Morgunblaðið - 04.07.1991, Side 42
42
UJ—
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1991
Kaupmannahöfn
KR. 17.400
I Flogið alla miðvikudaga og föstudaga.
Frjálst val um hótel, bílaleigur og
framhaldsferðir.
= FUJCFERÐIR
= SGLRRFLUG
Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331
^ÖII^verS^eru^taftgreiMjverCMTiiOaOjriðjjen^^JBbJlugvallagjöldojjjorta^^
Hugaðu að
heilsunni
-í hádeginu.
HEILSURETTIR I HADEGINU
L ó * N I * Ð
Reykjavíkurflugvelli, sími 9 1 -2 2 32 2, telefax 2 532 0, telex 3121
Sportblússur
Buxur - skyrtur - peysur
Ný sending
GEKSiP
Elskulegir viðgerðarmenn
Ég get ekki látið hjá líða, að
stinga niður penna og segja frá
nokkru, sem kallast mætti „björtu
hliðarnar" í tilverunni.
Þannig er, að ég þarf lífsnauð-
synlega á bíl að halda atvinnu
minnar vegna. Hann er nokkuð
kominn til ára sinna og hefur aldr-
ei kennt sér neins meins, fyrr en
fyrir u.þ.b. 2 mánuðum, að ég varð
var við torkennileg hljóð á ýmsum
stöðum, stundum fannst mér þau
koma úr vélarrúmi, stundum undir
og aftan í bílnum. Þetta varð til,
að ég fór að kíkja undir bílinn öðru
hvoru, þegar ég kom að honum að
morgni og þar sem ég þurfti að
leggja honum að degi til og tók þá
eftir því, að stórir olíublettir voru
alltaf undir afturhluta bílsin. Brá
mér að sjálfsögðu við þessa sjón
og ákvað ég að gera eitthvað í
málinu, áður en bíllinn gæfi endan-
lega upp öndina.
Daginn eftir átti ég erindi upp á
Ártúnshöfða þar sem nú er bíla-
verkstæðið Fólksbílaland til húsa.
Og ég þangað og lagði bílnum á
bílaplanið, þar sem fyrir voru marg-
ir bílar. Gekk ég nú inn á verkstæð-
ið, sem var yfirfullt af bílum, bæði
á gólfi og á lyftum og menn að
vinnu við þá. Skimaði ég í kringum
mig og sá þá til tveggja manna í
samræðum. Gekk ég til þeirra,
baðst afsökunar, ef ég væri að
ónáða, þar sem ég hafði engin boð
gert á undan mér. Þeir sögðu að
ekkert væri að afsaka, buðu mér
síðan sæti og spurðu hvort bjóða
mætti mér kaffi og síðan hvað þeir
gætu gert fyrir mig. Mér varð í
fyrstu orða vant, enda ekki alltaf
vanur svona elskulegheitum, hóf
síðan lýsingar eftir bestu getu á
krankleika bílsins. Ég var ekki fyrr
búinn að ljúka „ræðunni" en að
þeir báðu mig að aka bílnum inn á
verkstæðið. Þegar inn var komið
voru þeir búnir að losa eina lyftuna
og var mínum bíl síðan lyft upp og
hófst nú löng skoðun og að henni
lokinni löng upptalning á því, sem
gera þyrfti. Bíllinn var síðan hífður
niður og ég spurður hvort ég gæti
komið með hann í býtið morguninn
eftir, sem ég jánkaði um leið og ég
stamaði hve mikið ég ætti að greiða
fyrir „sjúkdómsgreininguna". Þeir
brostu bara sínu blíðasta og eyddu
orðum mínum með því að segja
mér að gleyma ekki að koma á
umsömdum tíma.
I býtið næsta morgun var ég
mættur og sömu elskulegheitin
mættu mér aftur. Tóku þeir síðan
við bíllyklunum og sögðu mér að
koma aftur um fimmleytið þann
sama dag. Á leiðinni í bæinn í stræt-
isvagni sóttu að mér margar hugs-
anir; sækja bílinn kl. 17, það gera
8-9 tímar, allt efni, tæki o.fl. Best
væri að afskrifa væntanlega utan-
för því ég hafði heyrt kunningjana
nefna háar upphæðir eftir dagsdvöl
á verkstæði. Kl. 17 sama dag var
ég mættur á verkstæðið og var þá
bíllinn tilbúinn. Þegar ég fékk
reikninginn í hendur, hélt ég í
fyrstu, að mistök hefðu átt sér stað
og spurði hvort allt hefði verið gert,
sem talað var um og sögðu þeir svo
vera. Ók ég síðan út í sumarið og
sólskinið með bros á vör, með mik-
illi eftirvæntingu um utanlandför,
sem ákveðin hafði verið með löng-
um fyrirvara. Að síðustu vil ég bera
þá ósk til allra bíleigenda, að þess-
ir heiðursmenn haldi áfram, og þá
ekki bara viðgerðir á einni bílteg-
und, heldur öllum.
Bíleigandi
Þú svalar lestrait>örf dagsins
á síðum Moggans! ^
Ný þjónusta:
BLÓMAiMAN
Simi 91- 689070 Alki fimmAudaga kL17 - 21.
Hinn velþekkti garðyrkjumeistari,
Hafsteinn Hafliðason verður þá við
símann í Blómavali. Hann ræðir við
alla sem vilja leita ráða um hvaðeina
sem lýtur að garðyrkju og blómarækt,
úti sem inni.
Hafið samband við Blómalínuna, vanti
svör við spumingum t.d. um plöntuval,
jarðveg, áburðargjöf, hvað sem er.
Síminn er 91-689 070. Nýtið ykkur
þessa nýju þjónustu Blómavals.