanrásir kappreiða og klukkan
22.30 he§a Geirmundur Valtýs-
son og félagar hans upp raustina
og munu þeir leika fyrir dansi
fram á nótt.
-VK
Morgunblaðið/Valdimar Knstinsson
Fólk naut veðurblíðunnar á fjórðungsmóti sunnlenskra hesta-
manna í gær.