Morgunblaðið - 04.07.1991, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JULÍ 1991
35
Þorbjörg S. Sigur-
bergsdóttir - Minning
Fædd 18. apríl 1916
Dáin 27. júní 1991
Þegar við nú minnumst Þor-
bjargar Sigríðar, sem vinir hennar
í íslendingafélaginu í Þrándheimi
í Noregi á stytjaldarárunum, aldrei
kölluðu annað en Siggu, þá minn-
umst við einnig eiginmanns henn-
ar, Gunnars Ólafssonar, seinna
skipulagsstjóra Reykjavíkurborg-
ar, en hann lést fyrir mörgum
árum. Þessi hjón voru styrkar stoð-
ir í litla íslendingafélaginu okkar.
Allar góðar minningar frá þeim
árum og seinni samverustundum
heima á Fróni, eru einnig tengdar
þeim.
Þessi litli hópur tengdist vináttu-
böndum, og hélt uppi merki ís-
lands, þó í litlu væri. Við gátum
auðvitað ekki látið mikið að okkur
kveða, en það er með ólíkindum,
hvað hægt er að mynda trausta
taug, þegar seiglu er beitt, og trú-
in á takmarkið er óhagganlegt.
Við komumst að lokum öll heim
ásamt þeim ástvinum, sem tengst
höfðu mörgum okkar á þessum
árum.
Enginn í hópnum var glaðari en
Sigga, það ljómaði af henni, og
hún söng svo að allir hlutu að hríf-
ast með. íslendingafundimir voru
ávallt hátíð í öllum ömurleikanum.
Það var sól á bak við sortann, og
svo var það í lífi okkar allra.
í Noregi höfðu þau hjón eignast
tvær dætur, Ingibjörgu og Þór-
unni. Eftir heimkomuna til Islands
fæddist þeim sonurinn, Gunnar
Ólafur. Gæfan brosti við þeim —
fagurt heimili — yndisleg börn.
En þá dró ský fyrir sólu, veikindi
hennar fóru að gera vart við sig.
Þau ágerðust með hveiju ári.
Gunnar lést snögglega, það var
mikið áfall. Hún varð iðulega að
dvelja á sjúkrahúsi, liðagigtin var
orðin uggvænleg. Svona liðu árin,
sonuriiin óhraustur og hún sjálf
barðist við erfiðleikana á ýmsum
sviðum.
Fyrir tæpum tveim árum lést
sonur hennar, þá lá hún á sjúkra-
húsi.
En bjartsýni hinnar góðu og
glöðu Siggu reyndi samt að skína
í gegnum sortann. Þegar hún var
spurð, hvernig henni liði, svaraði
hún svo oft á þann veg: „Þetta fer
nú að koma — það hlýtur að fara
að batna“. Það skiptust á skin og
skúrir, hún var svo oft sárþjáð.
Hún hafði fengið svo marga harða
skelli í þessu lífi, að það mætti
ætla, að ef nokkur manneskja ætti
það skilið að vakna upp til nýrrar
og betri tilveru á öðru tilverustigi,
þá væri það hún.
Hún verður örugglega umvafin
birtu, hlýju og kærleika og verður
aftur hin glaða, góða syngjandi
Sigga, eins og vinirnir muna hana
svo vel á góðu, en erfiðu árunum,
þegar manni fannst vera hægt að
sigra heiminn með einu brosi.
Við þökkum henni samveru-
stundimar, samgleðjumst henni
því nú er hún fijáls úr viðjum sjúk-
dóma og þrauta. Hún er komin
heim til föðurhúsanna.
Ástvinum öllum vottum við inni-
lega samúð, biðjum þeim öllum
blessunar í nútíð og framtíð.
Þakkir og kærar kveðjur frá vin-
unum í íslendingafélagi styijaldar-
áranna í Noregi, sem einnig héldu
hópinn eftir heimkomuna til ís-
lands.
Þar sem góðir menn fara,
þar eru Guðs vegir.
(Bj.Bj)
Vinir
Sólveig Sigurðar-
dóttir — Kveðjuorð
Hin mæta morgunstundin •
hún minnir fyrst á þig
sem væran veittir blundinn
og vörð hélzt kringum mig.
Hvað er ég, Guð minn, þess, að þér
svo þóknist enn að líkna mér?
Þá skal ég óttast eigi,
þinn engill fylgir mér,
og þótt i dag ég deyi,
þá djörfung samt ég ber
til þín, ó Guð, að gull í mund
mér geymi þessi morgunstund.
(Sb. 1886 - Bjöm Halldórsson)
Okkur systkinin langar til þess
að minnast vinar og nágranna.
Kynni okkar hófust fyrir 23 árum
þegar við fluttum á Barðaströndina
og hefur sú vinátta haldist óslitin
síðan og styrkst með hveiju ári sem
hefur liðið.
Þegar við minnumst æskuár-
anna þá kemur það í huga okkar
að alltaf vorum við jafn velkomin
á Barðaströnd 3 og erum enn.
Mættum við aldrei öðru en hlýju
og góðum straumum frá Sólveigu
og fjölskyldu. Sólveig var ákaflega
hlýr og sterkur persónuleiki, list-
ræn, listelsk og smekkleg kona
enda ber heimili þeirra hjóna það
með sér. Hún var mikil málamann-
eskja sem hún nýtti sér sem þýð-
andi og fékk góða dóma fyrir. Það
sem hún tók sér fyrir hendur gerði
hún vel og af mikilli kostgæfni.
Ekki er hægt að komast hjá því
að minnast á Selland, unaðsreit
fjölskyldunnar í Fnjóskadalnum,
þar sem foreldrar Sólveigar hófu
brautryðjendastarf í skógrækt.
Margt og mikið höfðum við heyrt
í gegnum tíðina talað um Selland.
Yfir vetrarmánuðina voru rifjaðar
upp endalausar sögur úr Sellandi
og vorum við systkinin alltaf jafn
heilluð af sögum Sólveigar og fyöl-
skyldu. Við komumst að því að
þeirra orð voru hveiju orði sannari
þegar við svo sjálf komum í Sel-
land.
Sólveig var gift Finnboga Gísla-
syni og eignuðust þau þijú börn,
Krístínu, Sigurð og Herdísi.
Samgangur og samband milli
heimila okkar hefur ætíð verið
mikið og gott. Hafa börn þeirra
verið okkar bestu vinir frá æsku
enda var Sólveig kölluð amma Dídí
af börnum okkar. Börn okkar litu
upp til ömmu Dídí, fannst hún allt-
af svo fín og flott enda gerði hún
börnum okkar jafn hátt undir höfði
og okkur. Börnunum fínnst erfitt
að skilja af hveiju óskasteinninn
hennar gat ekki hjálpað henni að
sigrast á veikindunum. En svona
er lífið, við heilsumst og kveðjumst.
Síðustu mánuðir hafa verið erf-
iðir en alltaf var Sólveig jákvæð
og bar höfuðið hátt fram á síðustu
stundu. Hafa eiginmaður og böm
hennar sýnt það og sannað í þess-
um erfíðu veikindum að samheldni
er mikil og er það mikill styrkur.
Sorgin er sár, erfið og þung.
Finnst okkur við vera vanmáttug
gagnvart henni en þá er gott að
hafa trú og leita í trúna þvi hún
gefur okkur styrk, en minningin
um Sólveigu lifir og þökkum við
henni samfylgdina.
Elsku Finnbogi, Kristín, Sigurð-
ur og Herdís, góður Guð gefi ykk-
ur styrk á þessum erfíðu stundum
að fylgja góðri eiginkonu, móður
og vini.
Magnús, Bryiy'a og Ása Krist-
ín
GEVALIA
r
SNJOBRÆÐSLA
REYKIALUNDUR
líjSl
DUGGUVOGI 2 SÍMI 686334
Nú ó okkar dögum eru lœknavíslndin
farin að viðurkenna hina
verðmœtu eiginleika jurtanna
til að grœða og vinna gegn öldrun.
Afbragðs sogstykki rtá til ryksins, hvar sem er
NILFISK er vönduð og tæknilega ósvikin vara, löngu
landsþekkt fyrir frábæra eiginleika og dæmalausa endingu.
Njóttu 3ja ára ábyrgðar 09 fullkominnar
varahluta-og viögerðarþjonustu okkar.
Verðið kemur þér þægiiega á óvart, því NILFISK
kostar aöeins frá kr. 20.450,- (19.420,- stgr.).
^onix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420
fNILFISKl
STERKA RYKSUGAN
Öflugur mótor með
dæmalausa endingu.
10 lítra poki og
frábær ryksíun.
Kónísk slanga,
létt og lipur.
Stillanlegt sogafl
á þægilegan hátt.