Morgunblaðið - 17.09.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
35
Þýski markaðurinn bjargaði
evrópsku bílaframleiðslunni
Salan verður líklega svipuð og í fyrra vegna mikillar eftirspurnar
í Austur-Þýskalandi
FYRIR rúmlega hálfu ári voru allir sérfræðingar í bílaiðnaðinum
sammála um, að þetta ár myndi einkennast af miklum samdrætti á
Evrópumarkaði og margir spáðu því, að salan minnkaði um eina
milljón bíla. Reyndin er hins vegar sú, að líklega verður salan svip-
uð og í fyrra eða um 13,2 milljónir bíla. Er ástæðan aðeins ein, hinn
óvænti efnahagsþróttur í sameinuðu Þýskalandi. Er nú búist við, að
salan verði álíka mikil á næsta ári, minni í Þýskalandi en nokkru
meiri á öðrum mörkuðum, en taki síðan kipp og komist í nýjar hæðir
á árinu 1993.
Sérfræðingar segja, að söluaukn-
ingin í Þýskalandi hafi verið með
ólíkindum en án hennar hefði salan
á Evrópumarkaðnum dregist saman
um 10%. Það er ekki síst eftirspurn-
in í Austur-Þýskalandi, sem hefur
komið á óvart.
„Við sameininguna var austur-
þýskt efnahagslíf ein rjúkandi rúst
og atvinnuleysið í landshlutanum
er enn mikið. Samt er eftirspurnin
slík, að ætla mætti, að slagurinn
stæði um síðasta bílinn," segir Pet-
er Schmidt, markaðssérfræðingur
Automotive Industry Data.
Flestir bendir þó til, að þýski
markaðurinn sé kominn að því að
mettast og gera margir ráð fyrir,
að salan á næsta ári verði 9,5-10%
minni en nú. Valda því meðal ann-
ars fyrirhugaðar skattahækkanir
og einnig verður afnuminn skattaf-
slátturinn, sem fylgdi því að kaupa
bíl með hreinsibúnaði. Er hann ekki
lengur undantekning, heldur meg-
inreglan í evrópskri bílaframleiðslu.
Á móti samdrættinum í Þýska-
landi sjá menn fram á meiri eða
minni aukningu í Frakklandi, Spáni
og í Bretlandi.
Metárið í evrópskri bílasölu var
1989, 13,4 milljónir bíla, og það er
því ekki hægt að tala um miklar
sveiflur síðan, að minnsta kosti
ekki í samanburði við Bandaríkja-
markað. Þar hefur salan verið að
minnka frá 1988 þegar hún komst
í 10,59 milljónir og spár fyrir þetta
ár hljóða upp á 8,75 millj. Nokkurr-
ar stöðnunar gætir einnig á Japans-
markaði en búist er við, að þar selj-
ist 4,95 millj. bíla í ár á móti 4,4
1989.
Volkswagen í forystu
Frá 1986 hefur Evrópa verið
stærsti bílamarkaður í heimi og það
eru Volkswagen-verksmiðjurnar
þýsku, sem þar hafa forystuna með
tæplega 17%. Helsti keppinauturinn
er Fiat en fyrirtækið á þó í vaxandi
samkeppni um annað sætið við
Ford Motor Co. og hefur misst
nokkurn markað í sjálfu heimaland-
inu, Ítalíu.
Á bifreiðasýningunni í Frankfurt,
sem stendur til 23. þessa mánaðar,
tefla VW og General Motors (Opel
og Vauxhall) fram nýjum gerðum,
sem eru beinlínis settar til höfuðs
Fiat. Er þar um að ræða þriðju
útgáfuna af Golfinum frá VW og
Opel og Vauxhall sýna nýjan Astra.
Litlir fjölskyldubílar á borð við Ford
Escort, Fiat Tipo, Renault 19 og
Citroen ZX eru nú þriðjungur söl-
unnar í Evrópu.
Af öðrum nýjum bílum á sýning-
unni má nefna nýja 106-módelið frá
Peugeot og nýjan Civic frá Honda
en þar er um að ræða nýja hönnun
og nýja vél, sem er sögð stefnu-
markandi hvað varða nýja staðalinn
fyrir eldsneytiseyðslu. Þá er Mazda
einnig.með nýjan bíl fyrir Evrópu-
markaðinn.
Hvafta kröfur
gerir þú til
nýrrar
þvottavélar ?
Væntanlega þær, aö hún þvoi, skoli og vindi vel, en sé jafnframt sparneytin
á orku, vatn og sápu. Aö hún sé auöveld í notkun, hljóölát og falleg.
Síöast en ekki síst, aö hún endist vel án sífelldra bilana, og aö varahluta- og
viögeröaþjónusta seljandans sé góö.
Séu þetta kröfurnar, líttu þá nánar á ASKO hjá Fönix. ASKO stenst þær allar
og meira til,því þaö fást ekki vandaöari né sparneytnari vélar. Og
þjonusta Fönix er fyrsta flokks, traust og lipur.
Veröiö svíkur engan, því nú um sinn bjóöum viö ASKO
þvottavélarnar, bæöi framhlaönar og topphlaönar, á sérstöku
kynningarverði:
ASK010003 framhl. 1000 sn.vinding KR. 71.500 (67.920 stgr.)
ASKO 11003 framhl. 900/1300 snún. KR. 79.900 (75.900 stgr.)
ASKO 12003 framhl. 900/1300 snún. KR. 86.900 (82.550 stgr.)
ASKO 20003 framhl. 600-1500 snún. KR. 105.200 (99.940 stgr.)
ASK016003 topphl. 900/1300 snún. KR. 78.900 (74.950 stgr.)
Góðir greiðsluskilmálar: 5% staðgreiðsluafsláttur (sjá ab ofan) og 5% ab auki séu keypt
2 stór tæki samtímis (magnafsláttur). VISA, EURO og SAMKORT rabgreibslur til allt ab
12mán. ,án útborgunar.
ÞVOTTAVÉLAR 6 GERÐIR TAUÞURRKARAR 8 GERÐIR
UPPÞVOTTAVELAR 5 GERÐIR
V.
Æanix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420
J
Rafbílar
Merkur áfangi hjá
Nissan ísmíði rafbíla
Nissan-bílaverksmiðjurnar japönsku hafa smíðað rafbíl, sem hefur
það helst til ágætis sér, að rafhlöðurnar má endurhlaða á 15 mínút-
um. Er það miklu styttri tími en þurft hefur hingað til.
FEV-bíllinn frá Nissan er enn á
tilraunastigi en^á raflileðslunni er
hægt að aka honum 160 km vega-
lengd og hámarkshraðinn er 70 km.
Er öll hönnun bílsins ólík því, sem
tíðkast hefur í rafbílum hingað til,
og sjálfar rafhlöðumar vega ekki
nema 200 kíló. Raunar er ekki gert
ráð fyrir, að FEV-bíllinn verði sett-
ur á markað, heldur er litið á hann
sem mikilvægan áfanga að mark-
inu.
Nissan er einnig að vinna að
öðrum rafbíl, .sem byggður er á
Cedric-gerðinni, fernra dyra, og á
hann að vera tilbúinn á næsta ári.
Þá ætla stjórnvöld í Japan að hefja
kaup á rafbílum fyrir opinberar
stofnanir og ráðuneyti. Þá má geta
þess, að Nissan og fleiri japönsk
fyrirtæki eru þegar farin að hanna
dreifingar- og þjónustunet fyrir raf-
bílá én þáð Verðúr að verá fyrir
hendi þegar rafbílabyltingin hefst
fyrir alvöru.
Það, sem rekið hefur á eftir Niss-
an og fleiri fyrirtækjum, er löggjöf,
sem gengur í gildi í Kaliforníu árið
1998 en þá verða að minnsta kosti
2% af sölu helstu bílaverksmiðjanna
að vera í bílum, sem engri mengun
valda. Fimm árum síðar eða 2003
fer þetta hlutfall í 10%. Japönsku
bílaverksmiðjurnar selja mikið á
Bandaríkjamarkaði og falla því
undir lögin.
Bandarísku bílasmiðjurnar Gen-
eral Motors ætla að koma fram
með Impact-rafbílinn um miðjan
þennan áratug og hann getur nú
komist 200 km vegalengd og náð
90 km hraða. Það tekur hins vegar
frá tveimur og upp í átta klukku-
stundir að endurhlaða rafgeymana,
allt eftir því hve straumstyrkurinn
ér mikilh-
mrx
Sumir bílar
ero
betri en aðrir
Honda Accord er búinn
miklum góðum kostum.
Kostagripir liggja ekki alltaf á
lausu, en þessi er það og til-
búinn til þinnar þjónustu. Bíll
fyrir alla og við allra hæfi.
Greiðsluskilmálar fyrir alla.
Verðfrákr. 1.474.000,-stgr.
H HONDA
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900