Morgunblaðið - 04.07.1991, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.07.1991, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1991 HRAÐLESTRARSKÓLINN Helena Rubinstein NÝVARA, NÝIRLITIR. Kyrming í dog frá kl. 14-18 í Brá Snyrtivöruverslun Laugavegi 72 Föróun á stoönum. Snmirbflar ero betrienaðrir Honda Accord er búinn miklum góðum kostum. Kostagripir liggja ekki alltaf á lausu, en þessi er það og til- búinn til þinnar þjónustu. Bíll fyrir alla og við allra hæfi. EvmnuDE Utanborísmótorar LHiir 09 meíterilegir Stórir 09 krafhnildir 2,3 til 300 hp Markmið Islendinga var að tillögur þeirra yrðu ekki teknar til umfjöllunar Grciðsluskilmálar fyrir alla. Vcrðfrákr. 1.432.000,- stgr. iHONDA /1CCQRD HONDA A ISLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900 HRHLESTURNÍMSKEIB Sumarnámskeið í hraðlestri hefst þriðjudaginn 16. júlí nk. Vilt þú lesa meira, en hefur ekki nægan tíma? Vilt þú vera vel undirbúin(n) undir námið í haust? Nú er tækifæri fyrir þá, sem vilja margfalda lestrar- hraða sinn, en hafa ekki tíma til þess á veturna. Skráning í síma 641091. eftir Sidney Holt Það er útbreiddur misskilningur að ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðs- ins (IWC) í Reykjavík á dögunurn hafi hafnað því að skoða ósk Islend- inga um „bráðabirgða“ veiðikvóta fyrir hrefnu og langreyði. Ég vona að mér takist að koma málinu á hreint með þessu bréfi. Fulltrúar annarra þjóða gerðu Guðmundi Eiríkssyni, formanni ís- lensku nefndarinnar, skýra grein fyrir því, að yrði tillagan tekin fyr- ir ein og sér og samþykkt, yrði að finna í viðaukanum við stofnsátt- málann frá 1946 um stjórn hval- veiða tvenn heimildarákvæði er stönguðust að öllu leyti á; hana og grein 10 (e), sem samþykkt var 1982, um bann við öllum veiðum. Rétta leiðin hefði því verið að leggja tillögu íslendinga fram sem breytingartillögu við grein 10(e) og þá hefðu farið fram umræður og atkvæðagreiðsla um hana. Að þeim tilmælum vildi Guðmundur Eiríks- son ekki fara og fyrir því voru pólit- ískar ástæður sem mönnum urðu fljótlega ljósar. Takmark íslensku sendinefndarinnar var að tryggja að tillögur hennar yrðu ekki teknar til umfjöllunar. Þannig yrði hægt að halda enn eina skammarræðuna, til þess að fullnægja þörf fjölmiðla og aðilum í sjávarútvegi, um „óbil- girni“ hvalveiðiráðsins og fá afsök- un fyrir því að ganga úr ráðinu. Svo virðist sem þetta bragð hafí heppnast, að minnsta kosti þegar umfjöllun flestra fjölmiðla er höfð í huga, en aldrei kom til þess að sendinefndir annarra þjóða létu glepjast. Hefðu íslendingar lagt tillögur sínar fram með tilhlýðilegum hætti er ólíklegt að þeim hefði tekist að fá hana samþykkta með þremur fjórðu atkvæða sem nauðsynlegt hefði verið til þess að ná fram breyt- ingum á stjórnunarákvæðum stofn- skrárviðaukans. Synjun hefði ekki jafngilt því að hnykkt hefði verið á „veiðibannsstefnu", heldur að stað- fest hefði verið sú meginregla að veita ekki neina handahófskennda bráðabirgðakvóta meðan enn væri unnið að því að semja réttlátar regl- ur um langtíma veiðistjórnun. Öll- um hinum sendinefndunum var það ljóst, að yrði úthlutað bráðabirgða- kvóta sem síðar reyndist hærri en veittur yrði samkvæmt endurskoð- uðum stjórnunaraðferðum (en vís- indalegum athugunum á þeim er nánast að ljúka), fyndu íslendingar hjá sér enga hvöt til þess að sam- þykkja reglur um veiðistjórn á næsta ári eða því þarnæsta. Nauðsynlegt er að nýjar reglur um veiðistjórnun verði samþykktar mótatkvæðalaust eða með sam- þykki flestra eða allra sem hlut eiga að máli. I 35 ár réðu hvalveiðiþjóð- ir gangi mála í Alþjóðahvalveiðiráð- inu. Veiðikvóta urðu þrír fjórðu ríkja að samþykkja en samt gátu hvalveiðiþjóðirnar andmælt kvótun- um ef þeim fannst þeir vera of litl- ir, og það gerðu þær oft. Þegar svo var ekki gátu menn veitt eins og hver vildi. Atkvæðabyrðinni var í höfuðatr- iðum snúið við með hvalveiðibann- inu 1982 þar sem þá var tekið upp, auk annarra umhverfissjónarmiða, það sem nefnt hefur verið „varfærn- isviðhorfið". Bannið frá 1982 er í gildi þar til þeirri samþykkt hefur verið breytt, hvað svo sem líður einmanalegri túlkun Guðmundar Eiríkssonar í aðra veru. Að þessu sinni lét mikill meirihluti aðildar- ríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins form- lega í ljós vilja til þess að breyta veiðibannssamþykktinni svo hægt yrði að heija veiðar í atvinnuskyni á hvaltegundum sem ekki væru ofnýttar, veiðar sem fram færu undir eftirliti. Það virðist vera skyn- samleg málamiðlun þegar haft er í huga að það er stefna sumra þeirra ríkja sem mynduðu þann meirihluta að hvers kyns hvalveiðar verði ekki hafnar á ný. Það er og staðreynd að Vísinda- nefnd hvalveiðiráðsins sýndi veiði- tillögum íslendinga lítinn áhuga. Þær voru pakkaðar inn í áætlun sem kölluð var „Örugg stjórnunarað- ferð“ (SMP). Gefið var til kynna að sú aðferð væri sambærileg við aðrar stjómunaraðferðir sem nefndin hefur undanfarin þrjú ár látið gera ítarlega úttekt á. Hafa sömu íslensku vísindamennirnir [sem sömdu SMP] þróað eitt líkan- anna sem reynt hefur verið í þeirri úttekt. Vísindamenn, sem ekki eru óvilhallir íslendingum, sögðu tillög- ur þeirra vera „hreina sýndar- mennsku". Þær hefði mátt leggja fram, þótt seint væri, og láta fara fram úttekt á þeim. Þeir útreikning- Sidney Holt „Takmark íslensku sendinefndarinnar var að tryggja að tillögur hennar yrðu ekki tekn- ar til umfjöllunar. Þannig yrði hægt að halda enn eina skamm- arræðuna, til þess að fullnægja þörf fjöl- miðla og aðilum í sjáv- arútvegi, um „óbil- girni“ hvalveiðiráðsins og fá afsökun fyrir því að ganga úr ráðinu.“ ar kynnu að hafa tekið eitt ár og því hefði alla vega ekki verið hægt að brúka tillögurnar til þess að ákveða kvóta fyrir þetta ár. Það kemur ekki á óvart að íslensku vís- indamennirnir vildu hins vegar ekki að gerð yrði á þeim úttekt af því tagi sem gerð hefði verið á öðrum tillögum. Höfundur er fulltrúi Seychelles hjá Alþjóðnbvalveiðiráðinu og fulltrúi Umhverfisáætlunnr Snmeinuðu þjóðnnnn í Vísindnnefnd hvnlveiðiráðsins. Boðsmóti TR lokið BOÐSMÓTI Taflfélags Reykja- víkur lauk síðastliðinn föstudag, 28. júni. Sigurvegari varð Björn Freyr Björnsson, Skákfélagi Hafnarfjarð- ar, með 7 vinninga af 7 möguleg- um. í öðru sæti varð Snorri Krist- jánsson, Taflfélagi Reykjavíkur, með 5,5 vinninga. Sex skákmenn urðu jafnir í 3.-8. sæti með 4,5 vinninga. í 3. sæti skv. stigaútreikningi varð Hrannar Baldursson, TR, og jafnir honum í næstu sætum voru Sigurður Inga- son, Taflfélaginu Helli, Jón G. Við- arsson, Skákfélagi Akureyrar, Jón Viktor Gunnarsson, TR, Óli Valdi- marsson, TR, og Sigurbjörn Björns- son, Skákfélagi Hafnarfjarðar. ------------------- ■ PORTHÁTÍÐ Útideildar í Reykjavík verður haldin fimmtu- daginn 4. júlí í portinu á Tryggva- götu 12 og hefst kl. 18.00. Eftir- taldar hljómsveitir koma fram: Leprous, Cazbol, Morbid Silence, Insectary, GOR, Strigaskór nr. 42, Putrid, Sjálfsfróun/Scums of Society, In memoriam (Mortu- ary) og Sororicide. Porthátíð er nú orðin fastur þáttur í starfi Úti- deildar í Reykjavík. pliúrjpmWWi»tfo Meira en þú geturímyndað þér! OMC EvmnuoE léttð þér róðurinn! l!2 PORf ARMULA 11 ’S 31-681500 U HONDA i n t n a

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.