Morgunblaðið - 26.09.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.09.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1991 31 Bíóborgin sýnir mynd- ina „I sálarfjötrum“ BÍÓBORGIN sýnir myndina í sálarfjötrum. Með aðalhlutverk fara Tim Robbins og Elizabeth Pena. Leikstjóri er Adrian Lyne. Jakob Singer kemur heim úr stríðinu í Víetnam brotinn maður. Hann er engan veginn laus við ógn- ir styijaldarinnar því að honum finnst að að sér sæki djöflar sem komi jafnvel út úr veggjunum og ofsæki hann með orgum og ógn- andi látæði. Hann hefur grun um að honum og félögum hans hafi verið gefín ofskynjunarlyf og þeir hafi ekki beðið þess bætur. Hann og sumir félaga hans ákveða að stefna stjórnvöldum til þess að fá fram hið sanna í málinu, og segir hann að málið sé flókið og torsótt en ef yfirvöldin reynist sek geri dómstólar þeim jafnan skylt að greiða miklar bætur. En svo fer að ekkert verður úr málinu. Geary hringir nokkrum dögum síðar til Jakobs og segir að félagar hans séu hættir við málið enda sé það von- laust. Þegar Jakob hringir til Ge- orgs félaga síns kveður hann það rétt, að þeir séu hættir við málið. Segir hann að síðustu að Jakob ætti ekki að tala framar við sig. Rétt á eftir er ráðist á Jakob þar sem hann er á gangi og hafa ein- kennisklæddir menn hann á brott með sér og fara með hann í fornfá- legan spítala. Jafnframt hafa þeir í hótunum við hann. Jakbo sleppur þó þaðan aftur með hjálp Louis vin- ar síns sem hafði leitað hann uppi. Arnold Schwartzenegger í hlutverki sínu í myndinni Tortímandinn 2. Stjörnubíó sýnir kvik- myndina Tortímandinn 2 Atriði úr myndinni í sálarfjötrum. Norræna húsið: Vísnatóneikar VÍSNATÓNLEIKAR í fundarsal Norræna hússins verða laugar- daginn 28. september kl. 21.00. Það er þjóðiagasöngkonan Sinikka Langeland sem syngur og leikur á kantele sem er fornt strengjahljóð- færi og er upprunið í Finnlandi. Sin- ikka er frá láglendi Austurdals Nor- egs, fædd í litlu bæjarfélagi í Solor. Móðir hennar er finnsk og ber hún því finnskt nafn. Sinikka er þrítug að aldri. Hún hefur haldið tónleika víða um Norðurlönd. Síðastliðið ár söng hún norskar þjóðvísur um hálfs árs skeið í Epcot-miðstöðinni, sem tengist Disneyiandi í Bandaríkjunum. Gísli Ilelgason kemur einnig fram á tónleikunum og leikur á flautu og mun hann jafnframt kynna söngkon- una og tóniistina. Aðgangur er ókeypis. Kaffistofa Norræna hússins er opin um kvöldið. Laugarásbíó sýn- ir kvikmyndina „Heilla,gripurinn“ LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til sýningar myndina „Heillagripurinn“. Með aðalhlutverk fara John Malkovich og Andie MacDowell. Leikstjóri er Mic- hael Lindsay-Hogg. Jake og Tina eru bandarísk, búa á hóteli í London og lifa hátt af litlu fé. Tina er fyrrverandi fyrirsæta, fordekruð, eyðslusöm og drykkfelld. Jake lifir um efni fram, en ætlar að verða ríkur af kakó-uppskeru í Suð- ur-Ameríku, en af völdum verkfalla eyðileggst uppsker- an. Eina leiðin út úr þessum ógöngum er að selja litla en verðmæta styttu sem fyrri maður Tinu gaf henni, en áður en af því verður hverfur styttan. Tveir af aðalleikurum myndinarinnar „Heillagripurinn", þau John Malkovich og Andie MacDowell. STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýninga myndina Tortímandinn 2 — Dómsdagur. Með aðalhiut- verk fara: Arnold Schwartzen- egger og Linda Hamilton. Leik- stjóri er James Cameron. Árið 1984 reyndi vélmenni úr framtíðinni, tortímandi, að verða Söru Connor, sem þá gekk með frumburð sinn, að bana. Það mis- tókst. Eftir harðvítuga baráttu tókst Söru og verndara hennar að uppræta óvininn. Nú, öllum þessum árum síðar, endurtekur sagan sig. Sonur Söru, John, er nú tíu ára. Enn á ný er vélmenni úr fortíðinni, Athugasemd í GÆR voru lagðar fram í borg- arráði upplýsingar frá undirrit- uðum um framkvæmdakostnað við Ráðhús Reykjavíkur. Að hluta til gefa fréttir fjölmiðla af þessu mjög villandi mynd, vegna þess að aðalatriði fréttar- innar verða gamlar áætlanir en ekki þær nýju upplýsingar sem nú koma fram. Þess vegna er eftirfarandi komið á framfæri: Ráðhúsframkvæmdir á þessu ári ei-u ekki komnar fram úr áætlun. Fjárveiting ársins er 692 millj. kr. og er gert ráð fyrir að frá því verði ekki frávik svo neinu nemi. Áætlun um framreiknaðan heildarkostnað verksins til verk- loka í apríl á næsta ári er nú hins- vegar hækkuð um 5% eða um 150 millj.kr. miðað við meðalverðlag þessa árs. Þetta eru hinar nýju upplýsingar í sjálfu sér leitt að svo skuli vera, en þannig eru horfur í málinu. Verkið verður þá 26% dýr- ara en áætlun sem samþykkt var í febrúar segir til um, en allt frá því í febrúar á þessu ári hefur verið upplýst m.a. í viðtölum við undirritaðan sem birst hafa í fjölm- iðlum að búist sé við 20% frávikum frá þeirri áætlun. Stefán Hermannsson, aðstoðarborgar- verkfræðingur. hinn fullkomni T-1000, gert út til að bana John. En andspyrnuhreyf- ingin ætlar ekki að mæta ógninni mótþróalaust og sendir annað vél- menni John til varnar, Tortímand- ann 2. Hans er að vernda John með öllum ráðum. Upphefst nú hin ægi- legasta barátta á milli T-1000 og Tortímandans 2. T-100,0 ryður öll- um úr vegi sem hefta för hans og hann neytir allra bragða til að koma höggi á John, Söru móður hans og erkióvininn, Tortímandann 2. Dómsdagur nálgast, heimurinn rambar á barmi glötunar og tíminn er á þrotum. ■ SÝNING Sigrúnar Sverris- dóttur, sem nú stendur í Gallerí Borg, hefur verið framiengd til föstudagsins 27. september nk. Aðsókn að sýningunni hefur verið góð, en Sigrún sýnir tíu ofnar myndir og tuttugu einþrykk. Þetta er fyrsta einkasýning Sigrúnar hér- lendis en hún hefur haldið tvær einkasýningar í Svíþjóð og tekið þátt í allmörgum samsýningum þarlendis. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14.00 til 18.00. ■ RÖSKVA, samtök félags- hyggjufólks HI, gengst fyrir tón- leikum á Hótel Borg fimmtudaginn 26. september. Fram koma stór- sveit Júpíters ásamt rokksveitinni Orgli. Tónleikarnir hefjast klukkan 23.00. Miðaverð 500 kr. Vetrarstarf Kórs Há- teigskirkju að hefjast og skemmtu þér með Sex-mönnum fimmtudag 26/9 og sunnudag 29/9 Aldurstakmark 20 ára Snyrtilegur klæðnaður Bra bra nefndin. VETRARSTARF Kórs Háteigs- kirkju er að hefjast. Verður boð- ið upp á fjölbreytt starf í vetur m.a. raddþjálfun, kennslu í tón- heyrn og nótnalestri og flutning- ur á vandaðri kirkjutónlist. Æfingar verða 1-2 sinnum í viku en föst æfing er á miðvikudags- kvöldum kl. 19.30. Söngfólk vantar í allar raddir. Tekið verður á móti nýjum með- limum laugardaginn 28. september kl. 14.00-16.00 og á sunnudag 29. september eftir messu eða kl. 15.30-17.00. Einnig getur fólk snú- ■ EITT stærsta innrömmunar- verkstæði landsins, Innrömmun Siguijóns, hefur nú flutt alla sína starfsemi í nýtt og glæsilegt hús- næði í Fákafeni 11 í Reykjavík. Fyrirtækið hefur veitt fjölþætta þjónustu í innrömmun og spegla- smíði síðastliðinn tuttugu og fjögur ár, og nú eykst starfsemin enn með tilkomu Gallerís, þar sem viðskipta- vinir og aðrir listunnendur geta skoðað og keypt fjölbreytt úrval listaverka. Eigendur eru Sigurjón Kristjánsson og Mattína Sigurð- ardóttir. ’esi Tryggvagata 26, sími629995 Háteigskirkja í Reykjavík. ið sér beint til kórstjórans, Orthulfs Prunners. (Frcttatilkynning) JóhannJE,söngur Alfreð Alfreðsson, trommur Sigurbjörn Úlfarsson, gítar Harry Óskarsson, bassi „HAPPY HOUR/DRAFT" KL. 22-23 KL. 23.30 Hin dularfulla gitarhljómsveit TOLSTOY Aðgangur kr. 500/skólaafsláttur kr. 200 PÚLSINN - forvitnilegur staður! TVMiivmm ogammrífrii m Laugavegi 45 - s. 21255 í kvöid: Þungarokkstónleikar BLEEDIN6 VDLMN0 Föstudagskvöld: írska þjóðlaga- og rokkhljómsveitin oimoio O’LEINY BN0 THE orns Laugardagskvöld: OÓONONNINCM LÖSHESLOHNJIN Sunnudags-, mánudags- og þriðjudagskvöld: OliNMNIO O’LEiRY NND THE BJLN0S 2.-9. október skemmta gítarleikarinn LE0 GILLESFIE OG LÁTBRAGÐS- OG GALDRAMEISTARINN MICKM.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.