Morgunblaðið - 28.06.1991, Qupperneq 31
moKgun^laðiB 2&. Ifliíát* í#lt
8f
Fræðimannsíbúð úthlutað
FRÆÐIMANNSÍBÚÐ sam-
kvæmt reglum um Hús Jóns
Sigurðssonar í Kaupmannahöfn
hefur verið úthlutað fyrir tíma-
bilið 1. sept. 1991 tU 31. ágúst
1992.
Úthlutun fengu: Dr. Hjalti Huga-
son, 1. september til 31. október
til að afla gagna fyiir rit um sögu
kristni á íslandi í 1000 ár.
Dr. Hafnhildur Ragnarsdóttir, 1.
nóvember til 31. desember, til að
vinna að samanburðarrannsóknum
á skilningi íslenskra og danskra
barna á hugtökum og orðaforða
yfír fjölskylduvensl.
Dr. Unnsteinn Stefánsson, 1. jan-
Helgarferðir Utivistar
ÞRJÁR Útivistaferðir verða um
helgina.
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í vinnslu
blaðsins, að i grein Árna Sigfússon-
ar, íslensk fyrirtæki um allan heim,
sem birtist i viðskiptablaði Morgun-
blaðsins i gær breyttist orðið líkjast
í lýjast. Merking setningarinnar
varð því allt önnur en ætlast var
til. Rétt er hún þannig: „Neyslu-
venjur og lífsviðhorf þjóða hafa
mjög tekið að líkjast á undanföm-
um áratug."
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á mistökunum.
í Vestmannaeyjaferð verður farið
i úteyjaferð og gengið í land í Elliða-
ey sem er stærsta úteyjan og er
uppganga þar auðveld. Vanir veiði-
menn verða með í för. Á sunnudeg-
inum.verður gengið um Heimaey
og ef til vill farið í siglingu þar um
kring.
Tvær ferðir verða í Þórsmörk. í
annarri ferðinni verður boðið upp á
gönguferðir við allra hæfí og varð-
eld á laugardagskvöldið. I hinni
ferðinni .verður farið í gönguferð
upp frá Skógum, meðfram Skógá
og fossamir skoðaðir. Síðan liggur
leiðin yfír Fimmvörðuháls, á milli
Eyjaíjallajökuls og Mýrdalsjökuls.
Gangan tekur 8 til 9 klst. en gist
verður í skála Útivistar, Básum.
I
Krimmar á Coen-tíðni
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóborgin:
Valdatafl - „Miller’s Cross-
ing“
Leikstjóri Joel Coen. Handrit
Joel og Ethan Coen. Kvik-
myndatökustjóri Barry Sonn-
enfeld. Tónlist Carter Burw-
ell. Aðalleikendur Gabriel
Byrne, Marcia Gaye Harden,
John Turturro, Jon Polito, J.E.
Freeman, Albert Finney.
Bandarísk. 20th Century Fox
1990.
Þeir Coen-bræður hafa ekki
aðeins skapað sér frægð og virð-
ingu með örfáum myndum heldur
sterkan, persónulegan stíl, það
má segja að þeir séu á eigin
bylgjulengd. Þetta snertir flestar
hliðar kvikmyndagerðarinnar,
efni - sem auðkennist af ein-
stæðum gálgahúmor - og efnis-
tök, leikstjóm og leikaravali.
Maður bíður vissulega spenntur
eftir nýjasta afreki þeirra Barton
Fink, Gullpálmamynd
Cannes-hátíðarinnar í ár, en
Valdatafl gefur henni örugglega
lítið eftir.
í Valdatafli segir af krimmum
á kreppuárunum vestan hafs og
valdatafli þeirra í borginni New
Orleans. Það er hinn írskættaði
Finney sem ræður ríkjum í upp-
hafí myndar og stjómar af harð-
fylgi með hinn útsmogna Byme
sér við hægri hönd. Sá ítalskætt-
aði rummungsþjófur og illmenni
Polito er helsti andstæðingur Fin-
neys og hefur þijótinn Freeman
sér til fulltingis. Hinsvegar hefur
Finney borgarstjórann og lögre-
gluforingjann í vasanum.
Hin svellandi Harden veldur
síðan vinarslitum á milli Finneys
og Bymes, sá fyrrnefndi vill gift-
ast stúlkunni sem báðir elska en
hún velur Byme. Hann gengur
þá á mála hjá Polito en til þess
eins að hreinsa til í borginni og
er allt á suðumarki um hríð. En
þegar sést aftur útúr augum er
púðurmökkurinn dofnar er fátt
sem fyrr.
Sjálfsagt þykir einhveijum
nóg um ofbeldið og hrottaskap-
inn í Valdatafli en að þessu sinni
er það ekki til skreytingar né
ódýrt hjálparmeðal heldur notað
til að undirstrika vinnubrögð og
innræti illyrmanna sem því beita.
Manndráp og djöfulskapur er lifí-
brauð gangstera. En persónu-
sköpunin er einmitt einn besti
þáttur myndarinnar og samtölin
lengst af hnitmiðuð og textinn
knappur, undir nokkram áhrifum
Chandlers og Hammetts. Sögu-
þráðurinn er hinsvegar oft nokk-
uð loðinn, einkum undir lokin -
sem má skilja á ýmsa vegu og
er tæpast fullnægjandi greinar-
góð í jafn harðsoðinni og bein-
skeyttri mynd sem gefur í engu
eftir ágætisverkum á borð við
Góða gæja og vantar aðeins
herslumuninn uppá jöfnuð við
klassík einsog Guðföðurinn I &
U.
Hér era persónumar í dekkri
kantinum. Gangsteramir Finney
og Polito sígildir skúrkar, sem
og hjálparkokkar þeirra flestir.
Borgarstjórinn og lögregluyfír-
valdið gamalkunnar ímyndir
spillingar og lasta, jaðra við
teiknimyndafígúrar, aðeins
Byme einn virðist eiga eitthvað
af því siðgæði sem tungum fóla
er svo tamt í myndinni. Ástamál-
in era heit og ástríðufull og ör-
lagavaldur myndarinnar. Marcia
Gay Hardin er sem sköpuð í hið
undirförala man þriðja áratugar-
ins, enginn veit hvað innra býr.
Annars er leikaravalið óað-
finnanlegt og á þessari sláandi
Coen-tíðni. Byme fer vel með
hlutverk hins leyndardómsfulla
Toms, sem er meistari svikamyllu
myndarinnar, kaldur á ytra borði
en maður fær Iítinn botn í karakt-
erinn. Finney er aðsópsmikill sem
gangsterinn Leó, jafnvel svo að
hann skilur eftir tómarúm meðan
hans nýtur ekki við um miðbik
myndarinnar. Og lítt kunnir
skapgerðarleikarar í aukahlut-
verkum gefa stjömunum ekkert
eftir. Polito er ægilegur sem
mafíósinn - hvernig stendur á
því að maðurinn var ekki til-
nefndur til Oskarsverðlaunana
líkt og Pesci fyrir hliðstætt hlut-
verk í Góðum gæjum, það má
ekki á milli sjá hvor er minnis-
stæðari. Og hvemig má það vera
að slík ágætismynd og Valdatafl
fékk engar tilnefningar yfír höf-
uð? Freeman skapar eftirminni-
legt, útsmogið og stormandi fúl-
menni, rammöfugsnúið í ofaná-
lag. Turturro fer á kostum sem
smeðjulegt skítseyði og það er
ekki veikan punkt að finna í
smáhlutverkum. Tónlistin er
skínandi og vel notuð, (t.d. er
öll Danny Boy senan stór-
skemmtilega útfærð), og Sonn-
enfeld filmar af alkunnri snilld.
Vönduð og mögnuð skemmtun.
úar til 31. mars, til að vinna að
riti um haffræði og afla heimilda í
sambandi við rannsóknir á íslensk-
um vötnum sem sjór gengur inn í.
Dr. Sigfús A. Schopka, 1. apríl
til 31. maí, til að Ijúka ritgerð um
þorskstofninn við Island á tímabil-
inu 1930 til 1990 og athuga í sam-
vinnu við .Grænlensku fískirann-
sóknastofnunina í Kaupmannahöfn
samspil íslenska þorskstofnsins við
grænlensku þorskstofnana.
Grétar Unnsteinsson, 1. júní til
31. ágúst, til að afla heimilda í
Danmörku um upphaf íslenskrar
garðyrkju og kynna sér fræðslu og
menntun í umhverfísmálum.
Alls barst 41 umsókn um fræði-
mannsíbúðina.
I úthlutunamefndinni eiga sæti
Guðrún Helgadóttir alþingismaður,
Ingvi S. Ingvarsson sendiherra í
Kaupmannahöfn og formaður
stjómar Húss Jóns Sigurðssonar og
dr. Þórir Kr. Þórðarson prófessor.
Morgunblaðið/Finnur Magnússon
Nokkrir aðstandendur sýningarinnar í Akraborginni f.v.: Bjarni H.
Þórarinsson, G. R. Lúðvíksson, Jóhann Valdimarsson, Kristbergur
Pétursson og Jón Garðar Henrysson.
Myndlistasýning í Akraborginni
Myndlistarsýning verður haldin
um borð í Akraborginni frá 29.
júni til 20. júlí. Nítján myndlista-
menn standa að sýningunni en
hún ber heitið Hafsauga.
Sýningin verður opnuð tvisvar um
borð í Akraborginni. Fyrst á Akra-
nesi kl. 11 laugardaginn 29. júní og
síðan í Reykjavík kl. 14 sama dag.
Sýningin er eingöngu opin farþegum
Akraborgarinnar. Á henni verða
málverk ög skúlptúrar og einnig
verður boðið upp á ljóðalestur. Þetta
er eftir því sem næst verður komist
í fyrsta skipti sem samsýning er
haldin um borð í íslensku skipi.
AHO-kvartettinn heldur
tónleika í Norræna húsinu
AHO-kvartettinn frá Finnlandi
heldur tónleika í Norræna húsinu
laugardaginn 29. júní kl. 1.7.00.
Hljóðfæraleikararnir era nemar
í Vástra Helsingfors Musikinstitut
og eru fædd á áranum 1977-1979.
Þeir hafa undanfarin tvö ár verið
undir handleiðslu Riitta Poutanen,
sem kemur með þeim hingað til
lands.
Kvartettinn hefur leikið fyrir
svæðisútvarpið í Helsingfors, leikið
á tónleikum skólans og einnig kom-
ið fram í Síbelíusarakademíunni og
frumflutt þar, m.a. Quartetto Pic-
cole eftir Kalevi Aho.
Á efnisskrá þeirra í Norræna
húsinu er Strengjakvartett í G-dúr
KV 80 eftir Mozart, Strengakvart-
ett nr. 1 (saminn árið 1952) eftir
Einojuhani Rautavaara og
Strengjakvartett í g-moll op. pos.th.
D 173 eftir Schubert.
Kvartettinn skipa: Anna
Kahanpaá (f. 1977) 1. fiðla, Anne-
marie Áström (f. 1977) 2. fiðla,
Mikko Franck (f. 1979) víóla og
Tomas Djupsjöbacka (f. 1978) selló.
Verð frá 815 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
H)
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í1.FL B.1986
Hinn 10. júlí 1991 er ellefti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl.B.1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr.11 verður frá og með 10. júlí n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini = kr. 4.576,25
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. janúar 1991 til 10. júlí 1991 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364
hinn 1. janúar 1986 til 3121 hinn 1. júlí n.k.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr.11 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1991.
Reykjavík, 28. júní 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS