Morgunblaðið - 28.06.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991
23
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Mengunarský vegna blíðviðris
Það eru tvær hliðar á öllum málum og svo er líka
með góða veðrið sem ríkt hefur á suð-vestur horninu
í júnímánuði. A blíðviðrisdögum hefur mátt sjá
mengunarský liggja inn eftir Hvalfirði og meðfram
Akraijalli. Að sögn Sigurbjargar Gísladóttur, efna-
fræðings hjá Hollustuvernd ríkisins, er um að ræða
loftmengun vegna þess þurrviðris sem ríkt hefur
undanfarnar vikur. „Það hefur verið mjög þurrt
veður undanfarnar vikur og því mestar líkur á að
þessi mengun stafi af ryki sem kemur af hálendinu
og af vegum. Það þarf bara aðeins að hreyfa vind
og þá er allt farið af stað, því jarðvegurinn er laus
og skrælnaður. Auk þess getur þessi mengun stafað
af umferðinni. Hún leggst yfir vegna þess hve þurrt
er og stillt,“ sagði Sigurbjörg í samtali við Morgun-
blaðið.
Stj órnunarfélagið:
Japanskur ráðgjafi á námstefnu
Ný stjórn í Stúdentaráði:
Steinunn V. Oskars
dóttir formaður
Röskva fær 4 fulltrúa en Vaka 2
VERÖLD án varnarmúra nefnist
námstefna á vegum Stjórnunarfé-
lags Islands sem haldin verður að
Hótel Holiday Inn í dag. Gestur
ráðstefnunnar er Japaninn dr.
Kenichi Ohmae en hann er fram-
kvæmdastjóri hins alþjóðlega ráð-
gjafafyrirtækis McKinsey and
Company í Japan.
Ohmae er doktor í kjarneðlisfræði
og segir í fréttatilkynningu frá
Stjórnunarfélaginu að hann hafi get-
ið sér gott orð sem einn af fremstu
hugsuðum heims um stefnumótun
og samkeppnisumhverfi þjóða, fyrir-
tækja og stofnana. Hann hefur einn-
ig skrifað íjölmargar bækur um þessi
viðfangsefni.
Á fyrirlestrinum, sem hefst kl. níu
árdegis, íjallar dr. Ohmae um þau
tækifæri og hættur sem munu fylgja
niðurfellingu varnarmúra í heiminum
og þá sérstaklega með tilliti til ís-
lendinga. Hann mun jafnframt leggja
fram vísi að aðgerðaáætlun sem
Stjórnunarfélagið vonast til að verði
mikilvægt framlag til íslenskrar
efnahags- og stjórnmálaumræðu.
RÖSKVA, samtök félags-
hyggjufólks í Háskóla íslands,
fer með forystu í nýrri stjórn
Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Röskva á fjóra stjórnarmenn
af sex, en Vaka, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, á tvo. Nýr
formaður Stúdentaráðs er
Steinunn V. Óskarsdóttir frá
Röskvu.
Kosningum til Stúdentaráðs,
sem fram fóru í marz, lyktaði á
þann veg að Röskva vann einn
fulltrúa í ráðinu af Vöku og hafa
Steinunn V. Óskarsdóttir, nýr
formaður Stúdentaráðs.
fylkingarnar nú jafnmarga full-
trúa, fimmtán hvor. Samningaþóf
hefur staðið í þrjá mánuði og varð
niðurstaðan sú að Röskva fær
fjóra menn í stjóm SHÍ en Vaka
tvo. Þá fær Röskva aðalfulltrúa
stúdenta í stjórn Lánasjóðs
íslenzkra námsmanna. Vökumenn
halda tveimur fulltrúum stúdenta
af þremur í stjórn Félagsstofnunar
stúdenta, en Röskva fær einn.
Nýja stjórn Stúdentaráðs skipa,
auk formanns, þau Skjili Helga-
son, varaformaður frá Röskvu,
Sigþór Ari Sigþórsson, gjaldkeri
frá Röskvu, Elínborg Sturludóttir,
ritari frá Vöku, Jóhanna María
Eyjólfsdóttir, 1. meðstjórnandi frá
Vöku, og Kristrún Heimisdóttir,
2. meðstjórnandi frá Röskvu.
Nýr gististað-
ur opnaðnr á
Siglufírði
HREIÐRIÐ er nýr gististaður,
sem Valgeir Halldórsson rekur
að Aðalgötu 22 á Siglufirði.
Valgeir segir að í fyrstu verði
einungis um svefnpokapláss að
ræða í Hreiðrinu þar sem stefnt
sé að því að geta hýst allt að 25
manns í einu. I framtíðinni áform-
ar Valgeir að Hreiðrið verði far-
fuglaheimili.
cpoi
FAXAFENI 7
108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-687733
á listrœnum húsgögnum
Opiö laugardag 10—17 og sunnudag 14—17
15% afmœlisafsláttur
Á sýningunni veröur mxi. margverölaunaöur sófi eftir
NÖNNU DITZEL.