Morgunblaðið - 04.07.1991, Page 13

Morgunblaðið - 04.07.1991, Page 13
MQRqiUIfBÍAÐIÐ FIMMTUDAGl/R, f, JULI 1991, 13 , IIÍIII IIS 1*111 ..... iiiíéi til 6. júlí vi . íxix-íSi okkar amerísku vörusn t flestum matvöruverslunum um alít butd.; ííií :::::::::::: Vx-Zx; l3urru hlcium;rr í þægilegu pokkunutu Fráhært sjampó og næring ULTRA Uinhverfísvæna jwottaefnið Matarolíanvmsæla Tunguhóls 11 • Sími 682700 Mýkmgarcfni Fyrir þvottinn Eitt vinsælasta tannkremið í USA tea IVORY Fleiri og fjarlægari lönd Umfang starfsemi AFS á íslandi hefur aukist á síðustu árum jafn- framt því sem boðið er upp á fleiri og fjarlægari lönd en áður. „Til að byrja með fóru flestir til Banda- ríkjanna en smám saman bættust Evrópulöndin við,“ segir Sigfríður. „Nú hafa þriðja heims löndin bæst í hópinn en 47 íslendingar fara til landa í þeim hópi í ár. Má þar nefna lönd eins og Brasilíu, Bólivíu, Arg- entínu, Chile, Honduras og Pan- ama. Við eigum þátt í að hvetja fóik til að fara til þessara landa en ég hef einnig veitt því eftirtekt að fólk er mun opnara fyrir þeim en áður, sennilega vegna þess að af þeim fara góðar sögur,“ segir Sigfríður og bendir á að samtökin muni leggja aukna áherslu á lönd í Asíu á næstunni, þar sé mikil gróska og áhugi fyrir að hýsa skiptinema. Aukið samstarf við skóla Aðspurður um nýjungar leggur Ebbe áherslu á að unnið sé að auk- inni valddreifingu. „Við viljum gera skrifstofurnar í löndunum sjálf- stæðari en þær hafa verið,“ segir Ebbe en leggur áherslu á að alltaf hljóti að vera náið samband á milli skrifstofa í ólíkum löndum. „Einnig leggjum við aukna áherslu á árs- dvalir og viljum auka tengsl sam- takanna við skólakerfið. Við trúum því að skólafólk geti gert meira fyrir okkur og ekki síst að við get- um gert meira fyrir skólana. Við viljum setjast niður með skólastjór- um og ræða hvernig hægt er að styðja við bakið á skiptinemunum og nýta þekkingu þeirra í skóla- starfinu. Að síðustu leggjum við áherslu á að gera ungu fólk grein fyrir því sem efst er á baugi en um leið veita þeim tækifæri til að mynda sér afstöðu og fylgja henni eftir.“ Sauðárkrókur: Lögregla og bæjar- fógeti í nýtt húsnæði Sauðárkróki. NU FYRIR skömmu var formlega tekið í notkun nýtt húsnæði bæj- arfógetaembættisins á Sauðár- króki, með því að lögreglan flutti alla starfsemi sina í hina nýju lög- reglustöð. Athöfnin hófst með því að Þor- steinn Pálsson dómsmálaráðherra bauð gesti velkomna, en síðan rakti Halldór Þ. Jónsson bæjarfógeti bygg- ingarsögu hússins. Þar kom fram að fyrsta skóflustungan var tekin 21. ágúst 1987 en síðan hafa á fjárlögum verið framlög til byggingarinnar á hveiju ári. Er öllum framkvæmdum við húsið nú lokið, nema frágangi lóðar að hluta til. Hinsvegar skortir enn nokkuð á að lögreglustöðin hafí fengið fjárveitingar til kaupa á þeim búnaði sem þarf. Einnig kom fram í ræðu Halldórs Þ. Jónssonar að mikill munur er á stærð þessa húsnæðis og þess sem lögreglan og bæjarfógetaembættið fluttu úr, en allur gólfflötur núver- andi húsnæðis er rúmlega 830 fer- metrar og hefur bæjarfógeti 476 fm, en lögreglustöðin 355 fm með bíla- geymslum. Benti bæjarfógeti á í ræðu sinni að núverandi húsrými lögreglunnar að frádregnum bílageymslum væri 44 fm stærra en allt það húsrými sem bæði lögreglan og bæjarfógeta- embættið höfðu til samans áður. Halldór Þ. Jónsson sagði það skemmtilega tilviljun að þegar þetta nýja og glæsilega hús væri tekið í notkun væru rétt 100 ár síðan emb- ætti sýslumanns Skagafjarðarsýslu var flutt til Sauðárkróks og einnig að núverandi aðsetur er nánast á sama stað og embættisskrifstofur sýslunnar voru lengstum eða um 40 ár á Suðurgötu 3. Arkitekt hússins er Árni Ragnars- son, burðarvirki er hannað af Páli Zophoníassyni. Byggingarfélagið Hlynur ásamt ýmsum undirverktök- um annaðist allar byggingarfram- kvæmdir, sem á verðlagi dagsins í dag eru um 70 milljónir. Guðmundur Pálsson lögregluvarð- stjóri flutti árnaðaróskir frá Lögre- glufélagi Norðurlands vestra og af- henti gjöf frá félaginu sem bæjarfóg- eti veitti viðtöku. Þá tók einnig til máls sr. Hjálmar Jónsson og bauð hið veraldlega vald velkomið í ná- grenni kirkjunnar, en hið nýendur- gerða guðshús Sauðkræklinga stend- ur hinumegin við götuna. Fjölmargir gestir voru viðstaddir opnunina, þágu veitingar og skoðuðu hið glæsilega hús. - BB. Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra, Halldór Þ. Jónsson bæjarfóg- eti og kona hans, Aðalheiður B. Ormsdóttir, og Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn taka á móti gestum. Aukanámskeið í ofurminni GUÐMUNDUR R. Ásmundsson heldur námskeið í ofurminni laugardaginn 6. júlí á Hótel Lind. Guðmundur, sem búsettur er í Bandaríkjunum, hefur að undan- förnu haldið nokkur námskeið í ofurminni hérlendis. Þau hafa ver- ið það vel sótt að námskeiðinu á laugardaginn var bætt við. í fréttatilkynningu segir að á námskeiðinu sé kennd tækni til þess að muna nöfn, númer og langa lista. Námskeiðið á laugardaginn stendur frá klukkan átta um morg- uninn til klukkan tíu um kvöldið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.