Morgunblaðið - 28.06.1991, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991
33
Sigrún Kristjáns
dóttir - Minning
Fædd 10. ágúst 1916
Dáin 22. júní 1991
Nú er amma líka dáin_ og von-
andi komin til afa, hún saknaði
hans svo mikið þegar hann dó.
Hún var alltaf svo góð við okk-
ur, en Alzheimersjúkdómurinn fór
svo illa með hana og henni leið oft
svo illa, það var svo erfitt að horfa
upp á það, en nú líður henni vel
hjá afa og Guði.
Þegar við vorum lítil var alltaf
svo gaman að heimsækja ömmu og
afa í Hólmgarðinn, fara í smáferð-
ir, gera eitthvað skemmtilegt og
borða ís á eftir. Amma elskaði að
ferðast, þá leið henni best. Hún var
svo flink í höndunum, hún saumaði
út, teiknaði, málaði, skar út allskon-
ar fallega hluti, t.d. lampa, hillur,
kassa o.fl. o.fl. Svo voru það stytt-
urnar sem hún gerði, þær voru al-
veg meiriháttar og við nutum góðs
af. Og svo hjálpaði hún okkur að
teikna og mála, amma var sko lista-
maður. Því' miður gat hún ekki
notið þessara hæfileika til að stytta
sér stundir nú síðustu árin. Sjúk-
dómurinn sá fyrir því. Hún var
lærður tannsmiður, var með þeim
fyrstu hér á landi, hún átti meist-
arabréf upp á það, sem hún var svo
stolt af. Álltaf vildi hún amma vera
fín og hrein og vildi að við værum
það líka, hún brýndi fyrir okkur að
vera góð og hjálpsöm. Amma sagði
svo skemmtilegar sögur frá því
þegar hún var lítil og við hlógum
svo innilega saman, það voru góðar
stundir. Við eigum svo margar góð-
ar minningar sem við geymum í
hjarta okkar.
Við viljum þakka honum Frið-
þjófi sem var henni svo ómetanleg-
ur vinur og félagi á Hrafnistu.
Hann studdi hana og hjálpaði á
allan hátt og túlkaði fyrir hana
þegar hún gat ekki tjáð sig sjálf
því hann skildi hana alltaf. Hann
minnir okkur svo á afa eins og
hann var við ömmu.
Elsku Friðþjófur, Guð styrki þig
í sorg þinni og þakka þér fyrir allt
sem þú gerðir fyrir elsku ömmu
okkar.
Við þökkum elsku ömmu fyrir
allt sem hún gerði fyrir okkur. Við
söknum hennar svo sárt, en við
huggum okkur við að nú líður henni
vel hjá afa og Guði sem hún trúði
svo sterkt á.
Krissi, Haflína og Rúnar
Nú er elsku amma farin frá okk-
ur og loksins komin til afa eins og
hún þráði svo heitt.
Elsku amma átti mjög erfitt þeg-
ar að afi dó, því hún var svo mikill
sjúklingur og hann studdi hana svo
vel.
Afi dó 1989 og skiptumst við
systkinin þá á um að sofa hjá ömmu
á nóttunni, þar til mamma kom á
morgnana og sótti okkur og ömmu
og fóium við þá heim til okkar.
Nokkru seinna fór amma vestur
til Ingibjargar og þaðan á Hrafnistu
og var búin að vera þar í rúmt ár
þegar hún dó. Mikið var amma lán-
söm þegar hún hitti hann Friðþjóf
á Hrafnistu, hann var gamall kunn-
ingi ömmu og afa, Friðþjófur hefur
verið henni ömmu okkar svo mikið
góður, hann hefur stutt hana og
huggað og glatt, ekki síður en afi
gerði.
Alltaf var amma jafn glöð þegar
að við komum í heimsókn til henn-
ar, þó að hún væri mikið veik var ^
lundin ávallt létt og alltaf var amma
til í að grínast við okkur og glettast.
Gott var að koma til ömmu og
afa í Hólmgarði, þau áttu alltaf
eitthvað gott í munninn og góð ráð
að gefa okkur og pössuðu okkur vel.
Amma var sannkölluð listamann-
eskja á árum áður, hún var tann-
smíðameistari, hún málaði myndir,
skar út í tré stóra sem smáa hluti,
saumaði út, teiknaði og margt eig-
um við fallegt eftir hana elsku
ömmu okkar.
Nú riljast það upp þegar afi dó,
ó það var svo sárt, og nú er hún'
amma dáin líka, við þökkum elsku
ömmu allt, guð geymi þau bæði.
Megi guð styrkja þig elsku Frið-
þjófur í sorg þinni, og þakka þér
allt.
Elsku amma sagði okkur að við
myndum hittast aftur öll þegar við
værum dáin, og er það okkar von
að svo verði.
Sigrún og Garðar
Valgerður Berg-
þórsdóttir - Kveðjuorð
Margs er að minnast við fráfall
sérstæðrar konu. Þakklæti er og
efst í huga þegar skólasystir og
góð vinkona er kvödd. Við Valla
hittumst í fyrsta sinn við setningu
Hjúkrunarskóla íslands í byijun
árs 1957 og máttum þola þar sam-
an sætt og súrt í þrjú ár undir
sama þaki. Við slíkar aðstæður
verður ekki hjá komist að kynnast
persónuleika eins og Valgerði
mjög náið og eiga saman góðar
stundir. Gott var til hennar að leita
um aðstoð við hitt og þetta, því
snemma kom í ljós hvert leita átti.
Valla var mjög vel að sér og kunni
vel til verka, bæði á hjúkrunarsvið-
inu og til daglegra heimilisstarfa,
sem ekki eru öllum ungum stúlk-
um töm.
Enn treystust kynni okkar, er
við fluttumst til Danmerkur saman
haustið 1960 ásamt skólasystur
okkar, Birnu. Þær stöllur Valla
og Bima höfðu ráðist til starfa á
sjúkrahúsi en ég til að gæta bús
og fmmburðar. Ogleymanlegar
era heimsóknir þeirra þar og verða
seint þakkaðar.
Allmörg ár Iiðu er fundum okk-
ar bar ekki saman, en þá var
Valla búsett í Bandaríkjunum þar
sem eiginmaður hennar stundaði
framhaldsnám. Þegar heim var
komið var þráðurinn tekinn upp
aftur eins og aðeins væra nokkrir
dagar liðnir, þótt það væru í raun
allmörg ár. Stofnaður var sauma-
klúbbur meðal skólasystranna.
Valla hafði engu gleymt í útivist-
inni en bætt við ýmsu nýju og víst
er um það, að alltaf var hlakkað
til saumaklúbbs hjá Völlu.
Valla var um margt mjög sér-
stök kona, með ákveðnar skoðan-
ir, sem hún var ávallt reiðubúin
að granda nánar ef með þurfti.
Strax á skólaáram var hún mér
og sjálfsagt fleiram hinna yngri í
hópnum sem einskonar móðir, þótt
aldursmunur væri enginn. Hún
hafði til að bera einhvem þroska,
sem við söknuðum og verður sú
samfylgd aldrei metin til fulls.
Far þú í friði og hafðu þakkir
fyrir leyfa okkur að kynnast þér.
Nú legg ég augun aftur
ó Guð þinn náðarkraftur
mér veri vörn í nótt.
Æ viltu við mér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Þessum fáu minningarorðum
fylgja innilegar samúðarkveðjur
til eiginmanns og fjölskyldu Val-
gerðar og verði minning þeirra um
góða eiginkonu og móður huggun
harmi gegn.
Þórunn
Kveðjuorð:
Sigtryggur Stefáns-
son - Akureyri
Fæddur 21. desember 1925
Dáinn 11. júní 1991
Sigtryggur Stefánsson, bygg-
ingafulltrúi, er okkur horfinn yfir
móðuna miklu löngu fyrir aldur
fram. Sannast þar máltækið svo
sem oft áður að enginn veit sína
ævina fyrr en öll er.
Það var ekki rætt um dauðann
þegar við ókum saman frá Borgar-
nesi til Reykjavíkur, í hans hinstu
ferð til að gangast undir aðgerð.
Við ræddum um fjölmörg önnur
mál okkur hugleikin.
Eg mun ékki ræða hér æviferil
Sigtryggs. Það munu aðrir gera.
Leiðir okkar Sigtryggs lágu sam-
an á fund, sem við voram boðaðir
til og vakti maðurinn þá strax at-
hygli mína. Hann hafði þá hæfileika
að setja mál sitt þannig fram að
eftir því væri tekið.
Sigtryggur var skarpgreindur og
fljótur að átta sig á aðalatriðum í
hveiju máli. Við byggingarfulltrúar
voram svo heppnir að fá notið þess
í félagi okkar en hann var einn af
stofnendum Félags byggingarfull-
trúa og fyrsti gjaldkeri þess.
Vil ég fyrir hönd félagsins þakka
honum fyrir störf hans fyrir félag-
ið. Við kveðjum góðan vin með
miklum söknuði og vottum aðstand-
endum samúð.
Olafur K. Guðmundsson
FÉLAGSLÍF
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3 & 11798 19533
Helgarferðir
28.-30. júní
1. Kl. 18 Núpsstaðarskógar
Náttúruperla á Suðurlandi, ekki
síðri en Þórsmörk. Tjöld. Göngu-
ferðir m.a. að Nupsárfossi og
Súlutindum. Fararstj. Jón Viðar
Sigurðsson.
2. Kl. 20 Þórsmerkurferð
Nú ættu allir að mæta i Þórsmörk-
ina með Ferðafélaginu. Fjölbreytt
ferð fyrir unga sem aldna. Göngu-
ferðir. Kvöldganga. Afsláttarverð
þessa helgi. Gist í Skagfjörðs-
skála, Langadal. Fararstj. Ingi-
björg Þráinsdóttir.
3. Kl. 20 Yfir Fimmvörðuháls
Gengin ný, sérlega falleg leið
niður af hálsinum hjá Kaldaklifs-
gili og vestan Skógár. Gist i
Þórsmörk. Upplýsingar og farm.
á skrifst., Öldugötu 3, simar
19533 og 11798.
Kynnið ykkur sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins. Næstu ferðir:
1. 29/6-3/7 Strandir - ísa-
fjarðardjúp. Fá sæti laus.
2. 29/6-3/7 Reykjafjörður -
Drangajökull. 2 sæti laus.
Ferðafélag íslands.
H ÚTIVIST
GRÓHNNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI 14606
Ferðakynning á
Steindórsplani
í dag, föstudag, kl. 17-19 verður
Útivlst með kynningu á dags-
ferðum, helgarferðum og sumar-
leyfisferðgum, sem félagið
stendur fyrir á næstunni. Kynn-
ingin verður á gamla Steindórs-
planinu á homi Aðalstrætis og
Hafnarstrætis. Ný rúta af full-
komnustu gerð verður til sýnis.
Laugardagur 29. júní
Kl. 08: Þríhyrningur
er skemmtilegt fjall að ganga á
og mjög sérkennilegt í laginu. i
miðju fjallsins er hvilft sem heit-
ir Flosadalur og upp frá henni
tróna fjögur horn. Gengið verður
upp frá Vatnsdal og upp í
Flosadal. Þá verður farið upp á
vesturhornið en þaðan er frá-
bært útsýni yfir Rangárvelli,
Krappa og Heklu. Þá er hug-
myndin að ganga einnig á mið-
hornið og geta gönguglaðir jafn-
vel skokkað upp á fleiri horn.
Komið verður niður með Hamra-
vailagili og að eyðibýlinu Reyni-
felli.
Munið hjólreiðadaginn á
sunnudag. Grillað í Heiðmörk
og farið í leiki.
Sjáumst! Útivist