Morgunblaðið - 04.07.1991, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1991
Skýrsla til lesenda Morgunblaðsins:
Um illkvittni og
nornaveiðar
eftirHalldór
Halldórsson
Sverrír Arngrímsson, viðskipta-
fræðingur, ræðir um Hafskipsmál-
ið í grein í Morgunblaðinu á
laugardaginn var (þ. 29. júní sl.).
Jafnframt fjallar hann um undir-
ritaðan, persónu hans og frétta-
mennsku fyrstu mánuði Hafskips-
og Utvegsbankamálsins. Ummæli
hans um mig og starf mitt (og
um leið annarra fréttamanna er-
lendra frétta á fréttastofu Út-
varpsins) eru ósæmileg. Þá hefur
Ingvi Hrafn Jónsson, fv. frétta-
stjóri, sakað mig um „nornaveið-
ar“ vegna staðhæfinga minna um
gjaldþrot Hafskips í byijun júní
1985 (Morgunblaðið 16. júní).
Ummæli hans eru einnig ósæmi-
leg.
Þessa grein skrifa ég fyrir les-
endur Morgunblaðsins, því ég vil
að lesendur blaðsins fái að heyra
sannleikann um þetta mál, en ekki
órökstuddar staðhæfingar. Jafn-
framt vil ég, að lesendum Morgun-
blaðsins sé ljóst, að ég stend við
skrif mín Hafskipsmálið í Helgar-
póstinum á sínum tíma.
Tekið skal skýrt fram, að ég
hef ávallt gert þá kröfu til sjálfs
mín og annarra fréttamanna, að
þeir skrifi villulausan texta og leið-
rétti villur, ef á þær er bent.
Ég vil leiðrétta útbreidda vit-
leysu, sem birtist í skrifum Ingva
Hrafns og Sverris. Þessi della
kemur t.d. fram, þegar þeir félag-
ar, hvor með sínum hætti, segja
að Hafskipsmálið hafi reynzt
stormur í vatnsglasi, efasemdir
séu uppi um að Hafskip hafi í
raun verið gjaldþrota og „rann-
sóknablaðamennskan" í upphafi
málsins hafi verið illkvittið fjöl-
miðlafár, nornaveiðar, sem hafi
verið ýtt úr vör af „deyjandi sorp-
blaði“, Helgarpóstinum.
Jóhannes Nordal staðfesti
skrif HP
Sjötta júní 1985 sagði ég í fyrstu
grein minni um Hafskipsmálið, að
Hafskip væri gjaldþrota.
Þetta staðfesti bankaeftirlit
Seðlabanka íslands (28.6. 1985
og 23.8. 1985) og þetta hefur
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri
staðfest í Morgunblaðsgrein (14.
desember 1985) og í bréfum til
þáv. bankamálaráðherra (30.7.
1985 og 5.9. 1985) auk þess, sem
bankastjóm Útvegsbankans fékk
skýrslur bankaeftirlitsins sendar
jafnharðan.
Þessu til viðbótar var banka-
stjórum Útvegsbankans orðið
þetta ljóst löngu áður, enda voru
stöðvaðar allar nýjar fyrirgreiðslur
til Hafskips árið áður. Undir árslok
1984 stóð Ragnar Kjartansson
fyrir því, að ræða samstarf eða
sölu við forráðamenn Eimskips.
Þá vissu bankastjórarnir þ. 3.
júní 1985, að tryggingar bankans
dyggðu ekki fyrir skuldbindingum
Hafskips. Allt í einu blasti við
bankastjórunum, að Hafskip ætti
aldeilis alls ekki fyrir skuldum,
sem bankinn hefði ábyrgzt. Útlitið
var alvarlegt, en að lokinni fyrstu
athugun bankaeftirlitsins kom í
ljós, að ástandið var mun verra
en bankastjórar Útvegsbankans
héldu.
í þokkabót væri framtíð bank-
ans í hættu vegna taphættu upp
á hundruð milljóna króna. Eigið
fé bankans þá var aðeins rösklega
400 milljónir króna.
Bankastjóri Útvegsbankans
staðfesti skrif HP
„Ólafur Helgason, einn af
bankastjórum Útvegsbankans tók
saman yfirlitsskýrslu um málið.
Hér verður vitnað í Olaf, en hann
verður tæpast sakaður um „illkvit-
tið fjölmiðlafár" eða „nornaveið-
ar“:
Hann segir: „13. júni (1985,
innsk. HH) var haldinn bankaráðs-
fundur og gerði Axel Kristjánsson,
Halldór Halldórsson
„Að lokum vil ég leggja
áherzlu á mikilvægi
þess, að blaðamenn
fjalli gagnrýnið og hlut-
lægt um mál eins og
Hafskipsmálið. Þetta er
grundvallarskylda í nú-
tímablaðamennsku.
Láti blaðamaður hjá
líða að fjalla um mál
af þessu tagi bregst
hann skyldu sinni. Og
hann á að fara í saum-
ana á málum enda þótt
hann geti átt á hættu
að verða auri ausinn.“
aðstoðarbankastjóri, grein fyrir
lánum og tryggingum. Jafnframt
íslandsmótið í tennis 1991
dagana 25.-28. júlí og 8. -11. agúst
Skráning fer fram á tennisvöllum Víkings í Fossvogsdal
frá kl. 12-22, daglega. Þeir, sem búa úti á landi, skrái siq
ísíma 91-33050.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 18. júlí.
^_______________________Mótsstjórn____________________
Þegar neyðar-
bjölluna vantar
Hugleiðing um lítið atvik í Perlunni
eftir Ólínu
Þorvarðardóttur
Hégóminn yfirsterkari
skynseminni
SIEMENS
II
Uppbvottavélar í miklu úrvaií!
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verð frá 59.600,- kr.
SMÍTH&NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI28300
í síðustu viku var frá því greint
í blöðum að fjórtán manneskjur
voru hætt komnar þegar lyfta fest-
ist milli hæða í veitingahúsinu Perl-
unni í Öskjuhh'ð. Þetta var fyrsta
daginn sem húsið var opið almenn-
ingi, og prúðbúnir gestir streymdu
inn í hið mikla mannvirki til þess
að líta dýrðina augum.
Svo illa vildi til — ef marka má
fjölmiðla — að arkitekt hússins
hafði átt þar leið um skömmu áð-
ur, og rekið augun í nokkuð sem
honum þótti stílbrot á sköpunar-
verki sínu. Nefnilega neyðarbjöllu
við lyftudymar. Skömmu síðar
hafði bjallan verið fjarlægð. Afleið-
ingin varð sú, að fjórtán gestir voru
næstum því kafnaðir inni í lyft-
unni, því þeir gátu ekki gert vart
við sig. Annar neyðarbúnaður var
heldur ekki til staðar; loftræsting
engin — hvorki í lyftunni sjálfri né
lyftugöngunum — og dyrnar þannig
hannaðar að mótorinn þrýsti hurð-
inni kyrfilega að stöfum um leið
og lyftan stöðvaðist á röngum stað.
Fyrir undravert snarræði eins
gestanna sem staddur var í lyft-
unni, fór þó betur en á horfðist.
Maðurinn sem sagður er rammur
að afli, neytti allrar orku sinnar og
örvæntingar til þess að þvinga
sundur lyftudyrnar þegar allar
bjargir virtust bannaðar. Af fréttum
má ráða að ekki hafi mátt tæpara
standa með björgunina því súrefn-
isskortur var tilfinnanlegur orðinn.
Af einhveijum ástæðum lét þessi
frétt ekki mikið yfir sér í fjölmiðlum
— svo óhugguleg sem hún annars
er. En til allrar hamingju hafði hún
\ góðan endi — og af henni má margt
læra. Til dæmis það, að lífsviljinn
getur miklu til leiðar komið þegar
bráða hættu ber að höndum. Einnig
hitt að skelfilegustu slysin verða
einmitt vegna keðjuverkandi yfir-
sjóna og vanhugsunar.
í þessu tilfelli verður ekki betur
séð en að fegurðarsjónarmið hafi
vegið þyngra en öryggiskrafa gagn-
vart lifandi fólki. Maður hlýtur því
að spyija sig, hvernig það gat gerst
að þeir sem unnu að frágangi húss-
ins, létu að sér hvarfla að fjarlægja
lífsnauðsynlegan öryggisbúnað?
Því miður virðist það vera svo,
að sú blinda, sem þarna hafði næst-
um valdið skelfilegu slysi, eigi sér
stað víðar en í skrauthýsinu í Öskju-
hlíð. Það er víðar en þar sem „neyð-
arbjöllur" hafa verið teknar niður
í yfirfærðum skilningi — og önnur
sjónarmið látin ráða gjörðum
manna. í þessu tilfelli var bjallan
e.t.v. ekki nógu falleg fyrir augað
— en stundum er engu líkara en
„bjöllurnar" séu aftengdar vegna
þess að ómurinn glymur óþægilega
í eyrum.
Þannig er það t.a.m. í öldrunar-
málum Reykvíkinga, þar sem yfir-
völd þverskallast við að grípa til
raunhæfra úrræða til að leysa
vanda mörjghundruð lasburða ein-
staklinga. I stað þess að veija fjár-
magninu í að veita þeim úrræði sem
nú þurfa að bíða í þijú ár og jafn-
var bankastjórn og formanni
bankaráðs falið að gera athuga-
semdir við greinar (sic!) Halldórs
Halldórssonar í Morgunblaðinu um
Hafskipsmálið .. .“
Hér er verið að vísa til greinar,
sem ég ritaði í Morgunblaðið, þar
sem ég staðhæfði, að skuldir Haf-
skips við Útvegsbankann umfram
eignir væru um 160 milljónir
króna.
Á sama fundi lágu þessar upp-
lýsingar fyrir framan bankastjórn-
ina: Heildar skuldbindingar Haf-
skips kr. 637,9 millj., tryggingar
Útvegsbankans kr. 592,6 millj.
Og nokkru síðar segir Ólafur:
„Var ákveðið í samráði við Seðla-
banka íslands að skoða trygging-
armál betur, þegar sýnt var að
skuldir fyrirtækisins voru umfram
eignir, þrátt fyrir aukið hlut-
afé...“
Þrátt fyrir, að þessar upplýsing-
ar lægju fyrir framan bankastjór-
ana á sama fundi og þeim var
falið að svara staðhæfíngu minni
um að bankinn hefði ekki nægar
tryggingar fyrir skuldum Hafskips
lýstu þeir því samt yfír í Morgun-
blaðinu, að staðhæfing mín væri
„úr lausu lofti gripin". Síðar kom
svo i ljós, að talan 160 milljónir
var kórrétt miðað við hagstæðustu
forsendur.
í plaggi Ólafs Helgasonar segir
nokkru síðar: „17. júlí var fundur
með þeim Ragnari og Björgólfí
(sic!) og lá þá fyrir milliuppgjör
endurskoðanda fyrir tímabilið
1.1.-30.4 (1985, innsk. HH). Sam-
kvæmt því varð tapið 75,7 millj.
króna en samkvæmt áætlun átti
hagnaður þessara fjögurra mán-
aða að nema 3,5 millj. króna. Frá-
vik voru mest í áætlun á gjöldum
vegna T/A siglinganna (Atlants-
hafssiglinganna, innsk. HH) eða
um 70,8 millj. króna...
Sýnt þótti að útilokað væri að
taka frekari áhættu og ákvörðun
tekin að hætta rekstrí og selja
fyrírtækið..."
vel lengur eftir hjúkrunarrými, er
milljörðum ausið í byggingar á borð
við Perluna og ráðhúsið. Þegar yfír
lýkur munu u.þ.b. 5 milljarðar hafa
farið í þessar tvær húsbyggingar.
Á þessu ári fer meira fjármagn
í húsin tvö en til framkvæmda við
alla skóla, dagvistarheimili og heil-
brigðisstofnanir. Um 780 milljónir
fara á þessu ári til fyrmefndra vel-
ferðarframkvæmda, en á sama tíma
fara a.m.k. 1.100 milljónir til fram-
kvæmda við ráðhús og Perlu. Það
sem af er þessu ári hefur Perlan
farið a.m.k. 150 milljónir króna
fram úr áætlun, en það er álíka
upphæð og ráðhúsið tók til sín auk-
alega á síðasta ári. Fyrir andvirði
tveggja bílastæða í ráðhúskjallar-
anum mætti byggja íbúð fyrir fatl-
aðan einstakling. Fyrir andvirði
ráðhússins hefði mátt byggja 63
leikskóla, svo dæmi sé tekið. Þann-
ig eru mannlegar þarfír látnar lúta
í lægra haldi fyrir ytri táknum vel-
ferðar, og hégóma þeirra sem
stjórna þessari borg.
Lærum af sögunni
Andstöðuöflunum í borgarstjórn
Reykjavíkur — Nýjum vettvangi,
Alþýðubandalagi, Framsóknar-
flokki og Kvennalista — hefur
stundum verið legið á hálsi fyrir
að einblína um of á þessar tvær
húsbyggingar og því jafnvel haldið
fram að andstaðan kæmist í mál-
efnaþurrð þegar ráðhúsi og Perlu
verði ekki lengur til að dreifa. En
málið er ekki svo einfalt. Á bak við
þessar tvær byggingar liggur allt
önnur saga sem allt of fáir rýna í.
Það er saga um skerta sýn á al-
mennar þarfir í borginni. Sagan um
blinda stjómandánn og neyðarbjöll-
una sem var tekin niður.
Þá sögu hafa fulltrúar andstöð-
unnar í borgarstjóm lesið með vax-
andi skelfingu æði lengi. Og við
höfum spurt okkur: Hvenær opnast
augu stjórnenda og almennings fyr-
ir því hvert stefnir? Hvenær verður
komið hér á öflugri dagvistarþjón-
ustu sem mætir þörfum ungs fólks
sem er að berjast í húsnæðiskaup-
um og framfærslu fjölskyldu sinn-