Morgunblaðið - 04.07.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1991
21
Menntaskóli Francois Truffaut teiknaður af Högnu Sigurðardóttur.
Islendingur þátttakandi í
franskri arkitektasýningn
BYGGING teiknuð af íslenskum arkitekt, Högnu Sigurðardóttur,
er hluti af sýningu sem franska Arkitektafélagið opnaði í París
20. júní sl. A þessari sýningu eru sýndar myndir og teikningar
af menntaskólabyggingum sem hafa á undanförnum árum verið
reistar í París og víðar um Frakkland.
Högna Sigurðardóttir teiknaði
menntaskóla í borginni Eviy
ásamt þremur öðrum arkitektum,
André Crespel, Jean-Pierre
Humbaire og Bernard Ropa.
Menntaskólinn heitir Menntaskóli
Francois Truffaut og er hann einn
af þeim menntaskólum sem sýndir
eru á sýningu franska Arkitekta-
félagsins. Auk þess að vera skóli
á bygginginn að vera menning-
armiðstöð.
Menntaskóli Francois Truffaut
er hluti af mikilli uppbyggingu í
franska skólakerfinu en sem dæmi
má nefna að í Parísarumdæmi einu
var hafist handa um byggingu 66
nýrra menntaskóla árið 1986 og
á að ljúka við þá í árslok 1992.
Alþjóðasamvmna í um-
hverfismálum eykst
Undirbúningur hafinn fyrir ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna á næsta ári
EIÐUR Guðnason umhverfis-
ráðherra segir að alþjóðasam-
starf í umhverfismálum, jafnt í
mengunarvörnum og hreinsun
umhverfisins, verði stöðugt
mikilvægara. „Mengun í sjó og
lofti virðir engin landamæri“,
sagði ráðherrann á blaðamanna-
fundi á þriðjudaginn.
Ráðherra sagði á fundinum að
mikið af þeirri mengun sem hér-
lendis yrði vart væri komin annars
staðar frá og þess vegna væri
mikilvægt að íslendingar tækju
eftir mætti þátt í alþjóðlegu sam-
starfi um umhverfisvernd .
Á fundinum var rifjað upp þegar
umhverfisráðherrar Norðurland-
anna auk umhverfisráðherra
Bandaríkjanna, Kanada og Sov-
étríkjanna undirrituðu yfirlýsingu
um verndun umhverfis á norður-
slóðum í Rovaniemi í Finnlandi um
miðjan júní. Einnig var sagt frá
fundi umhverfisráðherra Evrópu-
ríkja, Bandaríkjanna, Kanada og
Japan í Prag í Tékkóslóvakíu dag-
ana 21. -23. júní. Ekki var gerður
bindandi samningur á þeim fundi
en ráðherrarnir komu sér saman
um ákveðin atriði, svo sem gerð
ítarlegrar skýrslu um umhverfis-
mál í Evrópu og gerð evrópskrar
umhverfisáætlunar.
Ráðherra gat þess sérstaklega
að Václav Havel forseti Tékkósló-
vakíu hefði ávarpað ráðstefnuna
og talað tæpitungulaust um hina
skelfilegu mengun í landi sínu. Þá
taldi ráðherra það merki um við-
Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra segir frá alþjóðlegri sam-
vinnu um umhverfismál.
horfsbreytingar í stjórnmálum í
álfunni austanverðri að fulltrúar
Eystrasaltsríkjanna hefðu setið
ráðstefnuna þjóðmerktir við hlið
Sovétríkjanna.
Um alþjóðasamstarf á næstunni
sagði Eiður að í júní á næsta ári
yrði haldin heimsráðstefna um
umhverfi og þróun. Ráðstefnan
verður 1 vegum Sameinuðu þjóð-
anna og fer fram í Rio de Janeiro
í Brasilíu. Skipaður hefur verið
sérstakur vinnuhópur til þess að
vinna áð undirbúningi ráðstefn-
unnar fyrir íslands hönd.
ORUGGUR
& AFLMIKILL MEÐ ÖRYGGISPÚÐA í STÝRINU
í Chevrolet Corsica LT fer saman styrkur,
öryggi og hagstœtt verð. Þessi rúmgóði
fjögurra dyra lúxusvagn sameinar kosti
fjölskyldubíls og sportbíls.
Hann er aflmikill, innrétting vönduð og
farþegarýmið er sérsfaklega styrkf.
‘Nýskráning. skráningarmerki og tyðvörn eru ekki innifalin
í verðinu.
Auk þess er Chevrolet Corsica LT útbúinn
með ötyggispúða í stýrinu, sem blœs
út við högg og veitir bílstjóranum vernd.
Hann er sjálfskiptur, framhjóladrifinn,
hljóðlátur og verðið er ótrúlega hag-
stœtt fyrir alvöru amerískan fólksbíl.
kr. 1.480.000 staðgr.*
i