Morgunblaðið - 28.06.1991, Qupperneq 27
réei B<r'jT2. jss flO’..D)AGrTiiic!(ön! œŒAjaKTJDiffleDm >
- MORGUNBCAglÐ-FÖSTUPA-GPR- 28: 'JÚWÍ Tgyr----------
H
—27
Reykjavíkurkvartettinn
Tónleikar haldnir
í Þingeyrarkirkj u
SUMARHÁTÍÐ að Þingeyrum
stendur nú sem hæst.
Reykjavíkurkvartettinn hefur
dvalið undanfarna daga að
Þingeyrum og leikið fyrir
ferðamenn og gesti bæði fyrir
og eftir hádégi. Um helgiiia eru
fyrirhugaðir tvennir tónleikar.
Þeir fyrri verða í kvöld, föstu-
dagskvöld kl. 21.00 og hinir
síðari á sunnudaginn kl. 15.00.
Munu þeir standa í u.þ.b.
klukkustund.
Sumarhátíð að Þingeyrum stendur
til 2. júlí og leikur kvartettinn í
kirkjunni daglega kl. 10-12 og
14-16. Gefst ferðamönnum nú ein-
stakt tækifæri til að skoða þessa
undurfögru steinkirkju og njóta
tónlistar um leið. Þingeyrar eru í
6 km fjarðlægð frá hringveginum.
Opinber túlkun EB á Lúxemborgarfundinum:
Póhtískt samkomulag náð-
ist um sjávarútvegsmál
ísland og Noregur viðurkenndu afdráttarlaust
tengingu veiðiheimilda og aðgangs að markaði
í SKJALI frá framkvænidastjórn Evrópubandalagsins, þar sem kem-
ur fram opinber tiilkun á niðurstöðu ráðherrafundar ríkja Evrópu-
bandalagsins (EB) og Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), sem liald-
in var í Lúxemborg 17.-18. júní, segir að Jacques Poos, forsætisráð-
herra Lúxemborgar og formaður ráðherraráðs EB, telji að pólitískt
samkomulag hafi náðst um fisk á fundinum.
I plaggi EB segir m.a. að auð-
sýnilegur árangur hafi náðst á
síðasta fundi ráðherranna um miðj-
an maí, hvað varðar lagasetningu
og valdssvið stofnana. Síðan segir:
„Poos forseti sagði að um nóttina
hefði náðst pólitískt samkomulag
(accord politique) um aðra ákveðna
málaflokka sem hefðu mikilvægt
pólitískt gildi eins og fiskur..."
Vissulega hafi Poos og Wolfgang
Schussel, utanríkisráðherra Aust-
urríki, en Austurríki fer nú með
formennsku í EFTA, viðurkennt,
að enn væri eftir mikil vinna hvað
varðaði tæknilega útfærslu þessara
málaflokka áður en hægt væri að
gera þá hluta af heildarsamkomu-
laginu. Hins vegar teldi Poos ekki
þörf á öðrum ráðherrafundi EB og
EFTA-ríkjanna í ljósi þeirrar
pólitísku vinnu sem þegar hefði
verið unnin.
Síðar í textanum segir að starf
gærdagsins (þ.e. 18. júní) hafi að
mestu leyti farið í umræður sem
höfðu það að markmiði að ná mál-
amiðlun um málefni sjávarútvegs-
ins. í þessu sambandi hafi sér í
lagi þurft að ná samkomulagi um
tvö grundvallaratriði sem mjög náin
tengsl væru á milli að mati EB.
Annars vegar betri aðgang sjávar-
afurða EFTA-ríkjanna á markað
EB og hins vegar aðgang fiskveiði-
báta bandalagsins að miðum EFTA.
„Eftir mjög erfiðar lokaviðræður
er niðurstaðan að ríki EFTA, þ.m.t.
ísland og Noregur, fallast afdrátt-
arlaust á tengingu þessara tveggja
grundvallaratriða, sem þýðir að
fiskveiðimenn bandalagsins fá að-
gang, jafnvel þó í mjög takmörkuðu
mæli sé, að fiskveiðimiðum EFTA-
ríkja innan ramma EES.“
Hvað varðar nánari útfærsluatr-
iði og framtíðar fiskveiðikvóta
hefðu málamiðlunartillögur frá ís-
landi og Noregi verið ræddar og
það væri ekki með öllu útilokað að
hægt væri að ná endanlegu sam-
komulagi i náinni framtíð innan
þess ramma sem mótaður hefði
verið í grófum dráttum.
I lok skjalsins segir að hvað varð-
ar staðfestingu iokasamkomulags
um EES hafi Poos tekið fram að
EB krefðist þess að öll ríki EFTA
Verkalýðsfélög taka að sér launagreiðslur til starfsfólks Álafoss:
Greiðslur um mánaðamótin
nema tæplega 40 milljónum
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkir að leggja fé til nýs hlutafélags
IÐJA, félag verksmiðjufólks, hefur samþykkt að leysa til sín launakr-
öfur félagsmanna sinna sem starfa hjá þrotabúi Álafoss fyrir júnímán-
uð auk allra orlofskrafna fyrir síðasta orlofsár og verða laun starfs-
manna í félaginu greidd út á þriðjudag. Þá hafa fleiri stéttarfélög
gefið jákvæð svör um að hlaupa undir bagga með starfsfólkinu, að
sögn Þrúðar Helgadóttur sem sæti á í starfsmannaráði þrotabús Ála-
foss í Mosfellsbæ og Hveragerði. Áætlað er að heildarlauna- og orlofs-
skuld fyrirtækisins við starfsmenn nemi nú tæplega 40 millj. kr., að
sögn Jóns Sigurðssonar, fjármálastjóra hjá Álafossi. Bæjarsljórn
Mosfellsbæjar hefur lýst sig reiðubúna til að leggja fram fé eða veita
ábyrgðir við stofnun rekstrarfélags ef könnun leiðir í Ijós að áfram-
haldandi rekstur sé raunhæfur. Þá hafa fyrrverandi stjórnendur Ála-
foss orðið við áskorun um að kanna leiðir til að endurreisa rekstur
þrotabúsins.
Að sögn Jóns Sigurðssonar er
áætlað að starfsmenn Álafoss í
Mosfellsbæ eigi inni um 13 millj.
kr. laun fyrir fyrstu 3 vikur júní
en þrotabúið tók yfir reksturinn 20.
júní. Starfsmenn á Akureyri eigi
um 2 milljónir en þeir fengu greitt
15. júní fyrir fyrri hluta mánaðar-
ins. Orlofsskuld vegna sumarleyfa
starfsfólks nemur 21 milljón. Þá
munu starfsmenn í Hveragerði eiga
um 4 millj. hjá fyrirtækinu.
Stéttarfélög aðstoða
starfsmenn
Iðja mun greiða starfsmönnunum
þau laun sem þeir eiga inni fyrir
tímabilið 1.-19. júní auk orlofs fyrir
síðasta orlofsár vegna sumarleyfa.
Verkstjórafélag Reykjavíkur hefur
samþykkt að leysa til sín kröfur
sinna félagsmanna með sama hætti.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
hefur samþykkt að le’ysa til sín or-
lofskröfur félagsmanna sinna.
Verkalýðsfélag Árnessýslu hefur
samþykkt að leysa til sín kröfur
starfsmanna Álafoss í Hveragerði
og einnig hafa Rafiðnaðarsamband-
ið og Vélastjórafélagið samþykkt
að Ieysa til sín launakröfur sinna
félagsmanna, að sögn Þrúðar. Hins
vegar hafa Félagjámiðnaðarmanna
og Verkakvennafélagið Fi-amsókn
ekki enn haldið fúnd um þetta mál
en gefið vilyrði um fyrirgreiðslu við
sína félagsmenn. Þrúður sagði að
félögin hefðu einnig samþykkt að
aðstoða félagsmenn við kröfugerð
í þrotabúið vegna launa í uppsagn-
arfresti en Ríkisábyrgðasjóður
launa vegna gjaldþrota ábyrgist
laun fyrir þrjá mánuði upp að
ákveðinni hámarksupphæð.
Bústjórar þrotabúsins hafa heim-
ild til að samþykkja launakröfur til
bráðabirgða ef Ijóst þykir að þær
séu réttmætar. Verður skiptaráð-
andi að gefa umsögn um launakröf-
umar og verður félagsmálaráðherra
að taka ákvöfðun innan fjögurra
mánaða þar í frá um hvort þær
verða greiddar úr ríkissjóði. Bú-
stjórar þrotabús Álafoss hafa gefið
starfsmönnum loforð um að hraða
afgreiðslu þeirra krafna sem þeir
eiga á nú þegar inni.
Starfsmenn vilja leggja
fram fé
Þrúður sagði að starfsmenn
hefðu tekið þátt í undirbúningi að
áframhaldandi rekstri fyrirtækisins
og væru reiðubúnir til að leggja
fram fé við stofnun hlutafélag. „Það
þarf þó meira fé til en starfsmenn
geta reitt fram. Við vonum að í
framhaldi af samþykkt bæjarstjórn-
ar Mosfellsbæjar muni Akureyrar-
bær einnig samþykkja að að leggja
fram fé til áframhaldandi rekstrar
og að Landsbankinn muni þá sjá
sér fært að tryggja rekstrarfé. Það
er óljóst hver framvinda málsins
verður en við erum að falla á tíma,“
sagði hún.
Fulltrúar bæjarfélaganna hafa
átt fundi með forráðamönnum fjár-
festingarlánasjóða um aðstoð við
uppbyggingu nýs fyrirtækis en að
sögn Þrúðar hafa engin viðbrögð
enn borist við þeirri málaleitan.
Ólafur Ólafsson, fyri-v. forstjóri
Álafoss hf., segir að stjórnendur
fyrirtækisins hafi þegar orðið við
áskorunum sveitarfélaga og starfs-
fólks um að kanna leiðir til að end-
urreisa fyrirtækið. „Við höfum átt
viðræður við forsvarsmenn Akur-
eyrarbæjar og höfum kynnt leiðir
sem við teljum raunhæfastar og þau
skilyrði sem verða að vera til stað-
ar. Meira getum við ekki gert sem
Stendur en bíðum nú eftir því aðrir
aðilar sem koma að málinu taki
sínar ákvarðanir og þegar þeirri
ákvarðanatöku er lokið verður
kveðið úr um niðurstöður. Það er
hins vegar ljóst að menn verða að
taka þátt í áhættunni og áskorun
ein og sér bjargar engu,“ segir Ólaf-
ur.
Samþykkt bæjarstjórnar Mos-
fellsbæjar
Allir bæjarfulltrúar Mosfellsbæj-
ar samþykktu eftirfarandi um mál-
efni Álafoss á bæjarstjórnarfundi
sl. miðvikudag: „Bæjarstjórn Mos-
fellsbæjar er reiðubúin, að lokinni
skoðun og mati á forsendum hugs-
anlegs rekstrarfélags um yfirtöku
á rekstri þrotabús Álafoss hf., að
leggja fram fé og/eða ábyrgðir
vegna öflunar hlutafjár til félagsins
ef framangreind skoðun og mat
leíðatil þeirrar niðurstöðu að bæjar-
stjórn telji að slíkur rekstur sé raun-
hæfur til frambúðar."
legðu samkomulagið fram til stað-
festingar. í þessu fælist að banda-
lagið teldi nauðsynlegt að endur-
meta stöðuna ef eitt eða fleiri ríki
myndu ekki taka þátt í að staðfesta
það samkomulag sem menn myndu
að lokum komast að.
Á blaðamannafundi að loknum
fundinum í Salzburg var Poos
spurður hvort að það samkomulag
sem náðst hefði í Lúxemborg um
fisk væri enn á borðinu. Poos svar-
aði því tii að það væri enn á borð-
inu og væri reyndar grundvöllur
samningaviðræðnanna.
Sala ríkisbanka:
Mikilvægt
að eignar-
hald verði
dreift
- segir Davíð Oddsson
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segir að sala ríkisbanka
sé á því stigi að verið sé að vinna
grunnvinnu áður en lengra
verði haldið. Hann segir jafn-
framt að mikilvægt sé að eign-
arhald banka og annarra stór-
fyrirtækja á íslenskan mæli-
kvarða verði dreift, sé þeim
breytt í hlutafélög. Þeir bankar
sem um er að ræða eru Búnað-
arbankinn og Landsbankinn.
Davíð sagði í samtali við Morg-
unblaðið að eins og fram hafi kom-
ið áður vilji þessi ríkisstjórn breyta
bönkum í hlutafélög og síðan, í
fyllingu tímans, selja þau hluta-
bréf. „En, við teljum að markaður-
inn sé það lítill hér að menn verði
að fara varlega og ganga hægt
fram,“ sagði hann.
Davíð var spurður hvort það
væri stefna ríkisstjórnarinnar að
eignarhald slíkra hlutafélaga væri
dreift. „Já, það kom fram við
myndun stjórnarinnar, og ég tel
það mikilvægt, að eignarhald á
bönkum og slíkum stórfyrirtækj-
um á okkar mælikvarða verði
dreift. Það safnist ekki allt á fárra
manna hendur,“ sagði forsætis-
ráðherra.
Listasafn ASÍ:
Listsýningar í minn-
ingu Ragnars í Smára
TVÆR listsýningar, sem Listasafn ASÍ gengst fyrir í minningu
Ragnars í Smára hefjast á morgun. Önnur er að Kjarvalsstöðum
og hin í Listasafni ASÍ við Grensásveg, og opna báðar laugardag-
inn 29. júní.
Að Kjarvalsstöðum verða sýnd-
ar myndir er Ragnar í Smára gaf
Alþýðusambandí íslands þann 1.
júlí árið 1961 og nefnist sýningin
Ragnar í Smára - myndir úr gjöf
Ragnars til ASÍ. Auk mynda á
sýningunni verður sýning á bók-
um frá útgáfuferli Ragnars sem
Vaka - Helgafell sér um. Einnig
verður á Kjarvalsstöðum tónlist-
ardagskrá og annað efni frá Tón-
listarfélaginu. Sýningin að Kjarv-
alsstöðum opnar á morgun kl.
14.00 og frumflytur Örn Magnús-
son verkið Kveðja eftir Mist Þor-
lcelsdóttur við opnunina. Sýningin
verður opin daglega frá Id. 11.00
til 18.00 ogstendurtil 14. júlí n.lc.
í Listasafni ASÍ við Grensásveg
verður sýning á vegum Listasafns
ASÍ og Sambands íslenskra
myndlistarmanna er nefnist Ungir
listamenn - sýning í minningu
Ragnars í Smára. Tíu listamenn
taka þátt í sýningunni sem opnar
á morgun kl. 15.30. Sýningin
verður opin daglega frá kl. 14.00
til 19.00 og stendur til 21. júlí n.k.