Morgunblaðið - 28.06.1991, Side 17

Morgunblaðið - 28.06.1991, Side 17
vægu hlutverki og ætla má að svo verði um ófyrirsjáanlega framtíð. Þó steinsteypan sé ríkjandi efnisþáttur í húsum virðist hlutur viðarins fara vaxandi og í steinsteyptum bygging- um gegnir viðurinn mikilvægu hlut- verki í þakhlutum og glugga- og hurðabúnaði. Ending viðarins ræðst enn sem fyrr af því að hann sé notað- ur kunnáttusamlega. Að teygja þan- þol hans á kostnað endingarinnar er dýr og vafasamur ráðahagur þó rífa megi það gamla og kaupa nýtt. Fúi í gluggabúnaði og þakhlutum húsa er algengt vandamál hér á landi, algengara en eðlilegt getur talist. Urkomusöm veðrátta er ekki viðun- andi skýring á því. Fúi í innfluttu timbri Ein hlið fúavandamálsins er sú sem á rætur að rekja til uppruna viðarins. Þekkingarskortur á fúaein- kennum á nýjum viði getur falið þá hættu í sér að fluttur sé inn „sjúk- ur“ viður sem þegar hefur orðið fúa- sveppum að bráð að meira eða minna leyti. Ytri einkenni eru misgreinanleg en með smásjárgreiningum má ganga úr skugga um hvort viðurinn sé sýktur fúasveppum og hafi að líkindum verulega skert burðarþol (sjá mynd 2). Sýking viðarins getur hafa átt sér stað áður en trén voru felld, sýking sem orsakast hefur af áföllum sem trén hafa orðið fyrir s.s. sýking gegnum sár á rótum sem hafa orðið vegna umferðar vinnuvéla í skóginum, greinabrot vegna vind- fellingar o.s.frv. Slæleg vinnubrögð á tímanum frá því að tréð var fellt þar til bolviðurinn fer í sögunarmyllu getur einnig leitt af sér alvarlegan fúaskaða. Fúi í rafmagnsstaurum Eitt mikilvægt hlutverk sem viður gegnir í tæknivæddu samfélagi nút- ímans er að bera uppi rafmagnslín- ur. Ekki þarf að tíunda mikilvægi þess að rafmagnsstaurar standi und- ir því hlutverki. Þó að þeir séu ýmist varðir gegn fúa með vatnsfráhrind- andi efnum eða efnum sem verka sem eitur gegn fúasveppum þá þvost þau úr viðnum í tímans rás eða missa virkni sína á annan hátt. Samtímis koma fúasveppimir til sögunnar og taka til við að brjóta niður viðinn og skerða þar með brotþol rafmagns- staursins. Einn af mikilvægustu við- haldsháttum rafmagnslína er að fylgjast með heilsufari rafmagns- stauranna m.t.t. fúa og bæta inn nýjum staurum fyrir gamla sem fún- ir eru. Tovelt er að greina fúa í raf- magnsstaurum út frá ytra útliti nema hann sé á mjög háu stigi og standi tæpast undir sjálfum sér. Sú aðferð sem mikið hefur verið notuð er áþekk þeirri sem notuð var við greiningu á rekaviði og drepið var á framar í greininni. Hún felst í því að banka með hamri i staurana og hlusta á hljóðið sem af því hlýst. Aðferðin er einföld og ódýr en ekki að sama skapi nákvæm. Hægt er að greina fúa á mun nákvæmari hátt með smásjárskoðun á viðarsýnum úr staurunum, fúa á mismunandi stig- um er greinist trauðla með höggað- ferðinni en skerðir verulega brotþol stauranna. Sú aðferð er vissulega tímafrekari og verður beiting hennar að metast með hliðsjón af því öryggi sem menn vilja tryggja í dreifingu rafmagns. Lokaorð Sú tilhneiging gerir oft vart við sig að vandamál séu vanmetin og menn gefa sér fyrirfram í umræðum sín á milli að þau séu ekki til stað- ar. Hvað túlka má sem vandamál ræðst af viðhorfínu til efnisins. Höf- undur þessara orða hefur sterkt hug- boð um að gamalt andvaraleysi hér á landi gagnvart fúavandamálum í viði einkenni viðhorf okkar enn í dag. Sé litið til hinna Norðurland- anna er gæðavitund gagnvart timbri á mun lægra stigi hér á landi. Þess skal einnig getið að víðast á hinum Norðurlöndunum bjóða mörg trygg- ingafélög húseigendum upp á fúa- tryggingu er bætir þeim ótímabæran fúa í húsum þeirra að fengnum úr- skurði sérfræðinga á þvi sviði. Gæða- vitund almennings fer ört vaxandi samfara aukinni upplýsingu og tengslum við umheiminn og er að vænta að svo verði á þessu sviði sem og öðrum. * MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991 17 Hjón ljúka doktorsprófi frá þýskum háskóla NÝLEGA luku hjónin Lovísa Birg- isdóttir og Thomas Taylor dokt- orsnámi frá Christians Albrechts- háskólanum í Kiel í Þýskalandi. Ritgerð Lovísu heitir í íslenskri þýðingu „Þróun hafstrauma og hafíss í íslandshafi síðustu 550.000 árin.“ Ritgerðin fjallar um þróun hafstrauma og hafíss á hafsvæðinu milli íslands, Grænlands og Jan Mayen. Unnið var úr seti 6-9 m langra kjama, er teknir voru í leið- angri með þýska hafrannsóknar- skipinu RS Polarstern. Ritgerð Thomasar heitir í íslenskri þýðingu „Hegðun upp- leystra þungmálmanna kadmíums, króms, kopars og zinks við flæði í gegnum valin jarðvegs- og sand- sýni.“ Ritgerðin fjallar um þung- málmamengun grunnvatns, útfell- ingar og leysanleika þeirra í mis- munandi jarðvegsgerðum. Lovísa Birgisdóttir er fædd á Patreksfirði 23. september 1955. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Tjömina 1976 og prófi í jarðfræði frá HÍ 1980. Starf- aði um tíma hjá Orkustofnun. Allt framhaldsnám hefur hún tekið við Christian Albrechts-háskólann. Foreldrar Lovísu em Erla Gísladótt- ir sjúkraliði og Birgir Pétursson húsasmiður, starfsmaður ÍSAL. Thomas Taylor er fæddur í Essen 24. mars 1956 þar sem hann lauk stúdentsprófí, en jarðfræðinámið stundaði hann við Christian Albreehts Universitet. Hann er son- ur hjónanna Marianne Taylor kenn- Dr. Lovísa Birgisdóttir. ara og Brian Taylor tæknifræðings. Lovísa og Thomas búa nú í Brem- en þar sem Thomas starfar sem framkvæmdastjóri gmnnvatnsjarð- Dr. Thomas Taylor. fræðideildar hjá efnafræðistofu og umhverfísmálafyrirtækinu Bregau í Bremen. Þau eiga eina dóttur sem er fædd i janúar sl. VOLKSWAGEN TRANSP0RTER - ALLT NÝTT NEMA NAFNIÐ HELSTU KOSTIR: FJÖLDI MÖGULEIKA: □ Mikil burðargeta. □ Ferming og afferming sérlega auðveld. □ Þægilegur í akstri. □ Sparneytinn. □ Lág bilanatíðni. □ Þriggja ára ábyrgð. mt □ Bensín- eða Dieselhreyfill. □ Sendibíll með gluggum. □ Pallbíll með þriggja manna húsi. □ Pallbíll með sex manna húsi. Verð frá kr. 1.057.157 vsk. kr. .259.003 ----------------— HEKLA BÍLL FRÁ HEKLU BOfíGAR SIG L/SÍMf695500 ^ Höfundurer jarðvegslíffræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.