Morgunblaðið - 28.06.1991, Page 22
&2
táÓRdtfÚBLAÐIÐ-'FÖSTUDAGUR 28. TONpf&lí
Vigdís Finnbogadóttir og Þór Þorsteins skoða frímerkjasýninguna
i Laugardalshöll.
Ottast að PanAm íhugi lögsókn
NÓRDIA? 91
W
Halldór S. Kristjánsson deildarstjóri í samgönguráðuneytinu setur
hátíðina með því að blása í póstlúður
Morgunblaðið/Júlíus
Sigurður Pétur Sigmundsson hljóp síðasta spölinn með boðhlaupskef-
lið sem hlaupið var með hringinn í kringum landið.
Landshlaupínu lokið
Landshlaupi Frjálsíþróttasambands íslands lauk í gær á Laugar-
dalsvelli. Hlaupið hófst I Reykjavík fyrir tíu dögum og hafa íþrótt-
amenn hlaupið hringinn í kringum landið, alls rúmlega 2.900 kíló-
metra.
Hlaupið var dag og nótt í 246
klukkustundir og fengu hlaupar-
amir 2.400 einstaklega gott veður
á leiðinni, ekki kom dropi úr lofti
og vindur var aldrei verulegur.
Elsti þátttakandi hlaupsins var 86
ára en sá yngsti rétt að verða
tveggja ára.
Til halupsins var efnt til að
vekja athygli á starfsemi Fijáls-
íþróttasambandsins og til að efla
almenningsíþróttir í landinu.
- segir Guðmundur Óli Guðmunds-
son stjórnarformaður Flugfax
FLUGFAX óttast að bandaríska flugfélagið PanAm muni íhuga lög-
sókn á hendur fyrirtækinu og íslenska ríkinu ef flug félagsins hing-
að til lands stöðvast. Stjórnarformaður Flugfax telur Islendinga á
þunnum ís með því að veija hagsmuni Flugleiða gagnvart háum
lendingagjöldum á Keflavíkurvelli.
„Það fagnar því náttúrlega eng-
inn meira en við að PanAm hafi
ekki tekið ákvörðun um lögsókn.
Okkur hefur ekki enn borist form-
leg afgreiðsla á styrkveitingar-
heimild Alþingis og því getum við
ekki gefið PanAm formlegt svar
um stöðu mála. Vegna þessa er
auðvitað ekki hægt að taka
ákvörðun um málsókn, en ég ótt-
ast að þegar formlegt svar berst
og ef það verður neikvætt, íhugi
þeir málsókn af fullri alvöru," sagði
Guðmundur Óli Guðmundsson
stjómarformaður Flugfax í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, en í
fréttum Ríkisútvarpsins á miðviku-
daginn sagði Ford Johnson, að-
stoðarforstjóri PanAm að Iögsókn
væri ekki fyrirhuguð eins og haft
var eftir Guðmundi Óla í Morgun-
blaðinu fyrir skömmu.
Hann sagði að í Bandaríkjunum
hefðu á síðasta vetri verið sam-
þykkt tvenn lög, sem sérstaklega
Yfirlýsing vegna læknisstarfa
Hallgríms Þ. Magnússonar
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi yfirlýsing
frá Eygló Sigurðardóttur,
nuddara, með ósk um birtingu.
„Vegna skrifa í Pressunni 27.
júní um „umdeilda meðhöndlun"
Hallgríms Þ. Magnússonar,
læknis, á astmasjúklingi, vil ég,
umræddur astmasjúklingur, taka
eftirfarandi fram og bið Morgun-
blaðið að birta, þar sem Pressan
kemur aðeins út einu sinni í viku.
Ég tók sjálf á sínum tíma
ákvörðun um að fara í föstumeð-
ferð vegna astma og sleppa lyfj-
um. Fastan stóð í 2-3 vikur. Ég
vildi hafa lækni með í ráðum, en
heimilislæknir minn neitaði að
aðstoða mig við meðferð án lyfja.
Þá sneri ég mér til Hallgríms Þ.
Magnússonar læknis, sem tók að
sér að fylgjast með líðan minni.
Ég var ekki í lyfjameðferð, þegar
ég sneri mér til Hallgríms, þann-
ig að það er rangt í Pressugrein-
inni, að Hallgrímur hafi tekið
mig af astmalyö’um. í Pressunni
segir m.a.: „Hluti þessarar um-
deildu meðferðar var að veija
konuna í lak og var hún látin
sofa þannig á læknastofunni yf
ir nótt.“ Þetta er rangt. Hluti
meðferðarinnar voru lakbakstrar,
sem stóðu í 20-30 mínútur einu
sinni á dag.
Hallgrímur fylgdist daglega
með Hðan minni, ýmist með heim-
sóknum eða símtölum, allt þar til
stofu hans var lokað. Þá tilkynnti
fulltrúi landlæknisembættisins
mér, að frá þeim tíma bæri það
embætti ábyrgð á minni líðan.
Ég hef hvorki heyrt neitt né séð
frá þvf embætti síðan.“
hefðu verið sett til höfuðs Japön-
um, sem auðvelda framkvæmda-
valdinu að grípa inní með refsiað-
gerðum ef bandarísk fyrirtæki
verða fyrir óeðlilegri mismunun á
erlendri grundu miðað við innlend
fyrirtæki.
„Hér á íslandi erum við að
skauta á afskaplega þunnum ís
með því að veija það sem við hjá
Flugfax teljum vera mjög litla
hagsmuni, það er afgreiðslugjalda-
hagsmuni Flugleiða. Ég varpa
fram þeirri spumingu hvort menn
séu reiðubúnir að ganga einhveijar
brautir af þessu tagi? Og fyrir
hveija? Við teljum að raunveruleg
hætta sé á málaferlum ef flug
PanAm hættir vegna þess að það
yrði að hluta til vegna hárra lend-
ingagjalda hér og mismununar
gagnvart bandaríska flugfélag-
inu,“ sagði Guðmundur Óli.
Bíóborgin forsýnir mynd-
t •
• *
ma „ungi njosnarmn
BÍÓBORGIN forsýnir í kvöld, föstudag, myndina „Ungi njósnarinn"
eða „Teen Agent". í aðalhiutverkum eru Richard Grieco, Linda
Hunt og Robin Bartlett. Myndin er leikstýrð af Willilam Dear.
Myndin segir frá Michael nokkr-
um Corben og skólasystkinum hans
sme halda til Frakklands í sumar-
skóla. A sama tíma gerast váleg
tíðindi í Evrópu, þar sem fjármála-
ráðherrar'helstu landa þar falla
fyrir hendi morðingja. Bandarískar
og breskar njósnastofiianir taka
saman höndum og verður úr að einn
starfsmanna þeirra fyrmefndu er
sendur til að upplýsa málið. En fyr-
ir misskilning er Michael Corben
álitin vera útsendari CIA. Og þrátt
fyrir mótmæli hans er hann útbúinn
alls konar tækjum. Þótt að undir-
búningur hans sé af skomum
skammti, kemur í ljós að hann er
úrræðagóður svo um munar og
gefur félaga sínum James Bond
ekkert eftir hvað varðar samskipti
við föngulegar konur og illgjama
skúrka.
Myndin verður frumsýnd sam-
tímis í Bíóhöllinni og Bíóborginni
eftir nokkra daga.
Eitt atriði úr myndinni „Ungi njósnarinn".
Blásið í póstlúður við upp
haf frímerkjasýningar
FRÍMERKJASÝNINGIN NORDIA 91 var sett í LaugardalshöU í gær
kl. 14 með því að Halldór S. Kristjánsson deildarstjóri í samgönguráð-
uneytinu blés i póstlúður. Sýningin verður opin frá kl. 13 tU 19 í dag
en frá kl. 10 til 18 laugardag og sunnudag. Aðgangur er ókeypis
ðUum.
Hátíðin var sett í Laugardalshöll
í gær kl. 14 að viðstöddum forseta
íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur,
og fjölda gesta frá öllum Norður-
löndum. Þor Þorsteins formaður
sýningamefndar ávarpaði samkom-
una, greindi í stuttu máli frá að-
draganda og undirbúningi sýning-
arinnar og þakkaði öllum aðstand-
endum. Því næst sagði Þór að hann
hefði ávallt stefnt að því að þessi
sýning yrði ekki einungis fyrir
örfáa, sérvitra frímerkjasafnara
heldur einnig fyrir þá sem væru
nýbyijaðir að safna frímerkjum og
þá sem ennþá væru ekki byijaðir
að safna.
Því næst talaði formaður Lands-
sambands íslenskra frímerkjasafn-
ara, Hálfdan Helgason. Hann sagði
m.a. að margir frímerkjasafnarar
teldu sýningar sem þessar hápunkt
þessa menningarstarfs. Þær drægju
fram félagslega samstöðu meðal
frímerkjasafnara sem allir vildu
gera allt sem best úr garði. Síðan
þakkaði hann aðstandendum, sér-
staklega þá norska frímerkjasam-
bandinu sem hefði lagt sýningunni
til stóran hluta af sýningarrömmun-
um.
Ólafur Tómasson póst- og síma-
málastjóri sagði í ávarpi sínu að
frímerki væru vel til þess fallin að
kynna Iand, þjóð og sögu. Enn
fremur væru frímerki nú á tímum
listavel gerð og til þeirra vandað f
hvívetna. Hann taldi að frímerkið
væri síður en svo úr sögunni þó nú
fari vaxandi að póstur sé merktur
með öðrum hætti.
Jafnframt kynnti póst- og síma-
málastjóri 4 frímerki sem koma út
í haust og eru helguð póstsamgöng-
um. Á þeim verða myndir af póst-
skipum. Síðar munu svo koma út
sams konar frímerki með bílum og
flugvélum.
Seinastur talaði Halldór S. Kristj-
ánsson deildarstjóri í samgönguráð-
uneytinu. Hann minnti á að 140
ár eru nú liðin síðan póstlög voru
staðfest í Danaveldi sem ísland til-
heyrði þá. Þa hefðu fyrstu dönsku
frímerkin verið gefin út en 22 árum
síðar hefðu íslendingar svo tekið
að gefa út íslensk frímerki. Sfðan
setti Halldór sýninguna í forföllum
Halldórs Biöndals samgönguráð-
herra með því að blása í póstlúður.
Sýningin mun standa í fjóra
daga. Auk þess sem frímerki, mynt-
ir, kort og ýmislegt annað verður
sýnt verður spumingakeppni, frí-
merkjauppboð og skiptimarkaður
og hægt verður að senda vinum og
ættingjum póstkort með tölvu úr
LaugardalshöII.