Morgunblaðið - 26.09.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.09.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1991 17 Starfsmenn vilja ræða um kaup á Ríkis- útvarpinu STARFSMENN Ríkisútvarpsins hafa óskað eftir viðræðum við menntamálaráðherra um hugs- anleg kaup á stofnuninni. Kemur sú ósk í kjölfar ummæla ráðherr- ans á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna í sumar, að hann væri n\jög hrifinn af því að gera Ríkisútvarpið að hlutafé- lagi og myndi láta nefnd kanna þann möguleika rækilega. Ólafur Sigurðsson fréttamaður og formaður Starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins sagði við Morgun- blaðið, að þar sem Ríkisútvarpið byggðist á því starfsfólki sem þar starfaði, væri eðlilegt að athuga hvort það sé æskilegt og fram- kvæmanlegt að starfsfólk eignist stóran hlut í stofnuninni eða hana alla. Ýmsar leiðir komi til greina, vilji menn breyta rekstrarformi Rík- isútvarpsins, svo sem að starfsmenn kaupi hlutabréf í hlutafélagi sem ríkið stofni, eða stofni eigið hlutafé- lag sem keypti Ríkisútvarpið af rík- inu. En Ólafur benti á ýmis álitamál kæmu upp, ef rætt væri um að selja stofnun eins og ríkisútvarpið. Þannig væri til dæmis spurning hvort afnotagjöldin fylgdu með í kaupunum, eða þær skyldur sem útvarpið hefði við landsmenn, sér- staklega úti á landsbyggðinni, og sem margar hverjar kostuðu mikið fé. -----*-4-*---- Frigg kaup- ir Brim SÁPUGERÐIN Frigg hf. keypti nýlega vörumerkið Brim og hef- ur hafið framleiðslu á þvotta- dufti og mýkingarefni undir því vörumerki. í fréttatilkynningu frá Frigg seg- ir að Brim þvottaefnin séu vistvæn og Brim sé eina innlenda þvotta- duftið sem innihaldi ekki fosfat. Slík þvottaduft séu að jafnaði dýr- ari en þau sem innihalda fosfat en tekist hafi að lækka verðið nokkuð frá því sem áður var. Það íylgir því sérstök fjölskyldustemmning að taka slátur Nú er slátursala SS byrjuð í Hagkaup-Skeifunni og Fjarðarkaupum í Hafnarfirði Asamt bjartsýni og æðruleysi hefur slátur verið helsti lífgjafi íslensku þjóðarinnar í baráttu hennar á liðnum öldum við máttarvöld þessa heims og annars. Slátur er sérstaklega næringar og fjörefnarík fæða og hollustubylting síðustu ára hefur lyft því til vegs og virðingar á nýjan leik. SS hefur nú opnað slátursölu á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, í Fjarðar- kaupum í Hafnarfirði og í Hagkaup Skeifunni. Þar er til sölu nýtt slátur og allt til sláturgerðar svo sem rófur, kartöflur, rúgmjöl, haframjöl, rúsínur, saumagarn, nálar og frystipokar. Slátursala 4^ í einu slátri eru: Sviðinn og sagaður haus, lifur, hjarta, tvö nýru, hálsæðar, þind, hreinsuð vömb og keppur, lkg mör og 750gr blóð. í slátrið þarf síðan l,5kg af mjöli, sem gefur af sér 5-6 stóra sláturkeppi. Á ódýr- ari fæðu er tæpast kostur. í kaupbæti færð þú svo ítar- legan leiðbeiningarpésa um sláturgerð. OPNUNARTIMI SLÁTURSÖLU SS FJARÐARKAUP þriðjud.-fimmtud. 14-17 föstudaga 14-18.30 Sími slátursölu: 5 35 00 HAGKAUP þriðjud.-fimmtud. 14-18.30 föstudaga 14-19.30 laugardaga 10-16 Sími slátursölu: 68 65 66 Gon F0LK / SIA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.